Morgunblaðið - 23.06.2005, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 29
ÖÐRU hverju skjóta upp kollinum
umræður um stöðu EES-samningsins
og áhrif hans á íslenskt umhverfi. Fylgj-
endur aðildar okkar að ESB beita því oft
sem rökum fyrir aðild að við verðum
hvort eð er að taka upp allar ESB-
reglur og löggjöf og því farsælla að
ganga alla leið og gerast aðilar að Evr-
ópusambandinu. Þannig erum við talin
geta haft áhrif sem við
höfum ekki með EES-
samningnum. Það er mitt
mat að hagsbætur okkar
af samningnum séu ótví-
ræðar og að við getum
oftast tryggt hagsmuni
okkar innan samningsins
ef við gætum þess að vera
á verði í stóru sem smáu.
EES og
samgöngumálin
Á þeim rúmu sex árum
sem ég hef setið í emb-
ætti samgönguráðherra
hafa margar ákvarðanir verið teknar á
sviði samgöngumála sem beint eða
óbeint má tengja aðild okkar að evr-
ópska efnahagssvæðinu. Á næstu vikum
og mánuðum ætla ég að birta greinar
um þróun mála á hinum ýmsu sviðum
samgönguráðuneytisins í ljósi aðildar
okkar að EES-samningnum og hvort
„boð og bönn“ hafi komið frá Brussel
sem ekki hafi verið möguleiki á að hafa
áhrif á af okkar hálfu. Í hnotskurn má
segja að á þessum sex árum hafi á EES-
verksviði míns ráðuneytis, ef svo má
segja, mestu breytingarnar átt sér stað
á sviði fjarskiptanna, flugsins og örygg-
is- og verndarmála ýmiss konar.
Hertar reglur vegna flugverndar
Á öllum sviðum samgöngukerfisins
hafa sífellt strangari reglur verið settar
á undanförnum árum er lúta að öryggis-
og verndarmálum. Þetta á ekki síst við
um alla umgjörð flugsins. Á síðustu ár-
um hef ég mælt fyrir og fengið sam-
þykktar á Alþingi ýmsar breytingar á
lögum er lúta að öryggis- og verndar-
málum flugsins. Sem dæmi vil ég nefna
hina svokölluðu flugvernd en nú hefur
um nokkurt skeið verið í gildi sérstök
flugverndaráætlun fyrir Ísland og brátt
verða til sérstakar flugverndaráætlanir
fyrir alla helstu flugvelli landsins.
Umsvif flugsins, sem atvinnugreinar
hér á landi, eru mögnuð og hafa vaxið
svo um munar á undraskömmum tíma.
Nú eru hátt í áttatíu þotur skráðar hér á
landi sem sinna starfsemi á vegum ís-
lenskra flugfélaga um víða veröld og
skapa mikil verðmæti og
veltu í íslensku efnahags-
lífi. Af hálfu íslenskra
samgönguyfirvalda er
kappkostað að hafa um-
gjörð flugsins hér á landi
fullkomlega til samræmis
við ýtrustu öryggiskröfur,
sem gerðar eru til al-
þjóðaflugs, en um leið að
veita fluginu sem besta og
liðlegasta þjónustu. Þann-
ig geta stjórnvöld lagt sitt
af mörkum til að styðja,
sem frekast er unnt, við
vöxt og viðgang þessarar
mikilvægu atvinnugreinar.
800 milljónir sparaðar á ári
En um leið og við setjum fluginu
strangar reglur að starfa eftir verður
rödd heilbrigðrar skynsemi jafnframt að
fá að hljóma. Evrópusambandið (ESB)
setti reglugerð um flugvernd seint á
árinu 2002 og brást þá við með mjög
hertum reglum um umgjörð flugsins í
kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkj-
unum 11. september 2001. Samkvæmt
skuldbindingum okkar í EES-
samningnum lá ljóst fyrir að þessa
reglugerð yrði að taka upp í íslenskan
rétt og um leið lá fyrir að strangar regl-
ur yrðu enn strangari og kostnaður
myndi aukast til muna.
Þessi reglugerð er nú framkvæmd til
fulls í millilandaflugi á Íslandi, en frá
upphafi lá ljóst fyrir að framkvæmd
mjög hertra reglna innanlands myndi
kalla á umfangsmiklar og kostnaðar-
samar breytingar á allri umgjörð innan-
landsflugsins. Til að mynda hefði þurft
að taka upp kostnaðarsama skoðun á öll-
um farangri og handfarangri og vopna-
leit og öryggiseftirlit við innritun líkt og
farþegar eiga að venjast í millilanda-
flugi. Því lagði ég ríka áherslu á að leitað
yrði leiða til að tryggja, sem frekast er
unnt, örugga umgjörð innanlandsflugs-
ins með öðrum hætti, og óska eftir
undanþágu fyrir innanlandsflugvellina
frá gildissviði reglugerðarinnar. Svo víð-
tæk undanþága var fjarri því að vera
auðsótt, en með rökföstum málflutningi
féllst framkvæmdastjórn ESB á sjón-
armið okkar og flugvernd í innanlands-
flugi því tryggð á einfaldari og ódýrari
hátt en í millilandafluginu. Flug-
málastjórn gerði lauslega áætlun á
kostnaði er hlytist af fullri upptöku
reglugerðarinnar í innanlandsflugi og er
þar um að ræða u.þ.b. 800 milljónir
króna á ári, sem með þessari einföldu
undanþágu sparast því íslenskum flug-
farþegum og skattgreiðendum. Til sam-
anburðar má nefna að heildarframlög
ríkisins til flugvallakerfisins vegna inn-
anlandsþjónustu á árinu 2005 eru, sam-
kvæmt samgönguáætlun, 4.090 m.kr.
með stofnkostnaði, að teknu tilliti til af-
borgunar lána vegna Reykjavíkur-
flugvallar.
Hér um að ræða eitt dæmi af mörgum
þar sem sá sveigjanleiki, sem við höfum
gagnvart ESB með EES-samningnum,
hefur tryggt okkur í senn sameiginlegan
opinn markað á öllu EES-svæðinu en
um leið, þegar á reynir, er fundin skyn-
samleg lausn – íslenskum skattgreið-
endum og farþegum í fluginu til hags-
bótar.
Evrópusamstarfið,
EES og flugvernd
Sturlu Böðvarsson fjallar
um Evrópumál ’Það er mitt mat að hags-bætur okkar af samn-
ingnum séu ótvíræðar og
að við getum oftast tryggt
hagsmuni okkar innan
samningsins ef við gætum
þess að vera á verði í
stóru sem smáu. ‘
Sturla Böðvarsson
Höfundur er samgönguráðherra.
ÞAÐ stóð í Íslandssögunni hans Jón-
asar frá Hriflu að maður að nafni Garðar
Svavarsson hafi komið til Íslands og
kallað landið Garðarshólma. Og þetta
stendur í Landnámu líka
sem var biblía á undan
biblíunni á mörgum ís-
lenskum heimilum fyrir
hundrað árum og meira.
Þar stendur að maðurinn
hafi verið „sænskur að
ætt“ og hafi farið til Ís-
lands „að tilvísan móður
sinnar framsýnnar“. Síð-
an er ljómi spurninganna
og forvitninnar yfir þess-
ari sögu. Nú veit auðvitað
enginn hvort þetta er satt
eða rétt, en svo mikið er
víst að þessar setningar
sem við lásum seinna í Landnámu hafa
kveikt í okkur öllum: Hvernig var Garð-
ar? Hver var Svavar? Hver var Nátt-
fari? Og hvað um Náttfaravík? Og Jón
Sigurðsson á Ysta-Felli skrifaði heila
skáldsögu um þessi tíðindi sem kannski
urðu í Íslandssögunni fyrir ævalöngu.
Og nú á þessu herrans ári hafa þau
tíðindi gerst að efnt er til sænskrar viku
á Húsavík í heiðursskyni við Garðar
Svavarsson og sænsk-íslensk samskipti
almennt. Það eru landnámsmenn í nú-
tímanum: Hörður og Árni Sigurbjarnar-
synir með fjölskyldum sínum sem
standa fyrir þessum viðburðum í lok
þessa mánaðar. Sænsk-íslenskir dagar
heitir það og eru komnir til þess að vera
eins og það heitir á ekki alltof fallegri nú-
tímaíslensku:; verða semsé árlega héðan
í frá. Það er líka margt að halda upp á í
samskiptum Íslands og Svíþjóðar:
Stofnað hefur verið íslenskt við-
skiptanet í Svíþjóð fyrir þau fyrirtæki
sem annast eða hafa áhuga á íslenskum
viðskiptum í Svíþjóð. Alls eru um 40 fyr-
irtæki á Netinu sem er nú formgert með
stjórn og lögum eins og vera ber.
Sænsku konungshjónin
færðu Íslendingum að
gjöf eina sænska gler-
listasafnið í fyrra.
Íslensk/sænska orða-
bókin er farin af stað sem
verkefni og verður von-
andi ekki stöðvuð úr
þessu. Og sennilega renna
líka af stað eftir sömu
brautarteinum önnur nor-
ræn/íslensk orðabóka-
verkefni.
Íslensk fyrirtæki geys-
ast fram á sænskum
markaði og núorðið er
þeim alls staðar vel tekið í þessu landi.
Efnt hefur verið til fjölmennustu Ís-
landshátíðar nokkru sinni í Svíþjóð með
um 40.000 þátttakendum í miðborg
Stokkhólms.
Sænsk stjórnvöld hafa fallist á að Ís-
lendingar fái að skrá nöfn sín hér eins og
á Íslandi og er þar með lokið áratuga-
þrætu um það efni.
Haldnir eru reglulega einu sinni á ári
embættismannafundir utanríkisráðu-
neyta landanna um öll sameiginleg mál-
efni. Fjórði fundurinn verður í haust.
Hér verður látið staðar numið í upp-
talningunni en lengi mætti enn telja sem
skiptir ekki öllu máli og raunar engu.
Aðalatriðið er það að á milli landanna
ríkir fyrirvaralaus vinátta sem nær til
viðskipta jafnt og menningar og alls þar
á milli. Áhuginn á Íslandi í Svíþjóð hefur
sjaldan verið meiri, það sést í hestum ís-
lenskum, íslenskukennslu og í umsvifum
íslenskra fyrirtækja.
Þegar svona gerist er mörgum það
tamt að spyrja um menn á bak við þessa
þróun. Það er íslenski vaninn. Til að
svara því þyrfti langan lista en hér verða
nefndir tveir landar Garðars Svavars-
sonar auk allra þeirra góðu Íslendinga
sem hafa komið að þessum verkum:
Fyrst Göran Persson forsætisráðherra
Svía sem hefur ævinlega lagt íslenskum
málefnum lið. Þegar hann fór í sumarfrí í
fyrra fór hann auðvitað til Íslands með
konu sinni og dvaldist hér í viku, keyrðu
hringinn og Ísland setti eitt veðurmet á
dag þeim hjónum til heiðurs. Hinn ein-
staklingurinn er Bertil Jobeus sendi-
herra Svía á Íslandi í liðlega þrjú ár. Þar
hefur Ísland átt hauk í horni og það hef-
ur skilað sér með margvíslegum hætti.
Og nú með sænsku vikunni á Húsavík.
Þar er tekið upp úr þeim kartöflugarði
sem hefur verið sett ofan í síðustu árin;
þar bendir allt til góðrar uppskeru og
undirritaður og Guðrún Ágústsdóttir
kona hans eru þakklát fyrir að hafa feng-
ið að vera með í þessari garðyrkju.
Gleðilega sænska daga á Húsavík.
„Að tilvísan móður
sinnar framsýnnar“
Svavar Gestsson skrifar í tilefni
af sænskum dögum á Húsavík 24.
til 26. júní ’Þar er tekið upp úr þeimkartöflugarði sem hefur
verið sett ofan í síðustu
árin; þar bendir allt til
góðrar uppskeru …‘
Svavar Gestsson
Höfundur er sendiherra
Íslands í Svíþjóð.
frá því að opnað var fyrir umferð
um tvöfalda kaflann. Fimm létust
á Reykjanesbrautinni árið 2003,
ekkert slys varð árið 2002, eitt
banaslys varð 2001 og árið 2000
létust sex manns í fjórum bana-
slysum.
Kjartan segir að Reykjanes-
brautin sé sambærileg Vestur-
lands- og Suðurlandsvegi. „Þarna
er þung umferð og hröð. Þess
vegna myndi ég vilja sjá að hafinn
yrði undirbúningur að hinum veg-
unum líka,“ segir hann og bætir
við að það hafi valdið honum von-
brigðum að tvöföldun þessara
vega hafi ekki verið inni í sam-
gönguáætlun, þó einhverjar fram-
kvæmdir séu þar í gangi. „Það er
ekki í mörgum tilvikum sem við
getum sagt með vissu að slysum
muni fækka ef við setjum peninga
í ákveðnar framkvæmdir,“ segir
Kjartan.
Vinir Hellisheiðar og Sjóvá
kynntu á dögunum skýrslu um
tjón á Suðurlandsvegi árin 1990–
2005. Þar kemur meðal annars
fram að árið 2003 hafi heildar-
kostnaður vegna tjóna verið rúm-
ur milljarður, en þá er reiknaður
saman samfélagskostnaður, tjón
tjónvalds og slysa- og munatjón. Á
árunum 1990–2005 er talið að
heildarkostnaður vegna allra
slysa hafi verið um 5 milljarðar
króna.
Hjá Vegagerðinni liggur fyrir
áætlaður kostnaður á tvöföldun
Suðurlandsvegar frá Rauðavatni
að Selfossi. Jónas Snæbjörnsson
segir að sú leið sé um 45 kílómetr-
ar og er kostnaður við tvöföldun
áætlaður um 100 milljónir á hvern
kílómetra. Þar ofan á leggst
kostnaður við að fækka vegamót-
um á leiðinni og gera þau sem eft-
ir eru mislæg og áætlar Vega-
gerðin heildarkostnað við
framkvæmdina því um 6–7 millj-
arða.
Áætlaður kostnaður við tvöföld-
un Vesturlandsvegar liggur ekki
fyrir en Jónas segir að miða megi
við sama kostnað á hvern kíló-
metra og á Suðurlandsveginum.
Frá Reykjavík að Borgarnesi eru
74 kílómetrar en 14 kílómetrar
hafa þegar verið tvöfaldaðir. Þá
standa eftir 60 kílómetrar og ef
ekki er reiknað með tvöföldun
Hvalfjarðaganga og Borgar-
fjarðarbrúar þyrfti að tvöfalda
veginn á um 54 kílómetra kafla.
Miðað við sama kostnað og á
Suðurlandsveginum yrði kostn-
aður við framkvæmdina um 5,5
milljarðar en þá er eftir að taka
með í reikninginn gatnamót sem
þarf að fjarlægja. Kostnaðurinn
færi því hæglega upp í 7 milljarða
fyrir tvöföldun Vesturlandsvegar
og samanlagður kostnaður við
þessar tvær framkvæmdir um 13–
14 milljarðar.
Úthverfi Reykjavíkur?
Tvöföldun Vestur- og Suður-
landsvegar hefur nokkuð verið
rædd í sveitastjórnum Árborgar
og Borgarbyggðar. Þorvaldur
Guðmundsson, formaður bæjar-
ráðs Árborgar, segir framkvæmd-
irnar vera eitt brýnasta verkefni
varðandi þróun þeirra jaðar-
byggða sem eru farnar að gegna
hlutverki úthverfa frá Reykjavík
og að í nýlegri könnun hafi komið í
ljós að 10% íbúa Árborgar vinni á
höfuðborgarsvæðinu. Umferð um
veginn hafi aukist í fyrra og segir
Þorvaldur öryggissjónarmið ekki
síst mæla með því að ráðist verði í
tvöföldun Suðurlandsvegar, þetta
sé fjallvegur sem geti orðið mjög
hættulegur.
Páll S. Brynjarsson, bæjar-
stjóri í Borgarbyggð, tekur í sama
streng og segir tvöföldun Vest-
urlandsvegar brýnt verkefni,
enda hafi umferð undir Hafnar-
fjalli vaxið hratt auk þess sem
þungaflutningar séu komnir upp á
vegina í auknum mæli sem geri
framúrakstur á þessum vegum
erfiðan.
Spurður um sameiginlegt at-
vinnusvæði segir Páll ljóst að með
tilkomu Sundabrautar muni sam-
gangur milli Borgarfjarðar og
höfuðborgarsvæðisins aukast til
muna.
Samband sveitarfélaga á
Vesturlandi hefur ályktað um tvö-
földun Vesturlandsvegar og á að-
alfundi Sambands sunnlenskra
sveitarfélaga í fyrra var samþykkt
ályktun um mikilvægi vegabóta á
Suðurlandsvegi í ljósi aukinnar
umferðar og þungaflutninga og
íbúafjölgunar á svæðinu.
Lagt var til að á næstu fjórum
árum yrði gerður þriggja akreina
vegur á milli Selfoss og Reykja-
víkur með mislægum gatnamót-
um á mótum Suðurlandsvegar og
Þrengslavegar. „Við þá uppbygg-
ingu verði gert ráð fyrir að hægt
verði að fjölga akreinum í fjórar á
næstu 12 árum,“ segir m.a. í álykt-
uninni.
Breytt forgangsröðun
„Stjórnmálamenn þurfa að taka
upp breytt vinnubrögð við for-
gangsröðun vegafjár,“ segir
Kjartan.
Aðspurður hvernig hann vilji
breyta forgangsröð vegafram-
kvæmda hér á landi segir hann að
framkvæmdir sem skila ekki
auknu umferðaröryggi á vegum
verði að færast aftar í röðinni og
nefnir gangagerð í Héðinsfirði
sem dæmi.
„Kjördæmakarpið hefur verið
áberandi að undanförnu. Þegar
samgönguáætlunin var afgreidd
voru kjördæmin að bítast um pen-
ingana. Ég held að í þessum efn-
um þá eigi stjórnmálamenn að
hefja sig upp yfir kjördæmapotið
og ná samstöðu um að hlusta á
fagmennina, hlusta á Vegagerð-
ina, tryggingarfélögin og rann-
sóknarnefnd umferðarslysa og
segja að nú ætlum við að taka út
hættulegustu staðina á þjóðveg-
unum, hvar sem þeir eru,“ segir
Kjartan.
iðs
rð-
t
un
.
ðri
a
r
eg-
-
uns
í
es-
in
að
öld-
sta
að
–3
því
d-
-
.
ns
ur í
f er
n,
ar
i
ndsvegar upp í Borgarnes
mið vegi
dæmapot
arnihelgason@mbl.is
# # # # # # / ! +,,
.!!+ !'
& $
, ' 6 +
( +1 +
, ++
( ? * +
, + (
1*, +
'(