Morgunblaðið - 23.06.2005, Side 32

Morgunblaðið - 23.06.2005, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þorgeir Gests-son læknir fædd- ist á Hæli í Gnúp- verjahreppi í Ár- nessýslu 3. nóvem- ber 1914. Hann andaðist á Landa- kotsspítala í Reykja- vík að morgni 19. júní síðastliðins. For- eldrar hans voru þau Margrét Gísladóttir, húsfreyja og organ- isti, f. 30. sept. 1885, d. 7. júní 1969, og Gestur Einarsson, bóndi og oddviti Gnúpverja, f. 2. júní 1880 sem lést úr spönsku veikinni 23. nóvember 1918. Systkini Þorgeirs eru Gísli, f. 6. maí 1907, d. 4. okt. 1984, safn- vörður á Þjóðminjasafni Íslands, Einar, f. 15. okt. 1908, d. 14. okt. 1984, bóndi á Hæli. Ragnheiður, f. 23. maí 1910, d. 19. ágúst 1912, Steinþór, f. 31. maí 1913, bóndi og alþingismaður, Hjalti, f. 10. júní 1916, fyrrv. framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands, Ragnheiður, f. 7. febrúar 1918, d. 26. júní 1997, húsfreyja á Ásólfs- stöðum í Þjórsárdal. Hinn 23. júní 1945 kvæntist Þor- geir Ásu Guðmundsdóttur, f. 25. júní 1918, húsmæðrakennara frá Harðbak á Melrakkasléttu. Synir þeirra þrír eru: 1) Guðmundur, hjartasérfræðingur og prófessor, f. 14. mars 1946. Kona hans er Bryndís Sigurjónsdóttir aðstoðar- skólameistari, f. 17. mars 1946. menntaskólanemi. d) Þorgerður, f. 21. des. 1993, nemi. e) Eiríkur Ari, f. 7. maí 1996, nemi. Eiríkur Ingv- ar á soninn Guðna Rafn, viðskipta- fræðing, f. 4. apríl 1977, kona hans er Marta Þórðardóttir. Móðir Guðna er Bryndís Guðnadóttir viðskiptafræðingur. Barnabarna- börn Þorgeirs eru orðin sjö. Þorgeir varð stúdent frá MR 1938 og lauk embættisprófi frá Læknadeild Háskóla Íslands árið 1945. Hann gegndi starfi héraðs- læknis í Árneshéraði 1945–46, var kandídat á Landspítalanum 1946–7 og síðan héraðslæknir á Norðfirði 1947–1950. Hann stundaði framhaldsnám í Danmörku, m.a. við Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn á árunum 1950– 51 en tók þá við Húsavíkurhéraði og gegndi því til 1958. Var héraðs- læknir í Hvolshéraði frá 1958– 1965 þegar hann flutti til Reykja- víkur, en þar starfaði hann sem heimilislæknir til 1989.Var því orðinn rúmlega 75 ára þegar hann lét af störfum. Þorgeir var formaður stúdenta- ráðs Háskóla Íslands 1940, í stjórn Læknafélags Íslands 1952–58, í stjórn Læknafélags Reykjavíkur 1966–72, í Heilbrigðisráði Íslands um árabil frá 1977, í siðanefnd Læknafélags Íslands frá 1970– 1985. Hann var heiðursfélagi í Fé- lagi sjálfstætt starfandi heimilis- lækna. Hann stofnaði MA-kvartettinn 1932 ásamt Steinþóri bróður sín- um, Jakobi Hafstein og Jóni frá Ljárskógum. Þorgeir söng 1. ten- ór í MA-kvartettinum, Fóstbræðr- um og fleiri kórum. Útför Þorgeirs verður gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Þeirra börn eru: a) Þorgeir, f. 29. des. 1968, kvikmyndaleik- stjóri, kona hans er Sigrún Hrólfsdóttir. b) Sigurjón Árni, f. 11. mars 1974, verkfræð- ingur, kona hans er María Rán Guðjóns- dóttir. c) Hjalti, f. 18. júní 1976, læknir, kona hans er Katrín Haraldsdóttir. d) Bogi, f. 10. júlí 1981, laganemi, kona hans er Ólafia Ásgeirsdótt- ir. e) Ása Bryndís, f. 22. júlí 1986, menntaskólanemi. 2) Gestur, hjartasérfræðingur og yf- irlæknir, f. 15. júlí 1948. Kona hans er Sólveig Jónsdóttir, f. 24 maí 1949, taugasálfræðingur. Börn þeirra eru: a) Erla Sigríður, f. 24. apríl 1972, verkfræðingur og MBA, maður hennar er Hugi Sæv- arsson. b) Ása Fanney, f. 31. jan 1976, söngkona, maður hennar er Claudius Brodmann. c) Þorgeir, f. 21. júní 1978, læknir, kona hans er Helga Eyjólfsdóttir. d) Jón Gunn- laugur, f. 7. nóv. 1984, flugnemi. 3) Eiríkur Ingvar, augnlæknir, f. 20. mars 1953. Kona hans er Ragn- heiður Guðmundsdóttir, f. 19. sept. 1953, hjúkrunarfræðingur. Börn þeirra eru: a) Ása Margrét, f. 13. nóv. 1981, tannlæknanemi, maður hennar er Tryggvi Sveins- son. b) Ingunn Erla, f. 25. jan. 1984, fyrirsæta og nemi. c) Hrafn- hildur Hekla, f. 7. maí 1988, Við andlát Þorgeirs Gestssonar, tengdaföður míns, hrannast minn- ingarnar upp í hugann. Fyrsta minn- ing mín um hann er frá 17. júní 1966. Við Guðmundur vorum nýstúdentar og hann vildi kynna mig fyrir for- eldrum sínum. Ég var feimin og upp- burðarlítil frammi fyrir þessum virðulega manni en með traustvekj- andi augnaráði og ljúfmennsku tókst honum strax að láta mér líða vel. Þessa sérstöku samskiptahæfileika, sem ég skynjaði strax við fyrstu kynni, átti ég eftir að sannreyna aft- ur og aftur við fjölbreytilegar að- stæður. Með sinni hógværu framkomu tókst honum að láta öllum líða vel í kringum sig. Hann var góður hlust- andi, sýndi fólki áhuga og virðingu, beitti ríkulegri kímnigáfu af smekk- vísi og nærfærni og hafði aldrei þörf fyrir að vera miðpunktur athygli. Þessir mannkostir gerðu það að verkum að sjúklingar hans dáðu hann og þótt nú sé nokkuð langt um liðið síðan hann hætti störfum líður varla sá dagur að ekki verði á vegi manns fólk sem skiptir um tón þegar það heyrir um vensl við Þorgeir Gestsson. Sem fjölskyldumaður ræktaði hann hlutverk sitt með slíkum sóma að seint verður fullþakkað. Við hjón- in bjuggum í Ameríku um árabil en þegar við komum heim með stóra fjölskyldu tóku þau hjón á móti okk- ur opnum örmum og gengu úr rúmi svo unga fjölskyldan hefði það sem best. Þannig var gestsrisnin á þeim bæ. Allar veislurnar sem þau héldu þjöppuðu hópnum saman. Sam- heldni þeirra hjóna var einstök. Þor- geir var barngóður maður og böldn- ustu börnin urðu ljúf sem lömb í fangi afa síns. Hvarvetna var hann unga fólkinu góð fyrirmynd, um- hyggjusamur eiginmaður, góður fað- ir og frábær afi. Þorgeir var landsþekktur söng- maður og í söngnum eins og í allri hans framgöngu kom fram sú fágun og smekkvísi sem honum var í blóð borin. Lífið og starfið hafði kennt honum ákveðið æðruleysi og hann hafði öðl- ast sýn sem gerði það að verkum að hann bar engan kvíðboga fyrir dauð- anum. Hann talaði um þann meðbyr og gæfu sem honum hafði hlotnast að þurfa ekki að horfa á eftir neinum af afkomendum sínum fara yfir móð- una miklu. Þegar litið er yfir farinn veg eru það einstök forréttindi að hafa fengið að njóta samfylgdar Þorgeirs Gests- sonar og þeirrar látlausu en virðu- legu hógværðar, góðvildar og ástúð- ar sem hann auðsýndi þeim sem honum kynntust. Blessuð sé minning hans. Bryndís Sigurjónsdóttir. Elskulegur tengdafaðir minn Þor- geir Gestsson hefur lokið langri veg- ferð. Hann var óvenju miklum mann- kostum búinn, einstakt góðmenni, sem geislaði af velvild og hlýju svo öllum leið vel í návist hans. Hann var hvers manns hugljúfi, jákvæður, glaðlyndur og örlátur á elsku sína. Aldrei heyrði ég hann tala illa um nokkurn mann. Honum var lagið að draga fram sterkar hliðar fólks og hrósa fyrir þær. Hann var ómetan- leg fyrirmynd með framkomu sinni og breytni. Hann var óeigingjarn, hógvær, gjafmildur öðlingur, sem setti fjölskyldu sína framar öllu og sjálfan sig síðast. Hann var einstaklega æðrulaus maður. Ég minnist þess þegar ribb- aldar réðust inn á heimili þeirra Ásu tengdamömmu, skáru fallegu mál- verkin þeirra úr römmunum og stálu öllu verðmætu. Þau hjónin dvöldu þá sér til heilsubótar í Hveragerði. Hringt var í Þorgeir seint að kvöldi og honum tilkynnt um atburðinn. Hann gerði lítið úr ráninu, en þakk- aði guði fyrir að enginn í fjölskyld- unni hefði slasast eða veikst. Þorgeir var mikill listamaður, músíkalskur svo af bar. Hann hélt sinni tæru og fallegu tenórrödd til hins síðasta. Hann var einstaklega tónviss og setti fallegan blæ með röddun í samsöng. Þorgeir hafði líka mikla ánægju af garðinum sínum og ræktaði hann vel. Ég var 18 ára gömul er ég kynnt- ist verðandi tengdaföður mínum. Framganga hans var með þeim hætti að maður öðlaðist strax djúp- stæða virðingu fyrir honum. Hann var glæsimenni, hafði fallega og fyrirmannlega framkomu, var herra- maður og höfðingi. Hann og Ása tengdamóðir mín voru einstök heim að sækja og tóku manni ávallt bros- andi og fagnandi. Þau voru frábærir gestgjafar, sem kunnu að láta gest- um sínum líða vel og mörg veislan endaði með fjöldasöng. Alltaf voru þau hjónin meira en tilbúin að gera manni greiða og gerðu það með þeim hætti að ekkert væri sjálfsagðara. Undir það síðasta sótti hugur Þor- geirs æ oftar austur að Hæli. Heyrði ég hann nýlega segja að hann lang- aði mikið til að skreppa austur og fara með Steina bróður á hestbak. Hann bar velferð Ásu sinnar líka fyr- ir brjósti til hinstu stundar. Þorgeir var gæfumaður í sínu lífi. Hann eignaðist frábæra konu og átti barnaláni að fagna. Hann var farsæll í starfi, vinsæll og virtur af sjúkling- um sínum. Ég er þakklát forsjóninni fyrir að hafa átt Þorgeir að vini og velgjörð- armanni og þakka honum alla þá ást og umhyggju, sem hann hefur ávallt sýnt mér og mínum. Föðurbróðir Þorgeirs og velgjörð- armaður, Eiríkur Einarsson, alþing- ismaður frá Hæli, orti þannig til Þor- geirs, er hann var drengur: Það mun fleirum þykja en mér Þorgeir vera sprækur; nú er hann orku að safna sér, og senn er hann baggatækur. Þéttur á velli er þessi sveinn og þétt er í honum lundin; skoðun sína á hann einn, aungri kreddu bundinn. Geiri minn góður, guði sértu falinn; mögur míns bróður, muntu drengur valinn. Komi næðings kaflar, kólgan eins og vorþeyr þér verði, Þorgeir. Blessuð sé minning Þorgeirs Gestssonar. Sólveig. Það er alltaf sárt að kveðja en sem betur fer gera minningarnar kveðju- stundina oft bærilegri, minningar sem við getum haldið í og yljað okk- ur við og oftar en ekki brosað yfir. Þannig er og verður minningin um Þorgeir tengdaföður minn, fáguð, tignarleg og gleðirík, enda var stutt í grínið og var hann léttur í lund. Þor- geir hafði yndi af því að syngja og hafði óvenju fagran og bjartan tenór og röddinni og sönggleðinni hélt hann fram í það síðasta. Hann var einn af stofnendum MA- kvartettsins sem söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar fyrir meira en 60 árum og átti glæsilegan feril. Þorgeir minntist oft á það er þeir bræður á Hæli tóku lagið við hey- skapinn og sungu mikið og oftast fjórraddað og talaði hann um hve móðir þeirra hefði verið dugleg að æfa börnin í söng en hún var org- anisti við Stóra-Núpskirkju, stjórn- aði söng og veitti þeim tónlistarlegt uppeldi og fyrir það var hann henni ævinlega þakklátur. Það var gaman að fara með Þorgeiri og Ásu í 90 ára afmælisferð sl. vetur á gömlu heima- slóðirnar á Hæli og heimsækja Steinþór bróður hans sem var með honum í MA-kvartettinum og þá naut Þorgeir sín við leiðsögn, þekkti hverja hæð og hól, fjöll og sagði sög- ur. Þorgeir var mikill gæfumaður, átti góða konu og syni, glæsilegan feril sem söngvari og var mjög farsæll og vel liðinn læknir. Það var hamingju- dagur í lífi hans er hann kynntist eft- irlifandi eiginkonu sinni Ásu Guð- mundsdóttur frá Harðbak á Melrakkasléttu og giftust þau 23. júní l945 og hefðu því átt 60 ára brúð- kaupsafmæli í dag. Ása og Þorgeir heimsóttu okkur er við vorum við nám í Svíþjóð og ferðuðust með okk- ur og eigum við fjölskyldan margar skemmtilegar minningar sem nú eru perlur í sjóði sem við varðveitum. Þorgeir var börnunum okkar Eiríks afar góður afi, sem alltaf talaði mikið við þau og fylgdist vel með því hvað þau höfðu fyrir stafni. Þorgeir tengdaföður minn kveð ég með miklu þakklæti og virðingu og bið ég góðan guð að styrkja þig, elsku Ása, og fjölskyldu þína. Blessuð sé minning hans. Ragnheiður Guðmundsdóttir. Allir sem þekktu afa minn Þorgeir geta borið vitni um hógværð hans og nærgætni. Hann var einstakur mað- ur sem setti hagsmuni annarra ofar sínum eigin. Hann kom jafnt fram við alla og lyfti þeim upp á þeirra besta plan. Kímnin var aldrei langt undan, en þó ekki á kostnað annarra. Þegar fór að húma að ævikvöldinu og minnið að bresta var það m.a. húm- orinn fyrir sjálfum sér, sem fyllti okkur hin aðdáun og stolti. Hann sagði eitt sinn að stundum væri hann staddur í miðjum stiganum heima á Norðurbrún og að hann myndi ekki hvort hann væri að fara upp eða nið- ur. „En veistu, ég er hræddur um að það skipti bara engu máli.“ Minningarnar flæða yfir nú þegar ég kveð elsku afa minn í hinsta sinn. Við tveir saman á bát að vitja um netin norður á Harðbak. Hann kenndi mér og öllum krökkunum að gera að aflanum. Spjall um heima og geima í stofunni á Norðurbrún. Hafravatn. Við tveir að dytta að sumarbústaðnum og svo bauð hann mér á Ask sem vinnulaun. Það þótti mér ansi tilkomumikið tíu ára göml- um. Þorgeir Gestsson var merkur listamaður. Margir þekkja hinn ást- sæla fyrsta tenór MA- kvartettsins. Sú tónlist sem hann gaf okkur með sinni englarödd er mér og öðrum ómetanleg. En svo tók við hans aðal listform sem var að hlusta á aðra og setja sig inn í þeirra mál, alveg sama hversu smávægileg. Þannig held ég að hann hafi raunverulega hugsað sem lista- maður þegar hann starfaði sem læknir og átti þannig farsælan feril sem slíkur og var afar vinsæll. Ég man eftir heimsóknum á læknastofuna til hans. Þar fékk mað- ur að prófa ýmsar græjur og gat gengið að rauðum Opal vísum í brjóstvasa afa. Störfum sem læknir hætti afi með einstakri reisn og varð þá garðurinn á Norðurbrúninni honum drjúgur. Þaðan á ég margar minningar með honum og af fótboltaleik okkar bræðra. Amma sleikti sólina og fylgdist með öllu. Nú um daginn þegar hann kvaddi okkur keyrði ég einn þangað og horfði yfir þetta listaverk hans. Þá var eins og hann stæði þar enn, ánægður með sitt hlutskipti. Ég veit ekki hvort afi var sér með- vitandi um hversu mikil fyrirmynd hann var okkur hinum. En hitt veit ég að honum fannst hann vera lán- samur maður og var sáttur við sitt lífshlaup. „Er ekki gaman að vera ungur?“ spurði hann oft. „Það er líka ágætt að vera gamall, og þú sérð nú hvað maður er vel staddur eigandi afkomendur.“ Rokkarnir eru þagnaðir. Bless, elsku afi minn. Þorgeir Guðmundsson. Fallinn er frá afi minn og alnafni, Þorgeir Gestsson. Hæfileikar hans sem læknis voru rómaðir og söng- rödd hans hefur látið fáa ósnortna sem kynnst hafa. Einn af hans helstu kostum laut að skapgerð hans. Hóg- værð, rólyndi og góð kímnigáfa gerði hann sérlega þægilegan í umgengni og samstarfi. Í starfi og námi hef ég oft hitt fólk sem þekkti afa. Nafnið hefur yfirleitt fljótt komið upp um ættartengsl okkar. Iðulega ljómar fólk upp þegar það minnist hans eða verður ábúðarfullt eins og til að vera visst um að ég skilji að hrós þess sé ekki eingöngu fyrir kurteisi sakir. Þessi viðbrögð hef ég fengið frá fyrr- um skjólstæðingum hans, samstarfs- mönnum og aðdáendum sönghæfi- leika hans. Ávallt hefur mér þótt vænt um að heyra þessar sögur af afa og þá mynd sem aðrir höfðu af honum. Fyrir mér verður hann einnig af- inn sem alltaf gaf mér úr ópalpakk- anum sem hann geymdi í brjóstvas- anum, afinn sem í minningunni var alltaf brosandi, hlæjandi eða syngj- andi. Ég man bókstaflega ekki eftir því að hann hafi skipt skapi og hef raunar aldrei haft spurn af slíku heldur. Hann var afinn sem á furðu- legan hátt var alltaf jafngrannur og spengilegur, þrátt fyrir að búa við eldamennsku ömmu minnar, hús- mæðrakennarans, og þrátt fyrir að gæða sér á öllu því feitasta af diskum annarra sem höfðu lokið sér af. Ég man öll skiptin sem við fórum með honum á rauðu Hondunni upp að Hafravatni þar sem hann sló túnið upp á gamla mátann með orfi og ljá, og á Norðurbrún þar sem við tefld- um eða horfðum á sjónvarp. Afa fannst gott að fá sér lúr eftir kvöld- matinn fyrir framan sjónvarpið. Ein elsta minning mín um afa er frá Bandaríkjunum þangað sem hann og amma komu í heimsókn, ég hef lík- lega verið um 5 ára aldur. Þar spil- uðum við minnisspil sem gekk út á að ÞORGEIR GESTSSON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.