Morgunblaðið - 23.06.2005, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 23.06.2005, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hanna RegínaHersveinsdóttir fæddist í Reykjavík 26. ágúst 1933. Hún lést á Landspítalan- um við Hringbraut 18. júní síðastliðinn eftir skamma legu. Hanna var yngst fjögurra barna hjónanna Hersveins Þorsteinssonar skó- smiðs, f. 2. sept. 1902, d. 27. ágúst 1992, og Margrétar Árnýjar Helgadóttur, f. 13. okt. 1906, d. 2. apríl 1988. Bræður Hönnu eru Helgi húsasmiður, f. 1927, kvæntur Hrafnhildi Kristjánsdóttur, Sigur- steinn Haraldur rafeindavirkja- meistari, f. 1928, kvæntur Ingi- björgu Kolbeinsdóttur, og Þórir Sigurður lögregluþjónn, f. 1931, kvæntur Guðbjörgu Ármanns- dóttur. Hinn 6. maí 1968 giftist Hanna Þorsteini Eiríkssyni bifreiða- stjóra, f. 24. mars 1932, d. 25.des. 1990. Foreldrar hans voru hjónin Árný Ólafsdóttir, f. 14. ágúst 1900, d. 3. des. 1984, og Eiríkur Þorsteinsson, f. 23. nóv. 1898, d. 7. sept. 1986. Dætur Hönnu eru: 1) Þóra, f. 23. júlí 1959, dóttir Guð- mundar Ragnars Brynjólfssonar, f. 18. mars 1912, d. 26. maí 1988. Eiginmaður Þóru er Ævar Ragn- ar Kvaran, f. 18. sept. 1952. Þau reka saman lakkverkstæði, synir þeirra eru Ævar Örn, f. 7. nóv. 1983, nemi við Háskólann í Reykjavík, Kristófer Rúnar, f. 5. febr. 1987, nemi við Menntaskólann Hraðbraut, og Her- sveinn Sindri, f. 9. ágúst 1993. 2) Árný Þorsteinsdóttir, f. 16. febr. 1969, nemi við Kaupmanna- hafnarháskóla, gift Sigurði Sigurðssyni, f. 22. nóv. 1967 phd. adjunkt við Tækni- háskólann í Danmörku, synir þeirra eru Tómas, f. 7. febr. 1998, og Matthías, f. 14. sept. 2000. 3) Margrét Þorsteinsdóttir, hár- greiðslumeistari, f. 23. mars 1972, maki Jón Sigurgrímsson, f. 1. okt. 1965, sölumaður, synir þeirra Pat- rekur Logi, f. 20. ágúst 1997, og Alexander Máni, f. 14. júlí 2001. Hanna ólst upp í Reykjavík og vann þar ýmis störf, svo sem í mötuneytinu í Gufunesi og Kassa- gerð Reykjavíkur. Þegar hún gift- ist Þorsteini flutti hún til Ytri- Njarðvíkur og vann þá fyrst við fiskvinnslu og svo hjá Íslenskum aðalverktökum. 1992 flutti hún aftur til Reykjavíkur og vann þá í Ráðhúsi Reykjavíkur til ársins 2000. Útför Hönnu verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Fallin er frá systir okkar og mág- kona, Hanna R. Hersveinsdóttir. Minningar og söknuður leita á hug- ann. Hvar er þá að leita huggunar? Við minnumst orða Frelsarans sem sagði: „Komið til mín allir þér sem erfiðið og hafið þungar byrðar og ég mun veita yður hvíld.“ Guðs orð er oft einasta huggunin sem mögulegt er að finna og hvílíkt tjón er að heyra ekki þau blessandi orð. Í helgiljóði í 121. sálmi Davíðs seg- ir: Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar. Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki. Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann vörður Ísarels. Drottinn er vörður þinn. Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar. Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur. Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu. Blessuð veri minning Hönnu, syst- ur og mágkonu okkar. Inga og Sigursteinn. HANNA REGÍNA HERSVEINSDÓTTIR Hvenær sem kallið kemur kaupir sig enginn frí, þar læt ég nótt sem nemur, neitt skal ei kvíða því. (Hallgr. Pét.) Síminn hringir og mér er sagt að- Þorbjörg föðursystir mín hafi veikst alvarlega og síðar um kvöldið fæ eg að vita að hún er látin. Mig setur hljóða og myndir af bernsku minni hrannast upp. Ég var níu ára hjá henni í vist á Egilsstöðum, átti að gæta Einars Stefáns frænda míns og gerði það svo sem ágætlega, en mér fannst það ekki mjög skemmtilegt. Þannig að þegar Þorbjörg eða Obba frænka eins og hún var alltaf kölluð, skellti sér til Seyðisfjarðar í síld fékk ég að fara með henni að vinna við síldarsöltun. Raða síld í tunnur eftir kúnstarinnar reglum á kaupfélags- planinu á Seyðisfirði. Og þar var nú sannarlega mikið fjör, stöðug hróp og köll eftir tunnu og salti. Þegar ég fór svo suður um haustið fékk ég laun eftir síldarvinnuna sem ég held að hafi komið úr vasa Obbu frænku, enda enginn launamiðinn. Ég gat svo keypt mér flugfarseðil suður fyrir aurana og forláta þjóðbúninga- dúkku. Þetta var í þá daga þegar ekkert þótti vera að því að krakkar ynnu, við áttum alltaf að hafa eitt- hvað fyrir stafni, ekki vera að slappa af eins og nú er lenska. Obba frænka var mér alltaf góð, hún var sem upp- alandi kærleiksrík og ströng við mig en réttlát. Hún kenndi mér að virða náttúruna og að nýta hluti til hins ýtrasta og að bera virðingu fyrir öllu fólki, háu og lágu. Málefni þeirra sem minna máttu sín voru henni alltaf hugleikin. Hún lá ekki á skoðunum sínum á mönnum og málefnum, og þegar við Jón kom- um við hjá henni sl. sumar og rædd- um framkvæmdir á Austfjörðum, jarðgöng og Kárahnjúka, verslun og fleira, þá sagði hún að réttast væri að bora gat í gegnum alla ráðamenn þjóðarinnar og varðandi hvarf kaup- félaganna þá hefði það verið verkefni ÞORBJÖRG EINARSDÓTTIR ✝ Þorbjörg Einars-dóttir fæddist á Ekru í Stöðvarfirði 16. ágúst 1915. Hún lést á Droplaugar- stöðum í Reykjavík 11. júní síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Stöðvar- fjarðarkirkju 20. júní. ákveðins stjórnmála- flokks að eyðileggja þau og svo ekki orð meira um það. Síðan var sest í eldhúskrók- inn með allsnægtum af hollum mat og góðgæti, enda frænka mín langt á undan sinni samtíð með lífrænt ræktað grænmeti, heimabak- aða hollustu og að nýta það sem náttúran gaf okkur. Hún vildi fá fréttir af okkar fólki og sagði okkur jafnframt að í fyrsta sinn á ævinni væri hún nú að þiggja hjálp við hús- verkin og henni hefði ekki þótt það þægilegt fyrst, en eftir að hún hugs- aði það þannig að hún væri bara að reka hótel með stúlku í vinnu þá fannst henni það bærilegri tilhugs- un. Stundum hefur hún skrifað mér bréf og þau geymi ég. Síðastliðið sumar fékk ég fallegt bréf frá henni þar sem hún segir mér söguna um hann pabba minn sem henni þótti svo ofurvænt um og um skírnina hans, hún hafði reyndar sagt okkur hana í boðinu sem við héldum til minningar um hann í maí 2004. Þá var röddin hennar aðeins farin að gefa sig og með bréfinu vildi hún tryggja að sagan væri rétt og yrði um ókomin ár sögð afkomendum Björns bróður hennar. Þegar við urðum fyrir þeirri sáru reynslu að missa Hilmar son hennar Guggu systur, kom hún Obba frænka til hennar, bakaði flatbrauð og huggaði og styrkti okkur öll. Hlýja og þakklæti eru mér efst í huga fyrir allt sem hún hefur gert fyrir Guggu og okkur systkinin sem þarna vorum nýlega orðin munaðar- laus. Enginn fastur punktur virtist vera í tilverunni, allt var svart og við kviðum morgundeginum, við vorum ráðalaus. Þá kom hún Obba frænka, stóra systir hans pabba og við fund- um að við vorum ekki ein og óstudd og nú yrði allt betra. Við vissum líka að einn er sá sem alltaf vakir og verndar okkur, það er frelsarinn Jesús Kristur. Fyrir fáeinum dögum vorum við Braga systir að spjalla saman og bera saman drauma sem okkur dreymdi og varð okkur þá að orði að nú væri sennilega komið að kveðju- stund hjá Obbu frænku sem hefði orðið 90 ára í ágúst í sumar. Við syst- ur áttum síðan fallega stund með Obbu frænku í Fossvogskapellu sl. mánudag og þar létum við hugann reika til þess sem var og kemur aldr- ei aftur. Að leiðarlokum og með þakklæti fyrir allt kveð ég nú kæra frænku mína og samferðamann og bið henni Guðs blessunar á nýjum slóðum. Kæru frændsystkin og ættingjar, ég verð með ykkur í huganum á kveðjustund og við Guðbjörg Birna munum finna okkur kirkju hér í Kaupmannahöfn til að kveikja kerta- ljós fyrir Þorbjörgu frænku. Guð styrki ykkur og huggi. Kolbrún Þóra Björnsdóttir og fjölskylda. Ég á margar hugþekkar myndir af Þorbjörgu Einarsdóttur. Á einni þeirra birtast þau mér bæði Þor- björg og Björn bóndi hennar þar sem þau standa í túninu fyrir framan húsið sitt, Hól í Stöðvarfirði. Þau standa þétt saman eins og þau gerðu í lífinu, að baki þeim blasa við fjöllin í botni fjarðarins. Björn horfir beint fram með opnum svip, hún út í fjarskann, íhugul og næm á menn og málleysingja. Á þessari mynd er Þorbjörg með svuntu enda rétt ófar- in inn í eldhús að að huga að góð- gerðum handa sínu heimafólki eða einhverjum af þeim ótalmörgu gest- um sem sóttu þau hjón heim. Gesta- komur fylgdu þeim Birni og Þor- björgu alla tíð og einkenndu heimilishald þeirra hvort heldur þau bjuggu á Siglufirði eða á Egilsstöð- um, í Kópavogi eða á Stöðvarfirði. Ég kynntist Þorbjörgu fyrst að nokkru ráði þegar ég fékk að koma stelpa og salta síld sumarpart á kaupfélagsplaninu á Siglufirði. Björn föðurbróðir minn var þá kaup- félagsstjóri í þeim líflega bæ sem Siglufjörður var þá. Mér eins og fjöl- mörgum öðrum sumargestum var tekið opnum örmum á heimili þeirrra Björns og Þorbjargar. Þetta sumar saltaði Þorbjörg síld eins og allir sem vettlingi gátu valdið á Siglufirði, en hún sá jafnframt alfar- ið um rekstur síns mannmarga heim- ilis. Svo vel fórst þessari fíngerðu, einbeittu og gjöfulu konu við börn og gamalmenni sem voru undir hennar forsjá að ég leit upp frá því á hana sem nána vinkonu mína þótt aldurs- munurinn væri rúm þrjátíu ár. Þorbjörg Einarsdóttir var sterkur perónuleiki, tildur og yfirborðs- mennska voru henni fjarri skapi og hún hafði afdráttarlausar skoðanir á mönnum og málefnum. Þorbjörg fylgdist vel með þjóðmálum og það fór enginn í grafgötur um að í þjóð- málaumræðunni voru það málefni sem stefndu að ríkara réttlæti og jöfnuði hvers konar sem áttu hug hennar. Þorbjörg gat verið mjög skemmtileg og ræðin og hrókur alls fagnaðar ef svo bar undir. Henni var lagið að tala við fólk á öllum aldri og af ólíkri skaphöfn og uppruna. Natni einkenndi Þorbjörgu í öllu sem hún tók sér fyrir hendur, hvort heldur var að búa til hollan og góðan mat handa öllum sem við hennar borð settust, annast sjúka eða hjálpa börnum við heimalærdóminn. Á efri árum fluttu Þorbjörg og Björn á upprunaslóðir og komu sér upp heimili á Hóli í Stöðvarfirði. Þangað sóttum við Tómas sonur minn þau heim í nokkur sumur og nutum gestristni þeirra og vináttu sem skipar sérstakan sess í huga mínum og hjarta. Föður mínum og Þorbjörgu var alla tíð vel til vina og á efri árum þegar hugur föður míns sótti mjög á æskuslóðir var hann tíð- ur gestur hjá mágkonu sinni á Hóli. Öldruð og slitin af striti tók hún á móti honum af sömu reisn og mildi og hún hafði ætíð sýnt gestum sínum og veitti honum þann besta viður- gjörning sem hugsast gat. Ég þakka Þorbjörgu, vinkonu minni, fyrir gjöf- ul kynni og alla elskusemi í minn garð og fjölskyldu minnar. Kristín Unnsteinsdóttir. Ég hitti Þorbjörgu Einarsdóttur fyrst fyrir meira en 40 árum, en aldr- ei nema stuttlega. Hún var önnum kafin við að reka stórheimilisúthald fyrir tvo aðila eigin fjölskyldu annars vegar og samvinnuhreyfinguna hins vegar. Björn Stefánsson maður hennar var kaupfélagsstjóri. Ég varð sjálfur aldrei vitni að þeim miklu umsvifum en heyrði af þeim sögur hvernig hún varð að halda einskonar hótel með veitingum fyrir viðskiptamenn Kaupfélags Siglfirð- inga og seinna Héraðsbúa væntan- lega fyrst og fremst útvegsmenn og bændur. Mér er nær að halda að hún hafi verið afrend að afli á þessu sviði. Seinna kynntist ég henni miklu betur, þá voru kaupfélagsumsvifin um garð gengin. Þau hjón fluttu í Kópavoginn og kannski hafa þau átt náðugri daga um sinn. Björn Stef- ánsson maður hennar starfaði að vísu við áfengisvarnir af sama áhuga og hann hafði unnið fyrir samvinnu- hreyfinguna, með þeim afleiðingum að hann var á stöðugum ferðalögum um landið. Ég get mér þess til að umskiptin hafi orðið býsna mikil, öll börnin farin að heiman og eiginmað- urinn eiginlega líka og heimilisum- svifin sem höfðu fylgt honum svo lengi fyrir bí en sjálf vann hún nú úti eins og það var kallað. En best kynntist ég henni allra síðustu árin, kannski 10 20 eða svo. Við Ragnheiður frænka hennar skildum og eins og ævinlega gerist í slíkum tilfellum: Ég hætti að um- gangast margt fólk sem hafði verið sameiginlegir vinir og kunningjar okkar hjóna, en ekki Þorbjörgu en þau hjón fluttu aftur á æskustöðv- arnar og bjuggu á Hóli á Stöðvar- firði. Þangað kom ég ef ég átti leið um Austfirði og við skiptumst á bréf- um. Hún hafði mikinn áhuga á skáld- skap og þjóðfélagsmálum og kunni góð skil á því sem var að gerast. At- hugasemdir hennar voru skarpar, réttlætiskenndin brennandi, og sýn hennar á misréttið sem hún sá vaxa á nýjan leik í samfélaginu skýr. Ríkir urðu ríkari, miklu ríkari, en hinir efnaminni drógust aftur úr. Síðustu misserin hef ég oft hugsað til hennar þegar eitthvert „efnahagsundrið“ hefur brostið á: Hvað skyldi Þor- björg segja við þessu? Og nú á ég ekki lengur von á bréfi frá Stöðvarfirði. Tíminn er runninn út en ég er viss um að ég á oft eftir að segja við sjálfan mig þegar hinn „frjálsi“ markaður vinnur ný „af- rek“: Um þetta hefði Þorbjörg átt meitlaða einkunn! Ég sendi afkomendum og vanda- mönnum Þorbjargar mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Helgi Guðmundsson. Þorbjörg Einarsdóttir er dáin. Við vorum henni ekki samtíða nema stuttan tíma en þó hafði hún áhrif, skildi eftir minningar sem aldrei gleymast. Hún var kona svo mikilla sanda að enginn sem henni kynntist getur sagt að hún hafi verið „bara húsmóðir“ eins og það hét á hátindi hennar starfsævi meðan öll húsmóð- urstörf voru unnin heima og ólaunuð. Við kynntumst Þorbjörgu þegar hún var húsmóðir á Egilsstöðum, í húsi því sem gekk undir nafninu Kongó, byggt á árum Kongóstríðsins fyrir kaupfélagsstjórann og varð húsið þannig þáttur í endalausri hreppapólitík milli þeirra í neðra (Reyðfirðinga sem höfðu hýst kaup- félagsstjórann) og í efra (Héraðsbúa, sem héldu að þeir væru að verða meiri menn en áður). Svona lítilfjörlegir hlutir snertu ekki Þorbjörgu okkar. Hún fyllti húsið af lífi og starfsgleði, bjó eigin- manni, börnum og öldruðum foreldr- um sínum gott heimili. Eiginmaður hennar, Björn Stef- ánsson kaupfélagsstjóri, taldi sjálf- sagðan hlut að bjóða þeim sem áttu erindi við hann á skrifstofunni eða úti á götu rétt fyrir matar- eða kaffi- tíma heim til Þorbjargar ( án þess að láta vita) og þegar hann réð ungt, ógift fólk úr öðrum landshlutum (rétt eins og okkur) þá var fyrsti kosturinn að hýsa liðið í Kongó, næst að leigja úti í bæ. Sumir urðu jafnvel kostgangarar líka (teljum líklegt að það hafi ekki verið fært til bókar eða tekna fyrir Þorbjörgu). Stundum var vinkona okkar Þorbjörg þreytt á allri þessari endalausu gestanauð en stutt hlé og fjörlegar samræður gáfu henni þrek til að halda áfram. Við erum mörg sem nutum þess að vera vinir hennar alla tíð og þökkum öllum góðum vættum og guðum fyrir að hafa kynnst slíkri eldsál sem lét aldrei deigan síga í baráttunni fyrir betra lífi, ekki í eigin þágu heldur annarra. Stundirnar með Þorbjörgu í Kongó, kveðjustundirnar á Egils- stöðum þegar fjölskyldan flutti það- an, heimsóknirnar á Stöðvarfjörð og símtölin, þó yrðu ekki mörg, gleym- ast aldrei. Lilla og litlu strákarnir (Björn og Einar) fá innilegar samúðarkveðjur, einnig eldri systkinin. Allir afkom- endur Björns og Þorbjargar fá sam- úðarkveðjur frá fyrrverandi fjöl- skylduvinum þeirra hjóna. Minning þeirra mun lifa. Ágústa Þorkelsdóttir, Erna Egilsdóttir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virð- ingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um for- eldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í minningargrein- unum. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.