Morgunblaðið - 23.06.2005, Page 40

Morgunblaðið - 23.06.2005, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Úrtöku fyrir Heimsmeistara- mót íslenska hestsins sem fram fer í Norrköping í Sví- þjóð 1.–7. ágúst næstkomandi lauk um síðustu helgi. Þrír fullorðnir keppendur tryggðu sér sæti í landsliði Íslands og tvö ungmenni auk þess sem Sigurður Sæmundsson lands- liðseinvaldur valdi þriðja ung- mennið í landsliðið. Þau sem komin eru í lands- liðið eru Hinrik Bragason á Sæla frá Skálakoti, Sig- urbjörn Bárðarson á Sörla frá Dalbæ og Sigurður Sigurð- arson á Silfurtoppi frá Lækj- armóti, ungmennin Sylvía Sigurbjörnsdóttir á Vini frá Minni-Völlum, Valdimar Bergstað á Feykivindi frá Svignaskarði og Sigurður Straumfjörð Pálsson á Prinsi frá Syðra-Skörðugili. Þess má geta að nú keppa feðgin fyrir hönd Íslands á HM, þau Sig- urbjörn og Sylvía. Þá á eftir að velja fjóra keppendur í landsliðið auk þess sem gert er ráð fyrir að heimsmeistararnir þrír frá síðasta heimsmeistaramóti mæti til að verja titla sína. Það eru þau Berglind Ragn- arsdóttir, Jóhann Skúlason og Sigurður V. Matthíasson. Fer með opnum huga á mótin framundan „Mér líst afar vel á þá kepp- endur sem komnir eru og ég var ánægður með úrtökuna,“ sagði Sigurður Sæmundsson landsliðseinvaldur. Hann mun á næstunni fara víða til að fylgjast með hverjir koma til greina í landsliðið. „Það eru margir knapar að gera það gott bæði hér heima og er- lendis og nokkrir hafa meldað sig sem eru tilbúnir að taka þátt. Ég lít svo á að allir sem tóku þátt í úrtökunni séu til- búnir að fara út með hesta sína og einnig að þeir sem hafi áhuga á því hafi tekið þátt í úrtökunni. Það er þó alls ekki algilt því Íslandsmótið er eftir og þar geta ýmsir hlutir gerst. Ég fer því með opnum huga á öll væntanleg mót.“ Sigurður ætlar að fara á sænska og danska meist- aramótið og keyra á milli því þau verða bæði dagana 1.–4. júlí. Helgina eftir er þýska meistaramótið. „Nokkrir Ís- lendingar hafa verið að gera góða hluti í skeiði í Þýskalandi sem koma vel til greina í landsliðið, en einnig horfi ég á þá sem voru á mörkunum í úr- tökunni. Ég vil þó ekki nefna nein nöfn því þá halda hinir kannski að þeir komi ekki til greina. Þetta ætti þó allt að skýrast eftir Íslandsmótið og fyrr gef ég ekki út neinar yfir- lýsingar um valið. Dreymir um baráttu- stöðu í fjórum greinum Ég læt mig dreyma um bar- áttustöðu í fjórgangi og fimm- gangi, tölti og gæðingaskeiði. Heimsmeistararnir eru líka að skoða stöðuna. Berglind hefur ekki ákveðið á hvaða hrossi hún keppir. Hún eign- aðist barn í vetur og hefur því ekki þjálfað um skeið. Sig- urður Matthíasson hefur keppt á nokkrum mismunandi hrossum og er með mörg hross til að velja úr. Jóhann Skúlason hefur unnið ístölt og tvö önnur mót í Danmörku á Hvin frá Holtsmúla. Ég er bjartsýnn á að þau þrjú geti gert stóra hluti.“ Sigurður segist ekki hafa miklar áhyggjur af kepp- endum þeirra þjóða sem við eigum helst við að etja á heimsmeistaramótum, svo sem Þjóðverjum og Svíum. „Þessir keppendur, sér- staklega í Þýskalandi, hafa mjög mikinn hestakost, mannafla og fjármagn á bak við sig, en ég hef engar rosa- áhyggjur. Það er þó rétt að meta andstæðinginn rétt. Við höfum sem betur fer úr breið- um hópi góðra knapa að velja.“ Undirbúningur er þegar hafinn hjá þeim sem komnir eru í landsliðið og um miðjan júlí þegar landsliðið verður fullskipað hefst hann af fullum þunga. Enn fjögur sæti laus í landsliðið fyrir HM íslenska hestsins í Svíþjóð Hef úr breiðum hópi góðra knapa að velja Eftir Ásdísi Haraldsdóttur asdish@mbl.is Morgunblaðið/Eyþór Sigurður Straumfjörð Pálsson á Prinsi frá Syðra-Skörðugili er einn af nýliðunum í landsliði Íslands fyrir Heimsmeistaramót ís- lenska hestsins sem fram fer í Norrköping í Svíþjóð. NÝTT fyrirtæki, Icelandic Equestrian, hefur verið stofnað og er ætlunin að reka alþjóð- legan reiðskóla í íslenskri reið- mennsku á vegum þess bæði hér á Íslandi og í Bandaríkjunum. Frumkvöðlar að stofnun fyrir- tækisins eru þau Peggy og Charles Gilbert frá Main í Bandaríkjunum, en samstarfsfólk þeirra hér á landi eru þau Björn Ólafsson og Guðríður Gunnars- dóttir á Þúfu í Kjós. Björn Ólafsson sagði í samtali við Morgunblaðið að þau Peggy og Charles hefðu átt íslenska hesta í nokkurn tíma og ættu nú um 7 hross. „Hún er MS-sjúk- lingur og hestamennskan hefur hjálpað henni mikið,“ sagði hann. „Þau hafa reynt að fá reiðkenn- ara frá Íslandi, en erfitt hefur reynst að fá atvinnuleyfi fyrir þá. Með stofnun alþjóðlegs reiðskóla í íslenskri reiðmennsku í báðum löndunum virðist sem lausn sé fundin á þeim málum.“ Reiðskólinn verður fyrst byggður upp hér á landi og smám saman verður starfsemin víkkuð út. Fyrst um sinn mun skólinn bjóða upp á námskeið í Bandaríkjunum sem eru í takt við það sem kennt verður hér á landi, en síðan verður opnaður reiðskóli þar einnig. Fyrirtækið er skrásett bæði hér á landi og í Bandaríkjunum. „Nú er búið að stofna fyrir- tækið og við vonumst til að geta farið af stað í vetur. Þó eigum við enn eftir að finna stað fyrir skól- ann,“ sagði Björn. „Við ætlum þó að kynna skólann hér á landi og einnig á Heimsmeistaramótinu í Svíþjóð. Engin inntökuskilyrði verða í skólann en hugurinn stendur til að byggja á knapa- merkjakerfinu, allavega verður námið stigskipt svo að nemend- urnir geti haldið áfram stig af stigi, hvort sem er hér á landi eða í Bandaríkjunum.“ Alþjóðlegur reið- skóli í íslenskri reið- mennsku stofnaður UNDIRBÚNINGUR fyrir Fjórð- ungsmót Vesturlands, sem haldið verður á Kaldármelum 30. júní til 3. júlí, gengur ljómandi vel að sögn Bjarna Jónassonar framkvæmda- stjóra. Búið er að bæta svæðið með- al annars með því að aka nýju lagi yfir vellina og verið er að setja upp hvítar plastslár til að afmarka þá. „Við erum að reyna að gera svæðið eins gott og mögulegt er,“ sagði Bjarni, „enda virðist vera mikill áhugi á þessu móti. Skrán- ingum er lokið og eru þær fleiri en nokkru sinni fyrr á fjórðungsmóti á Kaldármelum. Auk hefðbund- innar gæðingakeppni í A- og B-flokki í öllum aldursflokkum fyr- ir félaga í hestamannafélögunum á Vesturlandi verður opin keppni í tölti, fljúgandi skeiði og gæðinga- keppni stóðhesta. Alls eru 120 hross skráð í töltið, en nú er í fyrsta sinn boðið upp á keppni í barna-, unglinga- og ungmenna- flokkum. Því hefur verið gífurlega vel tekið eins og skráningar sýna. Átján eru skráðir til leiks í fljúg- andi skeiði, fimm í A-flokk stóð- hesta og tíu í B-flokkinn. Búist er við að kynbótahrossin verði á milli 60 og 70 og 16–18 ræktunarbú sýna hross sín.“ Veitingahúsið Fimm fiskar í Stykkishólmi mun sjá um veitingar á svæðinu en þær verða seldar í 200 fermetra tjaldi sem sett verður upp. Í öðrum enda þess verður markaður, eins og tíðkast hefur á stórmótum hestamanna að undan- förnu. Bjarni segir að hreinlætis- aðstaða verði góð og möguleikar á að auka við hana eftir þörfum. „Það er nóg pláss á tjaldstæð- unum á Kaldármelum, en ég er hræddur um að annað gistirými í nágrenninu sé orðið þéttbókað,“ sagði hann. Boðið verður upp á fjörureið á föstudagskvöldið og dansleikir verða í Kvosinni með Geirmundi Valtýssyni á föstudags- kvöldið og Pöpunum á laugardags- kvöldið. Fjórðungsmót á Kaldármelum Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir Fjórðungsmótin á Kaldármelum hafa alltaf verið fjölsótt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.