Morgunblaðið - 23.06.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 43
Nýr Carnehl hardox tunnuvagn
fyrir ca 136 cm stólhæð. Passar
vel aftan í 10 hjóla bíla og fram-
drifsbíla. Lyftihásing og seglyfir-
breiðsla. Verð 2.850.000. Upplýs-
ingar í síma 898 3612.
Bílar aukahlutir
Speglar fyrir fellihýsi og
tjaldvagna. Verð kr. 1.750 kr.
GS varahlutir,
Bíldshöfða, sími 567 6744.
Varahlutir
Jeppapartasala Þórðar,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
Nýlega rifnir Grand Vitara '00, Kia
Sportage '02, Pajero V6 92', Terr-
ano II '99, Cherokee '93, Nissan
P/up '93, Vitara '89-'97, Patrol '95,
Impreza '97, Legacy '90-'99, Isuzu
pickup '91 o.fl.
VörubílarFellihýsi
Palomino Mustang. Til sölu er
Palomino Mustang, 14 feta, árg.
2003. Sólarsella, ísskápur, for-
tjald, sjónvarps- og útvarpsloft-
net, útvarp og CD. Upplýsingar
í síma 869 2024.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Fréttir í tölvupósti
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
NÝ stjórn Landssambands sjálf-
stæðiskvenna var kjörin á 25.
landsþingi Landssambands sjálf-
stæðiskvenna sem haldið var ný-
lega í Kópavogi undir yfirskriftinni
„Samþætting fjölskyldustefnu og
menntamála – hvað hefur verið
gert, hvað þarf að gera betur og
hvers vegna?“
Ásta Möller, varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins, var kjörin
formaður sambandsins.
Með Ástu til stjórnarsetu voru
kjörnar 11 konur: Brynhildur And-
ersen, Brynhildur Einarsdóttir,
Elín Gränz, Elísabet Valgeirsdótt-
ir, Erla Ósk Ásgeirsdóttir, Helga
Ingólfsdóttir, Margrét Björnsdótt-
ir, Margrét Sigurðardóttir, Ragn-
hildur Pála Ófeigsdóttir, Ríkey
Ríkharðsdóttir, Rúna Malmquist,
Sigríður Ingvarsdóttir, Soffía Lár-
usdóttir og Unnur Brá Konráðs-
dóttir. Þá voru í varastjórn kjörn-
ar þær Aðalheiður Magnúsdóttir,
Anna Björg Björnsdóttir, Anna
Þóra Baldursdóttir, Áslaug Jó-
hanna Jensdóttir, Helga Ólafsdótt-
ir, Herdís Hólmfríður Þórðardótt-
ir, Hildigunnur Lóa Högnadóttir,
Ingveldur Fjeldsted, Jóhanna Hlín
Ragnarsdóttir, Jóna Vestfjörð
Árnadóttir, Lea Kristín Þórhalls-
dóttir, Ragnheiður Hákonardóttir,
Þóra Þórarinsdóttir og Þórunn
Drífa Oddsdóttir.
Á landsþinginu var jafnframt
samþykkt svohljóðandi stjórn-
málaályktun: „25. landsþing
Landssambands sjálfstæðiskvenna
haldið í Kópavogi 4. júní 2005
hvetur félög Sjálfstæðisflokksins
að beita sér fyrir jöfnum hlut
kynjanna á framboðslistum fyrir
komandi borgar- og sveitarstjórn-
arkosningar, sér í lagi í efstu sæt-
um.“
Ný stjórn
Landssam-
bands sjálf-
stæðis-
kvenna
EFTIRFARANDI ályktun hefur
borist frá Frjálshyggjufélaginu:
„Frjálshyggjufélagið fagnar
þeim einkavæðingaráformum
borgaryfirvalda að selja Vélamið-
stöðina og líklega Malbikunarstöð-
ina. Félagið telur óeðlilegt og
ósanngjarnt að borgin standi í slík-
um rekstri sem og mörgu öðru sem
borgin hefur af misskilinni góð-
mennsku tekið að sér.
Frjálshyggjufélagið bíður spennt
eftir frekari fregnum af einkavæð-
ingu, skattalækkunum og auknu
frelsi íbúum borgarinnar til hags-
bóta.“
Fagna áformum
um einkavæðingu
HIN árlega Jónsmessuganga um
Elliðaárdal verður í kvöld, fimmtu-
daginn 23. júní og hefst hún klukk-
an 22.30 á Árbæjarsafni.
Leiðsögumenn verða Helgi M.
Sigurðsson sagnfræðingur og Þor-
valdur Örn Árnason líffræðingur.
Jónsmessuganga
um Elliðaárdal
♦♦♦