Morgunblaðið - 23.06.2005, Page 45

Morgunblaðið - 23.06.2005, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 45 DAGBÓK Næstu helgi verður alþjóðleg ráðstefnaum menningarmótun staða, „The Cult-ural Reconstruction of Places“, haldiní Háskóla Íslands. Ráðstefnan fer fram á ensku og framsögumenn eru 20 frá 12 há- skólum í 6 þjóðlöndum. Samkvæmt upplýsingum Ástráðs Eysteins- sonar, skipuleggjanda ráðstefnunnar, eru við- fangsefni fyrirlesaranna margvísleg og þau lúta öll að því hvernig ákveðnir staðir öðlast symbólskt og sögulegt vægi og jafnframt menningargildi. Ást- ráður fjallar til dæmis um Snæfellsjökul í fyrir- lestri sínum – um tengslin milli jökulsins og byggðra bóla, gildi hans í sögum og ýmsar birting- armyndir hans í menningunni. Dagskráin er mjög fjölbreytt og efnið spennandi að sögn Ástráðs „Þarna verður t.d. fjallað um staði „erfiðra“ minninga á Norður-Írlandi, Ítalíu og Kýpur, fjallað um borgir sem staði (m.a. London, París og Reykjavík) og staði í borgum, um fæðing- arstað Shakespeares, um falsað þjóðar- og stað- arminni í Rúmeníu í stjórnartíð Ceausescus.“ Um menningarmótun staða á Íslandi segir Ást- ráður: „Staðir öðlast menningargildi af mismun- andi ástæðum – vegna sögulegs hlutverks eða við- burða, vegna þess að þeir tengjast ákveðnum einstaklingum, eða vegna náttúrugildis. Á stöðum eins og Hólum og Skálholti þykir mönnum „búa“ mikil saga. Eins er þekkt að líf og frægð lista- manna eru gjarnan tengd ákveðnum stöðum, bú- stað þeirra eða fæðingarstað; þannig varð Gljúfra- steinn alkunnur meðal þjóðarinnar meðan Halldór Laxness lifði og er nú orðinn safn.“ Hann segir enn frekar að slík menningargildi séu óhjákvæmi- lega sviðsett og þá gjarnan í tengslum við ferða- mennsku, eins og sjá má af fjölda staðarsafna sem orðið hafa til á síðustu árum. „Söfn tileinkuð Eglu og Njálu eru í raun eðlilegt framhald af pílagríms- ferðum sem lengi hafa verið farnar á slóðir Íslend- ingasagna; fólk hefur viljað „staðsetja“ þær. En Þingvellir er auðvitað augljósasta dæmið um stað sem hlaðinn er menningargildi og það á ýmsa lund. Þar má „lesa“ margar minningar og ekki allar sársauka- lausar eins og á var minnt á samkomu þar nú á kvennadaginn 19. júní.“ Nokkrir fyrirlestranna tengjast svo innbyrðis því þeir fjalla um rithöfundinn og hönnuðinn Willi- am Morris og tengsl hans við Ísland og jafnframt er fjallað um staði í fornsögunum. Reykjavíkur- hluta ráðstefnunnar lýkur með fyrirlestri þekktra breskrar fræðikonu, Susan Bassnett, sem fjallar almennt um minningar, staði og „kortlagningu“. Ráðstefnunni lýkur með fyrirlestri Guðmundar Hálfdanarsonar á Þingvöllum. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeyp- is. Hægt er að nálgast dagskrána á www.hi.is. Ráðstefna | Alþjóðleg ráðstefna um menningarmótun 24.–25. júní Sögulegt vægi og gildi staða  Ástráður Eysteins- son er skipuleggjandi alþjóðlegrar ráðstefnu um menningarmótun. Ástráður er menntaður í bókmenntafræði og þýðingafræði og lauk doktorsprófi frá Uni- versity of Iowa í Banda- ríkjunum. Hann er pró- fessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands en hefur einnig tekið þátt í uppbyggingu náms í þýðingum, menning- arfræði og kvikmyndafræði við skólann. Ást- ráður er kvæntur Önnu Jóhannsdóttur. Hann á þrjá syni á aldrinum 5 mánaða til 22 ára. Frábær sýning FÓRUM í góðra vina hópi á sýning- una Alveg brilliant skilnaður í Borgarleikhúsinu laugardaginn 18. júní sl. Þessi sýning var alveg frábær skemmtun og hlógum við allan tím- ann. Mjög gaman. Vonum svo sann- arlega að þessi sýning verði tekin aftur upp í haust. Elsku Edda og samstarfsmenn. Takk fyrir frábæra skemmtun. Stuðboltarnir. Undraefnið Stopain MIG langar svo að benda fólki, sem á við verki að stríða, á efnið Stopain sem ég uppgötvaði í Lyfju á Smára- torgi. Ég er nú með slæma gigt og þarf að notast við lyf og önnur efni alla daga og hef oft eytt peningum í eitt- hvað sem hreinlega virkar ekki neitt og getur maður verið svo fúll að eyða öllum þessum peningum í svoleiðis vitleysu. Yndisleg kona í apótekinu gaf mér prufu af þessu Stopain og fór ég með það heim til að prófa og fann ég ekki fyrir verkjum í heilan sólarhring. Ég fór að sjálfsögðu og keypti mér brúsa og vil ég benda fólki, sem er með verki, á þetta undrasprey, sem er náttúrulegt efni. Vona ég að fleiri en ég geti verið verkjalausir í a.m.k. einn sólarhring. Kópavogsbúi. Selirnir eftir Guðmund frá Miðdal STYTTAN Selirnir eftir Guðmund frá Miðdal hvarf úr geymslu. Ef ein- hver hefur eignast þessa styttu á síðustu 12–14 mánuðum þá er við- komandi vinsamlega beðinn um að hafa samband við Kristínu í síma 696 1556. Þessi stytta hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigandann. Snyrtiveski týndist á Thorvaldsen SNYRTIVESKI týndist á skemmti- staðnum Thorvaldsen aðfaranótt sunnudags. Snyrtiveskið er svart og merkt Paula Dorf, New York, stút- fullt af snyrtivörum og einu ilm- vatnsglasi. Skilvís finnandi hafi sam- band við Kristínu í síma 897 6823. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Árnaðheilla dagbók@mbl.is 70 ÁRA afmæli. Í dag, 23. júní, er70 ára Helena Hálfdanardóttir, Krummahólum 6. Hún dvelur á afmælisdaginn hjá syni sínum og tengdadóttur á Vattarnesi, Fáskrúðs- fjarðarhreppi. 50 ÁRA afmæli. Í dag, 23. júní, erfimmtug Ásta Björg Björns- dóttir. Af því tilefni verða hún og eigin- maður hennar, Andrés Þórarinsson, með opið hús sunnudaginn 26. júní kl. 17–19 í Hjarðarlandi 7, Mosfellsbæ. DEMANTSBRÚÐKAUP | Í dag, 23. júní, eiga 60 ára hjúskaparafmæli hjónin Guðbjörg Lilja Guðmundsdóttir og Kristján Páll Sigfússon, Kleppsvegi 2, Reykjavík. Þau voru gefin saman í hjónaband af séra Sigurjóni Þ. Árnasyni 23. júní 1945. Þau munu fagna þessum merku tímamótum í faðmi fjölskyldu sinnar. 100ÁRA afmæli. Feðgarnir Jóhann Sigurðsson og Sigurður Björgvinssonfagna þeim áfanga að fylla 100 ára aldurinn samanlagt. Jóhann verður 40 ára 25. júní og Sigurður varð sextugur 12. maí síðastliðinn. Af þessu tilefni efna þeir feðgar til fjölskylduhátíðar á heimili þeirra í Skarði í Gnúpverjahreppi laugar- daginn 25. júní kl. 16 og vonast þeir til að sem flestir vinir og ættingjar sjái sér fært að mæta og fagna með þeim þessum merku tímamótum. Það verður m.a. boð- ið uppá reiðtúra fyrir börnin, tjaldsvæði, grillveisla, léttar veitingar og hlöðuball. 1. d4 Rf6 2. Rf3 d5 3. c4 e6 4. Rc3 Bb4 5. cxd5 exd5 6. Da4+ Rc6 7. Bg5 h6 8. Bxf6 Dxf6 9. e3 O-O 10. Be2 Be6 11. O-O a6 12. Hfc1 Bd6 13. Dd1 Re7 14. Hab1 Had8 15. b4 c6 16. Ra4 Bc8 17. Rc5 g5 18. a4 b5 19. Rd3 Rg6 20. Rfe1 Bb8 21. Hc3 Re7 22. Hbc1 Dd6 23. g3 Kg7 24. Rf3 f6 25. Rd2 Hd7 26. Rc5 Ha7 27. Ha3 Rg6 28. axb5 axb5 29. Hxa7+ Bxa7 30. Rdb3 Hf7 31. Dc2 Re7 32. Ha1 Bb6 33. Bd3 Hf8 34. De2 g4 35. Bc2 h5 36. h4 f5 37. Rd3 Be6 38. Rbc5 Hb8 39. Dd2 Bf7 40. Ha6 Dd8 41. Re5 Ha8 42. Rb7 Dc8 43. Hxb6 Dc7 Staðan kom upp í Elítu flokki á minningarmóti Capablanca sem lauk fyrir skömmu í Havanna á Kúbu. Walt- er Arencibia (2530) hafði hvítt gegn Baadur Jobava (2637). 44. e4! Dxb6 45. Dg5+ Rg6 46. Rd6 Dd8 47. Rxf5+ Kg8 48. Dh6 Df6 49. Rd7 Dh8 50. Re7+! og svartur gafst upp þar sem hann verður að láta drottninguna af hendi eftir 50... Rxe7 51. Rf6+. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali OPIÐ HÚS Fellsmúli 16, 2. h. v. Falleg 87 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýli. Nýleg gólfefni eru á íbúðinni. Stórar svalir. Snyrtileg sameign. Breiðband. V. 16,4 m. 4140 ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG (FIMMTUDAG) FRÁ KL. 17.00-19.00 SÝNINGU Önnu Líndal, Umbrot- um, í Skaftfelli, Seyðisfirði lýkur á laugardaginn. Umbrot er hluti af myndlistarsýningu Listahátíðar í Reykjavík 2005. Anna verður með leiðsögn um sýninguna þennan síð- asta sýningardag kl. 15.00. Þar mun hún segja frá því hvernig verkin urðu til og aðferðum sem notaðar voru. Sýningin fjallar um hitaflæði í Vatnajökli og hvernig jökullinn skapar sína eigin veröld. Samsýningu bandaríska ofur- stirnisins Matthew Barney og Gabríelu Friðriksdóttur í Listasafni Akureyrar lýkur núna á sunnudag. Sýningin er hluti Listahátíðar í Reykjavík sem ber yfirskriftina tími, rými, tilvera. Gabríela er fulltrúi Ís- lands á Feneyjar-tvíæringnum Sýningum lýkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.