Morgunblaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 47
MENNING
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, bað.
Vídeóstund kl. 13 í dagstofunni, allir
velkomnir.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa-
vinna kl. 9–12. Boccia kl. 9.30. Leik-
fimi kl. 11. Smíði/útskurður kl. 13–
16.30. Hjólahópur kl. 13.30. Pútt-
völlur kl. 10–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, fótaað-
gerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–11 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–
14 handavinnan opin, kl. 11.15–12.15
matur, kl. 14–14.45 söngstund, kl.
14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids í dag kl. 13. Fundur með far-
þegum í Strandaferð kl. 16. Eigum
laus sæti í ferð um Norðurland 2.–6.
ágúst. Farþegar í Laugafellsferð
þurfa að gera upp ferðina. Upplýs-
ingar í síma 588 2111.
Gerðuberg, félagsstarf | Kl. 10.30
helgistund. Frá hádegi spilasalur og
vinnustofur opnar. Allir velkomnir.
Hraunbær 105 | Kl. 9 opin vinnu-
stofa, kl. 10 pútt og boccia, kl. 12 há-
degismatur, kl. 14 félagsvist, kl. 15
kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Bingó kl. 13.30.
Hraunsel | Pútt á Vallarvelli kl. 14–
16.
Hvassaleiti 56–58 | Hádegisverður.
Hannyrðir hjá Halldóru kl. 13–16.30.
Félagsvist kl. 13.30, kaffi og nýbak-
að. Fótaaðgerðir 588 2320. Hár-
snyrting 517 3005. Minnum á grill-
veisluna á morgun kl. 18. Allir
velkomnir.
Hæðargarður 31 | Betri stofa og
Listasmiðja kl. 9–16. Frjáls handa-
vinna og glerlist. Skráning í hópa og
námskeið fyrir næsta haust stendur
yfir. Aðstoð við böðun kl. 9–16. Há-
degisverður og síðdegiskaffi. Göngu-
hópur Sniglarnir 10. Sönghópur Dís-
irnar 13.30. Dagblöðin liggja frammi.
Upplýsingar í síma 568 3132.
Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, kl. 9–
16.30 opin vinnustofa.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–14 aðstoð
v/böðun. Kl. 9.15–15.30 handavinna.
Kl. 9–10 boccia (júní). Kl. 10.15–11.45
spænska (júní). Kl. 11.45–12.45 há-
degisverður. Kl. 13–14 leikfimi (júní–
júlí). Kl. 13–16 glerbræðsla (júní). Kl.
14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, handmennt almenn kl. 9.30,
frjáls spilamenska kl. 13.00.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar– og fyrir-
bænastund kl. 12.
Áskirkja | Opið hús milli 14–17 í dag,
samsöngur undir stjórn organista,
kaffi og meðlæti.
Garðasókn | Kyrrðar– og fyrirbæna-
stund er í Vídalínskirkju að kveldi
Jónsmessu kl. 22. Gott er að ljúka
deginum og undirbúa nóttina í kyrrð
kirkjunnar og bera þar fram áhyggj-
ur sínar og gleði. Tekið er við bænar-
efnum af prestum og djákna. Boðið
upp á kaffi í lok stundarinnar.
Hallgrímskirkja | Kirkjudagar. 160
dagskráratriði úr starfi Þjóðkirkj-
unnar og víðar. Málstofur, kynningar,
fjölbreytt barna– og unglinga-
dagskrá. Nánari upplýsingar á
www.kirkjan.is/kirkjudagar.
Laugarneskirkja | Kl. 12.00 Kyrrð-
arstund í hádegi. Léttur málsverður í
safnaðarheimilinu á eftir. Einfalt,
fljótlegt og innihaldsríkt! Umsjón
hefur Sigurbjörn Þorkelsson, Gunnar
Gunnarsson leikur á orgel.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
LISTAMAÐURINN Hafsteinn Aust-
mann hefur málað vatnslitamyndir
frá því að hann var unglingur. Hann
hélt einkasýningu á vatnslitamynd-
um í Bogasalnum árið 1960 á mynd-
um sem málaðar voru frá árinu 1957
til ársins 1960 og síðan þá hefur
hann haldið einkasýningar hér á
landi og tekið þátt í sýningum er-
lendis. Verkin sem voru til sýnis í
Bogasalnum árið 1960 voru til sýnis í
Listasafni ASÍ í júlí 2004 í tilefni af
70 ára afmæli listamannsins. Að sögn
Hafsteins eru þetta 10 strangflata-
listaverk en strangflatalistin hefur
heillað Hafstein lengi. Hann fékk
innsýn í hana snemma á myndlist-
arferli sínum þegar hann var í list-
námi í París árin 1954–1955. Haf-
steinn lagði sérstaka áherslu á að
verkin 10, sem sýnd voru í Bogasaln-
um árið 1960, yrðu ekki aðskilin og
það var því einstaklega gleðilegt að
sögn Hafsteins þegar þekkt akva-
rellusafn keypti öll verkin tíu nýlega.
Safnið, Nordiska akvarellmuseet,
sem er í nágrenni við Stokkhólm í
Svíþjóð, er nýlegt listasafn sem sér-
hæfir sig í vatnslitaverkum og það
eina sinnar tegundar á Norður-
löndum. Verkin eru til sýnis út mán-
uðinn hjá Ófeigi Skólavörðustíg 5
fyrir þá sem vilja sjá verkin áður en
þau verða flutt úr landi.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Listasafn í Svíþjóð
kaupir tíu íslensk verk
Er löggiltur fasteignasali
a› selja eignina flína?
sími 530 6500fax 530 6505www.heimili.isSkipholti 29A105 Reykjavík opi› mánudagatil föstudaga 9-17
Hjá Heimili fasteignasölu starfa
fjórir löggiltir fasteignasalar sem
hafa áralanga reynslu af fasteigna-
vi›skiptum. fia› er flví löggiltur
fasteignasali sem heldur utan um
allt ferli›, allt frá flví eignin er
sko›u› og flar til afsal er undirrita›.
Metna›ur okkar á Heimili er a›
vi›hafa vöndu› og fagleg vinnu-
brög› sem tryggja flér besta ver›i›
og ábyrga fljónustu í samræmi vi›
flau lög og reglur sem gilda um
fasteignavi›skipti.
Finbogi Hilmarsson
lögg. Fasteignasali
Einar Gu›mundsson
lögg. Fasteignasali
Anney Bæringsdóttir
lögg. Fasteignasali
Bogi Pétursson
lögg. Fasteignasali
Hafdís Björnsdóttir
Ritari
Nýju sláttutraktorarnir frá
eru komnir
Atvinnumenn, garðeigendur,
verktakar, bæjarfélög
og sumarbústaðaeigendur:
Nýja KUBOTA GR-línan er
fyrir þá sem gera kröfur.
Nánari upplýsingar
veita sölumenn.
ÞÓR HF | Ármúla 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is
Kjördæmamótið.
Norður
♠983
♥D7652
♦ÁK10
♣KD
Suður
♠ÁKG74
♥G4
♦53
♣Á873
Suður spilar fjóra spaða og fær út
lítinn tígul.
Hver er áætlunin?
Eitt og annað kemur til greina, en ef
trompið fellur 3-2 er samningurinn
skotheldur með því að taka strax á tvo
efstu og stinga svo eitt lauf í borði. Það
er lítið við því að gera ef vestur reynist
eiga D10xx í trompi, en ef austur er
með slíkan fjórlit er sagnhafi enn á lífi
þótt hann byrji á ÁK í trompi.
Norður
♠983
♥D7652
♦ÁK10
♣KD
Vestur Austur
♠D105 ♠62
♥1098 ♥ÁK3
♦D8742 ♦G96
♣54 ♣G10962
Suður
♠ÁKG74
♥G4
♦53
♣Á873
Spilið er frá Kjördæmamóti BSÍ,
sem Reykjavík vann með nokkrum
yfirburðum. Sveit Garða & véla sem
spilaði fyrir hönd Reykjavíkur á öðru
borði halaði mest inn, eða 159 stig í 7
leikjum, sem gerir 22,71 stig að jafnaði
úr leik. Í sveitinni spiluðu Sigtryggur
Sigurðsson, Símon Símonarson, Sigfús
Örn Árnason, Friðjón Þórhallsson og
Rúnar Magnússon.
Sigtryggur var við stjórvölinn í fjór-
um spöðum á öðru borðinu. Hann topp-
aði spaðann og tók tíu slagi án þess að
blása úr nös, en á hinu borðinu freist-
aðist sagnhafi til að reyna að stinga
lauf í borði of snemma og fór niður
gegn Friðjóni og Sigfúsi Erni.
Við sjáum hver hættan er: Ef sagn-
hafi tekur strax KD í laufi, fer heim á
trompás og spilar litlu laufi, trompar
vestur með tíu, spilar makker inn á
hjarta og fær svo lauf um hæl til að
byggja upp spaðadrottninguna.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is