Morgunblaðið - 23.06.2005, Page 56

Morgunblaðið - 23.06.2005, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi GUÐBRANDUR Einarsson og Bjarki Birgisson, sem nú ganga kringum landið undir slagorðinu „Haltur leiðir blindan“, gengu í gær frá Hveragerði að Skeiðavega- mótum. Í hádeginu var þeim boðið í heim- sókn á hæfingarstöðina VISS í Árborg. Eftir það gekk hinn landsfrægi göngu- garpur frá Sólheimum í Grímsnesi, Reynir Pétur Ingvarsson, með þeim frá Ölfusár- brú og ætlaði að fylgja þeim áleiðis. Reynir gekk á sínum tíma fyrstur manna í kring- um landið. Guðbrandur og Bjarki munu í dag ganga að Eystri-Rangá, en á leiðinni heimsækja þeir Laugaland í Holtum, sem er sumar- dvalarstaður fyrir börn með sérþarfir. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Haltur leiðir blindan á Ölfusárbrú. Göngugarpar í góðum félagsskap UMSÓKNUM um samfélags- þjónustu hefur fjölgað allt frá því að úrræðið kom fyrst til sög- unnar árið 1995 en samkvæmt bráðabirgðatölum frá Fangelsis- málastofnun bárust árið 2004 alls 520 umsóknir um samfélagsþjón- ustu, 117 umsóknir vegna óskil- orðsbundinnar fangelsisvistar og 403 umsóknir vegna vararefsing- ar. Niðurstöður könnunar sem Margrét Sæmundsdóttir, sér- fræðingur hjá Fangelsismála- stofnun, gerði á árunum 2002– 2004 á meðal brotamanna sem gegndu samfélagsþjónustu vegna vararefsingar benda til þess að meirihlutinn kjósi að gegna sam- félagsþjónustu í stað þess að greiða sekt. Að hennar mati þarf því að skoða betur hvort menn nýti þetta úrræði til þess að sleppa við að greiða sektir. Helgi Gunnlaugsson, afbrota- fræðingur og prófessor í fé- lagsfræði við HÍ, segir sam- félagsþjónustu sem fullnustu- úrræði hafa gefist vel á þeim tíma sem hún hafi staðið til boða. Þannig hafi niðurstöður rann- sóknar sem gerð var á árunum 1994 til 2000 á afturhvarfi brota- manna til afbrota gefið það til kynna að tilkoma samfélagsþjón- ustu hafi ekki aukið ítrekunar- tíðni. Bendir hann á að menn telji sig ekki sleppa auðveldlega með því að inna af hendi sam- félagsþjónustu enda fylgir því ákveðinn kostnaður fyrir hinn brotlega. Að sögn Helga hefur sam- félagsþjónustan verið einn stærsti þátturinn í því að halda fangatölunni niðri, því ef þessa úrræðis hefði ekki notið við hefði, að mati Helga, vafalítið þurft að reisa nýjar fangelsisbyggingar. Umsóknum um samfélagsþjónustu hefur fjölgað mikið Nýta þetta úrræði til þess að sleppa við sekt  Umsóknum | 8 SUMARSTÖRFIN í sveitinni eru í hugum margra einar bestu endurminningar úr bernsku. Að mörgu er að huga í sveitinni og krefjast kýrnar mikillar umhirðu og athygli. Kristín Júlía Hannesdóttir á Austurvaðsholti II í Holta- og Landsveit, er ein þeirra fjölmörgu í sveitum landsins sem hugar að skepn- unum dag hvern. Morgunblaðið/RAX Kýr úti í haga ÁÆTLAÐ útflutningsverðmæti sjávar- afurða á árinu 2006 eru 130 milljarðar króna, sem er 8 milljörðum króna meira en í ár, og verður hækkunin fyrst og fremst vegna verðhækkana erlendis. Leyfilegur afli helstu fisktegunda á næsta fiskveiðiári var kynntur í gær, og verður hann svip- aður og í ár. Sjávarútvegsráðherra fór að mestu eftir ráðleggingum Hafrannsókna- stofnunar við úthlutunina, en fór þó fram úr því sem ráðlagt var í nokkrum tegund- um, þar á meðal skrápflúru, skarkola, sandkola og humri. | 14 Útflutnings- verðmæti eykst STÆRSTI lax í Laxá í Aðaldal það sem af er sumri veiddist þar í gær- dag. Það var Árni Jörgensen sem setti í u.þ.b. 22 punda lax við svo- kallaðan Suðurhólma á Svæði 6. Fyrr um daginn hafði sést fiskur stökkva á þessum slóðum. Árni kvaðst hafa fengið þau ráð hjá Pétri Péturssyni laxaleiðsögumanni að fara mun ofar en venjan væri og það hefði borið þennan árangur. Laxinn tók á Snældu Gríms Jóns- sonar kl. 18.10 og um hálfa klukku- stund tók að landa honum en um kl. 19 synti hann á brott eftir að tekið hafði dágóða stund að koma lífi í hann. Um 22 punda lax úr Laxá í Aðaldal FJÁRLAGANEFND mun fara yfir ábendingar og tillögur Rík- isendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir haustið, og efla eft- irlitshlutverk sitt með fram- kvæmd fjárlaga, segir Magnús Stefánsson, formaður fjárlaga- nefndar Alþingis. Ríkisendurskoðun gerði í gær opinbera greinargerð sína um framkvæmd fjárlaga árið 2004, en þar kemur fram hörð gagnrýni á framúrkeyrslu ríkisstofnana, sem nam 12,7 milljörðum króna í árs- lok 2004. Einnig er það átalið að ríkisvaldið, Alþingi og ráðherrar, láti framúrkeyrsluna óátalda, og beiti ekki ákvæðum reglugerðar og áminni þá forstöðumenn stofn- ana sem fari meira en 4% fram úr heimildum. Meðal þeirra ábend- inga sem fram koma í greinargerð Ríkisendur- skoðunar er að frysta mætti framlög til stofn- ana þegar þær eru komn- ar yfir 4% fram úr fjár- heimildum þar til búið er að gera úrbætur til að koma lagi á reksturinn. „Það þarf að skoða svona til- lögur mjög vel áður en farið er út í slíkar aðgerðir. Það geta oft verið ýmsar skýringar, og í sum- um tilvikum eðlilegar ástæður fyrir framúrkeyrslunni, svo ég held að það sé ekki hægt að setja einhverja algilda reglu með þessum hætti,“ seg- ir Magnús. „En mér finnst koma til greina að menn ræði þennan möguleika.“ Ábyrgðin liggur hjá Alþingi Fjárveitingarvaldið liggur hjá Alþingi, og um leið liggur ábyrgðin á ástandinu þar, að mati Ríkisend- urskoðunar. Magnús segir að fjárlaganefnd muni auka eftirlit sitt með framkvæmd fjárlaga, en hingað til hafi lélegt upplýsinga- streymi til nefndarinnar tak- markað það hlutverk hennar. Það standi hins vegar til bóta þar sem tekið hafi verið í gagnið nýtt fjár- hagskerfi árið 2003 sem auðveldi aðgengi nefndarinnar að nauðsyn- legum upplýsingum. „Ég held að það megi taka und- ir mest af því sem kemur fram hjá Ríkisendurskoðun. Það er nauð- synlegt að líta til athugasemda þeirra og tillagna,“ segir Magnús. „En það er ekki síður áhugavert að það eru ekki bara ýmsar stofn- anir sem hafa farið ítrekað fram úr fjárheimildum, heldur eru líka stofnanir sem skila afgangi ár eft- ir ár. Það þarf ekkert síður að skoða það.“ Ríkisendurskoðun gagnrýnir framúrkeyrslu á fjárlögum Eftirlitshlutverk fjár- laganefndar verður eflt Magnús Stefánsson  Útgjöld umfram heimildir | 4 ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.