Morgunblaðið - 29.07.2005, Page 6

Morgunblaðið - 29.07.2005, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BÚAST má við vætu á laugardag og sunnudag víðast hvar á landinu en þó minnst á Austurlandi. Þar verður jafnframt nokkuð bjart. Hiti verður víða um 13–18 stig. Á laugardag verður sunnan- og síðar suðvestanátt, víðast 5–10 m/s. Rigning verður fram eftir degi og síðar smáskúrir um sunnan- og vest- anvert landið, en úrkomulítið norð- austan til. Hiti verður 10–18 stig, hlýjast norðaustanlands. Á sunnu- dag verður hæg vestlæg eða breyti- leg átt og víða skúrir, en bjartviðri suðaustanlands. Hiti breytist lítið. Á mánudag snýst í austanátt með rign- ingu einkum sunnanlands og verður hiti 10–15 stig. Búast má við vætu víða um land UM næstu helgi verða umferð- arfulltrúar Slysavarnafélagsins Landsbjargar á ferðinni um land allt um verslunarmannahelgina og munu verða á flestum þeim stöðum þar sem skipulögð dagskrá verður. Þá verða umferðarfulltrúarnir í stöðugu sambandi við þær björg- unarsveitir sem hafa skipulagða gæslu á útihátíðum. Í fréttatilkynningu frá Lands- björgu eru ökumenn minntir á að fara varlega um komandi helgi en aðfaranótt miðvikudagsins voru hengd upp á flestar göngubrýr á höfuðborgarsvæðinu skilaboð til ökumanna sem eiga að vekja þá til umhugsunar um hvort áhættan sé þess virði. Umferðarfulltrú- ar Landsbjargar á ferðinni LÝÐHEILSUSTÖÐ segir að góð samskipti foreldra og barna og góðar samverustundir séu besta forvörnin hvað varði hættuna á að barnið leiðist út í áfengis- eða vímu- efnaneyslu. Þetta sé vert að hafa í huga nú þegar verslunarmanna- helgin sé að ganga í garð. Á und- anförnum árum hafi þeim boðum verið beint til foreldra og annarra fullorðinna að leyfa ekki að börn fari ein í útilegu og minnt á að for- eldrar beri ábyrgð á börnum sínum til 18 ára aldurs. „Langi barnið mjög mikið að fara á slíka skemmtun eða, sem er afar algengt, „allir hinir eru að fara“ þá er kannski hægt að koma til móts við þessa ósk með því að öll fjöl- skyldan fari saman. Unglingurinn fær þá tækifæri og frelsi til að njóta skemmtunarinnar með félögunum en „öryggisnetið“ (foreldrarnir) er til staðar,“ segir á vefsíðu Lýð- heilsustöðvar. Börn fari ekki ein í útilegu um helgina LÍKT og undanfarin ár er mestur flugstraumur til Vestmannaeyja um verslunarmannahelgina. Um 8-900 manns eiga bók- að flug með Flugfélagi Vest- mannaeyja. Áætlað er að hver vél fari tvær ferðir á klukkustund fram og til baka, en fjórar vélar annast flugið. Flogið verður til klukkan 23 í kvöld en á morgun og á sunnudag verður flogið á milli klukkan 10 og 18. Á mánudag hefst flug frá Eyjum klukkan fimm um morguninn. Hjá Flugfélagi Íslands (FÍ) er langmest flogið til Eyja. Fullbókað er í flug á mánudag með FÍ en um 800 manns eiga þó bókað far frá Vestmannaeyjum. Að sögn FÍ er næstmest flogið til Akureyrar. Þá er fullbókað í siglingu með Herjólfi í dag. Loftbrú milli lands og Eyja Lárus Vilhjálmsson, Bjarki Gunnarsson og Guðmundur Friðriksson hafa allir farið áð- ur á Þjóðhátíð en Katrín Jó- hannesdóttir var á leið þangað í fyrsta skipti. Þau voru á leið í flug og sögðust að sjálfsögðu ætla á Húkkaraballið alræmda í gærkvöldi. Fiðringur í ferðalöngum Björk Ásgeirsdóttir, (t.v.) starfsmaður veitingastaðarins Fljótt og gott á Umferðarmiðstöðinni sagði að verslunarmannahelgarumferðin væri komin á skrið. „Það er farið að hressast hérna og komin góð stemning.“ Vigdís Ómarsdóttir og Sandra Brynjarsdóttir (t.h.) voru hressar á Umferðarmiðstöðinni. Vigdís er úr Eyjum og nýtur því þeirra forréttinda að fá að gista í heimahúsi hjá foreldrum sínum. Hún hefur aðeins einu sinni misst af Þjóðhátíð. Þá var hún í Afríku og grét úr sér augun að eigin sögn. Vigdís er í hljómsveitinni VaGína sem spilar á stóra sviðinu í Eyjum á sunnudaginn. Sandra var á leiðinni á hátíðina í fyrsta skipti. Hún ætlaði að vera í tjaldi og sagði markmið helgarinnar vera að skemmta sér vel. Morgunblaðið/Árni Sæberg MARGIR hafa eflaust hlakkað lengi til verslunarmannahelg- arinnar og sumir eru þegar haldn- ir á vit ævintýranna. Þegar blaða- maður og ljósmyndari Morgunblaðsins komu við á Reykjavíkurflugvelli og Umferð- armiðstöðinni í gærkvöldi lá straumurinn á Þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum og fjör var að færast í ferðalanga. Margir voru með gít- ar undir hönd og flestir með bros á vör, enda mikil ferða- og skemmtanahelgi framundan. BIRGIR Guðjónsson, formaður þjóðhátíðarnefnd- ar í Vestmannaeyjum, segir dúndrandi stemningu vera í bænum. Hann telur að á bilinu 6–700 manns hafi komið til Eyja þegar á miðvikudag og svo hafi verið góður straumur fólks til Eyja í gær. Um 7– 8.000 manns sækja Þjóðhátíð í Eyjum á hverju á ári og á Birgir von á svipuðum fjölda í ár ef ekki fleiri. Hann sagði að sídegis í gær hefði verið komið töluvert af tjöldum inn í Herjólfsdal. Formleg dagskrá hófst í gærkvöldi þegar menn komu sam- an á hinu víðfræga Húkkaraballi og skemmtu sér fram eftir nóttu. Birgir segist finna fyrir því að menn séu nokkuð fyrr á ferðinni heldur en venju- lega. Sömu sögu hafði Elías Bjarni Ísfjörð, fram- kvæmdastjóri Síldarævintýrisins á Siglufirði, að segja, þ.e. að honum þótti menn vera fyrr á ferð- inni heldur en í fyrra. Hann segir hátíðina verða setta með formlegum hætti í dag, en í gærkvöldi voru haldnir tónleikar þar sem ÓB kvartettinn spilaði ásamt Fílapenslunum og Helenu Eyjólfs- dóttur. „Dagskráin er mjög þétt í ár, mikið um að vera og nóg fyrir alla,“ segir Elías. Aðspurður seg- ist hann eiga von á um 3–4.000 manns í bæinn og bætir því við að allt umfram það sé ofar öllum væntingum. Birgir segir allan undirbúning hafa gengið mjög vel og veður hafi verið með eindæmum gott. „Menn eru búnir að vera berir að ofan í þrjár vikur að undirbúa Þjóðhátíð.“ Hann kveðst ekki hafa miklar áhyggjur af spánni en rigningu hefur verið spáð á sunnanverðu landinu á laugardag og sunnudag. „Það kemur einhver smávæta á laug- ardag, en það verður aldrei neitt til þess að hafa áhyggjur af,“ segir Birgir. Töluverð löggæsla verður í Eyjum og kveðst Birgir sérstaklega fagna aukinni fíkniefnalög- gæslu um helgina. Hátíðagestir fyrr á ferðinni Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is „VIÐ leggjum okkur fram um að hafa kerfið þannig um þessa helgi að tafir verða sem minnstar. Til dæmis reynum við að koma því þannig fyrir að klæðingar hafi ekki verið nýlega lagðar, til þess að það sé búið að leggjast í klæðningaslitlögin, það sé ekki steinkast og annað slíkt. Ég held svona almennt séð að umferð geti farið áfallalaust fram,“ segir Gunnar Gunnarsson aðstoðarvega- málastjóri um ástand vega og um- ferð um verslunarmannahelgina. Að sögn Gunnars verða engar fram- kvæmdir í gangi um verslunar- mannahelgina. Varðandi framkvæmdir við Vest- urlandsveginn segir hann það vera mikinn miskilning að tala um þreng- ingu umfram það sem hafi verið. Ávallt hafi verið ein akrein í hvora áttina, en nú sé verið að breikka veg- inn í fjórar akgreinar. Hann segir að búast megi við að umferð um þennan kafla verði eitthvað hægari sökum mikillar umferðar. Flestar aðalleiðir eiga að vera fær- ar en þess má geta að í Stafholts- tungum í Borgarfirði hefur verið unnið að því að endurbyggja sex km langan kafla frá Gljúfurá áleiðis að Bifröst. Fólk verði rólegt og afslappað Umferðarstofa verður með vakt fram eftir kvöldi, á laugardag og mánudag. „Við reynum að fylgja fólki af stað og heim aftur,“ segir Sigurður Helgason, verkefnisstjóri Umferðarstofu, og bætir því við að Umferðarstofa verði með útsending- ar eftir þörfum á útvarpsstöðvunum. Búast má við töluverðri umferð úr bænum um helgina og segir Sigurð- ur mikilvægt að fólk átti sig á því að það geti tekið tíma að komast út úr bænum. Hann segir mikilvægt að fólk taki lífinu með ró. Umferð um verslunarmannahelgina Tafir verði með minnsta móti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.