Morgunblaðið - 29.07.2005, Page 37

Morgunblaðið - 29.07.2005, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 37 MENNING Ísmábænum Bayreuth í Þýska-landi snýst allt í kringum tón-skáldið Richard Wagner enþar bjó hann um tíma og var forsprakki Bayreuth Festspielhaus- óperunnar. Götur bæjarins eru nefndar eftir tónskáldinu, tónverkum og per- sónum úr óperum og má sjá um- merki um þennan merka mann í fyr- irtækjum og stofnunum staðarins. Á mánudag hófst árleg Wagner- hátíð í bænum og stendur hún yfir næstu sex vikurnar. Íslenski leikarinn Björn Thors er einn leikara í Parsifal-óperunni, einni af fimm óperum sem sýndar verða á hátíðinni í ár, en henni er leikstýrt af listamanninum Chri- stoph Schlingensief og verður óper- an frumsýnd í kvöld. Þó svo stíf æfingatörn hafi verið síðustu fimm vikur hefur Björn haft það rólegt síðustu vikuna því söngv- ararnir þurfa að hvíla röddina vel fyrir frumsýninguna. Hann gat því gefið sér tíma í vik- unni til að spjalla við blaðamann Morgunblaðsins um Wagner- hátíðina, samstarfið við Schlingen- sief og fleira. Disneyland áhuga- manna Wagners „Bærinn er mjög fyndinn og fátt annað hér en hin árlega Wagner- hátíð,“ segir Björn. „Bærinn er eins og lítið Disneyland áhugamanna Wagners og þýskrar hámenningar því allt snýst um hann og hátíðina. Öll kaffihús, verslanir og stofnanir eru með myndir af honum upp á vegg eða úti í glugga og allir mat- seðlar eru litaðir af óperuhátíðinni. Ég hef meira að segja séð Parsifal apótek hér í bænum.“ Vegna óperuhátíðarinnar er meiri Wagner-gleði á staðnum en venju- lega og sést það greinilega á líf- legum bænum, skreyttum fánum og borðum. Björn segir æfingar á Parsifal hafa gengið vel og það sé mikið æv- intýri að taka þátt í svona stórri sýn- ingu með Schlingensief. Hann fékk tækifæri til að vinna með þýska listamanninum, kvik- myndagerðarmanninum og leik- stjóranum á Listahátíð í Reykjavík í vor þegar hann lék í kvikmynda- hluta verksins Animatograph sem sýnt var í Klink og Bank. „Í Parsifal leik ég hliðarpersónu eða skugga aðalpersónunnar Parsi- fal en einnig er japönsk leikkona sem fer með hlutverk svipaðar fíg- úru fyrir Kundry, aðalkvenpersónu verksins,“ útskýrir Björn en hug- mynd þessara persóna kemur frá leikstjóranum. Sýningin er mjög umfangsmikil og að henni kemur stór hópur fólks: um 20 leikarar og söngvarar ásamt 100 manna kór og heilli sinfóníu- hljómsveit. Þar fyrir utan eru fjöl- margir tæknimenn, leikmynda- og búningahönnuðir og fleiri. Tristan og Ísold frumsýnt í ár Á meðal þeirra fjölmörgu sem að sýningunni koma er skemmtilegur hópur statista. „Hópur afrískra stríðsmanna, þroskaheft börn og eldri hjón eru á sviðinu meðan á sýningunni stend- ur,“ segir Björn og finnst fjöl- breyttur hópurinn gefa verkinu skemmtilega blæ. „Sandershjónin eru til dæmis fullkomlega venjuleg hjón á sjötugsaldri sem leikið hafa í ýmsum verkefnum Schlingensief á síðustu árum. Meðal annars tekur Frú Eva Sanders þátt í einhverjum danssenum. Hluti handbragðs Schlingensief er að merkja sér verk- efnin með ákveðnu fólki og það er skemmtilega skrítið.“ Á Wagner- hátíðinni er eitt verk frumsýnt á ári sem síðan er sýnt í nokkur ár þar á eftir og var Parsifal í leikstjórn Schlingensief frumsýnt í fyrra. Frumsýningarverkið í ár var óperan Tristan og Ísold sem tvíeykið Christophe Marthaler leikstjóri og Anna Viebrock leikmynda- og bún- ingahönnuður settu á svið. Samt sem áður er alltaf mikill áhugi á verkefnum Schlingensief sem þekktur er fyrir að fara óhefð- bundnar leiðir. Björn segir mikið tilstand og fjöl- miðlafár hafa verið í kringum Parsi- fal-sýninguna í fyrra því deilur hafi komið upp á milli stjórnenda óp- eruhússins annars vegar og leik- stjóra og leikara hins vegar. Það er því mikið skrifað um hann í blöðum og ákveðin tilhlökkun um viðbrögð áhorfenda í ár. „Hann er mikil stjarna í Þýska- landi og ofboðslega afkastamikill, hefur búið til útvarpsleikrit og kvik- myndir ásamt því að setja á svið leiksýningar og gjörninga,“ útskýrir Björn. Magnað óperuhús Þetta er fyrsta óperan sem Schlin- gensief hefur leikstýrt og segir Björn að hann virðist hafa mjög gaman af þessu formi listarinnar. Óperuhúsið í Bayreuth tekur 2000 áhorfendur í sæti og í kringum að- alsviðið eru sjö æfingasvið í fullri stærð. Því hefur verið hægt að æfa allar sýningar Wagner-hátíðarinnar á sama tíma og leikmyndir verkanna eru smíðaðar í heilu lagi á æf- ingasviðunum. „Það er ótrúlega magnað að koma inn í svona stórt og tilkomumikið hús og þetta er stærsta og fullkomn- asta leikhús sem ég hef komið inn í,“ segir Björn. Eins og áður segir er Parsifal- sýningin mjög umfangsmikil og því góð samvinna og nákvæmni nauð- synleg. Á einum stað í sýningunni reynir mjög á alla sem að henni koma, þá sérstaklega tækniliðið. „Á einum tímapunkti í miðjum þætti er leikmyndinni skipt út. For- tjaldið fellur fyrir, leikararnir hlaupa út af og inn á sviðið storma 100 tæknimenn sem taka niður leik- myndina og stilla nýrri upp,“ lýsir Björn. „Á meðan spilar hljómsveitin millikafla úr verkinu og einni mínútu síðar fer tjaldið frá og við blasir ný leikmynd. Þetta eru eins og töfra- brögð.“ Hafnar öllu hefðbundnu Samstarf Björns og Schlingen- siefs hefur gengið vel þó að stundum hafi einnig tekið á. Hann segist koma frá öðruvísi leikhúsi þar sem vinnubrögðin séu öll mun hefð- bundnari. „Ég lýsi Þjóðleikhúsi Íslendinga stundum sem borgaralegu leikhúsi því þar er leitast við að starfa innan hefðbundins ramma hvað varðar frá- sögn, vinnubrögð leikara og að- standenda leikhússins,“ útskýrir hann. „Schlingensief vinnur þvert á þá hugsun. Hann hafnar öllu sem er hefðbundið, brýtur allt niður og býr þannig til sinn eigin stíl og sína eigin fagurfræði.“ Birni fannst erfitt í upphafi að skilja hvernig Schlingensief vinnur og hvaða aðferðum hann beitir. Vinnuferlið er ólíkt því sem hann þekkir og hefur því krafist þess að hann lærði ný vinnubrögð. „Í stað þess að hafa átta vikur til að kynnast þeirri persónu sem ég á að leika og fylla uppí ákveðin ramma líkt og ég geri á Íslandi þá hef ég á þessari fimm vikna æfingatörn aldr- ei leikið sömu senuna tvisvar eins,“ útskýrir Björn. „Schlingensief er fljótur að breyta til og stundum fá leikararnir ekki einu sinni tækifæri til að prófa það sem hann segir því hann er óðar búinn að skipta á ný um skoðun. Þetta er því mikil áskor- un og krefst þess að fólk þarf stöð- ugt að gefa af sér.“ Þetta á ekki einungis við um leik- ara og söngvara heldur einnig tækniliðið og leikmynda- og bún- ingahönnuði. Schlingensieftími framundan Björn segir sýninguna vera glæsi- lega; yfirhlaðna ýmsum skírskot- unum í listasögu, pólitík og sam- félagið í heild. Leikstjórinn hafi á sínum ferli í raun búið til einstakt leikhús og því sé frábært að fá tæki- færi til að vinna með eins miklum listamanni og Schlingensief er. Hvernig óhefðbundnu Parsifal sýningunni verður síðan tekið kem- ur í ljós í kvöld en óperuhátíðin er þekkt fyrir stór, íburðarmikil og hefðbundin Wagner-verk. Björn hefur fengið tækifæri til að sjá allar sýningar hátíðarinnar og segir þær mjög ólíkar. Á frumsýningu óperunnar Tristan og Ísold var klappað vel fyrir söngv- urunum en hins vegar púað á Marthaler og Viebrock og látunum linnti ekki fyrr en þau yfirgáfu svið- ið. Á milli vikulegra sýninga í Bay- reuth á næstu vikum verður Björn í Berlín þar sem hann tekur þátt í Animatograph 2 með Schlingensief og verður það frumsýnt í ágústlok. Í haust liggur svo leið hans til Afríku vegna Animatograph 3 verkefnisins. Það er því Schlingensief-tími fram- undan hjá Birni. Ópera | Björn Thors í Parsifal eftir Wagner í Þýskalandi Óhefðbundin upplifun í heimi óperunnar Morgunblaðið/Sverrir Frá sýningu óperunnar Parsifal árið 2004. Björn Thors fer með hlutverk skugga Parsifals í óperu eftir Rich- ard Wagner sem frumsýnd verður í Bayreuth í Þýskalandi í kvöld. Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur valaosk@mbl.is LEIKHÓPURINN Hugleikur er nú á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Mónakó sem stendur til 6. ágúst. Hátíðin er á vegum Alþjóðasamtaka áhugaleik- félaga og er haldin á fjögurra ára fresti: „Hér eru 24 hópar og sýnir hver þeirra tvisvar. Haldnar eru um- ræður, farið yfir sýningarnar og hóparnir spurðir um vinnuaðferðir sínar og áhugaleikhús í þeirra heimalandi. Að auki verða n.k. leik- smiðjur á morgnana og gaman að segja frá því að einn af þremur kennurum þar verður leikstjórinn okkar, Ágústa Skúladóttir, “ sagði Þorgeir Tryggvason, formaður Hugleiks. Á hátíðinni flytur leikhópurinn verkið Undir Hamrinum eftir Hildi Þórðardóttur en verkið hefur fengið enska titilinn Country Matters en er annars flutt á frummálinu. „Lengd hverrar sýningar má ekki vera meiri en klukkutími. Okkur tókst að stytta verkið og höfðum í huga að halda inni öllu því sjónræna og tónlist- arlega,“ segir Þorgeir og bætir við að tímamörkunum sé fylgt af mikilli festu. „Það er hreinlega slökkt á ljósunum þegar 60 mínútur eru liðn- ar.“ Frekari upplýsingar er að finna á www.mondialtheatre.org. Sigurður H. Pálsson og Jóhann Snorrason í hlutverkum sínum. . Hugleikur á leiklist- arhátíð í Mónakó

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.