Morgunblaðið - 29.07.2005, Page 26

Morgunblaðið - 29.07.2005, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ ÞorgerðurSveinsdóttir fæddist á Kolsstöð- um í Miðdölum í Dalasýslu 6. mars 1907. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 19. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sveinn Finns- son, bóndi á Kols- stöðum og seinna í Eskiholti í Borgar- hreppi, f. 1856, d. 1942 og Helga Ey- steinsdóttir húsfreyja, f. 1861, d. 1935. Systkini Þorgerðar eru Þór- dís, f. 1884, d. 1975, Eysteinn, f. 1886, d. 1915, Finnur, f. 1887, d. 1982, Bjarni, f. 1890, d. 1976, Ás- mundur, f. 1893, d. 1982, Ingi- björg, f. 1895, d. 1989, Benedikt, f. 1898, d. 1967, Anna, f. 1901, d. 1994, Hallsteinn, f. 1903, d. 1995 og Sigurður, f. 1904, einn eftirlif- andi systkinanna. Þorgerður giftist hinn 30. sept- ember 1938 Sveini Rósinkrans Jónssyni bifreiðastjóra, f. 22. sept. 1907, d. 14. feb. 1992. Foreldrar hans voru Jón Rósinkrans Sveins- son, bóndi á Hvilft við Önundar- fjörð, f. 1881, d. 1974 og Guðbjörg Tómasdóttir húsfreyja, f. 1881, d. 1963. Börn Þorgerðar og Sveins eru: 1) Helga, tannsmiður og kaupkona, f. 23. janúar 1940, gift Valdimar Guðnasyni, löggiltum endurskoðanda, f. 1941. Börn þeirra eru: a) Þorgerður fé- lagsráðgjafi, f. 1969, b) Björgvin viðskiptafræðingur, f. 1970, c) Anna Róslaug, verkefnastjóri hjá Ferðamálaráði, f. 1973, gift Gunn- ari Sigurðssyni markaðsstjóra, dóttir þeirra er Nína Kristín, f. 2003 og d) Magnea Björk leiklistar- nemi, f. 1979, unn- usti Þór Sigurðsson leiðsögumaður. 2) Jón, lyfsali, f. 14. júní 1942, kvæntur Guðrúnu Óskars- dóttur lyfjafræð- ingi, f. 1944. Börn þeirra eru: a) Gunn- hildur, myndlistar- maður og kennari, f. 1972, gift Hilmari Bjarnasyni mynd- listarkennara, dótt- ir þeirra er Guðrún, f. 2003, b) Sveinn Rúnar tölvunarfræðingur, f. 1974, og c) Þorbjörg myndlist- armaður, f. 1979. 3) Sigríður pí- anókennari, f. 27. nóvember 1946, gift Guðmundi Helga Guðmunds- syni, rafiðnfræðingi og fram- kvæmdastjóra, f. 1941, d. 2001. Dætur þeirra eru: a) Kristín, MA- nemi, f. 1977 og Gerður, grafískur hönnuður, f. 1979, unnusti Jón Pétur Jónsson blaðamaður. Þorgerður hóf skólagöngu sína hjá farkennara í Dölunum og síð- an var hún í Hvítárbakkaskóla. Hún fór til Danmerkur í vist 21 árs gömul og í lýðháskóla þar. Þorgerður hóf nám í Kennara- skólanum 1929 og lauk kennara- prófi þaðan 1931. Hún stundaði kennslu, m.a. í Hvítársíðu og Hálsasveit, Hellissandi, Snæfjalla- strönd og Flateyri. Hún fór á nám- skeið til Svíþjóðar og Danmerkur til frekari menntunar. Frá árinu 1962 og til starfsloka kenndi hún handavinnu við Höfðaskóla sem seinna varð Öskjuhlíðarskóli. Útför Þorgerðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Þú ert mér að hverfa, elsku Gerða mín, ó hve lengi mun ég sakna þín, en vonin eina vermir huga minn að verndi Drottinn lífsferilinn þinn. Mundu ávallt, elsku barnið mitt, æðstan Drottin biðja um hjálpráð sitt, hvar þú ferð um höf og fögur lönd hann mun jafnan greiða efnin vönd. Ég græt ein heima en gleðibjarma slær á grátna augað, elsku vina kær, því fast ég vona að fylgi Drottinn þér og fögur gæfa hvar um lönd sem fer. (Helga Eysteinsdóttir.) Með þessum ljóðlínum ömmu okk- ar kveðjum við í dag kæra móður okk- ar. Veri hún ætíð Guði falin. Helga, Jón og Sigríður. Í dag verður borin til hinstu hvílu tengdamóðir mín, Þorgerður Sveins- dóttir. Þorgerði kynntist ég fyrst fyrir tæpum fjörutíu árum, þegar kynni okkar Helgu, eiginkonu minnar og eldri dóttur hennar og Sveins Jóns- sonar, hófust. Á þeim árum starfaði Þorgerður við handavinnukennslu við Höfðaskóla í Reykjavík, sem síðar varð Öskjuhlíðarskóli, og rekinn var fyrir börn og unglinga sem af ýmsum ástæðum stóðu ekki jafnöldrum sín- um á sporði í andlegum þroska. Mér er það sérlega minnisstætt frá þess- um tíma hve Þorgerður lét sér annt um nemendur sína og hve mjög hún gladdist yfir áhuga marga þeirra á handavinnu. Man ég vel hve ákveðnar skoðanir hún hafði á því að auka ætti áhuga nemenda almennt á hverskon- ar handmennt, sem síðar á lífsleiðinni gæti komið þeim til góða, ekki síður en hverskonar bókleg fög. Þorgerður var ákaflega listfeng manneskja, en á þeim árum sem liðin eru síðan hún hætti kennslu má segja að hún hafi verið skapandi í höndun- um allt fram á síðasta dag. Hverskon- ar útsaumur, mótun leirmuna, bæði nytjahluta og listmuna, svo og gerð málverka lék í höndunum á henni og gaman er að minnast þess að á níutíu og fimm ára afmæli hennar sem hald- ið var upp á með veglegum hætti í húsi aldraðra við Sléttuveg, þar sem hún var þá búsett, var haldin sýning á mörgum af þeim verkum sem hún hafði skapað á umliðnum árum. Þorgerður átti því láni að fagna að halda sínum andlegu kröftum að miklu leyti óskertum fram til síðasta dags og er ég ekki í vafa um að sköp- unarþörfin, sem aldrei yfirgaf hana, átti þar stærstan þátt. Með þessum fátæklegu minningar- orðum kveð ég ástkæra tengdamóður mína og óska henni guðs blessunar. Valdimar Guðnason. Hún amma mín er dáin, sofnuð svefninum langa. Hún sagði mér að maður ætti ekki að vera dapur þegar gamalt fólk deyr, þetta væri eins og að fá að hvíla sig eftir langan vinnu- dag. Þannig er það fyrir ömmu. Hún átti langa ævi og var ein af þessum merkilegu mannverum sem upplifðu allar breytingar tuttugustu aldarinn- ar. Fæddist í torfkofa, átti hest og rokk þegar hún var ung kona, seldi eigurnar sínar og fór til útlanda. Lærði og lifði. Útskrifaðist frá Kenn- araskólanum sjötíu árum á undan mér og hóf starfsferilinn í farkennslu. Hún sagði mér frá því er hún sat eitt sinn yfir krökkum í prófi, þetta var á fátækum bæ þar sem börnin höfðu fengið einhvern reyting af þeirri kennslu sem hún gat boðið á ferðunum og var óvíst hvort þau kynnu nóg til að ná þessu prófi. Amma reyndi að vera upplífgandi fyr- ir krakkana þó ekki vildi hún hjálpa þeim með svörin. Skyndilega var próftíminn truflaður af símtali. Það var yfirmaður í sveitinni með þau fyr- irmæli til ömmu að hann ætlaðist ekki til þess að börnin á þessum bæ næðu prófinu. Slíkur var hroki yfirvaldsins gegn hinum sem minna máttu sín. Þetta símtal varð hinsvegar til þess að amma fór inn til krakkanna og hjálpaði þeim umyrðalaust að leysa prófið svo þau náðu öll með glæsi- brag. Stundum hugsa ég um þetta ef mér finnst erfitt að ákveða eitthvað. Líka þegar amma kenndi handavinnu í Höfðaskóla (seinna Öskjuhlíðar- skóli) og þurfti að vinna sína vinnu í lok dagsins, þar sem ekki var um það að ræða að hafa sér kennslustofu fyr- ir handavinnu. Hún sagði mér frá því að í upphafi faldi hún skæri handa krökkunum í kennaraborðinu, þar sem ekki var ætlast til þess að nem- endurnir notuðu slík hættutól. Seinna sá fólk árangurinn og fór að skilja ýmislegt betur. Við fussuðum stund- um yfir því hvernig verk og listgrein- ar eru oft settar á óæðri stall þegar talað er um menntun barna, þó op- inberlega séu þær ekki lengur kall- aðar ruslgreinar eins og amma hafði heyrt í upphafi ferils síns. En amma sinnti ekki bara listinni í gegnum kennslu. Hún var menntuð handverkskona og fór að mála uppúr sjötugu. Hélt sýningu á 95 ára afmæl- inu sínu. Fréttamaður spurði hana í viðtali hvernig hún færi að því að verða svona gömul. Hún svaraði að bragði að hún hefði nú ekkert beðið um það. Af hverju var hún ekki spurð útí myndirnar? Stóri bróðir hennar fór í listnám, ég velti því stundum fyr- ir mér hvort ævin hennar ömmu hefði verið öðruvísi hefði hún verið strákur. En í raun er ekki víst að það hefði breytt neinu. Afi minn heitinn sagði einu sinni að amma hefði skapað allt inni hjá þeim nema sig. Þannig var það líka. Hún bjó til abstrakt myndir úr gömlum slifsum, og efnisbútum, málaði rómantískar landslagsmyndir og saumaði textaverk. Hún blandaði saman ólíkum efniviðum, gerði til- raunir með hvað sem henni datt í hug og var jafnfær um að sauma út og vefa hefðbundin íslensk mynstur sem og að skapa sér sínar eigin vinnuregl- ur. Hún leiraði skálar ef hana vantaði, bjó til lampafætur og skerma, prjón- aði jafnt peysur, sokka og jólasveina og saumaði dásamlegar Rauðhettur með ömmuna og úlfinn í felum á sömu leikbrúðunni. Henni fannst myndlist í dag vera orðin að einhverju allt öðru en því sem hún hafði kynnst í upphafi, en flissaði bara að því sem henni fannst ekki mikið vit í. Fyrir nokkrum árum fór hún amma að hafa orð á því að hana lang- aði að fara að eignast langömmubarn. Henni fannst ekki nokkurt vit í því hvernig ég héldi áfram í skólum enda- laust komin fast að þrítugu. Ég man að ég klóraði mér aðeins í kollinum og reiknaði út að hún hefði verið hálf- fertug þegar pabbi fæddist, þá búin að ferðast, mennta sig og sinna lífinu meira en margar nútímastúlkur ná að gera áður en móðurhlutverkið breytir allri tilverunni. Mér fannst líka ekk- ert liggja á og amma væri eilíf. Það var svo ekki fyrr en að Guðrún litla var fædd og ég sá Gerðu ömmu ljóma af stolti sem ég gerði mér grein fyrir að börnin okkar fæðast ekki bara til foreldra sinna heldur til allrar fjöl- skyldunnar og ekki síst til þeirra sem styst eiga eftir af lífinu. Mér finnst gott að eiga minninguna um ömmu og hún mun lifa sem fyr- irmynd mín og þeirra sem ég fæ tæki- færi til að leiðsegja í lífinu. Það er margt hjartnæmt sem bærist í þess- um minningum en mest ber þó glæsi- leika og gleði. Megi Guð geyma hana ömmu mína. Gunnhildur Una Jónsdóttir. Okkur langar í fáum orðum að minnast ömmu okkar sem er kvödd í dag. Það er hálfskrýtið að hugsa til þess að ekki sé lengur hægt að skreppa til ömmu í heimsókn eða heyra í henni í síma, því þó að hún væri að nálgast hundrað árin og á margan hátt orðin lúin naut hún þeirrar gæfu að halda andlegum kröftum til síðasta dags. Hún minnt- ist þess oft þegar hún ung að árum byrjaði að spinna með móður sinni, meðan hún hlustaði á söguna af Hlina kóngssyni. Amma gerði kennslu að lífsstarfi sínu og kenndi m.a. þroska- heftum börnum handmenntir. Hún var einstaklega flink handvinnukona og var alltaf að. Hún sagðist reyndar stundum vera hætt allri handavinnu, en næst þegar maður heimsótti hana var hún óðara byrjuð á einhverju nýju. Hún hafði afar næmt auga fyrir samsetningu lita og hugmyndaauðgin virtist óþrjótandi, enda liggja eftir hana ógrynni af málverkum, leirmun- um og öðru handverki. Amma var einstaklega lífsglöð og ljúf í lund og skipti sjaldan skapi. Þó komu auðvitað dagar þar sem henni leið ekki sem best, en þá sagði hún gjarna að sér liði undireins betur ef hún fengi sér eitthvað að gera. Hún skildi það betur en margur annar að hún bar ábyrgð á eigin lífi og ham- ingju, og í því sem og mörgu öðru var hún okkur barnabörnunum afar góð fyrirmynd. Líf hennar var ekki samt eftir að hún missti afa fyrir þrettán árum. Þau voru einstaklega samheldin hjón og hún missti mikið við fráfall hans. Hún þóttist samt viss um að hann biði sín hinum megin og er vísast glatt á hjalla hjá þeim núna. Við viljum að lokum kveðja ömmu og þakka henni samfylgdina með ljóð- línum Hannesar Péturssonar skálds: Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Þorgerður, Björgvin, Anna Róslaug og Magnea Björk. Elsku amma, þú varst falleg og góð kona. Það fór nú reyndar ekki mikið fyrir þér, þú varst alltaf svo hógvær með góða og þægilega nærveru. Prjónarnir og saumadótið voru aldrei langt utan seilingar og þú varst alltaf svo iðin. Við krakkarnir munum alltaf eftir þér annaðhvort inni í eldhúsi að hafa til mat, að prjóna einhverja flík eða að sauma út í myndir, dúka og annað slíkt. Það eru mörg listaverkin til eftir þig. Þú og afi hafið heldur bet- ur gert margt skemmtilegt saman um ævina, ekki má gleyma öllum ferða- lögunum ykkar, bæði innanlands og erlendis. Svo hafið þið verið svo ein- staklega heilsuhraust, framkvæmda- og hugmyndaglöð og sýnt okkur og sannað að ekki þurfum við að kvíða ellinni ef heilsan er í lagi. Amma mín, þú hefur svo sannarlega lifað tímana tvenna. Þú ólst upp í torfbæ á sauð- skinnsskóm sem okkur krökkunum þykir mjög merkilegt, og við erum mjög glöð yfir því að hafa náð að skoða fæðingarstað þinn uppi í Núp- seli með þér, stjórfjölskyldunni og öðrum ættingjum fyrir nokkrum ár- um. Þú hefur verið einstaklega heilsuhraust alla tíð þar til í janúar sl., þess vegna var erfitt að sjá þig svona veika rétt áður en þú kvaddir okkur, en við erum glöð yfir því að þú þurftir ekki að þjást, enda mikið búið að taka frá þér eftir að þú misstir sjónina.Við munum vel eftir fyrstu veiðistöngun- um, veiðisögunum og veiðitúrunum sem þið afi fóruð með okkur. Þær eru nú orðnar ansi margar útilegurnar sem við höfum farið saman, og það eru ekki nema rétt rúmar þrjár vikur frá þeirri síðustu. Þú lést þig ekki vanta frekar en fyrri daginn og söngst með af innlifun eins og ávallt. Já, margs er að minnast og margt er að þakka og sumt aldrei fullþakkað. Það var ávallt mikið fjör þegar stór- fjölskyldan hittist, hvort sem það var í matarboðum, jólaboðum, útilegum eða við önnur tækifæri, og þú naust þín vel að vera með okkur. Elsku amma, við þökkum fyrir all- ar stundirnar með þér og yljum okk- ur við góðar minningar, og vitum að þér líður vel og að þú varst sátt við líf- ið. Blessuð sé minning þín. Kær kveðja, Hrönn, Þorsteinn, Elín Ása, Friðbergur Jón og fjöl- skyldur. Í hárri elli hefur merkiskonan Þor- gerður Sveinsdóttir nú kvatt, en verkin fögru, sem hún skóp, lifa áfram. Þorgerður var gift frænda mínum, öndvegismanninum Sveini Jónssyni heitnum, og móðir frændsystkinna minna, Helgu, Jóns og Sigríðar en mikill samgangur var okkar á milli á uppvaxtarárunum og traust bönd þá sköpuð. Þorgerður bjó Sveini og börnum þeirra fallegt og hlýlegt heimili, sem var einkar ljúft heim að sækja og það- an eru margar góðar og kærar end- urminningar. Þá var það afar dýr- mætt að þegar erfiðleikar steðjuðu að reyndust þau hjón traustustu vinir með fúsar hjálparhendur. Þorgerður vildi ekki láta á sér bera, var róleg, og einkar hlý í viðmóti með glettni í augum. Hún var einhver minnugasta kona, sem ég hef kynnst og hélt því til æviloka þótt hátt á tí- ræðisaldurinn væri komin. Var unun að fá að sitja og ræða við hana því hún sagði svo skemmtilega frá og gæddi löngu liðna atburði nýju lífi með ótrú- legu minni um menn og málefni. En þegar ég minnist Þorgerðar þá er það ekki síst fegurðarsköpun hennar, sem kemur í hug. Hún var, eins og hún átti ætt til að rekja, lista- kona þar sem hannyrðir voru og kenndi þá list í mörg ár. Í hennar verkum var að finna dýpt, einstaka litasamsetningu og mikla nákvæmni í minnstu smáatriðum, sem allt skap- aði einkar fagra listræna heild. Heim- ili hennar báru þess glöggan vott en þar skapaði snilld hennar fagurt um- hverfi, sem hreif alla, er áttu því láni að fagna að sjá. Þorgerður fékk þess notið að eiga góðan mann og börn, maka þeirra og afkomendur, þar sem gagnkvæm gleði í samveru ríkti og þar sem hún naut mikils stuðnings, þegar árunum tók að halla. Við hjónin vottum fjölskyldu henn- ar einlæga samúð og þökkum jafn- framt að hafa fengið að kynnast þess- ari einstöku konu,, sem með verkum sínum skilur eftir fegurri heim en hún kom í. Gunnar Finnsson. Fljúga hvítu fiðrildin fyrir utan gluggann, þarna siglir einhver inn ofurlítil duggan. (Sveinbjörn Egilsson.) Þetta litla fallega vers minnir okk- ur á elsku ömmu sem við kveðjum í dag með miklum söknuði. Amma fór oft með þessa vísu sem og önnur ljóðabrot og það yljar okkur um hjartarætur að rifja upp þessi orð núna og hugsa hlýlega til hennar. Amma var einstaklega hjartahlý og góð kona sem reyndist okkur alltaf vel. Nú þegar kveðjustund er runnin upp er okkur efst í huga mikið þakk- læti fyrir að hafa átt svona góða ömmu að og fyrir að hafa notið góð- vildar hennar og samveru svona lengi. Hún var okkur góð fyrirmynd og hefur alla tíð haft mikil áhrif á okk- ur með jákvæðum viðhorfum sínum ÞORGERÐUR SVEINSDÓTTIR REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is LEGSTEINAR Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.