Morgunblaðið - 29.07.2005, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 29.07.2005, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ EFLAUST er leitun að hreinlátara fólki en Margréti Sigfúsdóttur og Heiðari Jónssyni. Þáttur þeirra, Allt í drasli, sem sýndur var á SkjáEin- um, hlaut góðar viðtökur en í þátt- unum heimsækja þau Margrét og Heiðar heimili sem þarf að taka rækilega í gegn. Í haust verða sýnd- ir nýir þættir og ætla þau að halda áfram góða starfinu. „Við hjálpum fólki að koma röð og reglu á heimilið og kennum þeim hvernig hægt er að halda hlutunum áfram í röð og reglu svo ekki fari allt í drasl aftur,“ sagði Margrét þegar blaðamaður spjallaði við hana. „Við förum í gegnum íbúðina og kennum þeim góð ráð, athugum hvar þarf að taka á og hverju þarf að breyta svo ekki fari allt á kaf.“ Þrifið í hólf og gólf Margrét og Heiðar mæta með teymi manna og taka höndum sam- an við ræstingarnar. Og allt er tekið í gegn. „Við lítum undir rúmin og inn í skápana og komum hlutunum fyrir. Það verður jú að setja allt á sinn stað, sortera úr og gefa það sem ekki þarf í hjálparstarf eða á gámastöðvar. Fólk á ekki að safna ónýtum húsgögnum sem haugast upp í bílskúrnum – gefa þetta frek- ar, svo einhver geti notað þetta,“ segir Margrét. Þættirnir eru gerðir að breskri fyrirmynd og fylgdu þau Margrét og Heiðar forskrift þáttanna í síð- ustu þáttaröð. „Nú held ég að við höfum aðeins frjálsari hendur og leggjum meiri áherslu á að kenna fólki hagnýta hluti. Það væri ekkert að því að líta á garðana líka. Mér finnst ofboðslega gaman að vera úti í garði. Það er heilmikil vinna að taka garð í gegn en óskaplega gef- andi: Að vera moldugur á hönd- unum og sveittur úti, setjast síðan niður og fá sér kaffi, horfa á það sem maður hefur gert og sjá hlutina breytast og verða fína. Það er af- skaplega gaman.“ Margrét leggur áherslu á að fólki sé kennt að viðhalda hreinlætinu á heimilunum: „Við komum aftur í heimsókn eftir hálfan mánuð og sjáum hvernig heimilið lítur út. Það veitir manni óskaplega ánægju ef maður sér að þetta hefur borið ár- angur. Það var sérstaklega eitt heimili sem gladdi mig, þar sem bú- ið var að virkja krakkana, bæta inn á heimilið nýjum hlutum og allt var orðið miklu fallegra en þegar við fórum. Og allir voru svo ánægðir. Það veitir manni mikla gleði þegar maður getur hjálpað einhverjum svona.“ Aðspurð kennir Margrét hraða samfélagsins um það að fólk eigi það stundum til að ráða ekki við óhrein- indin: „Það er margt sem kemur til sögunnar. Allir eru að vinna úti, og svo önnum kafnir. Allt er á síðustu stundu: Sækja þarf börnin og gefa öllum að borða og allt saman. Svo getur líka óskipulag staðið fyrir þrifum: Fólk er allt af vilja gert og vill halda heimilunum í horfi en það er oft búið að gefast upp því það sér ekki fram úr óhreinindunum.“ Létt verk ef gengið er frá jafnóðum og allir hjálpast að „Það þarf að kenna fólki að skipu- leggja svolítið og forgangsraða líka. Fólk er oft að einblína á eitthvað sem ekki er endilega það rétta. Það þarf að hjálpa fólki að skipuleggja tímann og ganga frá hlutunum jafn- óðum. Þetta er nefnilega ekkert verk ef hlutirnir eru brotnir saman og settir inn í skáp, en fá ekki að dreifast um alla íbúð. Síðast en ekki síst þarf að reyna að virkja fólkið á heimilinu svo það sé ekki bara ein manneskja sem sér um öll þrif, held- ur séu þau eitthvað sem allir taki þátt í.“ Margrét segir fólk yfirleitt taka vel á móti þeim Heiðari, en ábend- ingar um heimili sem þurfa á þrifn- aðarhjálp að halda berast héðan og þaðan: „Sumir hringja inn sjálfir, og oft hringja foreldrar, systkini og vinafólk og benda á einhverja.“ Enn er hægt að koma áleiðis ábend- ingum til þáttarins, en auk þess að líta á heimili á höfuðborgarsvæðinu ætla Margrét og Heiðar að bregða undir sig betri fætinum og ferðast um landið. Hvetur Margrét fólk til að hafa samband, enda eru þau Heiðar öll af vilja gerð og vilja endi- lega heimsækja sem fjölbreyttust heimili. Það er gaman að taka til Heiðar og Margrét hafa sagt óhreinindum stríð á hendur. Allt í drasli verður á dagskrá SkjásEins á sunnudögum í haust. asgeiri@mbl.is Lögfræðingur söngvarans Mich-aels Jacksons segir að hann hafi verið lagður inn á sjúkrahús eftir að réttarhöldunum yfir honum lauk og að hann hafi enn ekki verið út- skrifaður. Jack- son hefur ekki sést opinberlega síðan hann var sýknaður af ákærum um að beita ungan dreng kynferðislegu of- beldi og vakti það sérstaka athygli að hann var ekki viðstaddur afmæli föð- ur síns í síðustu viku. „Hann átti við veikindi að stríða á köflum. Fólk áttar sig ekki á því en hann var lagður inn á sjúkrahús eftir að dómurinn var kveðinn upp,“ sagði Thomas Mesereau, lögfræðingur Jacksons, í viðtali við BBC. „Hann þjáðist af vökvaskorti. Hann hafði lést gríðarlega mikið og átti erfitt með að halda nokkru niðri.“ Þá sagði hann bakverki hafa þjáð Jackson á meðan á réttarhöldunum stóð.    Ástralska leikkonan Nicole Kid-man hefur upplýst að hún hygg- ist taka sér langt frí frá kvikmynda- leik í lok þessa árs. Leikkonan hefur leikið í átta kvikmyndum á und- anförnum tveimur árum og samið um að leika í fjórum til viðbótar. Að þeim loknum segist hún hins vegar ætla að láta sig hverfa úr sviðsljósinu um tíma. „Þið eigið ekki eftir að sjá mig í langan tíma. Það gæti orðið ár, það gætu orðið tvö ár. Ég ætla ekki að gefa ykkur upp ferðaáform mín en þau eru nokkur. Það mun líða nokkur tími áður en ég kem aftur,“ sagði hún í viðtali við blaðamann imdb.com. Fólk folk@mbl.is kl. 10.40 Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 B.i 16 ÁRA H.L. MBL   Sýnd kl. 8 og 10 B.i 16 ÁRA BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT! K&F XFM H.L. - MBL. Frá framleiðanda Texas Chainsaw Massacre Kemur magnaðasta hrollvekja ársins! Fór beint á toppinn í USA Byggt á sannri sögu  T.V. kvikmyndir.is  „…mynd sem hægt er að líkja við Die Hard, spennandi og skemmtileg…” ÓÖH DV „ ynd se h gt er að líkja við Die ard, spennandi og ske tileg ” D  BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT!   Sýnd kl. 8 og 10.20 Frá framleiðanda Texas Chainsaw Massacre Kemur magnaðasta hrollvekja ársins! Sýnd kl. 6 B.i 16 ára Miðasala opnar kl. 15.15 Sími 564 0000 i l l. 7 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Nú eru það fangarnir gegn vörðunum! SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS. FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS. FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM! Nú eru það fangarnir gegn vörðunum! kl. 5.30 og 8 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I 16 ára Þorir þú í bíó? REGLA #15: BERSTU Á MÓTI LÖNGUNINNI3. ÁGÚST EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Hverju myndir þú fórna fyrir fjölskylduna? Hverju myndir þú fórna fyrir fjölskylduna? Magnaður spennutryllir af bestu gerð með Bruce Willis í toppformi Magnaður spennutryllir af bestu gerð með Bruce Willis í toppformi SÍÐUSTUSÝNINGAR Sýnd kl. 5.30 B.i 14 ÁRA Þorir þú í bíó? Fór beint á toppinn í USA Byggt á sannri sögu Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20 B.i 16 ára  „…mynd sem hægt er að líkja við Die Hard, spennandi og skemmtileg…” ÓÖH DV  „þrusuvel heppnuð spennumynd” K & F „ r s vel e s e ”  „…mynd sem hægt er að líkja við Die Hard, spennandi og skemmtileg…” ÓÖH DV „ ynd se h gt er að líkja við Die ard, spennandi og ske tileg ” D  „þrusuvel heppnuð spennumynd” K & F „ r s vel e s e ”  „þrusuvel heppnuð spennumynd”K & F

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.