Morgunblaðið - 14.08.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 217. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
N†TT
KORTATÍMABIL!
Frækin og
feminísk
Skarphéðinn Guðmundsson ræðir
við Jessicu Alba | Menning
Tímaritið og Atvinna
Tímaritið | Kiri te Kanawa og stórlaxarnir Hvar eru vínin? Úr
heimsborginni á Hólinn Helgi Snær og stóri bróðir Útivist er
margra meina bót Atvinna | Smekkfullt blað af auglýsingum
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
HLUTAFÉLAGIÐ Baugur greiddi fyrir marg-
víslegar fjárfestingar og persónulega eyðslu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs,
og Tryggva Jónssonar, fyrrverandi forstjóra og
fleiri. Þetta kemur fram í kæru ríkislögreglu-
stjóra á hendur Jóni Ásgeiri og Jóhannesi Jóns-
syni, föður hans, Kristínu Jóhannesdóttur, syst-
ur hans, Tryggva Jónssyni, fyrrverandi
forstjóra Baugs og tveimur endurskoðendum
Baugs.
Ákærurnar eru birtar í heild sinni í Morg-
unblaðinu ásamt athugasemdum sakborninga.
Lán frá Baugi
Í ákærunni kemur fram að fjárfestingar sem
Fjárfestingafélagið Gaumur stóð að hafi ítrekað
verið greiddar af reikningum Baugs hf. Baugur
var á þeim tíma félag sem skráð var á Verð-
bréfaþingi Íslands og í eigu margra hluthafa.
Gaumur er einkahlutafélag í eigu Jóhannesar
Jónssonar og fjölskyldu, en félagið er stærsti
eigandinn í Baugi.
Í ákærunni kemur fram að í október 1998 hafi
Jón Ásgeir látið Baug-Aðföng, dótturfélag
Baugs, greiða 200 milljónir til Helgu Gísladótt-
ur, en hún afhenti ávísunina sambýlismanni sín-
um, Eiríki Sigurðssyni, eiganda Vöruveltunnar.
Baugur eignaðist hins vegar ekki hlut í Vöru-
veltunni fyrr en á árinu 1999.
Jón Ásgeir er ákærður fyrir að hafa í júní
2001 látið Baug greiða 95 milljónir inn á banka-
reikning í Kaupþingi. Þaðan fór upphæðin til
Kaupthing Bank í Lúxemborg til félagsins
Cardi Holding, dótturfélags Gaums Holding, en
peningarnir voru notaðir, ásamt láni, sem hluta-
fjárframlag í FBA-Holding. Það félag var í eigu
Fjárfestingafélagsins Gaums og þriggja ann-
arra.
Jón Ásgeir og Tryggvi eru kærðir fyrir að
hafa í ágúst 1999 millifært 100 milljónir af reikn-
ingi Baugs til Íslandsbanka vegna innheimtu á
hlutafjárloforðum, sem greiðslu Gaums, þegar
einkahlutafélagið tók þátt í hlutafjárútboði í
Baugi.
Jón Ásgeir er ákærður fyrir að hafa um mitt
ár 1999 látið afhenda Gaumi 10,7 milljónir hluta
Baugs í Flugleiðum. Hlutabréfin seldi Gaumur
síðar fyrir 49,4 milljónir. Þessi skuld Gaums við
Baug ásamt fleiri skuldum var gerð upp árið
2002.
Jón Ásgeir er ákærður fyrir að hafa í október
1999 fært 4,5 milljónir af bankareikningi Baugs
inn á reikning Gaums til kaupa á fasteigninni að
Viðarhöfða 6 í Reykjavík.
Jón Ásgeir og Tryggvi eru kærðir fyrir að
hafa í desember 1999 látið millifæra 8 milljónir
af reikningi Baugs til SPRON sem greiðslu
Gaums fyrir helming hlutafjár í Viðskiptatrausti
ehf., sem var í eigu SPRON. Skuldin var gerð
upp í júní 2000.
Jón Ásgeir og Tryggvi eru ákærðir fyrir að
hafa í desember 1999 látið Baug greiða inn á
bankareikning Gaums 35 milljónir vegna kaupa
Gaums á Debenhams PLC í Bretlandi. Skuldin
var gerð upp viku síðar.
Jón Ásgeir og Tryggvi eru kærðir fyrir að
hafa í febrúar 2001 látið færa á viðskiptamanna-
reikning Gaums hjá Baugi 50,5 milljónir vegna
kaupa Gaums á hlutabréfum í Baugi.
Jón Ásgeir og Tryggvi eru ákærðir fyrir að
hafa í sama mánuði látið færa á viðskiptamanna-
reikning Kristínar í Baugi 3,8 milljónir vegna
kaupa Kristínar á hlutabréfum í Baugi.
Jón Ásgeir er ákærður fyrir að hafa í maí 2001
látið millifæra 100 milljónir af reikningi Baugs
inn á reikning Gaums, en peningarnir voru not-
aðir sem hlutafjárframlag Gaums í Restaurant
Group AB.
Keypti Vöruveltuna af Jóni Ásgeiri
Jón Ásgeir og Tryggvi eru ákærðir fyrir að
hafa lánað án trygginga eða ábyrgða 64,5 millj-
ónir, fyrir hönd Baugs, til Fjárfars, en Jón Ás-
geir stýrði því félagi. Peningarnir voru notaðir
til að kaupa hlutabréf í Baugi.
Jón Ásgeir og Tryggvi eru ákærðir fyrir að
hafa í júní 2000 lánað 50 milljónir, fyrir hönd
Baugs til Fjárfars vegna kaupa einkahluta-
félagsins í Baugi-net. Viðskiptin gengu síðar til
baka.
Jón Ásgeir og Tryggvi eru ákærðir fyrir hafa
í febrúar 2001 lánað, fyrir hönd Baugs 87,8 millj-
ónir til Fjárfars vegna kaupa Fjárfars í Baugi.
Í ákærunni eru Jón Ásgeir og Tryggvi sakaðir
um að hafa í maí 1999 blekkt stjórn Baugs og mis-
notað aðstöðu sína sem forstjóri og aðstoðarfor-
stjóri Baugs, með vitund Jóhannesar, til að heim-
ila Jóni Ásgeiri til að ganga til samninga um kaup
á 70% hlutafjár í Vöruveltunni hf. Jón Ásgeir hafi
á þeim tíma sjálfur verið umráðandi 70% hluta-
fjár og átt stærsta hluta félagsins, en um þetta
hafi stjórnin ekki haft vitneskju.
Jón Ásgeir er ákærður fyrir að hafa látið
Baug greiða á árunum 1998–2002 rúmlega 12,5
milljónir vegna persónulegra úttekta óviðkom-
andi Baugi. Tryggvi er sömuleiðis ákærður fyrir
að láta Baug greiða útgjöld óviðkomandi Baugi
upp á rúmlega 1,3 milljónir en eyðslan var skráð
sem ferðakostnaður. Kært er vegna fleiri reikn-
inga sem Baugur var látinn greiða, en tengdust
ekki félaginu að því er fram kemur í ákærunni.
Jón Ásgeir og Tryggvi eru kærðir fyrir að
hafa, með liðsinni Jóhannesar og Kristínar, látið
Baug greiða 34 reikninga sem gefnir voru út af
félaginu Nordica Inc. í Bandaríkjunum vegna
reksturskostnaðar og annars tilfallandi kostn-
aðar vegna skemmtibátsins „Thee Viking“ en
báturinn hafi verið Baugi óviðkomandi.
Tilhæfulausir reikningar
Jón Ásgeir og Tryggvi eru ákærðir fyrir að
hafa gefið út tvo tilhæfulausa reikninga, samtals
upp á 108,9 milljónir króna og fært þá sem
tekjur í bókhaldi Baugs. Þetta hafi leitt til þess
að árshlutareikningur um mitt ár 2001, sem
birtur var á Verðbréfaþingi Íslands, hafi verið
rangur.
Fjárfestingar Gaums og Fjár-
fars fjármagnaðar af Baugi
Árshlutareikningur rangur Baugur greiddi 34 reikninga vegna skemmtibáts í
annarra eigu Baugur greiddi persónulegar úttektir óviðkomandi félaginu
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
ALLSTÓRAN snjóskafl er að finna í
Esjunni en hann hefur hingað til lifað af
sumarið. Ljósmyndari Morgunblaðsins
rakst á hann þegar hann átti þar leið
um.
Skaflinn mældist um 20 metrar á
lengd og 15 metrar á breidd, eða um
300 fermetrar að stærð. Skaflinn liggur
í um 850 metra hæð yfir sjávarmáli ná-
lægt Gunnlaugsskarði.
Að sögn Einars Sveinbjörnssonar,
veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands,
má búast við því að dagar snjóskaflsins
verði taldir í lok ágústmánaðar eða
byrjun september, en hlýinda- og vætu-
tíð er framundan. Undanfarin sumur
hafa einkennst af hlýindum þannig að
snjórinn hefur ekki náð að haldast út
sumarið í hlíðum Esjunnar.
Árið 1998 hvarf allur snjór úr Esjunni
og var það í fyrsta skipti sem það gerð-
ist í um 30 ár.
Á myndinni sést Björn Guðmundur
Markússon bregða á leik í snjóskaflin-
um, en hann var með ljósmyndara í för. Morgunblaðið/Þorkell
Síðasti snjóskafl-
inn í Esjunni
Í ÁKÆRUSKJALINU segir að stjórnendur Baugs hafi sett fram rangar og villandi sérgrein-
ingar í ársreikningi Baugs. Engar upplýsingar séu þar að finna um lán eða greiðslukjör til
hluthafa, stjórnarmanna, framkvæmdastjóra og aðila þeim nátengdum, heldur voru þessi lán
felld undir liðinn aðrar skammtímakröfur í efnahagsreikningi. Ekkert er heldur getið um lán-
in í skýrslu stjórnar eða í skýringum ársreikningsins eins og bar að gera.
Ársreikninginn, með þessum röngu og villandi sérgreiningum og án viðeigandi skýringa,
áritaði endurskoðandi hlutafélagsins, án fyrirvara.
Ekkert um lán til stjórnenda í ársreikningum
Ákærur |14–17
Þungar ákærur á hendur forsvarsmönnum og endurskoðendum Baugs og Gaums