Morgunblaðið - 14.08.2005, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÁKÆRUR BIRTAR
Ákærurnar í Baugsmálinu á hend-
ur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, for-
stjóra Baugs, Jóhannesi Jónssyni í
Bónus og fjórum öðrum eru birtar í
Morgunblaðinu í dag. Að auki eru
birtar athugasemdir sakborninga
við öll ákæruatriðin. Þar segir að
eðlilegar skýringar séu á því sem
á́kært er fyrir.
Allir ákærðu neita öllum sak-
argiftum í málinu. Ákærurnar voru
birtar sakborningunum hinn fyrsta
júlí síðastliðinn.
Rockville-stöðin rifin
Bandaríski herinn hefur samið við
Hringrás um niðurrif Rockville-
ratsjárstöðvarinnar á Sandgerðis-
heiði og tengdra bygginga, m.a. olíu-
tanka, lagna og girðinga. Niðurrifið
á að hefjast í nóvember og standa í
um fjóra mánuði. Um tíu manna
hópur frá fyrirtækinu mun vinna við
niðurrifið, en kostnaður við það er
mikill, eða 100–110 milljónir.
Öll tungumál á einum stað
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
í erlendum tungumálum getur orðið
alþjóðleg miðstöð tungumála í heim-
inum, þar sem safnað yrði gögnum
um tungumál og menningu á staf-
rænu formi.
Gátu aflað lánshæfismats
Jón Sveinsson, formaður fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu,
segir, að skilyrði fyrir forvali um
þátttöku í kaupum á Lánasjóði land-
búnaðarins hafi verið vandlega yf-
irfarin en Sparisjóðsbankinn og MP-
fjárfestingarbankinn hafa gagnrýnt
þau. Segir hann, að mestu hafi ráðið
um hve ströng skilyrðin voru, að
stór hluti lánanna, sem sjóðurinn
hefur stofnað til, er með ríkisábyrgð.
Segir Jón, að Sparisjóðsbankinn
hefði getað verið búinn að afla sér al-
þjóðlegs lánshæfismats eða að koma
því af stað.
Y f i r l i t
Kynning – Blaðinu í dag fylgir ferða-
bæklingur frá Úrval Útsýn.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÓVISSA virðist ríkja um rekstur ákveðinna rekstr-
areininga HB Granda á Akranesi, engum afla hefur
verið landað í bræðslu frá miðjum marsmánuði og
starfsfólk síldar- og fiskimjölsverksmiðju er ugg-
andi um sinn hag, enda hafa tekjur þeirra dregist
verulega saman vegna þessa.
Verkalýðsfélag Akraness hefur óskað eftir fundi
með æðstu stjórnendum Granda vegna málsins, og
segir Vilhjálmur Birgisson, formaður verkalýðs-
félagsins, að vonir standi til þess að af því verði í vik-
unni. Fimm af tólf starfsmönnum verksmiðjunnar
hafa þegar hætt störfum vegna þessa óvissu-
ástands.
Síld frekar fryst til manneldis
„Tekjur starfsmanna síldarverksmiðjunnar
byggjast upp á því að þegar verið er að bræða eru
settar á 12 tíma vaktir, en þegar engin bræðsla er í
gangi er þetta bara dagvinna. Þannig hefur þetta
verið frá 18. mars. Tekjurnar hafa dregist verulega
saman, en ég þori ekki að nefna ákveðnar tölur,“
segir Vilhjálmur.
Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda,
segir ljóst að hráefni til bræðsluverksmiðjunnar á
Akranesi hafi dregist saman og séu nokkrar mis-
munandi ástæður þar að baki. Meðal annars hafi
fyrirtækið rekið þá stefnu að bræða ekki síld heldur
frysta til manneldis, og markmiðið sé að sem mest
af slíkri vinnslu fari fram um borð í nýju skipi fyrir-
tækisins, Engey. Þá fari kolmunni ekki til bræðslu á
Akranesi heldur til bræðslu á Austfjörðum, þar sem
miðin liggi þar næst og vegna hás olíuverðs sé ekki
verjandi að sigla langa leið með ódýrt hráefni.
„Bræðslan var starfrækt á loðnuvertíð og sinnti þar
mikilvægu hlutverki. Þá erum við að vinna þar t.d.
hrogn, og þótt um stuttan tíma sé að ræða er sú ver-
tíð gjöful og erum við ekki að horfa til þess að gera
frekari breytingar á rekstri bræðslunnar að sinni,“
segir Eggert. „Það er hins vegar óskaplega vont ef
einhver óvissa ríkir meðal starfsfólks, en ég hef
ekki orðið var við að almenn óánægja ríki. Fólk lýsir
yfir vonbrigðum að minna sé unnið í fiskimjölsverk-
smiðjunni en það virðist yfirleitt skilja ástæðurnar
þar að baki. En ef einhver nýtilkomin óánægja er á
ferð munum við ræða það við viðkomandi aðila. Ég
á ekki von á öðru en að við náum góðum botni í það.“
Skipverjar á Víkingi AK 100 hafa einnig leitað til
verkalýðsfélagsins þar sem frést hefur að ekki verði
farið á síldveiðar í næsta mánuði eins og reiknað
hafði verið með. Geta skipverjar, sem eru á annan
tug, illa sætt sig við óvissuástandið, segir Vilhjálm-
ur.
Vonast til að fá svör
„Við vitum ekki hvað er að gerast, en vonandi
verður þessi fundur til þess að við fáum svör um það
hvað er að gerast og hvernig þeir sjá þetta fyrir sér,
þannig að starfsmennirnir sjálfir geti betur vegið
það og metið hvort þeir vilji vera þar áfram eða fari
að leita sér að nýrri vinnu,“ segir Vilhjálmur.
Eggert segir að síldveiðar fyrirtækisins snúist nú
um að vinna sem mestan afla á skipi fyrirtækisins,
Engey, er leiði sjálfkrafa til þess að minna sé veitt á
öðrum skipum. „Við erum með mjög mörg upp-
sjávarskip og höfum verið spurðir að því hvenær við
ætlum að leggja einhverjum þeirra. Það er ljóst að
yfir árið er minna að gera fyrir sum skip en áður en
hins vegar er þetta svo vertíðarbundið að við höfum
ekki séð ástæðu til að leggja neinum skipum alfar-
ið.“
Verkalýðsfélag Akraness óskar eftir fundi með stjórnendum HB Granda
Starfsmenn fiskimjöls-
verksmiðju uggandi
Eftir Brján Jónasson og Sindra Freysson
NAUÐSYNLEGT er að
koma á laggirnar öldrunar-
geðdeild hér á landi. Þetta
kemur fram í viðtali við Ínu
Marteinsdóttur geðlækni í
Morgunblaðinu í dag. Hún
bendir á að víðast hvar er-
lendis hafi verið byggðar upp
sérstakar öldrunargeðdeildir
en skorturinn blasi við hér á
landi. Ína hefur um árabil
starfað í Svíþjóð. Hún segir
jafnframt að aldraðir þurfi á
markvissri geðþjónustu að
halda.
„Um það bil 7% af 75 ára
fólki þjást af þunglyndi, þar
sem einkennin eru oft óljós
og geta líkst líkamlegum
kvillum sem oftar en ekki eru
einnig með í myndinni. Eldra
fólki er því oft þvælt fram og
aftur í kerfinu. Ef það fær
ekki rétta meðferð er hætta á
að það leggist í rúmið,
endurhæfingin verður erf-
iðari og hafi fólk enga fóta-
vist eykst hættan á lík-
amlegum kvillum og
ótímabærum dauðsföllum,“
segir Ína. | 22/23
Skortur á
öldrunar-
geðdeildum
blasir við
VERSLUN Ralph Lauren í Smára-
lind er hætt starfsemi, rúmum níu
mánuðum eftir að hún var opnuð þar,
og hefur þess í stað verið flutt á
Laugaveg. Helgi Njálsson, eigandi
búðarinnar, kveðst hafa verið
óánægður með veltuna í rekstrinum í
Smáralind og hafi hún ekki verið í
neinu samræmi við væntingar sem
hann hafi gert til hennar.
„Ég tel að verslunarhúsið Smára-
lind hafi ekki hentað okkur, sem eru
mikil vonbrigði. Markaðssetning
hennar er einfaldlega ekki nógu góð
fyrir verslun af okkar tagi. Þar virð-
ist vera meiri áhersla á verslanir í
ódýrari kantinum en við erum í hin-
um endanum. Þá verður að segjast að
leigan er ekki í neinu samræmi við
það sem er að gerast þarna; fyrir 150
fermetra húsnæði þyrftum við að
borga um 8,5 milljónir króna á árs-
grundvelli. Húsnæðið í Smáralind
var vissulega tvöfalt stærra en hús-
næði okkar í Kringlunni en aðeins
munaði þriðjungi á leiguverði. Veltan
í Smáralind var hins vegar aðeins
einn þriðji af því sem var í Kringl-
unni. Það vantar bara fólkið.“ Versl-
un Ralph Lauren á Seltjarnarnesi
flyst einnig á Laugaveg. Helgi kveðst
ekki bera kvíðboga fyrir því að starf-
rækja verslun á Laugavegi. Viðbrögð
viðskiptavina hafi verið afar jákvæð
og hann hafi fulla trú á að Laugaveg-
urinn standi sig í samkeppni við
stóru verslunarmiðstöðvarnar.
„Ég hugsa að Kringlan beri áfram
höfuð og herðar yfir þessa staði en
Laugavegurinn muni á næstu árum
færast meira út í vandaðar og spenn-
andi sérverslanir.“
Verslunin Ralph Lauren úr Smáralind á Laugaveg
Veltan í Smáralind einn þriðji
af því sem var í Kringlunni
ÓVENJUMIKIÐ var um það í fyrri-
nótt að Hafnfirðingar kvörtuðu til
lögreglu vegna hávaðasamra ná-
granna. Segir lögreglan „hávaðaút-
köll“ hafa verið mun fleiri en venju-
lega. „Það var gott veður og hljóð-
bært,“ sagði lögreglumaður.
Hávaðasamt í
Hafnarfirði
Í dag
Sigmund 8 Hugvekja 38
Fréttaskýring 8 Myndasögur 42
Hugsað upphátt 23 Dagbók 43
Menning 26, 45/47 Víkverji 42
Sjónspegill 26 Staður og stund 43
Forystugrein 28 Leikhús 48
Reykjavíkurbréf 28 Bíó 50/53
Umræðan 30/34 Sjónvarp 54
Bréf 34 Staksteinar 55
Minningar 38/39 Veður 55
* * *
KONAN sem slasaðist alvarlega í
árekstri fólksbíls og flutningabíls
við Hallormsstað á þriðjudag liggur
enn á gjörgæsludeild. Hún er tengd
við öndunarvél og hefur líðan henn-
ar haldist óbreytt síðustu daga.
Með henni í bílnum voru bresk hjón
sem létust í slysinu. Tildrög slyssins
eru í rannsókn hjá lögreglunni á
Egilsstöðum.
Enn í gjörgæslu
MIKLIR vatnavextir hafa að undanförnu verið í Múla-
kvísl, sem rennur vestast á Mýrdalssandi. Áin hefur
brotið mikið land í sumar og sérstaklega síðustu daga.
Að sögn Jóhannesar Kristjánssonar, bónda og hótel-
haldara á Höfðabrekku í Mýrdal, hafa hundruð hektara
af landi farið undir vatn á síðustu árum. Hann telur að
á bilinu 50–100 hektarar hafi orðið undir í baráttunni
við vatnsflauminn sl. þrjár vikur. Það sé mikið
áhyggjuefni ef ekkert sé að gert því mikið sé þarna af
grónu landi sem landgræðslan hefur grætt. „Þetta lítur
alls ekki vel út,“ segir hann.
Jóhannes segir Múlakvíslina vera að leita aftur í sinn
gamla árfarveg, en fyrir hálfri öld var hún færð nokk-
uð vestar.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Jóhannes Kristjánsson, bóndi og hótelhaldari, skoðar landbrot Múlakvíslar við Litlajökul vestast á Mýrdalssandi.
Miklir vatnavextir í Múlakvísl