Morgunblaðið - 14.08.2005, Side 6

Morgunblaðið - 14.08.2005, Side 6
6 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S L YF 2 91 02 08 /2 00 5 www.lyfja.is - Lifið heil FRESHMINT 105 STK. 2 MG FRESHMINT 105 STK. 4 MG Nicorette Ágústtilboð 10% afsláttur FÆST ÁN LYFSEÐILS Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklings- bundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingumumlyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar. „FÓSTURLANDSINS Freyjur“ er íslenskt heiti á samstarfsverkefni Finna, Svía, Skota og Íslend- inga, sem kynn var á sýningunni „Gull í mó“ í Ráðhúsi Reykjavíkur sl. föstudag. Að sögn Bjarn- heiðar Jóhannsdóttur, atvinnu- og jafnréttisráð- gjafa Suðurkjördæmis, var sýningin vel sótt og gestir ánægðir með það sem fyrir augu bar. Byggðastofnun fer með forystuhlutverk í verk- efninu innanlands, en því er ætlað að efla atvinnu- sköpun kvenna í dreifbýli, sem lýtur að nýtingu náttúruauðlinda í víðum skilningi. Þá er átt við gæði lands og sjávar, jafnt hvað varðar fram- leiðslu og þjónustu sem byggist á náttúruauð- lindum. Verkefnið felur meðal annars í sér rannsóknir, ráðgjöf og stuðning við smáfyrirtæki kvenna auk markaðsgreiningar og markaðssetningar náttúru- afurða. Þá sinnir það fjáröflun þróunarverkefna og stendur fyrir námsferðum til þátttökulandanna og fleiru fyrir íslenskar konur sem vilja starfa á þessu sviði. Loks hafa verið haldin námskeið fyrir stærri hópa, auk þess sem boðið hefur verið upp á sérfræðiráðgjöf til að aðstoða frumkvöðla. Íslenskir aðilar í verkefninu hafa beint sjónum sínum að íslenskum jurtum og nýtingu þeirra. Af- urðirnar eru margvíslegar og mörg sprotafyrir- tæki eru að spretta upp á þessum vettvangi. Með- al þróunarverkefna innanlands sem hafa verið studd, er vinnsla á kollageni úr fiski til notkunar í snyrtivörur, þróun umbúða og kynningarefnis og rannsókn á minkafitu með það að markmiði að losna við lykt, en halda öðrum eiginleikum til smyrslagerðar. Snýst allt um náttúruafurðir Bjarnheiður sér um verkefnið á Íslandi og segir hún að á sýningunni hafi verið um 30 erlendir gestir, meðal annars konur frá hinum þátttöku- löndunum, sem kynntu sínar vörur og fyrirtæki. „Þarna voru á annan tug íslenskra frumkvöðla- kvenna og aðilar sem tengjast atvinnurekstri kvenna og rekstri í sambandi við jurtir,“ segir Bjarnheiður. „Við erum að draga saman fullt af fólki og kynna hvað við erum að gera.“ Bjarnheiður segir flest íslensku verkefnin tengjast jurtum, en þó sé eitthvað um ferðaþjón- ustufyrirtæki og örlítið af handverki. „En þetta snýst allt um náttúruafurðir,“ segir hún. Meðal íslenskra fyrirtækja nefnir Bjarnheiður tvo ferðaþjónustuaðila í Svarfaðardal og Villimey á Tálknafirði, en þar eru búin til smyrsl við al- gengum kvillum eins og sveppasýkingum og vöðvabólgu. Margar konur í startholunum „Fósturlandsins Freyjur“ er hluti af Evrópu- verkefni og hið íslenska heiti þess skírskotar bæði til landsins og landgæða, en ekki síður til frjósemisgyðjunnar Freyju og annarra máttarkvenna. Verkefnið hófst í nóvember 2003 en lýkur í lok mars á næsta ári. Bjarnheiður segir erlendu gest- ina sem hér eru staddir hafa kom- ið til að kynna sér hvað er að ger- ast hér á landi og munu þeir meðal annars heimsækja frum- kvöðla á Suðurlandi. Gestirnir eru annars vegar samstarfsaðilar í verkefninu og hins vegar frum- kvöðlakonur frá hinum þátttöku- löndunum. Bjarnheiður segir verkefnið hafa gengið mjög vel og ánægja ríki með það. „Við ákváðum að taka þennan jurtavinkil og það var greinilega mikil þörf á því, því það eru marg- ar konur í startholunum,“ segir Bjarnheiður. Aðspurð um hvort fyrirtæki hafi orðið til beinlínis vegna verkefnisins segir hún að þau séu nokkur. „Sum hafa þó í raun ekki verið stofnuð ennþá. Við erum að vinna að viðskiptaáætlunum og vöruþró- unarverkefnum og sumt er ekki tilbúið til kynn- ingar. Þetta er eins og með önnur þróunarverk- efni. Þetta tekur tíma.“ Kynning á samstarfsverkefni Fósturlandsins Freyja var vel sótt í ráðhúsinu Virkja frumkvöðlakraft fjölda kvenna í atvinnurekstri Eftir Hrund Þórsdóttur hrund@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell Bjarnheiður Jóhannsdóttir sér um verkefnið „Fósturlandsins Freyjur“ sem kynnt var á sýningunni. Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir framleiðir náttúrudropa sem unnir eru úr blómu, trjám, jurtum og fleiru. Hún segir þá góða gegn stressi og streitu og tilfinningalegu ójafnvægi. Þegar ljós- myndara bar að garði var hún að athuga hvaða dropar hentuðu best fyrir einn gesta sýningarinnar. NDIRRITAÐUR var samstarfs- samningur Háskólans í Reykjavík og Eddu útgáfu við athöfn í HR sl. föstudag en þau hafa tekið saman höndum, í samstarfi við Háskóla Ís- lands, um gerð spænsk-íslenskrar orðabókar. Margrét Jónsdóttir dósent við við- skiptadeild HR er einn af aðstand- endum verkefnisins: „Það er afskaplega sterk hefð fyr- ir því að orðabókargerð eigi sér stað innan viðskiptadeilda. Því hvað eru viðskipti annað en samskipti? Ís- lendingar eru sérstaklega háðir því að kunna tungumál vel til að ná ár- angri í viðskiptum. Við teljum okkur vera að stunda menningar- og við- skiptavegagerð því við erum að byggja menningarbrýr við þau u.þ.b. 25 lönd þar sem spænska er töluð. Málið tala ekki einungis 40 milljónir á Spáni, heldur eru 40 milljónir Bandaríkjamanna spænskumælandi og loks er Rómanska-Ameríka að opnast sem viðskiptasvæði með 350 milljónir manna.“ En Margrét bætir við að fyrsti vísir að orðabók á Ís- landi var einmitt Íslensk-baskneskt orðasafn sem samið var vegna við- skipta Íslendinga og spænskra sjó- manna á Vestfjörðum á öldum áður. Verkinu verður ritstýrt og það skipulagt af HR en í ritnefnd munu sitja fulltrúar frá Eddu útgáfu og Háskóla Íslands. „Þetta er líkast til fyrsta stóra verkefnið sem Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík taka höndum saman um að vinna. Í jafn pínulitlu landi og Íslandi verð- um við að vinna saman að rannsókn- um og sköpun þekkingar. Við getum síðan keppt í kennslu,“ segir Mar- grét. Mikill vöxtur hefur verið í spænskunámi á síðustu árum. Frá árinu 1999 hefur fjöldi spænsk- unema í framhaldsskólum tvöfaldast og á háskólastigi þrefaldast. „Sífellt fleiri Íslendingar velja að læra spænsku sem þriðja mál,“ segir Margrét. „Gefin var út vasaorðabók á áttunda áratugnum og spænskt orðasafn en okkur vantar nútíma- lega orðabók sem hjálpar spænsk- unemendum að komast yfir þann hjalla að geta farið að nota spænsk- spænskar orðabækur. Íslenskir nemendur eiga rétt á því að læra er- lend tungumál á eigin máli.“ Samningur um gerð spænsk-íslenskrar orðabókar Byggja menningarbrýr við allt að 25 lönd Morgunblaðið/ÞÖK Þorlákur Karlsson, forseti viðskiptadeildar HR, Margrét Jónsdóttir dósent og Sigurður Svavarsson frá Eddu útgáfu undirrita samstarfssamninginn. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is NEYTENDASAMTÖKIN hafa falið lögmanni sínum að kanna hvort SKY- sjónvarpsstöðin og SMÁÍS (Samtök myndrétthafa á Íslandi) hafi lagaleg- ar heimildir til að láta loka á viðskipti við öll íslensk krítarkort sem notuð eru til að greiða áskriftir að stöðvum SKY. „Ljóst er að með þessum aðgerðum er mörgum heimilum gert að kaupa þjónustu (þar á meðal enska boltann) á hærra verði en þau þurfa nú að gera og líta Neytendasamtökin það alvar- legum augum,“ segir m.a. í tilkynn- ingu frá Neytendasamtökunum. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að margar spurningar vakni vegna að- gerða SKY og SMÁÍS. Til dæmis hvort einhliða sé hægt að loka á um- rædd viðskipti. „Auk þess hélt ég að það væri frjálst flæði á vöru og þjón- ustu milli landa,“ segir hann. „Þá get ég ekki séð, fljótt á litið, að það sé ver- ið að brjóta höfundarréttarlög. Hver á höfundarréttinn? Er það ekki eig- andi myndarinnar en ekki stöðin sjálf?“ Hann segir að lögmanni fé- lagsins verði falið að kanna þessi og fleiri atriði sem tengjast aðgerðum SKY og SMÁÍS. Loka fyrir áskrift að Sky Lögmaður kanni lög- mæti aðgerða ÚTLENDINGASTOFNUN hefur birt 21 útlendingi, sem mótmæltu fyrirhuguðum virkjanaframkvæmd- um á Kárahnjúkasvæðinu, bréf um væntanlega brottvísun úr landi. Sýslumaðurinn á Eskifirði vísaði málinu til Útlendingastofnunar sem fjallaði um mál fólksins. Endanlegur úrskurður í málinu, þ.e. hvort fólkinu verði vísað úr landi eður ei, verður kveðinn upp þegar fólkið hefur kom- ið andmælum sínum á framfæri en til þess er gefinn 7 daga frestur, þ.e. til 18. ágúst. Í framhaldi þess og á grundvelli þeirra gagna verður úr- skurðurinn kveðinn upp. Mótmælendum birt bréf um brottvísun Hafa sjö daga til andmæla ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.