Morgunblaðið - 14.08.2005, Side 8
8 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Verzlunarmanna-félag Reykjavíkur(VR) birtir á vef-
síðu sinni www.vr.is frétt
þess efnis að veruleg
aukning hafi orðið á ýmiss
konar hlunnindum á milli
áranna 2004 og 2005. Er
þetta samkvæmt niður-
stöðum launakönnunar
VR fyrir árið 2005 sem nú
er verið að vinna að. Um
70% þátttakenda í könn-
uninni fá einhvers konar
hlunnindi á móti 43% árið
2004 og er því ljóst að um
verulega aukningu er að
ræða. Alls bárust um 8.000 svör
frá félagsmönnum í VR og nemur
aukningin 52% frá því í fyrra.
Fram kemur að í könnuninni
hafi verið spurt hvaða hlunnindi
fólk fengi sem hluta launakjara.
Svarendur höfðu nokkra val-
möguleika, þ.á m. engin hlunn-
indi. Niðurstaðan í ár var sú að
sjö af tíu félagsmönnum VR fá
hlunnindi sem hluta launakjara.
Þess ber þó að geta að launakann-
anir félagsins eru einungis gerðar
meðal félagsmanna og er mark-
miðið að veita félagsmönnum upp-
lýsingar um markaðslaun í mis-
munandi starfsgreinum, svo þeir
geti borið laun sín saman við þau
laun sem greidd eru í hliðstæðum
starfsgreinum.
Hlunnindi af ýmsum toga
Hlunnindi í könnun VR falla
körlum frekar í skaut en konum,
eða 75% á móti 66%. Þessi munur
er þó minni en í fyrra þar sem
52% karla fengu hlunnindi á móti
37% kvenna.
Að sögn Kristínar Sigurðar-
dóttur, forstöðumanns þróunar-
og samskiptasviðs VR, sem vinn-
ur nú að gerð nýjustu launakönn-
unarinnar, er margt í gangi varð-
andi hlunnindi til starfsmanna.
Umrædd hlunnindi eru af ýmsum
toga en meðal þess sem minnst
var á í könnuninni eru líkams-
ræktarstyrkir, farsímar, greiddur
símakostnaður, bílastyrkir auk af-
sláttar af ýmsu tagi. „Það eru
gjafabréf, út að borða og sumir
semja um aukna sumarfrísdaga
þannig að það er greinilega ýmis-
legt hægt að gera,“ bætir Kristín
við og segir að það sé greinilegt
að hlunnindi til starfsmanna séu
að aukast. Hún bendir á að ekki
sé ávallt svigrúm til að semja um
beina launahækkun til starfs-
manna en hinsvegar sé oft svig-
rúm til þess að semja um hlunn-
indi til þess að koma til móts við
starfsmennina.
Hún telur að hvatning VR til fé-
lagsmanna um að fara í launavið-
töl hafa sitt að segja varðandi
launahækkun og þá hlunninda-
aukningu sem hefur átt sér stað.
„Það er ekki spurning að það skil-
ar sér í launahækkun; þeir sem
fara í viðtölin fá einhverja bót á
sínum kjörum hvort sem það er í
beinum launum eða í einhverjum
hlunnindum.“
Stjórnendur fá mest
Samkvæmt könnuninni fá
t.a.m. 82% stjórnenda hlunnindi,
58% skrifstofufólks og 64% sölu-
og afgreiðslufólks. „Það er eigin-
lega hægt að sjá þetta í öllum
hópum en það eru fleiri stjórn-
endur að fá þetta en aðrir hópar,“
segir Kristín og bætir því við að
stefnt sé að því að birta niðurstöð-
ur launakönnunarinnar í heild um
miðjan september.
Ekki var að heyra á þeim stétt-
arfélögum og stofnunum sem
einnig var rætt við að þau hefðu
kannað sérstaklega hlunninda-
aukningu meðal sinna félags-
manna.
Jafn taxti fyrir félagsmenn
og engin sérstök hlunnindi
Skúli Thoroddsen, fram-
kvæmdastjóri Starfsgreinasam-
bandsins, bendir þó á að lítið sé
um slíkt innan sambandsins. Þar
séu menn á sínum töxtum og kjör
jöfn. Hann segir sambandið alfar-
ið hafa hafnað launaviðtölum líkt
og VR hvetji til, en litið er svo á að
þá sé verið að mismuna mönnum.
„Annaðhvort eru allir jafnir eða
ekki. Þú átt ekki að þurfa að
sækja launin þín sjálfur til þíns
atvinnurekanda,“ segir Skúli en
u.þ.b. 40 þúsund manns heyra
undir Starfsgreinasambandið í
hinum ýmsu starfsgreinum.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins (SA), seg-
ir samtökin ekki hafa tekið sér-
staklega saman eða skoðað hlunn-
indi meðal félaga í samtökunum.
Hann segist þó vera þeirrar skoð-
unar að menn ættu að sameinast
um gerð vandaðrar kjarakönnun-
ar sem næði til sem flestra starfs-
hópa í þjóðfélaginu.
Hagstofan hefur heldur ekki
tekið sérstaklega saman hlunn-
indi starfsmanna í þeim launa-
könnunum og vinnumarkaðsrann-
sóknum sem eru á þeirra vegum,
en Hagstofan og Kjararann-
sóknanefnd gerðu í lok árs í fyrra
með sér samstarfssamning sem í
fólst að Hagstofan tæki við störf-
um nefndarinnar. Nefndin var áð-
ur samstarfsvettvangur Alþýðu-
sambands Íslands og SA um
launakannanir á samningssviði
samtakanna. Hagstofan benti þó
á að það gæti verið athyglisvert
að skoða hlut hlunninda í launa-
kjörum í framtíðinni líkt og VR
gerir nú meðal sinna félags-
manna.
Fréttaskýring | Hlunnindi á vinnumarkaði
Veruleg aukn-
ing milli ára
70% félagsmanna VR segjast fá
hlunnindi í ár miðað við 43% í fyrra
Bílastyrkir eru meðal hlunninda VR-félaga.
Hlunnindi talin til tekna
og skattlögð sem slík
Á vefsíðu Ríkisskattstjóra
(www.rsk.is) kemur fram að
telja beri til tekna hvers konar
gæði sem mönnum hlotnast og
metin verða til peningaverðs og
skiptir þá ekki máli hvaðan þau
koma eða í hvaða formi þau eru.
Á það t.d. við um fatnað, fæði,
húsnæði, hvers konar fríðindi,
greiðslur í vörum eða afurðum
svo og framlög og gjafir sé verð-
mætið hærra en almennt gerist
um tækifærisgjafir.
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
Fáðu ferðatilhö
gun, nánari upp
lýsingar
um gististaðina
og reiknaðu út
ferðakostnaðin
n á netinu! www.urvalutsyn.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
†
S
IN
G
A
S
T
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
2
9
2
2
9
0
8
/2
0
0
5
Portúgal
22. og 29. ágúst.
5., 12., 19. og 26. sept.
Verð frá:
42.900 kr.*
á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi eða stúdíó
á Brisa Sol í 7 nætur 29. ágúst.
Mallorca
17., 24. og 31. ágúst.
7. og 14. sept.
Verð frá:
41.300 kr.*
á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi eða stúdíó
á Club Royal Beach í 7 nætur 24. ágúst.
Krít
15., 22. og 29. ágúst.
5., 12., 19. og 26. sept.
Verð frá:
44.200 kr.*
á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi eða stúdíó
á Helios í 7 nætur 22. ágúst.
Costa del Sol
25. ágúst.
1., 8., 15. og 22. sept.
Verð frá:
43.500 kr.*
á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi eða stúdíó
á Aguamarina í 7 nætur 25. ágúst.
*Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting, ferðir til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
Finndu verð á þinni ferð á www.urvalutsyn.is
Lengdu sumarið – Njóttu sólar í haust!
Síðustu sætin í sólina
2 fyrir 1
á Brisa Sol
22. og 29. ágúst.
2 fyrir 1
á Club
Royal Beach
24. ágúst.
2 fyrir 1
á Helios
15. og 22. ágúst.
2 fyrir 1
á Aguamarina
25. ágúst.
BLINDA og góða konan skellti sér í
margmennið á Times-torgi í New
York-borg fyrir stuttu til að hitta
heimspressuna og spjalla við veg-
farendur. Hún er persóna einleiks-
ins The Secret Face eftir Elísabetu
Jökulsdóttur sem sýndur var á The
American Living Room-leiklistar-
hátíðinni í Here-listamiðstöðinni í
New York-borg á dögunum.
Þessi óvenjulega uppákoma Pál-
ínu Jónsdóttur, leikkonu, kom veg-
farendum verulega á óvart en á
Times-torg fór hún, ásamt Elísa-
betu og leikstjóra verksins, Stein-
unni Knútsdóttur, í fullum skrúða
og með blindrastaf. „Ég var með
lokuð augun allan tímann og spjall-
aði við fólkið. Sumir spurðu Elísa-
betu og Steinunni hvort ég væri í
rauninni blind,“ segir Pálína.
Á meðan Blinda og góða konan,
sem elskar allt fólk, boðaði fagn-
aðarerindi sitt, dreifðu samferða-
konur hennar kynningarbækling-
um um leikritið.
„Það er merkilegt hversu vel ég
sá með lokuð augun,“ útskýrir Pál-
ína. „Fyrst var mikið áreiti af um-
hverfinu en síðan fór ég að nema
fólkið á fallegan hátt og ég átti
mörg einstök samtöl.“
Einleiknum, The Secret Face,
var ákaft fagnað af leikhúsgestum
og troðfullt var á báðum sýningum,
að sögn Pálínu. Hún segir líklegt að
farið verði með leikritið til fleiri
áfangastaða og aldrei að vita nema
Blinda og góða konan heimsæki
íbúa annarra heimsborga.
Blind og góð
heimsækir
miðborg
New York
Ljósmynd/Amy Lyne