Morgunblaðið - 14.08.2005, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 9
FRÉTTIR
Aiphone dyrasímar me› myndavél s‡na og segja flér vafningalaust hver fla› er sem
hringir dyrabjöllunni hjá flér. fia› er jafneinfalt a› setja upp mynddyrasíma og venjulegan
dyrasíma en ver›i› kemur flægilega á óvart. Aiphone dyrasími me› myndavél er me›
nettri dyrastö› og fyrirfer›arlitlum litaskjá, sem er festur á vegg. Aiphone tryggir
handfrjáls, flægileg og örugg samskipti.
Gaman a› sjá flig, gakktu í bæinn!
Aiphone dyrastö›varnar fást í ‡msum
útgáfum og bæ›i me› plast- og álhlíf.
vélar & verkfæri
SKÚTUVOGUR 1 C • 104 REYKJAVÍK • Sími: 550 8500 • FAX 550 8510 • www.vv.is
Verndari Vildarbarna er Vigdís Finnbogadóttir.
Landsbanki Íslands sér um fjárhald sjóðsins.
Umsóknir um ferðastyrki
Vildarbarna
Styrkir verða í þetta skipti veittir til barna á aldrinum 6-14 ára.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru á heimasíðu Vildarbarna:
www.vildarborn.is
Umsóknarfrestur er til 15. september 2005.
Úthlutað verður úr sjóðnum 22. október 2005.
Alva Lena og systir hennar í Florida.
Ferðasjóður Vildarbarna Icelandair er sameiginlegt átak félagsins og viðskiptavina
þess til að gera langveikum börnum og fjölskyldum þeirra, og börnum sem búa við
sérstakar aðstæður vegna veikinda, kleift að ferðast. Ferðasjóður Vildarbarna hefur
gert 30 fjölskyldum kleift að fara í ógleymanlega og uppbyggjandi fjölskylduferð.
Fréttasíminn 904 1100
ÞINGMENNIRNIR Össur Skarp-
héðinsson, Samfylkingu, og Kristinn
H. Gunnarsson, Framsóknarflokki,
hafa báðir gert að umtalsefni á vef-
síðum sínum yfirlýsingar einstakra
útgerðarmanna um málsókn á hend-
ur ríkinu vegna byggðakvótans og
línuívilnunar. Össur segir þetta frá-
leita ósvífni útgerðarmanna. Útgerð-
armenn eigi ekki fiskinn í sjónum.
Kristinn segir að sér finnist að út-
gerðarmenn ættu bara að láta verða
af hótunum sínum. Enginn vafi léki á
því hvernig slík málaferli myndu
fara. Löggjöfin væri algjörlega ótví-
ræð. Veiðiheimildum væri úthlutað
til eins árs í senn og mynduðu ekki
eignarrétt.
„Veiðiheimildir, sem hafa verið
keyptar, mynda engan eignarrétt,
aðeins rétt til að nýta heimildina
samkvæmt ákvæðum laganna.
Þeirra sömu laga sem kveða sérstak-
lega á um það að úthlutunin myndi
ekki eignarrétt,“ segir Kristinn.
„Menn geta aðeins átt það sem þeir
kaupa. Það sem er keypt er réttur
sem hægt er að breyta hvenær sem
er eða fella niður. Eignarréttar-
ákvæði stjórnarskrárinnar getur
ekki fært mönnum það sem þeir eiga
ekki. Það er kjarni málsins.“
Tekið á móti af fullri hörku
Össur segir að yfirlýsingar út-
gerðarmanna séu nýjasta dæmi
þeirra um ásælni gagnvart sameig-
inlegri eign þjóðarinnar. „Þeim hef-
ur áður tekist að fá heimild til að veð-
setja kvótann, og nytjarétturinn nær
meira að segja út yfir gröf og dauða
– því hann erfist,“ segir hann og
heldur áfram:
„Útgerðarmenn eru nú að kasta
stríðshanskanum aftur og ætla sér
greinilega að skapa nýtt stríð kring-
um kvótann. Þeir um það. Það verð-
ur tekið á móti því af fullri hörku ef
þetta eiga að verða vinnubrögðin.
Viðbrögð þeirra sýna svart á hvítu
að það er orðið brýnt að festa í
stjórnarskrá ákvæði um sameigin-
lega þjóðareign á auðlindinni í haf-
inu.“
Útgerðarmenn eiga
ekki fiskinn í sjónum
REYKJAVÍKURBORG þarf að
vera skilvirkari í því að þrífa upp
rusl af götum borgarinnar, auk þess
sem víða þarf betri ruslatunnur og
betur merktar, enda borgin skítugri
nú en hún ætti að vera. Farið verð-
ur í hreinsunarátak í borginni í
haust.
Þetta segir Stefán Jón Hafstein
borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans,
en hann átti frumkvæði að því að
stofnaður hefur verið starfshópur til
að fara yfir sorphirðu- og umgengn-
ismál á almannafæri í borginni.
Hópinn skipa sviðsstjórar umhverf-
issviðs, framkvæmdasviðs og
íþrótta- og tómstundasviðs, og er
þeim ætlað að skila samantekt og
tillögum til borgarráðs fyrir lok
ágústmánaðar.
„Þetta hefur verið talsvert í um-
ræðunni í sumar og við höfum heyrt
kvartanir frá fólki um að borgin sé
að verða óhreinni og það sé gengið
verr um,“ segir Stefán. „Ég sem
borgarfulltrúi hef fengið talsvert af
ábendingum og fór þar af leiðandi
að kanna málið.“
Borgin sýni frumkvæði
Farið verður í átak til þess að
hreinsa til í borginni í haust, líklega
í næsta mánuði, og segir Stefán að
allir verði að taka höndum saman
um að hreinsa til í borginni. Ekki
dugi að borgaryfirvöld standi fyrir
hreinsun heldur verði borgararnir
að ganga betur um.
„Ég held að þetta vinni hvert með
öðru, borgin þurfi að sýna ákveðið
frumkvæði og þá muni fólk taka við
sér. Til dæmis hélt maður að það
væri alveg búið að fólk væri að
henda rusli út um bílgluggann en
svo er ekki. Maður sér þetta sjálfur
á rauðu ljósi. Það er enginn pólitík-
us sem getur stoppað þetta nema
með því að stuðla að vitundarvakn-
ingu. Mér finnst þetta hafa versnað
í sumar,“ segir Stefán.
Morgunblaðið/Eyþór
Óvenju mikið rusl er víða um borgina og borið hefur á kvörtunum fólks.
Hreinsunarátak
í borginni í haust