Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 11

Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 11 ’ En því ekki það, fólki er frjálst að fá sérspássitúr, þó það sé í hóp. Ég hef alls ekk- ert á móti þessu.‘Hafliði Jónsson, vegfarandi í Reykjavík, um gleði- göngu samkynhneigðra. ’ Það þýðir í raun að miðborgirnar verðaofurseldar ofbeldissinnuðum, drukknum og ælandi skríl á hverju kvöldi.‘Charles Harris dómari í grein í Times vegna áætlana um að lengja afgreiðslutíma kráa og veitingahúsa í Bretlandi. ’ Ég þurfti að eyða stórum hluta af kaup-inu mínu þar í fínar dragtir til þess að ein- hver tryði því að ég væri að kenna þarna.‘Dr. Þorbjörg Hróarsdóttir, sem nýlega fékk styrk til málvísindarannsókna, kenndi í Georgetown University í Washington DC í eins árs rannsóknarleyfi fyrir þrem- ur árum. ’ Ef brotið er mjög alvarlegt, t.d. „brút-al“ nauðgun, eru það auðvitað almanna- hagsmunir að gerandanum sé stungið inn.‘Brynjar Níelsson hrl. í umfjöllun í Morgunblaðinu um 205. grein hegningarlaganna, sem virðist ekki eiga við ef tveir karlar eða tvær konur eiga í hlut, en í lögunum kemur fram að refsing við ákveðnum kynferðisafbrot- um megi falla niður ef karlinn og konan sem kynferð- isbrotin áttu sér stað í milli gifti sig eða hefji sambúð. ’ Ég get ekki sætt mig að austurhlutinnmuni aftur ráða því hver verði næsti kansl- ari Þýskalands. Það má ekki verða að þetta ergilega fólk ráði örlögum landsins.‘Edmund Stoiber, leiðtogi Kristilega sósíalsambands- ins í Bæjaralandi, systurflokks kristilegra demókrata og keppinautur Schröders í síðustu kosningum, á fundi með stuðningsmönnum sínum og nokkrum blaðamönn- um. ’ Ég er þeirrar skoðunar og hef veriðlengi og fyrir þennan tíma að þessi lög væru sett fyrst og fremst til að tryggja réttarstöðu almennra starfsmanna. Staða stjórnenda sem eru á alvörulaunum og eru lykilmenn í sínum fyrirtækjum, hún er að mínu mati allt öðruvísi.‘Benedikt Sigurðarson, stjórnarformaður KEA, í um- ræðunni um fæðingarorlof karla, sem kom upp þegar Andri Teitsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, lét af störfum til þess að fara í fæðingarorlof. ’ Fyrir 30 árum fór bandarísk fjölskyldameð 70 sent af hverjum dollara í heimalag- aðan mat og 30 sent í að borða úti. Nú er skiptingin jöfn og meira en 25 sent fara í ruslfæði. Það getur ekki gengið.‘Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem nú berst fyrir breyttu og betra mataræði, einkum með- al barna. ’ Þessi hlaup hafa átt sér stað á eins tiltveggja ára fresti, en þau hafa ekki valdið neinum skaða. Maður veit þó aldrei hvað náttúran gerir.‘Kristinn Einarsson, hjá Vatnamælingum Orkustofn- unar, um Súluhlaupið. ’ Það situr líklega enn í fólki hvernigþetta var, en þá þurfti að smala, mjólka kvölds og morgna og svo framvegis. Þetta þykir gamaldags og því verður að út- rýma.‘Sveinn Hallgrímsson, bóndi og fyrrum sauðfjárrækt- arráðunautur hjá Búnaðarfélagi Íslands, í tilefni af til- raunaverkefni um nýtingu sauða- og geitamjólkur. ’ Forsætisráðherra Bretlands, TonyBlair, þarf að gera sér ljóst að Bretland, sem þekkt er fyrir að virða mannréttindi, má ekki verða grafreitur slíkra réttinda.‘Múslímaleiðtoginn Yasser al-Serri, eftir að lögreglan handtók tíu menn, sem yfirvöld segja vera ógnun við öryggi þjóðarinnar. ’ R-listinn er ekki upphaf og endir alls ístjórnmálum; menn mega því ekki missa móðinn.‘Árni Þór Sigurðsson, oddviti Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í borgarstjórn þegar viðræður um samstarf R-listans sigldu í strand. Ummæli vikunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Gleðiganga á Hinsegin dögum, sem farin var um síðustu helgi, er sú viðamesta frá upphafi. lífi jafnt sem menningarlífi, þar er unnið að þýðinga- og orðabókarfræði og allt ber þetta að sama brunni: Að öðlast læsi á hin ýmsu menningarsvið heimsins. Ég hef unnið að þessu hugðarefni alla ævi, allt frá því að ég var frönskukennari í menntaskóla. Ekkert gagnaðist mér eins vel í embætti forseta og að geta talað erlend tungumál og hafa inn- sýn í menningu annarra þjóða. Ég gat komið á framfæri kynningu á íslenskri menningu og íslenskum vörum. Ég get aldrei nógsam- lega þakkað foreldrum mínum að hafa hvatt mig til Frakklandsferðar í nám. Metnaður minn fyrir hönd stofnunarinnar í erlendum tungumálum er mikill, enda lít ég á tengingu mína við hana sem hápunktinn á starfsævi minni.“ Margt breytist á 25 árum Vigdís segir að hún hafi engar efasemdir um að hér megi koma á fót öflugri, al- þjóðlegri stofnun á sviði tungumála. „Breyt- ingar undanfarinna 25 ára hafa verið svo miklar og hvers vegna ætti ekki að vera hægt að lyfta grettistaki á næstu árum og áratugum? Þegar ég var kjörin forseti fyrir aldarfjórðungi var hér mikið karlasamfélag. Við embættistökuna var ég umkringd góðum mönnum í kjólfötum og ég hef stundum sagt að ég hafi varla séð aðra konu í þessum hópi en Halldóru Eldjárn. Á mörgum sviðum sáust konur varla. Til dæmis voru konur að stíga sín fyrstu skref innan lögreglunnar í Reykjavík og ég var meira en ánægð með þá snilldarákvörðun Sigurjóns Sigurðssonar lögreglustjóra að setja eina þeirra, Ragn- heiði Davíðsdóttur, í heiðursvörðinn við Dómkirkjudyr. Núna hefur orðið bylting í afstöðu til kvenna, þótt það nái auðvitað engri átt að enn séum við stundum álitnar annars flokks þegnar.“ Hún segist nú vera komin með þá yfirsýn yfir lífið að hún átti sig betur á því en áður hve merkilegt það hafi verið að Íslendingar hafi kosið konu í embætti forseta. „Það skiptir engu hvar í heiminum ég er, alltaf nefnir fólk þetta sérstaklega. Kjörið vakti rækilega athygli á landi okkar og þjóð og mér finnst mjög gaman að ræða það við fólk, hvort sem er í Japan eða Jórdaníu, svo dæmi frá síðustu árum séu nefnd.“ Vigdís segir að síðustu ár sín í embætti hafi hún notað til að hnýta nokkra hnúta, til dæmis til að ganga frá stofnun Heimsráðs kvenleiðtoga, sem hefur aðsetur í Harvard- háskóla. Þar settist hún í forsæti. Heims- ráðið fundar reglulega og hefur m.a. að markmiði að virkja kvenráðherra heimsins. Dagana 29. til 30. ágúst verður fyrsti heims- fundur menningarráðherra úr röðum kvenna haldinn í Reykjavík, í boði Þorgerðar K. Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Áður hafa konur í embætti fjármálaráðherra, dómsmálaráðherra og umhverfisráðherra víða um heim hist á slíkum fundum. Tilefni fundarins nú er 75 ára afmæli Vigdísar í apríl sl. Talsmaður tungumála Þegar Vigdís lét af embætti forseta Ís- lands taldi hún rétt að víkja af sviði íslensks samfélags um tíma. „Ég vissi að alþjóða- samfélagið hafði hug á að nýta krafta mína á einhvern hátt. Fyrst tók ég mér hins vegar umþóttunartíma og flutti til Danmerkur þar sem Ástríður dóttir mín fór í nám og lærði vel dönsku, sem ég er mjög ánægð með, enda vil ég að Íslendingar geti talað eitt- hvert Norðurlandamálanna. Strax í upphafi árs 1997 var ég beðin um að verða velgjörð- arsendiherra UNESCO á sviði tungumála og því varð umþóttunartíminn ekki langur.“ Ástæða þess að leitað var til Vigdísar var án efa sú að hún hafði alltaf lagt áherslu á mikilvægi menningar og tungu í fjölmörgum ræðum sínum á erlendri grundu sem forseti Íslands. „Ég lagði alltaf mikla áherslu á að kynna Ísland erlendis og fann að ég náði eyrum fólks með því að segja sögur sem tengdust menningararfinum og fara með ljóð. Hvar sem ég kom fann ég að kviknaði líf í salnum þegar ég vísaði í Hávamál, Völu- spá eða Edduna á því tungumáli sem við átti. Íslendingasögurnar höfða líka til allra, enda er heimsmynd þeirra skýr og þær fjalla um eðli manneskjunnar, ást, metnað, svik og trega. Margar fjalla um samskipti Íslendinga við útlendinga. Menningararfur okkar er í raun mjög alþjóðlegur.“ Vigdís hefur unnið um allan heim á vegum UNESCO, en í starfinu felst meðal annars að fylgjast með skrásetningu allra tungu- mála heimsins og meta þá hættu sem að þeim steðjar. Undanfarin fjögur ár hefur einnig verið unnið að stóru verkefni sem nefnist „Raddir heimsins“ (Voices of the World) með dönskum kvikmyndagerðar- mönnum og felst í því að myndgera öll lif- andi tungumál í heiminum. Myndskeið um hvert tungumál er 2–3 mínútur. Þar heyrist tungumálið og um leið er sýndur bakgrunn- ur menningarinnar. Nú er búið að gera nokkur myndskeið og það fyrsta verður fært Sameinuðu þjóðunum að gjöf á 60 ára af- mæli samtakanna í haust. „Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur stutt verkefnið með ráðum og dáð,“ segir Vigdís. „Við ætlum okkur að ná, þegar upp verður staðið, til allra tungumála heims- ins á þennan hátt og höfum að markmiði að þessi stuttu myndskeið verði sýnd á sjón- varpsstöðvum í sem flestum löndum. Mynd- irnar eru leið til að vekja fólk til umhugs- unar um fjölbreytni tungumálanna og verðmæti. Þau eru lykillinn að heiminum. Auðvitað tekur fjölmörg ár, jafnvel áratugi, að ljúka þessu verkefni og það er dýrt, en ég vona svo sannarlega að það verði gert. Ég hef ferðast víða til að sannfæra sjónvarps- stöðvar um gildi þess að sýna myndirnar og er sérstaklega ánægð með að fullvissa er fyrir því að þær verði sýndar hér á landi.“ Vigdís segir að starf hennar að gerð tungumálamyndanna hafi í raun verið kveikjan að þeirri hugmynd að hér yrði komið upp alþjóðlegri miðstöð tungumála á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. „Við viljum tengja öll tungumál heimsins við einn stað og gera Ísland að miðstöð tungumála. Það er eðlilegt að byrja á að safna málsöfnum um þau 13 tungumál sem kennd eru við Háskóla Ís- lands, enda mundu þau vera ómetanleg við kennslu og rannsóknir þar. En það eru líka fleiri möguleikar fólgnir í slíkum gögnum. Ég sé meira að segja fyrir mér stórt hnatt- líkan eða fleiri lítil í Háskóla Íslands, sem væri útbúið á þann hátt að fólk gæti stutt fingri á land, heyrt tungumálið sem þar er talað og jafnframt fengið upplýsingar um menninguna. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að þessi draumur rætist og bendi á að að- eins þeir sem koma auga á hið ósýnilega geta framkvæmt hið ómögulega. Ég er gríð- arlega stolt af stofnuninni sem kennd er við mig og því góða fólki sem þar starfar. Á ráð- stefnu sem haldin var í tengslum við afmæl- ið mitt í vor voru margir þekktir málvís- indamenn og það var ánægjulegt að heyra, hve jákvæðir þeir voru gagnvart hugmynd- inni. Margir bentu á að lega landsins væri táknræn fyrir það starf sem þar færi fram. Ísland er stikla á milli heimsálfa og hérna getum við látið tungumálin mætast.“ Vigdís segir að stjórnvöld hafi staðið þétt að baki starfi Stofnunar Vigdísar Finnboga- dóttur í erlendum tungumálum. Nægi þar að nefna núverandi og fyrrverandi forsætisráð- herra og menntamálaráðherra, sem allir hafi reynst trúir og tryggir stuðningsmenn stofnunarinnar. Vigdís segir einnig að sá stuðningur sem hefur verið að berast í Styrktarsjóð SVF í tilefni af afmælunum í ár hafi glatt hana innilega. „Enginn rær ára- laus og þessi stuðningur er ómetanlegur. Hið sama hefur alltaf verið upp á teningnum í starfi mínu fyrir UNESCO. Skrifstofan er í París og ég hef notið mikils stuðnings sendi- ráðs Íslands þar. Ég stend í mikilli þakk- arskuld við sendiherra þar, Sverri Hauk Gunnlaugsson og sérstaklega Sigríði Snæv- arr, sem ég hef unnið lengst með. Raunar á hið sama við um sendiráð Íslands hvar sem er í heiminum, þar er mér ávallt tekið með kostum og kynjum. Það er afskaplega mikils virði að eiga svona bakhjarla.“ Verðum að vera á varðbergi Vigdís segir að Íslendingar geti ekki verið óttalausir um tungu sína frekar en margir aðrir. „Við þurfum að vera á varðbergi, því ef íslenskan hverfur hættum við að vera þjóð. Bókmenntir okkar og viðhorfið til tungunnar gegnum aldir er hornsteinninn í tilveru okkar. Alþjóðleg tungumálamiðstöð hér gæti verið liður í því. Einu sinni höfðu menn þungar áhyggjur af dönskuslettum í íslensku máli og núna líklega enskuslettum. Ég óttast sletturnar ekki mikið, enda beit- um við ekki mörgum erlendum orðum fyrir okkur miðað við hvað við kunnum þau mörg. Hins vegar er setningaskipan að breytast og ég hef töluverðar áhyggjur af því. Þegar fólk segir til dæmis „ég er ekki að skilja þetta“ þá er auðvitað ljóst að það notar ein- göngu íslensk orð, en setningin er eins og þýdd úr ensku. Íslenska útgáfan er „ég skil þetta ekki“. Í íþróttamáli er þetta nokkuð áberandi, þar er til dæmis sagt að lið hafi verið að spila vel, þegar réttara væri að segja að liðið hafi spilað vel. Við þurfum ekkert að bæta við sögninni að vera í tíma og ótíma.“ Vigdís segir hraða velferðarsamfélags nú- tímans kalla á enn öflugri varðveislu tung- unnar. „Á meðan við keppumst við að upp- lifa augnablikið brýtur úthafsaldan á landinu og molar bergið. Við verðum að gæta þess að treysta brimgarðinn, svo við eigum ávallt trausta og örugga lendingu.“ Siðferði í vísindum og tækni Þótt tungumál heimsins hafi verið helsta viðfangsefni Vigdísar um árabil hefur hún lagt hönd á plóginn víðar. Hún var formaður 18 manna Heimsráðs UNESCO um siðferði í vísindum og tækni. „Þetta verkefni var mjög gefandi. Þegar ráðinu var komið á fót var að hefjast sú mikla umræða um siðferði í vís- indum og tækni sem enn sér ekki fyrir end- ann á. Framkvæmdastjóri UNESCO bað mig um tillögur að skipan ráðsins og ég leit- aði til vísindamanna á Íslandi og bað þá að benda á starfsbræður sína sem fjallað gætu um siðferði í vatnsbúskap heimsins, orku- málum og upplýsingatækni. Sem dæmi um þau viðfangsefni sem við ræddum var það siðleysi sem víða viðgengst, að auðhringir eiga allt vatn á ákveðnu svæði og selja fólki dýrum dómum. Víða ríkir einnig mikið sið- leysi í orkumálum. Sjálfri fannst mér skemmtilegast að kynnast upplýsinga- tækninni og fræðast um öll þau álitamál sem tengjast umferð gervihnatta í himinhvolfinu. Ég hafði ekki gert mér neina grein fyrir fjölda njósnahnatta og nú sé ég stórbygg- ingar með öðrum hætti en áður. Ég hélt allt- af að smáhýsi ofan á þaki þeirra hýstu lyftu- búnað, en í raun er mjög líklegt að þar leynist búnaður til móttöku á upplýsingum frá gervihnöttum.“ Heimsráðið hittist 2–3 sinnum á ári, en að auki störfuðu ýmsar undirnefndir sérfræð- inga. Starf heimsráðsins varð grundvöllur stefnumótunar Sameinuðu þjóðanna á þessu sviði. Gerir út frá verinu Nefndarformennska við endurreisn Norð- urbryggju í Kaupmannahöfn, sem nú hýsir menningarhús, varð næsta verkefni Vigdís- ar. Húsið var opnað í lok árs 2003 og er ætl- að að kynna list og menningu Íslands, Fær- eyja og Grænlands í Danmörku og styrkja samskipti landanna fjögurra. „Ég heyrði margar úrtöluraddir, en þetta hafðist með seiglunni og hjálp góðra manna. Danskir stjórnmálamenn tóku mér vel, enda á ég vináttu þeirra margra. Ekki má gleyma hlut íslenskra stjórnmálamanna, sérstaklega Davíðs Oddssonar. Ég fæ aldrei fullþakkað honum, bæði fyrir stuðninginn við þetta verkefni og við mig persónulega þegar ég lét af störfum sem forseti. Hann gerði allt sem í hans valdi stóð til að auðvelda mér þau um- skipti.“ Vigdís rifjar upp þegar hún stóð á sviði Borgarleikhússins þegar það var enn í bygg- ingu. Hún var þá forseti, en hafði barist fyr- ir byggingu hússins sem leikhússtjóri Leik- félags Reykjavíkur. „Þótt ég stæði á sviðinu ætlaði ég varla að trúa að þetta væri raun- verulegt. Tilfinningin var svipuð þegar ég tók á móti Margréti Danadrottningu og fleira fyrirfólki við opnun Norðurbryggju.“ Enn sér ekki fyrir endann á starfi Vigdís- ar fyrir UNESCO, þar sem hún ber ein þá ábyrgð að vera velgjörðarsendiherra í tungumálum. Hún segist oft dvelja í „verinu“, íbúð sinni í Kaupmannahöfn, og gera út þaðan. Þó hafi hún verið meira heima á Íslandi undanfarin ár. „Ég fór aldr- ei að heiman, þótt margir hafi haldið að ég væri flutt til Danmerkur. Ég hef alltaf átt heima hérna og mun alltaf eiga heima hér.“ heiminum rsv@mbl.is ’Aðeins eru um tveir áratugir frá því að fariðvar að ræða þörfina á að vernda tungumálin. Og enn er erfitt að fá fólk til að skilja mikil- vægi þess að halda tungum lifandi.‘

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.