Morgunblaðið - 14.08.2005, Síða 12
12 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
T
ruenorth er líf-
legt, íslenskt fyr-
irtæki sem sér-
hæfir sig í að
þjónusta erlend
kvikmyndafyrir-
tæki sem kjósa að
taka efni upp hér
á landi – veri það kvikmyndir, aug-
lýsingar, myndbönd eða sjónvarps-
efni. Þótt fyrirtækið sé ungt að ár-
um býr það yfir „margra áratuga
reynslu, ef ferill einstaklinganna
væri lagður saman,“ segir Helga
Margrét Reykdal framkvæmda-
stjóri, sem gaf sér stutta stund til
spjalls í miðjum Eastwood-undir-
búningi, ef svo má segja, en True-
north hefur yfirumsjón með Ís-
landstökum kvikmyndarinnar Flags
of Our Fathers, í leikstjórn Clints
Eastwoods. „Við sjáum um allt frá
því þeir lenda í Keflavík og þangað
til þeir fljúga þaðan aftur. Við út-
vegum þeim gistingu, bíla, starfs-
fólk, tæki, mat … í raun allt sem
þarf. Þegar kvikmyndagerðarmenn
koma svona til þess að taka upp í
öðru landi eru þeir að leita eftir sér-
fræðiþekkingu á staðnum. Þeir eru
með ákveðna lykilmenn með sér,
leikstjóra, framleiðanda, tökumenn
og slíkt, en leita svo að fyrirtæki
sem útvegar þeim besta samstarfs-
fólkið,“ útskýrir Helga Margrét.
Kynntust við tökur á Tomb Raider
Starfsmenn Truenorth eru allir í
kringum 35 ára aldur, hafa verið í
„bransanum“ frá því fyrir tvítugt,
sem segir sitt um brennandi áhug-
ann og, nú, reynsluna. Þetta eru
Leifur B. Dagfinnsson sem hefur
víðtæka reynslu sem aðstoðarleik-
stjóri og framleiðslustjóri, Árni Páll
Hansson, kvikmyndatökumaður og
framleiðslustjóri, Rafnar Her-
mannsson framleiðslustjóri og
Helga Margrét, framkvæmdastjóri.
Við þessi starfsheiti bætast þó mörg
önnur og margvísleg, enda í eðli
bransans að fjölhæfni og ráðsnilld
gera gæfumuninn.
„Strákarnir þekktust fyrir, en
það má segja að Truenorth hafi
sprottið upp frá því þegar við unn-
um öll við Tomb Raider og síðar að
Bond-myndinni Die Another Day –
ég kynntist Leifi og Árna Páli í raun
þar,“ segir Helga Margrét, en þegar
þessar myndir voru að hluta teknar
hér á landi störfuðu þremenning-
arnir fyrir Sagafilm. Truenorth
stofnuðu þau svo 2003 og ári síðar
bættist Rafnar í hópinn. „Við erum í
raun að gera það sama núna, undir
nýju nafni. Munurinn er sá að við
einbeitum okkur að því að þjónusta
erlenda aðila, en kjarnastarfsemin
hjá til dæmis Sagafilm og Pegasus
hefur verið innlendi markaðurinn.“
Í stærri verkefnum sér True-
north um að ráða undirverktaka,
sem í tilfelli Flags of Our Fathers
eru m.a. Eskimo Casting, Norð-
NorðVestur og Fenris. Að sögn
Helgu Margrétar er þetta stærsta
verkefni sem boðist hefur hérlendu
kvikmyndaþjónustufyrirtæki og þau
líti því á það sem hnoss, enda starfi
rjóminn af bandarísku kvikmynda-
rgerðarfólki með Clint Eastwood –
miklir fagmenn á öllum sviðum. „Og
þetta gengur bara mjög fínt, und-
irbúningur á tökustað gengur vel og
við höfum verið mjög heppin með
samstarfsfólk. Við höfum reyndar
þurft að etja aðeins við íslenska
veðráttu, en það er bara hlutur sem
er „tæklaður“. Okkar leið er að
nálgast vinnuna frá jákvæðu sjón-
arhorni: Ekkert er ómögulegt –
sumt tekur bara aðeins lengri tíma.“
Smæð þjóðfélagsins er kostur að
því leyti að oft er hægt að bjarga
hlutum snarlega, en enn meiri kost-
ur er þó lífsreynsla Íslendinga.
Helga tekur sem dæmi að í vor hafi
umfangsmiklum bílatökum í Skafta-
fellssýslu verið flýtt um heilan dag,
seint að kvöldi, vegna arfaslæmrar
veðurspár. Slíkt kallaði á skyndilegt
endurskipulag. „Þetta er gott dæmi
um hvað Íslendingar geta, með
góðri samhæfingu. Við sem búum
hér á þessu landi erum vön því að
þurfa að kljást við náttúruöflin.“
Helga Margrét er spurð í hverju
Truenorth-fjórmenningarnir séu
bestir, fyrir utan að vera „meistarar
í listinni að leysa vandamál,“ eins og
haft er eftir auglýsingaframleiðand-
anum Philippu Thomas á vefsíðu
Truenorth. Helga Margrét brosir að
tilvitnuninni, svarar svo: „Ég held
að lykillinn að okkar fyrirtæki sé að
við vinnum afskaplega vel saman,
þekkjum hvert annað og styrkleik-
ana vel og bætum hvert annað upp.“
Allt miðað við myndavélina
Vinnan í kvikmyndagerð er yf-
irleitt í miklum skorpum – þegar
talað er við Helgu Margréti klukkan
18 á virkum degi játar hún að eiga
fimm til sex tíma eftir af vinnudeg-
inum …
Af hverju er alltaf unnið lengi á
tökustað kvikmynda, er hver dagur
svona dýr? „Í kvikmyndagerð eru
alltaf margir sem koma að verkinu;
þótt verið sé að taka upp litla, ein-
falda auglýsingu geta verið 30
manns á staðnum. Einnig þarf að
koma miklu af tækjum á staðinn og
þegar búið er að ferja þau og setja
allt upp á tökustaðnum, þá fyrst er
hægt að byrja vinnudaginn sem
felst í tökunum sjálfum. Þannig að
þetta vill teygjast svona í báða
enda.“
Í öllum verkefnum er einn eða
fleiri starfsmenn Truenorth á töku-
stað en aðrir á skrifstofunni í
Reykjavík. Því reynist þrautin
þyngri að koma öllum saman í
myndatöku. „Rafnar er til dæmis
núna úti við tökur á myndbandi með
Sigur Rós,“ tekur Helga Margrét
sem dæmi, en Árni Páll og Leifur
eru á vettvangi hjá Arnarfelli og
Sandvík – tökur hófust þar í fyrra-
dag og munu standa í einn mánuð.
Helga Margrét segir þau ekki
uggandi, þótt skiptar skoðanir hafi
verið á leyfisveitingum fyrir tökur á
svæðinu. Allt sé undir mjög góðri
stjórn. „Auðvitað skiljum við það að
almenningi sé ekki sama þegar
hann heyrir að taka eigi upp stríðs-
senur og sprengingar, en sprengja
og sprengja er bara svo innilega
ekki það sama í þessu samhengi,“
segir Helga Margrét og áréttar að
sjónhverfingamáttur kvikmyndanna
sé mikill. „Til þess að taka upp
sprengingu er lítil sprengja grafin
ofan í sandinn og fullt af gróður-
mold og öðru sett með – svo er
þetta sprengt fyrir „effektinn“. Sem
er sá að mikill jarðvegur þeytist upp
Listin að leysa vanda
Starfsmenn Truenorth
þykja meistarar í listinni að
leysa vandamál, hleraði
Sigurbjörg Þrastardóttir.
Sérgrein þeirra er þjónusta
við erlent kvikmyndagerð-
arfólk. Og nú er Clint
Eastwood mættur.
Leifur B. Dagfinnsson, Helga Margrét Reykdal og Árni Páll Hansson, stofnfélagar Truenorth, á tökustað Fána feðranna (Flags of Our Fathers).
Frá tökum á bandarískri auglýsingu fyrir Cadillac í ágúst 2004. Íslenska veðr-
áttan er alltaf áskorun en vanir menn kunna til verka – líka í rigningu.
Frá gerð tónlistarmyndbandsins Demons með Brian McFadden, sem Truenorth
hafði umsjón með. Brian og leikstjórinn Howard Greenhalgh við Skógafoss.
Tökur á listaverkinu „Truenorth“ fyrir myndlistarmanninn Isaac Julien, en verkið
er nefnt eftir fyrirtækinu og hefur m.a. verið sýnt í Pompidou í París og víðar.