Morgunblaðið - 14.08.2005, Síða 18

Morgunblaðið - 14.08.2005, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ I. Fjárdráttur. 1) Fyrirtæki Jóns Geralds Sullen- bergers [JGS], Nordica, fékk mánað- arlegar greiðslur vegna ráðgjafar og annarrar þjónustu sem JGS veitti Baugi við innkaup og merkingar á vörum. Þá annaðist JGS flutning var- anna til Íslands, líkt og kemur fram í texta reikninganna. Vegna taps á rekstri vöruhúss Nordica voru greiðslurnar nauðsynlegar til fram- færslu JGS og fjölskyldu hans. Þetta kemur fram í gögnum sem aflað var í tengslum við málarekstur í Banda- ríkjunum og afhent voru RLS. Meðal þeirra gagna voru bankareikningar hans og Nordica. Þar kemur fram að ráðstöfun hans á þessum fjármunum virðist vera í samræmi við þá lýsingu sem Jón Ásgeir Jóhannesson [JÁJ] og Tryggvi Jónsson [TJ] hafa gefið. JGS átti umræddan bát einn eins og kemur fram í ákærunni. Hvorki JÁJ persónulega né Gaumur eignuðust hlutdeild í honum heldur lánaði Gaumur umtalsverða fjármuni til JGS og Nordica vegna kaupa og reksturs á bátnum. Því er vandséð hvaða auðgunarbrot hafi átt sér stað. Athygli vekur að þar sem RLS telur að hér hafi verið um lögbrot að ræða hefði embættinu skilyrðislaust borið að ákæra JGS fyrir hlutdeild í brot- unum. Ítarlega er gerð grein fyrir þessu í bréfum JÁJ til RLS frá 5. mars 2004 og 30. júní 2005. Rétt er að taka fram að Kristínu og Jóhannesi er ekki gefinn að sök fjárdráttur sam- kvæmt þessum lið heldur hlutdeild í fjárdrætti, sbr. heimfærslu ákæru- valds til refsiákvæða í ákæru. 2) Árið 1996 gaf Bónus út ábyrgð til handa Nordica vegna vöruviðskipta. Umrædd ábyrgð var notuð til trygg- ingar yfirdráttarláni sem Nordica tók vegna vöruviðskipta samkvæmt gögnum sem aflað var í Bandaríkj- unum og RLS hefur í vörslum sínum. Haustið 2003 féll ábyrgðin á Baug en sakborningar telja fráleitt að hún hafi staðið í tengslum við kaup á bát. Ef svo væri hefði einnig átt að ákæra JGS fyrir þessar sakir. Ítarlega er greint frá þessu í bréfi JÁJ 5. mars 2004, svo og í bréfi JÁJ til RLS, dags. 5. júlí 2004. 3) Um er að ræða kostnað sem fell- ur að stórum hluta undir risnu aðstoð- arforstjóra. Hefur RLS verið bent á að rannsaka þennan lið betur og ræða m.a. við vitni sem hafa notið risnunn- ar en því hefur ekki verið sinnt. Ekki getur verið um fjárdrátt að ræða þar sem allan auðgunarásetning skorti. 4) Vegna mistaka starfsmanna Baugs láðist að innheimta aðflutn- ingsgjöld hjá TJ. TJ hafði rætt við viðkomandi starfsmenn um að þeir gerðu honum reikning vegna gjald- anna og var í þeirri trú að það hefði verið gert og málið væri þannig af- greitt. Ekki getur verið um fjárdrátt að ræða þar sem allan auðgunará- setning skorti. II. Umboðssvik. 5) JÁJ gerði samning við seljendur Vöruveltunnar sem umboðsmaður kaupanda, sem skyldi tilgreindur inn- an 30 daga. Samningurinn fól þannig í sér sölutryggingu fyrir eigendur Vöruveltunnar sem JÁJ var ábyrgur fyrir. Íslandsbanki tók yfir söluferlið og aðrir aðilar komu að málinu, sem voru eigendur 70% hlutafjárins en ekki JÁJ líkt og segir í ákæru. Voru viðskiptin gerð með vitund og sam- þykki hluthafa Baugs, sem var ekki skráð félag á hlutabréfamarkaði á þeim tíma. Enginn auðgunarásetn- ingur var til staðar og fyrir liggur að JÁJ hagnaðist ekkert á þessum við- skiptum. Baugur (í dag Hagar hf.) hefur hins vegar hagnast um 3,5 til 4 milljarða á viðskiptunum að mati sak- borninga. Þessu er nánar lýst í bréfi JÁJ 30. júní 2005. 6) Erfitt er að skilja hvað sakborn- ingum er nákvæmlega gefið að sök í þessum ákærulið. Þessi viðskipti tengjast viðskiptum sem rætt er um í athugasemdum við ákærulið 5. Þetta er nánar skýrt í bréfi JÁJ 30. júní 2005. Vart getur það talist misnotkun á aðstöðu að hafa selt umræddar fast- eignir á 354 milljónir króna, sem var markaðsvirði þeirra á þeim tíma sem viðskiptin áttu sér stað, þegar mats- verðið í dag er 573 milljónir króna. 7) Um er að ræða ábyrgð sem Bón- us gaf út til handa Nordica árið 1996 vegna vöruviðskipta en ekki vegna báts eins og sýnt hefur verið fram á með gögnum. Vísast til svars um lið 2. III. Fjárdráttur og umboðssvik. 8) Um var að ræða lánveitingu í við- skiptalegum tilgangi fyrir Baug, sem rúmast innan stöðuumboðs JÁJ sem forstjóra félagsins. Þessir fjármunir voru endurgreiddir fyrir lok reikn- ingsársins 1998, án þess að það sé til- tekið í ákæru eins og eðlilegt væri. Eins og rakið er í athugasemdum sak- borninga við 5. lið ákærunnar gerði JÁJ samning til að tryggja hagsmuni Baugs þegar það stefndi í að Vöru- veltan yrði seld til KEA. Greiðslan tengist með órofa hætti samningi JÁJ við seljendur Vöruveltunnar frá deg- inum áður, þar sem JÁJ kom fram sem umboðsmaður væntanlegra kaupenda. Þessi ráðstöfun var gerð með hagsmuni Baugs að leiðarljósi, enda jókst velta vöruhúss fyrirtæk- isins um 18% án þess að kostnaður færi upp svo nokkru næmi. Þetta at- riði var ítarlega skýrt í bréfi JÁJ, dags. 30. júní 2005. 9) Um er að ræða þóknun sem Gaumur fékk fyrir að falla frá betri rétti sínum vegna þátttöku í A-Hold- ing sem stofnað var utan um fjárfest- ingu í Arcadia. Hafa forsvarsmenn Ís- landsbanka og KB banka, sem voru stofnhluthafar í A-Holding, ásamt Baugi og Gaumi, staðfest að þessir aðilar hafi einnig fengið sams konar þóknun fyrir að falla frá rétti sínum. Með þessari ráðstöfun sparaði Baug- ur um 650 milljónir króna frá þeim samningum sem þegar höfðu verið gerðir. Sýnt hefur verið fram á að þóknun Gaums var hlutfallslega lægri en bankanna. Hafði JÁJ umboð bæði stjórnar og hluthafafundar til að ganga frá slíkum samningum við hlut- hafa A-Holding. Þetta hefur ítarlega verið skýrt í bréfi JÁJ 30. júní 2005, álitsgerð Jónatans Þórmundssonar og með bréfi JÁJ til RLS 21. sept- ember 2004. IV. Fjárdráttur, umboðssvik og brot gegn lögum um hlutafélög. Í heimfærslu til refsiákvæða í lok IV. kafla er Kristínu Jóhannesdóttur ekki gefinn að sök fjárdráttur, um- boðssvik né brot gegn lögum um hlutafélög líkt og segir hér í upphafi kaflans. Uppsetning í ákæru er því bæði röng og ósæmandi að þessu leyti. 10) Sú lánveiting sem hér er vísað til er viðskiptalegs eðlis og var heimil samkvæmt lögum. Umrætt viðskipta- lán var að fullu endurgreitt eins og kemur fram í verknaðarlýsingu. Ekki getur verið um fjárdrátt eða um- boðssvik að ræða þar sem allan auðg- unarásetning skorti og engin leynd ríkti um lánveitinguna. Ítarlega er fjallað um óheimilar lánveitingar í álitsgerð Jónatans Þórmundssonar. Þar segir m.a. að undantekning í 3. málsl. 2. mgr. 104. gr. hlutafélagalaga heimili hlutafélagi að veita starfs- mönnum félagsins eða tengds félags lán til kaupa á hlutum í félaginu. 11) Hér er um að ræða hlutabréf í Flugleiðum sem Bónus hafði upphaf- lega keypt en við tilurð Baugs láðist hins vegar að yfirfæra þau til félags- ins. Þetta uppgötvaðist eftir að hluta- bréfin höfðu verið seld og var andvirði söluverðs bréfanna þá fært sem krafa á viðskiptamannareikning Gaums í bókhaldi Baugs. Krafan var lán við- skiptalegs eðlis sem eru heimil og var að fullu endurgreidd 20. maí 2002 áð- ur en til húsleitar RLS kom. Ekki getur verið um fjárdrátt eða um- boðssvik að ræða þar sem allan auðg- unarásetning skorti og engin leynd ríkti um viðskiptin. 12) Til stóð að Baugur keypti hluta af fasteigninni að Viðarhöfða 6 í félagi við Gaum þar sem m.a. voru geymd bókhaldsgögn frá félaginu. Hins veg- ar láðist að ganga frá endanlegum kaupsamningi þess efnis. Krafan var því lán viðskiptalegs eðlis sem eru heimil. Skuldin var að fullu endur- greidd 20. maí 2002 áður en til hús- leitar RLS kom. Ekki getur verið um fjárdrátt eða umboðssvik að ræða þar sem allan auðgunarásetning skorti og engin leynd ríkti um viðskiptin. 13) Viðskiptatraust ehf. var sam- eiginlegt verkefni SPRON og Bónus um útgáfu greiðslukorta fyrir Bónus sf., sem á þeim tíma tók ekki við slík- um kortum. Ekkert varð af verkefn- inu og að kröfu SPRON keypti Gaum- ur hlutafé SPRON í Viðskiptatrausti ehf. Samkomulag var um að Baugur keypti umrætt hlutafé og greiddi kaupverðið til SPRON og tók yfir starfsemi Viðskiptatrausts. Staða á viðskiptamannareikningnum vegna þessa var gerð upp með kaupum Baugs á öllu hlutafé í Viðskiptatrausti hálfu ári síðar. Ekki getur verið um fjárdrátt eða umboðssvik að ræða, þar sem allan auðgunarásetning skorti og engin leynd hvíldi yfir við- skiptunum. 14) Framangreint viðskiptalán var að fullu endurgreitt eins og fram kemur í verknaðarlýsingu. Í bréfum JÁJ 5. mars 2004 og 30. júní 2005 er m.a. greint frá margháttuðu sam- starfi Baugs og Gaums þar sem Gaumur fór oft á undan í leit að fjár- festingum og tók áhættuna af þeim. Fjárfestingarnar voru síðan færðar yfir til Baugs sem hagnaðist verulega á viðskiptunum. Þessi viðskipti sem stóðu í tengslum við einkaleyfi fyrir Debenhams á Íslandi og síðar á Norð- urlöndunum eru skýrt dæmi um slíkt samstarf. Ekki getur verið um fjár- drátt eða umboðssvik að ræða þar sem skuldin var greidd upp og allan auðgunarásetning skorti og engin leynd ríkti um lánveitinguna. 15) Hér er um að ræða lán við- skiptalegs eðlis sem eru heimil. Við- skiptalánið var að fullu endurgreitt 20. maí 2002 áður en til húsleitar RLS kom. Ekki getur verið um fjárdrátt eða umboðssvik að ræða þar sem all- an auðgunarásetning skorti og engin leynd ríkti um lánveitinguna. Ítarlega er fjallað um óheimilar lánveitingar í álitsgerð Jónatans Þórmundssonar. Þar segir m.a. að undantekning í 3. málsl. 2. mgr. 104. gr. hlutafélagalaga heimili hlutafélagi að veita starfs- mönnum félagsins eða tengds félags lán til kaupa á hlutum í félaginu. 16) Hér er um að ræða lán við- skiptalegs eðlis sem eru heimil. Við- skiptalánið var að fullu endurgreitt 20. maí 2002 áður en til húsleitar RLS kom. Ekki getur verið um fjárdrátt eða umboðssvik að ræða þar sem all- an auðgunarásetning skorti og engin leynd ríkti um lánveitinguna. Ítarlega er fjallað um óheimilar lánveitingar í álitsgerð Jónatans Þórmundssonar. Þar segir m.a. að undantekning í 3. málsl. 2. mgr. 104. gr. hlutafélagalaga heimili hlutafélagi að veita starfs- mönnum félagsins eða tengds félags lán til kaupa á hlutum í félaginu. 17) Hér er um að ræða lán við- skiptalegs eðlis sem eru heimil. Lánið var að fullu endurgreitt 20. maí 2002 áður en til húsleitar RLS kom. Um- ræddu félagi, Nordic Restaurant Group AB, sem var handhafi rekstr- arleyfis fyrir Pizza Hut í Svíþjóð og á Íslandi, var m.a. ætlað að kaupa veit- ingarekstur af norska félaginu Reitan Gruppen, sem var þá einn af stærstu hluthöfum Baugs. Gaumur hefur í gegnum tíðina oft tekið upphafs- áhættu í fjárfestingarverkefnum sem Baugur hefur svo tekið yfir, sbr. at- hugasemdir sakborninga við ákæru- lið 14. Svo var í þessu tilviki. Eign- arhluturinn í Nordic Restaurant Group er nú í eigu Baugs. Ekki getur verið um fjárdrátt eða umboðssvik að ræða þar sem allan auðgunarásetning skorti og engin leynd ríkti um lánveit- inguna. Ítarlega er fjallað um óheim- ilar lánveitingar í álitsgerð Jónatans Þórmundssonar. 18) Viðskiptalánið var að fullu end- urgreitt. Ekki getur verið um fjár- drátt eða umboðssvik að ræða þar sem allan auðgunarásetning skorti, engin leynd ríkti um lánveitinguna auk þess sem viðskiptalánið var að fullu endurgreitt og fól því ekki í sér áhættu fyrir Baug. Þá var Fjárfar hluthafi í Baugi á þessum tíma. Ít- arlega er fjallað um óheimilar lánveit- ingar í álitsgerð Jónatans Þórmunds- sonar. 19) Hér er um að ræða viðskiptalán Athugasemdir sakborninga Í skjali því sem Morgunblaðinu hefur borist frá lögmanni eins sakborninga eru einnig settar fram athugasemdir sakborninga við einstaka ákæru- liði, og eru þær birtar orðrétt hér. STJÓRNVÖLD vildu með ákær- unum í Baugsmálinu svokallaða brjóta Baug á bak aftur og eyði- leggja fyrirtækið þar sem það var stjórnvöldum ekki þóknanlegt. Þetta segir Jóhannes Jónsson, kenndur við Bónus, í viðtali við Fréttablaðið í gær. Jóhannes vildi ekki koma í viðtal hjá Morg- unblaðinu þegar eftir því var leitað. „Hreinn Loftsson, stjórn- arformaður Baugs, var raunar bú- inn að lýsa áhyggjum og vara okk- ur við því að eitthvað væri í aðsigi af hálfu stjórnvalda áður en inn- rásin var gerð. Það yrðu aðgerðir af hálfu skattayfirvalda, lögregl- unnar eða samkeppnisyfirvalda. Þessu lýsti hann eftir að hafa verið á fundi í London með Davíð Odds- syni, þáverandi forsætisráðherra. Sá fundur var eins og menn vita átta mánuðum fyrir húsleitina í lok ágúst 2002,“ segir Jóhannes í Fréttablaðinu. „Ég er nú kominn yfir sextugt en ég hélt að svona viðbjóður væri ekki til hér í þessu landi. Ég hélt að þetta væri eitthvað sem tíðkaðist undir stjórnarfari Mugabes í Sim- babve eða viðlíka stjórnarherrum. En við vitum að valdið spillir og þegar menn sitja of lengi að kjöt- kötlunum, eins og við höfum upp- lifað undanfarin ár, er sem stjórn- arherrarnir fari fullfrjálslega með vald sitt,“ segir Jóhannes. Tilgangurinn að ná sér niðri á Baugi Hann segir árangurinn af þriggja ára rannsókn Ríkislög- reglustjóra á Baugi skila heldur rýrum niðurstöðum, og undarlegt að geta ekki bent á einhvern þátt þar sem verðmæti hafa misfarist. „Það er eins og þessi rannsókn og málatilbúnaður hafi allur miðast að því að ná sér niðri á okkur sem fyr- irtæki og sem fjölskyldu og að sverta mannorð okkar út í eitt. Mér virðist þetta hafa verið tilgang- urinn.“ Undir þetta tekur Jón Ásgeir Jó- hannesson, forstjóri Baugs, í viðtali í sama blaði, og segist hafa það á tilfinningunni að sakborningar hafi þegar í upphafi verið skilgreindir sem glæpamenn og svo hafi verið farið að leita að glæpnum. „Það eru allt of margar tilviljanir í þessu máli til að þær fái staðist. Í mínum huga er alveg klárt að þessu er stjórnað. Í hvert skipti sem við vorum í fréttum vegna þess sem við vorum að fást við, þá bárust fréttir af rannsókninni. Fyrst þeir ætluðu ekki að þingfesta málið fyrr en 17. ágúst, af hverju lá þeim þá svona mikið á að birta ákæruna? Það hafði verið í fréttum að áreið- anleikakönnun vegna Somerfield var að ljúka. Þeir vissu vel um það.“ Segir Davíð Oddsson hafa hótað Hreini Loftssyni Spurður hver það sé sem stjórnar þessu segir Jón Ásgeir: „Andrúmið stjórnar dálítið. Það skapaðist 2001–2002 með gegndarlausum árásum þáverandi forsætisráð- herra [Davíðs Oddssonar] á fyr- irtækið og hótunum hans um að brjóta upp félagið. Ráðherrann hót- aði Hreini Loftssyni því að opinber- ir aðilar myndu herja á félagið. Jón Steinar tekur að sér málið fyrir Jón Gerald. Jón Steinar hringir í rík- islögreglustjóra. Hversu augljóst getur þetta verið?“ Jón Ásgeir heldur áfram: „Jón Steinar fær flýtimeðferð án þess að skoða gögn málsins eins og frægt er. Menn þekkja hvernig það er að kæra til efnahagsbrotadeildar. Það er ekki eins og þar sé venjulega brugðist hratt við. Í þetta skiptið fengu þeir húsleitarheimild án þess að kanna einu sinni hvort reikning- urinn sem var tilefni innrásarinnar væri debet eða kredit. Næði Baug- ur Arcadia var ljóst að félagið yrði orðið langstærsta fyrirtæki á Ís- landi. Fyrirtæki sem hefði hagnast meira en allur íslenskur sjávar- útvegur. Það er ljóst að mörgum stóð stuggur af því og einnig stóð mörgum stuggur af því að við vor- um orðaðir við nýja útgáfu Frétta- blaðsins. Jú, það var pólitík í þessu máli, það er klárt.“ Báðir taka þeir Jóhannes og Jón Ásgeir fram að enginn hafi orðið fyrir tjóni vegna sakborninganna, og enginn kært þá vegna neins, og segir Jóhannes hluthafa fyrirtæk- isins, þegar það var almennings- hlutafélag, hafa hagnast ágætlega. „Við erum nú stærstu hluthafar Baugs í dag þegar félagið hefur stöðu brotaþola. Ég veit ekki hvar eða hvernig tjónið mælist. Baugur hefur vaxið og dafnað með ótrúleg- um hraða fyrir atbeina þeirra ein- staklinga sem nú eru ákærðir fyrir brot gegn þessu sama fyrirtæki.“ Ætla að höfða skaðabótamál Jóhannes og Jón Ásgeir segja báðir að þrátt þrátt fyrir það sem á undan er gengið treysti þeir dóm- stólum, því að réttlætið sigri og ákærðu geti haldið áfram að bera höfuðið hátt. „Þetta mál verður sótt af okkar hálfu allt til enda eða þar til niðurstaða fæst. Það verður sótt á þeim dómstigum sem völ er á hér á landi. Við ætlum að höfða skaða- bótamál til þess að freista þess að fá bætt það tjón sem Baugur hefur orðið að þola að ósekju. Menn hafa borið ótrúlegustu sakir á okkur án þess að geta bent á tjón eða skaða sem fyrirtækið hefur orðið fyrir. Í skaðabótamáli munum við ekki undanskilja þá embættismenn sem við teljum að framið hafi afglöp,“ segir Jóhannes. Spurður hvort hann eigi þar við Harald Johann- essen ríkislögreglustjóra segist hann ætla að láta lögmenn sína um að sækja á þau mið. Forsvarsmenn Baugs segja stjórnvöld vera að ná sér niðri á fyrirtækinu með ákærum „Hélt að svona viðbjóður væri ekki til“ Ætla að höfða skaðabótamál gegn stjórnvöldum og embættismönnum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.