Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 27

Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 27 Akranes Ófeigur Gestsson 431 4383 892 4383 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 897 4236 Bíldudalur Gísli Snær Smárason 456 2207 456 2158 Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019 864 4820 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík Marenia Kristín Hrafnkelsd. 475 6662 8606849 Búðardalur Aron Snær Melsteð 434 1449 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Helgi Týr Tumason 478 8161 864 9207 Egilsstaðir Þurý Bára Birgisdóttir 471 2128 8620543 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna S. Eiríksdóttir 475 1260 475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Erla Ösp Ísaksdóttir 848 5361 Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222 848 3397 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 4386858/8549758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522 Hellissandur Hafdís Gísladóttir 436 6925 894 9284 Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Elísabet Sigurðardóttir 894 0387 464 1987 Hvammstangi Harpa Vilbertsdóttir 451 2455 892 0644 Hveragerði Úlfar Andrésson 483 4694 893 4694 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 4878172/8931711/853 1711 Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Hjörtur Freyr Snæland 486 8874 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 477 1124 Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2650 866 7958 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 899 6904 Patreksfjörður Sigríður Valdís Karlsdóttir 456 1119 846 8346 Raufarhöfn Örvar Sigþórsson 456 1287 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488 892 0488 Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð v/Mýv. Þórunn Snæbjörnsdóttir 464 4464 Sandgerði Jóhanna Ósk Gunnarsdóttir 423 7330 821 7330 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 854 7488 Selfoss Sigdór Vilhjálmsson 846 4338 Seyðisfjörður GB Bjartsýn ehf, Birna 472 1700 897 0909 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Kristín Björk Leifsdóttir 452 2703 849 5620 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 430 1414 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Anna Elísa Karsldóttir 456 4945 Tálknafjörður María Berg Hannesdóttir 456 2655 Vestmannaeyjar Harpa Björgvinsdóttir 586 8036 695 2599 Vík í Mýrdal Æsa Gísladóttir 867 2389 Vogar Vilborg S. Helgadóttir 424 6653 616 2075 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 820 6788 Ytri-Njarðvík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463 Þingeyri Hildur Sólmundsdóttir 456 8439 867 9438 Þorlákshöfn Íris Valgeirsdóttir 483 3214 8486214 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 468 1515 DREIFING MORGUNBLAÐSINS Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni Staður Nafn Símanúmer Staður Nafn Símanúmer Um daginn sá ég írska konu ísjónvarpinu taka við rösklega 9 milljarða króna ávísun – hæsta vinningi í lottói sem fólk í mörgum Evrópulöndum tók þátt í. Ég hagræddi mér betur í sóf- anum og sökkti mér ofan í dag- drauma, – hugsa sér ef það væri ég sem hefði fengið þennan vinning! Ég velti alvar- lega fyrir mér hvað ég myndi gera við alla þessa peninga en niður- staðan kom sjálfri mér talsvert á óvart. Þegar ég var búin að borga í huganum allar skuldir velti ég fyrir mér að fá mér nýjan bíl. Við nánari athugun fannst mér þess ekki endi- lega þurfa, ég á ágætan bíl sem er sjálfskiptur og ekki mjög stór svo ég get lagt í flest stæði. Strangt til tekið þarf ég ekki nýjan bíl, ég kemst ágætlega ferða minna á þeim sem ég á. Nú jæja, þá var að athuga með hús – kannski glæsivillu? Ég hugs- aði um húsið mitt sem ég er búin að eiga svo margar ævistundir í, bæði glaðar og erfiðar, og komst að raun um að ég vildi alls ekki skipta um hús, mér þykir vænt um húsið mitt, kannski mætti lappa upp á ýmislegt smálegt – en ég þyrfti svo sem eng- an milljarðalottóvinning til þess. Þá leiddi ég hugann að ferðalög- um sem svo mörgum þykja æði eft- irsóknarverð. Innra með poppaði upp sú skoð- un að ég hefði ferðast alveg nóg um dagana. Ég hef sannreynt að þótt umhverfið sé svolítið öðruvísi er líf- ið hvar sem er æði svipað. Í flest mín ferðalög hef ég auk þess farið með kvíðahnút í maganum vegna flughræðslu, „glætan að ég færi í fleiri ferðalög en ég þyrfti, ég myndi jafnvel vera til í að borga slatta af lottóvinningnum til þess að þurfa ekki að fara í flugvél oftar“, hugsaði ég. Kannski að ég keypti mér þá snekkju, það er víst mjög eftirsókn- arvert farartæki. En þá þyrfti ég að lifa á sjóveikitöflum, – „það er ekkert líf“, tautaði ég við sjálfa mig. Snekkjukaupin gengu því til baka. En ég gæti keypt mér jörð – eða hvað? Ég á raunar svolítinn jarðarpart sem ég hef aldrei hirt um að byggja sumarhús á, það benti óneitanlega til þess að ég væri ekki mjög áhugasöm um sumarhúsabyggingu eða frístunda- hússbyggingu eins og það heitir núna. En ég gæti þá kannski gert mjög vel við mig í mat. – Nei, það gengi alls ekki, ég er þvert á móti að reyna að minnka við mig átið. Ekki yrði sjón að sjá mig ef ég æti fyrir 900 milljarða – slíkt kæmi alls ekki til mála. Föt þá? Já, ég gæti kannski keypt mér pels og orðið verulega fín frú – hárfeld eins og vinkona mín kallar það. „Eventúelt“ gæti ég það – og keypt líka fleira af öðru fatakyns, en ég er raunar ekki á slíku flæðiskeri stödd hvað fatnað snertir að slík kaup myndu skipta sköpum. Þannig var nú það. Þessu næst fór ég að hyggja að þörfum þeirra sem mér þykir vænt um. Fólkið mitt er ekki húsnæð- islaust þannig að ég þarf ekki nauð- synlega að koma því til hjálpar og ekki er gott að taka af fólki sjálfs- bjargarviðleitnina, það væri bjarn- argreiði. Smávegis aðstoð gæti kannski komið að gagni en ekki meiri en svo að lottóvinning þyrfti til. Smám saman fór ég þannig yfir alla flóruna og fann að ég hefði bara hreint ekkert með þennan mikla vinning að gera. Þvert á móti rann upp fyrir mér að hann gæti orðið mér til trafala, hann myndi raska öllu jafnvægi í lífi mínu og líklega svipta mig því sem mér er mikilvægast af öllu, það er sjálfri lífsbaráttunni. Baráttu- völlurinn er skemmtilegt kjörlendi og það er ekkert gaman að baráttu nema hún hafi einhvern tilgang. Lífsbaráttan gefur lífinu gildi og fyllir mann stolti ef vel gengur. Alltof miklir peningar myndu eyði- leggja þessa tilfinningu. Annað gæti líka gerst, – samband mitt við annað fólk gæti breyst. Félagsleg auðlegð er að mínu mati sú auðlegð sem mestu skiptir. Enginn maður er fátækari en sá sem ekki á góða fjölskyldu og vini. Betra er að eiga einn góðan vin en fjölda kunningja. Fólk sem hefur grun um að aðrir vilji einkum þekkja það vegna pen- ingaeignar eða valda er ekki öf- undsvert. Sem sagt; við núverandi aðstæður er ég ekki í þörf fyrir stóran lottóvinning. Allt myndi hins vegar líta öðru- vísi út ef ég ætti ekki hús, bíl, föt né mat. Þá gæti mátulegur lottó- vinningur verið hrein guðsgjöf. En sá sem á allar helstu lífsnauðsynjar fyrir getur litlu bætt við þótt hann eignist mikinn auð; það er aðeins stigsmunur en ekki eðlismunur á því að kaupa dýrara eða flottara og getur varla nema skamma stund gert lífið skemmtilegrra. Við skyndileg auðæfi getur hins vegar tapast ýmislegt það sem ekki verð- ur metið til peninga. Reynsla fólks og ótal sögur þar um hafa sýnt svo ekki verður um villst að ríkt fólk og frægt er hvorki lífsglaðara né ham- ingjusamara en hinir sem minna eiga – jafnvel þvert á móti. Í samfélagi okkar hefur umræð- an um peninga verið æ fyrirferð- armeiri seinni árin. Önnur verð- mæti lífsins hafa minna verið rædd og sum eru jafnvel gleymd að því er virðist. Í uppsveiflunni núna er þetta áberandi, en ekkert stendur í stað í þessum heimi þar sem allt er á hverfanda hveli, – líklega munu þeir tímar aftur renna upp að hin innri verðmæti munu hefjast til vegs og virðingar á ný og pen- ingahyggjan lúta í lægra haldi í bili. Á sama hátt og sár fátækt fer oft illa með fólk getur hömluleysi mik- illa auðæfa líka gert einstaklingum og fjölskyldum mikið mein. „Allt kann sá sem hófið kann,“ segir í Gísla sögu Súrssonar. – Í þessum orðum eru mikil sannindi fólgin. ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Hvernig væri að vinna í lottó? Allt kann sá sem hófið kann eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur                  mbl.is smáauglýsingar Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.