Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 30
30 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Austurmörk 4, Hveragerði, www.byr.is
sími 568 9800
Vorum að fá í einkasölu
sumarhúsalóðir í
einstaklega fallegu
umhverfi á Flúðum.
Frístundabyggð við Hlíðardal
og Tjarnadal. Lóðirnar eru
staðsettar í sólríkum dal þar sem
náttúran fær að njóta sín í skipulagðri skógrækt ásamt
fallegum fellum og fjöllum.
Í þessu notalega umhverfi verða aðeins byggð 24
frístundahús og sem stendur eru 22 lóðir í boði. Svæðið
hefur verið skipulagt með heitu og köldu vatni ásamt
rafmagni. Vegir komnir um svæðið. Hver lóð er um 0.5 ha.
Hér er á ferðinni einstakt tækifæri fyrir þá sem þekkja allt
það, sem Flúðir hafa upp á að bjóða auk þess sem í boði
er fjármögnun hjá SPH.
Þar sem einungis eru um 22 lóðir að ræða þá verður
áhugasömun aðilum kynnt svæðið sérstaklega ásamt
fjármögnunarleiðum
Nánari upplýsingar er að fá í síma 895 9098 og 824 5000
SUMARHÚSASLÓÐIR - FLÚÐUM
Soffía Theodórsdóttir
löggiltur fasteignasali
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Mjög fallegur og vel viðhaldinn 46 fm sumarbústaður í
landi Svarfhóls, Svínadal, Strandahreppi. Landið liggur
norðanvert við Brennifell og að vestari hluta Vatnaskóg-
ar. Bústaðurinn stendur á mjög skjólsælum og grónum
stað. Bústaðurinn skiptist m.a. í stofu, eldhús, snyrtingu
og þrjú herbergi. Auk þess er svefnloft. Allur húsbúnað-
ur fylgir. Inntökugjald fyrir hitaveitu hefur verið greitt.
Stutt er í golf, sundlaug og veiði. Verð 10,8 millj.
Nánari upplýsingar í síma 863 3885 eða á skrifstofu
Eignamiðlunar.
SÆLUREITUR VIÐ
VATNASKÓG - HEILSÁRSHÚS
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
VÍÐIMELUR 37 - OPIÐ HÚS
HRAUNBÆR 2 - OPIÐ HÚS
Afar falleg og mikið endurnýjuð 4ra
herbergja efri sérhæð í tvíbýlishúsi
á þessum eftirsótta stað. Íbúðin er
97,4 fm og skiptist með eftirfarandi
hætti: Samliggjandi skiptanlegar
stofur, tvö rúmgóð svefnherbergi.
Eldhús með nýlegri sprautulakkaðri
innréttingu. Baðherbergi er nýlega
endurnýjað og flísal., með glugga.
Eikarparket og dúkur á gólfum. Suðursvalir útaf borðstofu. Í kjallara
fylgir gott íbúðarherbergi með séreldhúsi og aðgangi að snyrtingu.
Gott geymsluris yfir íbúð. Fallegur suðurgarður. Stutt í alla þjónustu og
verslun, Göngufæri við Háskólann. Laus fljótlega. Verð 25,3 millj.
Ragnhildur sýnir íbúðina í dag, sunnudag, frá kl. 15-17.
Björt og skemmtileg fimm herbergja
123 fm íbúð á 1. hæð í mjög góðu
fjölbýlishúsi. Íbúðin skiptist í hol og
stóra stofu með flísalögðum suður-
svölum út af, eldhús með nýlegri
beykiinnréttingu, glugga og borð-
krók. Í svefnálmu er gott hjónaher-
bergi með austursvölum, tvö barna-
herbergi og baðherbergi flísalagt
með sturtuklefa, baðkari og glugga. Parket og flísar á gólfum. Í kjallara
fylgir 14 fm herbergi og sérgeymsla. Góð sameign. Húsið er klætt að ut-
an með "STENI". Stigagangur nýlega tekinn í gegn. Verð 23,5 millj.
Elísabet sýnir íbúðina í dag frá kl. 15-17.
Ingibjörg Þórðardóttir lögg. fasteignasali
Mikil eftirspurn er um þessar mundir eftir öllum stærðum og gerðum
atvinnuhúsnæðis til kaups á höfuðborgarsvæðinu. Höfum á skrá trausta
kaupendur með sterkar greiðslur í boði. Einnig höfum við á skrá fyrirtæki
sem leita að framtíðarhúsnæði til leigu.
Nánari upplýsingar veita Óskar R. Harðarson hdl.
og Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali.
EIGENDUR
ATVINNUHÚSNÆÐIS ATHUGIÐ
SUNNUFLÖT - G.BÆ - VIÐ HRAUNJAÐAR
OG LÆKINN
Nýtt í sölu gott 200,2 fermetra einbýli á einni hæð ásamt 63,7 fermetra bílskúr samtals 263,9
fermetrar á fræbærum stað á Sunnuflöt við lækinn og hraunjaðarinn. Tveir inngangar eru í
húsið, aðalinngangur og annar þvottahúss megin og er þaðan innangegnt í bílskúrinn. Komið
inn í rúmgott anddyri. Opið inn í forstofu og þaðan stórar stofur. Inn af stofu er notaleg arin-
stofa í baðstofustíl og inn af því er stórt svefnherbergi með stórum gluggum, þakgluggum og
rennihurð út í suður garðinn. Fallegt eldhús með nýrri innréttingu og tækjum. Inn af eldhúsi er
stórt þvottahús, búr milligangur og bílskúr. Í svefnherbergjaálmu eru fjögur svefnherbergi (eitt
notað sem fataherbergi) og baðherbergi. Á gólfi hússins er nýlegt parket. Góður fullbúinn bíl-
skúr með geymslu inn af. Lóðin sem er 1590 fm býður upp á mikla möguleika en um endalóð
er að ræða og er örstutt í Heiðmörkina. Verðtilboð
HAUSTIÐ 2004 var það hitamál
að Skjár einn skyldi fá réttinn á
dreifingu enska
boltans. Íbúar
bæja eins og Bol-
ungarvíkur,
Grundarfjarðar,
Ólafsvíkur, Fá-
skrúðsfjarðar og
margra fleiri voru
bálreiðir yfir því
að dreifikerfi
Skjás eins náði
ekki til þessara
landshluta, því
eins og flestir vita
er enski boltinn
mikil fíkn og
margir, þar með
talinn undirritaður, mundu láta
margt yfir sig ganga til að sjá
leiki uppáhaldsliðs síns. Þess
vegna söfnuðu íbúar Bolung-
arvíkur sjálfir fyrir sendi til að
taka á móti útsendingum Skjás
eins.
Vegna þessarar boltaástríðu
landsmanna finnst mér merkilegt,
mitt í allri gúrkut-
íðinni, hversu lítið
hefur heyrst í fjöl-
miðlum varðandi sein-
asta ferðalag enska
boltans yfir á nýja
áskriftarstöð Skjás
eins. Málið er hreint
út sagt ótrúlegt. Í
fyrsta lagi er það sér-
kennilegt að Síminn,
meðan hann var rík-
isfyrirtæki, keypti
hlut í Skjá einum,
sjónvarpsstöð. Nú í
sumar selur svo Sím-
inn Skjá einum, í
raun sjálfum sér, sýningarréttinn
á enska boltanum og Skjár einn
telur víst þann kost bestan að
dreifa honum á dreifikerfi Símans.
Nú bjóðast fótboltaáhugamönn-
um tveir möguleikar: Annars veg-
ar að horfa á stöðina á breiðband-
inu, hins vegar að fá sér
ADSL-sjónvarp hjá Símanum og
ná útsendingunni þannig.
Breiðbandið næst ekki víða utan
höfuðborgarsvæðisins og alls ekki
á hverju heimili innan þess. Þeim
sem ekki eru tengdir breiðbandinu
er nauðugur einn kostur að fá sér
ADSL-tengingu hjá Símanum. Í
hnotskurn: Til að ná sjónvarpsstöð
þarf fólk að skipta um netteng-
ingu. Menn eru í raun neyddir til
að breyta viðskiptum sínum á einu
sviði til að fá þjónustu á öðru
sviði. Þetta hlýtur að orka tvímæl-
is. Því hefur heyrst fleygt að í
raun þurfi ekki að skipta, en ekki
allir vita að greiðslur vegna
ADSL-þjónustu eru tvíþættar;
annars vegar fyrir tengingu og
hins vegar fyrir niðurhal. Þannig
þurfa þeir sem vilja ADSL-
sjónvarp að skipta um tengingu
yfir til Símans, þótt þeir greiði
kannski fyrir niðurhal til annars
fyrirtækis.
Þarna er Síminn kominn í ljóta
einokunarstöðu. Það má spyrja sig
í ljósi einkavæðingarinnar, að
fyrst við Íslendingar, sem vorum í
raun eigendur Símans, létum
svona vinnubrögð yfir okkur
ganga, hvernig verður þetta þá
þegar einkaaðilar reka fyrirtækið?
Ég er með ADSL hjá Og Voda-
fone og er blessunarlega tengdur
breiðbandinu. Þó er ég í miklum
vafa um hvort ég eigi að borga
fyrir þessa nýju stöð, svo mikið
finnst mér óréttlætið. Margir eru í
þeirri aðstöðu að vera hvorki
tengdir breiðbandinu né geta
tengst ADSL-sjónvarpi og sitja
því eftir með sárt ennið. Af hverju
var ekki hægt að dreifa enska
boltanum á annan hátt? Og fyrst
Bolungarvík, tæplega 1.000 manna
samfélag, gat gert eitthvað í mál-
inu er ótrúlegt að öll þjóðin láti
svona hegðun yfir sig ganga. Nú
er deildin byrjuð og þeir sem eru
á fjögurra vikna biðlista eftir
ADSL-sjónvarpi eða geta engan
veginn náð stöðinni missa af fjör-
inu og allt vegna yfirgangs fyr-
irtækis sem átti að heita í okkar
eigu. Löglegt en siðlaust.
Enska boltann fyrir alla
Steindór Grétar Jónsson
fjallar um enska boltann ’Til að ná sjónvarpsstöðþarf fólk að skipta um
nettengingu. ‘
Steindór Grétar Jónsson
Höfundur er sagnfræðinemi.
Sturla Kristjánsson: Bráð-
ger börn í búrum eða á af-
girtu svæði munu naumast
sýna getu sína í verki; þeim
er það fyrirmunað og þau
munu trúlega aldrei ná þeim
greindarþroska sem líf-
fræðileg hönnun þeirra gaf
fyrirheit um.
Kristján Guðmundsson: Því
miður eru umræddar reglur
nr. 122/2004 sundurtættar af
óskýru orðalagi og í sumum
tilvikum óskiljanlegar.
Sigurjón Bjarnason gerir
grein fyrir og metur stöðu og
áhrif þeirra opinberu stofn-
ana, sem heyra undir sam-
keppnislög, hvern vanda þær
eiga við að glíma og leitar
lausna á honum.
Þorsteinn H. Gunnarsson:
Nauðsynlegt er að ræða þessi
mál með heildaryfirsýn og
dýpka umræðuna og ná um
þessi málefni sátt og með
hagsmuni allra að leiðarljósi,
bæði núverandi bænda og
fyrrverandi.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar