Morgunblaðið - 14.08.2005, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 35
FRÉTTIR
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Vorum að fá í sölu mjög fallegt 245 fm einbýlishús á
tveimur hæðum við Arnarhraun í Hafnarfirði. Húsið
skiptist m.a. í tvær stofur, sólstofu, fimm herbergi,
baðherbergi og snyrtingu. Sérstaklega fallegur garður
til suðurs. Úr sólstofu er gengið út í garð á timburver-
önd. Húsið er mjög vel staðsett en þaðan er örstutt í
miðbæinn, skóla, íþróttahús, Lækinn o.fl. Húsið getur
verið laust fljótlega. Verð 39,5 millj.
Nánari upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir fast-
eignasali í síma 861 8511.
ARNARHRAUN - Í MIÐBÆ HF.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
BLIKANES - SJÁVARÚTSÝNI
Einstaklega glæsilegt 340 fm einbýlishús
við Blikanes með sjávarútsýni. Tvöfaldur
innbyggður bílskúr. Eignin er vönduð í alla
staði og skiptist m.a. í forstofu, snyrtingu,
hol, fimm herbergi (skv. teikningu), stofu,
borðstofu, eldhús og þvottahús á aðalhæð
sem er u.þ.b. 200 fm. Á neðri hæð (jarð-
hæð) er m.a. baðherbergi, geymsla, tvö
herbergi og fjölskyldurými með arni. Mögu-
leiki er á að hafa aukaíbúð á jarðhæð. Garðurinn er sérlega vel hirtur og gróinn með
næturlýsingu, stórum pöllum og heitum potti. 5003
LINDASMÁRI
Höfum fengið í einkasölu tvílyft endaraðhús á mjög vinsælum stað í Lindasmára í Kópa-
vogi. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottahús, stofu, herbergi og baðherbergi á
neðri hæðinni. Á efri hæðinni eru tvö herbergi, alrými (sjónvarpshol) og baðherbergi.
Falleg lóð út af stofu. Eignin er ekki fullfrágengin að innan. V. 39,5 m. 5179
HLÍÐARVEGUR - SUÐURHLÍÐAR KÓP.
Mjög falleg 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérverönd og sérinngangi í Suðurhlíðum
Kópavogs. Eignin skiptist m.a. í eldhús, bað, þrjú herbergi og stofu. Parket á gólfum.
Vönduð innrétting í eldhúsi. 5215
BERGSTAÐASTRÆTI
Stórglæsileg íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli á
frábærum stað í Þingholtunum. Íbúðin er
sérlega björt og vel umgengin. Íbúðin
skiptist í hol, stofu, herbergi, eldhús og
bað. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og
geymsla og sérgeymsla með hillum. Raf-
lagnir hafa verið endurnýjaðar. Baðher-
bergið var nýlega tekið í gegn. Nýtt þak var
sett á húsið sumarið 2004. Gluggar voru
málaðir 2004. V. 14,5 m. 5196
VESTURGATA - SÉRSTÖK EIGN
Vorum að fá sölu fallegt einbýli við Vesturgötuna. Húsið er mikið endurnýjað og vel við-
haldið og stendur á eignarlóð. Húsið er 187,1 fm. Á jarðhæð eru þrjú herbergi, hol,
baðherbergi, eldhús, sólstofa, vinnuherbergi og geymsla með þvottaaðstöðu. Í risi er
stofa og herbergi. V. 39 m. 5199
FORNISTEKKUR - EINLYFT EINBÝLI
Fallegt einlyft einbýlishús með tvöföldum
bílskúr við Fornastekk í Reykjavík. Eignin
skiptist í forstofu, innri forstofu, hol, snyrt-
ingu, forstofuherbergi, þvottahús, eldhús,
stofu, borðstofu, þrjú herbergi og baðher-
bergi. Garðurinn er einstaklega fallegur og
vel umgenginn. Húsið lítur mjög vel út að
utan. Arinn í stofu. 5202
SNORRABRAUT/AUÐARSTRÆTI
Falleg og mikið uppgerð 124,4 fm neðri
hæð í þríbýlishúsi sem stendur á milli
Snorrabrautar og Auðarstrætis Hæðin
skiptist í hol, 2 samliggjandi stofur, hjóna-
herb., baðherb., eldhús og tvö barnaher-
bergi. M.þ. sem endurnýjað hefur verið eru
gólfefni, eldhús, baðherbergi og rafmagn
að hluta, auk þess hefur jarn á þak verið
endurnýjað. V. 24,5 m. 5144
KLAPPARBERG
Vandað einbýlishús með fallegu útsýni til austurs og góðri hellulagðri verönd. Lóðin er
mjög falleg og með miklum gróðri, fjórum bílastæðum o.fl. Á 1. palli er innbyggður bíl-
skúr, forstofa, hol, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Innangengt er í bílskúrinn. Á mið-
palli er sjónvarpsherb. (getur verið svefnh.), hjónaherb., baðherb. og saunaklefi. Á efsta
palli eru stofurnar, eldhús og þvottaherbergi/búr. Húsið virðist vera í mjög góðu ástandi
að utan sem innan. Neðsti pallurinn er útgrafinn og er hann um 50-60 fm og skiptist í
tvær stórar geymslur. Í aðra þeirra er gengið úr bílskúr en í hina úr holinu. V. 39 m. 5177
ÁLFASKEIÐ - HF.
Mjög falleg 87,5 fm íbúð með sér inngangi
á 3 hæð í góðu ný máluðu fjölbýli. Eignin
skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, borð-
stofu, tvö herb., sjónavarpshol, baðherbergi
og geymslu. Stórar S-svalir. Gólfefni parket
og flísar. Stutt í nýjan skóla og leikskóla.
Verð 17 millj.
ÞRASTARÁS - HF. LAUS STRAX
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í
einkasölu mjög fallega 104,5 fermetra 4ra
herbergja endaíbúð á fyrstu hæð með sér
inngang á fábærum útsýnisstað í Áslandi í
Hafnarfirði. Eignin skiptist í forstofu, for-
stofuherbergi, gang, stofu, eldhús, tvö her-
bergi , baðherbergi, þvottahús og tvær
geymslur. Fallegar innréttingar og gólfefni.
Verð 21,9. millj.
GARÐATORG - M. BÍLSKÚR - GBÆ
Mjög góð 97,7 fm íbúð á 2. hæð ásamt
26,4 fermetra bílskúr samtals um 124,1 fm.
Góður sérinngangur, góð forstofa með
skáp, hol, gott herb. með skáp. Rúmgott
baðh., þvottavél höfð á baði (möguleiki á
þurrkara), sturtuklefi, flísar á gólfi. Sefnh.
með góðum skápum. Björt og rúmgóð stofa
með útgangi út á S-svalir. Björt borðstofa
(rúmgóð). Gott eldhús með fallegri innrétt-
ingu hvít og beyki. Gólfefni eru parket og
flísar. Góður bílskúr með geymslu innaf.
Þjónustuhús fyrir aldraða. Mjög góð stað-
setning, stutt í verslun og þjónustu.
SUÐURVANGUR - HF.
Glæsilegt einbýli á tveimur hæðum 232,9
fm ásamt 20,2 fm sólstofu og 32,4 fm
bílskúr samtals um 285,5 fm. Lýsing
eignar: Góð forstofa með skáp. Gott hol.
Rúmgott fallegt nýstandsett eldhús.
Björt stofa og rúmgóð borðstofa, út-
gangur út í garð frá stofu og sólskála.
Stórt herbergi (húsbónda). Gestasnyrting
ný standsett með sturtuklefa. Gott
þvottaherbergi með skápum, sérútgang í
bakgarð, geymsla inn af. Frá holi er
gengið upp stiga gluggi á stigapalli. Þar
er hol. Tvö mjög rúmgóð barnaherbergi með fallegum kvistgluggum. Úr öðru barnaherberg-
inu er gengið upp á risloft. Stórt fallegt baðherbergi með hornbaðkari sem í er nudd , sturt-
uklefi, fallegar innréttingar , flísar á gólfi og veggjum. Rúmgott svefnherbergi með fataher-
bergi innaf. Stórt fjölskyldurými með útgang út á svalir, fallegt útsýni. Gólfefni eru parket og
flísar. Glæsilegur garður með afgirtum pöllum og heitum potti .
EITT tilboð barst í skólamáltíðir,
þ.e. hádegisverð fyrir skólastofnanir
í Dalvíkurbyggð, á tímabilinu 2005 til
2009. Tilboðið er frá Sláturfélagi
Suðurlands og hljóðar upp á 317
krónur án virðisaukaskatts í hádeg-
ismáltíðir fyrir nemendur, kennara
og starfsfólk grunnskólanna og 294
krónur fyrir hádegismáltíðir leik-
skólabarna.
Óskað var eftir annarri útfærslu á
frávikstilboði sem SS sendi inn.
Lagðar voru fram tillögur að fram-
kvæmd verkefnisins miðað við aðra
útfærslu en fram kemur í frávikstil-
boðinu og einnig breytt verð.
Bæjarráð samþykkti að veita
veitustjóra, skólamálafulltrúa og
bæjarstjóra umboð til að ganga frá
samningi við Sláturfélag Suðurlands
um kaup á skólamáltíðum, sam-
kvæmt þeim gögnum og upplýsing-
um sem fram komu á fundinum.
Dalvíkurbyggð
Eitt tilboð
í skóla-
máltíðir
♦♦♦
DREGIÐ hefur verið úr þátttöku-
seðlum sem bárust í sumarleik
Sparisjóðsins. Mikil þátttaka var í
leiknum en rúmlega átta þúsund
manns tóku þátt. Sveinn H. Gíslason
fékk aðalvinninginn sem er ferð til
Portúgal fyrir tvo með Plúsferðum.
Aðrir heppnir þátttakendur sem
dregnir voru út fengu gjaldeyri frá
Sparisjóðnum.
Dregið úr
sumarleik
Sparisjóðsins
♦♦♦
ÍSLENSKUR karlmaður um fer-
tugt sem var ráðinn til að leika auka-
hlutverk í kvikmynd Clints East-
woods sem tekin er að hluta til í
Sandvík á Reykjanesi var fluttur á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir
slys á tökustað sl. föstudag. Tildrög-
in voru þau að hann stökk úr land-
pramma sem notaður er við tökurn-
ar og lenti harkalega. Var í upphafi
tilkynnt um lærbrot en síðar fékkst
staðfest að hann slapp við svo alvar-
leg meiðsli.
Meiddist
í mynd
Eastwoods
♦♦♦
TVEIR menn um tvítugt voru hand-
teknir um sl. föstudag eftir að þeir
stálu greiðslukorti og fatnaði úr bún-
ingsklefa í íþróttahúsi í Breiðholti á
meðan æfingar stóðu yfir í húsinu.
Þeir náðu að kaupa eitthvað af sígar-
ettum og áfengi áður en lögregla
hafði hendur í hári þeirra. Mennirnir
játuðu brot sitt og var sleppt að lokn-
um yfirheyrslum. Þeir hafa báðir
komið við sögu lögreglu áður.
Stálu úr
búnings-
klefum
Fréttir á SMSFréttasíminn904 1100