Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 36
36 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bæjarlind 12 Kópavogi
Til leigu ca 40 fm
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. www.valholl.is
-Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Eigum laust nú þegar ca 40 fm rými á 1 hæð í þessu vandaða húsi.
Húsnæðið hentar vel undir hverslags skrifstofu og þjónustustarf-
semi. Á sömu hæð er í dag starfsemi tengd læknum og heilsu. Mjög
góð staðsetning, góð bílastæði og gott auglýsingagildi.
Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson,
s. 588 4477 eða 822 8242.
Bæjargil Garðabæ - Einbýli
Vandað ca 193 fm einbýli á tveimur hæð-
um staðsett á rólegum stað í Bæjargili. Á
neðri hæð eru stofur, eldhús með nýlegri
fallegri innréttingu, gestasnyrting og
þvottahús. Á efri hæð eru fjögur svefnher-
bergi, gott sjónvarpshol og baðherbergi.
Geymsluris er yfir húsinu. Innbyggður bíl-
skúr. Stór og vel skipulögð lóð. Vandað
hús á góðum stað. Verð 44 millj. 6426
Álfhólsvegur Kópavogi Parhús
Nýlegt parhús með aukaíbúð. Frábær
staðsetning í grónu hverfi. Þrjú svefnher-
bergi, stór stofa, tvennar svalir og bílskúr.
Tveggja herbergja aukaíbúð með útleigu-
möguleika. Verð 39,0 millj. 6900
Jörfalind Kópavogi Raðhús
Vorum að fá í einkasölu glæsilegt raðhús á
tveimur hæðum á þessum vinsæla stað.
Samtals er húsið 182,2 fm, þar af bílskúr
26,4 fm. Vandaðar innréttingar. Verandir
báðum megin með góðum sólpöllum. Þrjú
góð svefnherbergi, baðherbergi uppi og
niðri. Falleg eign á toppstað. Möguleiki er
á að taka 3ja herbergja íbúð í Grafarvogi
eða Mosfellsbæ uppí. nr 6780
Skaftahlíð 10 - 4ra herb.
Glæsileg 110 fm 4ja herbergja íbúð. Tvö
góð svefnherbergi, rúmgóð stofa og
borðstofa, fallegt baðherbergi. Vönduð og
falleg gólfefni. Auðvelt er að bæta við auka
herbergi. Björt og glæsileg eign á frábær-
um stað. LAUS STRAX. Verð 20,5 millj.
6743
Álftamýri - 4ra herb.
Sérlega falleg 4ra herbergja ca 100 fm
íbúð, ásamt bílskúr, á 2. hæð í góðu fjöl-
býli, ákaflega vel staðsett miðsvæðis í
Reykjavík. Nýlegt eikarparket á allri íbúð-
inni. Þrjú svefnherbergi. Endurnýjuð eld-
húsinnrétting. Stór og björt stofa, tvennar
svalir. Útsýni. Verð 21,9 millj. 6949
Sveitasetur Úthlíð - Sumarhús
Stórglæsilegt 63 fm sumarhús með stórri
verönd. Húsið skiptist í 3-4 svefnherbergi
auk svefnlofts, stóra stofu og gott baðher-
bergi. Góð hljóðeinangrun í veggjum. Raf-
magn og hitaveita. Heitur pottur. Bústað-
urinn er mjög vel staðsettur og frá honum
er stórfenglegt útsýni. Golfvöllur og sund-
laug á staðnum. Tækifæri til að eignast
glæsilegt heilsárshús á frábærum stað.
Verð 14,8 millj. 7008
Sumarhús Öndverðarnesi
Vorum að fá í sölu þennan fallega bústað
sem stendur á gróðursælum stað í landi
Öndverðarness. Bústaðurinn er A-laga
skráður 40,8 fm, en svo er einnig gott
svefnloft. Stutt í vinsælan golfvöll, sund og
þjónustumiðstöð.
Garðsstaðir - 112 Rvk. - Par-
hús. Vorum að fá í sölu þetta gullfal-
lega parhús á þessum frábæra stað í
Grafarvoginum. Eignin er í lokaðri botn-
langa-götu og er öll hin vandaðasta
með óvenju stórum garði. Bílastæði allt
hellulagt, hiti í stétt. Góðar innréttingar
og hátt til lofts. húsið er allt á einni hæð.
Þrjú góð svefnherbergi og stór stofa.
Verð 38,9 millj. 6808
Kársnesbraut - 200 Kópavog-
ur, Mjög Falllegt ca. 237 fm.einbýli með
glæsilegum stofum með arni, og sólstofu
með kerlaug.Fjögur svefnherbergi.Gróinn
fallegur garðu.Innbyggður bílskúr.Einstak-
lega smekkleg eign vestast í Kópavogin-
um.
Dynskógar Reykjavík - Einbýli
Tveggja hæða einbýli í fallegri götu. Stórar
stofur og góð herbergi. Sjónvarpshol, tvö
baðherbergi. Skjólsæl verönd og fallegur
gróinn garður. Stór bílskúr og möguleiki á
aukaíbúð. Falleg eign í vinsælli götu. Verð
53 millj. 6754
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali.
Kringlan 7 • 103 Reykjavík • Hús verslunarinnar • Sími 534 4400
HB FASTEIGNIR
Er með á skrá stórar og góðar byggingarlóðir á Reykjavíkursvæðinu fyrir
öflug byggingarfélög og/eða fjárfesta.
Til sölu mjög stórt og öflugt hótel sem er í útleigu til lengri tíma. Hér er á
ferðinni frábært tækifæri fyrir öfluga fjárfesta.
Til sölu glæsilegur söluturn sem rekinn er í leiguhúsnæði. Grillmatur,
íssala, myndbandaleiga ásamt öllu því sem tilheyrir góðum rekstri fylgir.
Fyrirtækið er rekið í leiguhúsnæði og er um að ræða traustan og góðan
húsaleigusamning.
Er með í sölumeðferð nokkur stór og góð fyrirtæki til traustra aðila.
Er með í sölumeðferð ca 3 ha lóð í Reykjavík með byggingarrétti. Þessi
lóð er á framtíðarskipulagi um blandaða byggð, þ.e.a.s. íbúðar- og
iðnaðarhúsnæði. Þarna er á ferðinni góð fjárfesting fyrir aðila með
langtímafjárfestingarsjónarmið að leiðarljósi.
Eigendur atvinnuhúsnæðis athugið:
Við höfum náð góðum árangri í sölu á atvinnuhúsnæðum í gegnum
tíðina. Í dag höfum við á skrá fjöldan allan af traustum kaupendum
sem vantar allar stærðir og gerðir af atvinnuhúsnæði
á höfuðborgarsvæðinu.
Kaupverð er á bilinu 10 millj.- 3 þúsund millj.
Margir kaupendanna leita að eignum sem eru í traustri langtímaleigu.
Greiðslufyrirkomulag er yfirleitt staðgreiðsla.
HB-fasteignir, þar sem fagmennska og reynsla skiptir öllu máli.
Þið nefnið það og við finnum það.
Sýnishorn
úr söluskrá:
Pétur Kristinsson.
Löggiltur fasteigna-,
fyrirtækja- og skipasali.
Löggiltur verðbréfamiðlari
Kristinn R. Kjartansson.
Sölustjóri, atvinnu-og
fyrirtækjasviði.
GSM 820 0762
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali
Þórhildur Sandholt
lögfr. og lögg. fastsali.
Gsm 899 9545
Gísli Sigurbjörnsson
sölumaður
FAX 568 3231
Til sölu öll húseignin, sem er tilvalin
fyrir samrýmda fjölskyldu. Húsið
skiptist í mjög stórt sameiginlegt
anddyri og 2 íbúðir á efri hæðinni.
Hvor íbúð skiptist í skála, stóra stofu
og borðstofu, eldhús með búri inn af,
gestasnyrtingu, 3 svefnherbergi og
baðherbergi. Í kjallara eru 2 þvotta-
herbergi, 2 litlar stúdíóíbúðir og stórt
gluggalaust rými, sem býður upp á
ýmsa möguleika. Vel útbúinn tvöfald-
ur bílskúr fylgir húseigninni. Húsið
getur losnað fljótlega.
SELJAHVERFI - FJÖLSKYLDUHÚS
HAFNARSTJÓRI, Hörður Blöndal,
hefur ítrekað óskir Hafnasamlags
Norðurlands um að við endur-
skoðun aðalskipulags Akureyrar
verði hafnarsvæðið í Krossanesi
stækkað til suðausturs inn í Jötun-
heimavík.
Meirihluti umhverfisráðs sem
fjallaði um málið í vikunni, fellst á
að í endurskoðun aðalskipulags
verði gert ráð fyrir stækkun fyll-
ingar Krossaneshafnar inn í Jötun-
heimavík og að „ósnert strand-
lengja“ skerðist sem því nemur.
Tveir fulltrúar ráðsins, þeir Jón
Ingi Cæsarsson og Haraldur Helga-
son, bókuðu á fundinum að þeir geti
ekki fallist á beiðni um
stækkun fyllingar í Jötunheima-
vík. „Þetta er hluti af strandlengju
sem ákveðið var að láta ósnerta í
aðalskipulagi. Hafnarsamlag hefur
þegar látið framkvæma uppfylling-
ar, sumar í leyfisleysi, sem ekki
reyndust notaðar að neinu marki
t.d. norðan flotkvíar. Að okkar mati
á ekki að fylla upp með þessum
hætti nema ótvíræð þörf sé fyrir
slíkt. Þegar hefur verið lagt til að
skoða þarfir hafnarinnar í heild
sinni og við teljum að svona ákvörð-
un eigi að bíða niðurstöðu úr því
verkefni.“
Krossaneshöfn
fær meira rými
Rangt var farið með föðurnafn
Bergs Þorgeirssonar, forstöðumanns
Snorrastofu, í grein um afmælishátíð
í Reykholtskirkju vegna aldarafmæl-
is Þorgeirs Sveinbjarnarsonar ljóð-
skálds í Morgunblaðinu í gær. Berg-
ur mun annast setningu hátíðarinnar
í dag en þess má geta að Þorgeir
Sveinbjarnarson var afi Bergs.
LEIÐRÉTT
Rangt föðurnafn
Fréttir í tölvupósti
ALLS bárust 75 tillögur um nafn á
gamla Lækjarskóla í Hafnarfirði í
samkeppni sem efnt var til um nafn
á húsnæðið, þar sem Námsflokkar
Hafnarfjarðar eru nú til húsa.
Fræðsluráð Hafnarfjarðar valdi
úr fjórar tillögur sem settar verða í
kosningu á heimasíðu Hafnar-
fjarðar. Nöfnin sem um ræðir eru:
Gamli barnaskólinn, Lækjarsetrið,
Menntasetrið við lækinn og Skóla-
gerðið. „Þetta húsnæði var byggt
yfir barnaskóla Hafnarfjarðar og
bar það nafn þar til því var breytt í
Lækjarskóli árið 1961 þegar Öldut-
únsskóli tók til starfa. Þegar skól-
inn flutti í nýtt húsnæði á Hörðu-
völlum fylgdi nafnið Lækjarskóli
með og ber nýi skólinn það nafn
núna. Gamla Lækjarskólahúsið hef-
ur nú fengið nýtt hlutverk. Ákveðið
hefur verið að þar verði starfsemi
tengd menntun og menningu,“ seg-
ir á vefsíðu Hafnarfjarðarbæjar.
Ákveðið var að leita að nýju nafni á
húsið sem annaðhvort tekur mið af
sögulegri nýtingu þess eða framtíð-
arhlutverki. Kosning fer fram á
heimasíðu Hafnarfjarðar og stend-
ur til hádegis 22. ágúst.
75 tillögur um
nýtt nafn á skóla
ELDUR kviknaði í ruslatunnu sem
stóð inni í bílskúr í húsi í Borgar-
firði um kl. 23 á föstudagskvöld.
Bílskúrinn er samfastur við íbúðar-
hús, og mátti ekki miklu muna að
mikil hætta skapaðist, að sögn lög-
reglu.
Tvær 16 ára stúlkur voru í hús-
inu, en þær fengu aðstoð nágranna
við að hringja í Neyðarlínuna. Ná-
granni hljóp einnig til með slökkvi-
tæki og náði að slökkva eldinn með
því. Að sögn lögreglu bendir allt til
þess að stúlkurnar hafi tæmt úr
öskubakka í ruslatunnuna á meðan
enn var glóð í öskunni, og hafi eld-
urinn kviknað út frá því. Slökkvilið
kom á vettvang fljótlega eftir að
nágranninn réð niðurlögum elds-
ins, og þurfti að reykræsta bílskúr-
inn eftir brunann.
Nágranninn
slökkti eldinn