Morgunblaðið - 14.08.2005, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 37
AUÐLESIÐ EFNI
ANDRI Teitsson þurfti að hætta hjá
KEA. Hann var framkvæmda-stjóri.
Deilt er um hvort hann hafi hætt
vegna þess að hann ætlaði í
fæðingar-orlof eða vegna
trúnaðar-brests.
Stjórn KEA þótti óheppilegt að
Andri færi í 9 mánaða orlof. Andri
vildi það frekar en að taka eina og
eina viku. Hann átti rétt á löngu
orlofi því hann og konan hans eiga
von á tvíburum. Þau eiga 4 börn
fyrir.
Ekki orlof fyrir stjórnendur
Benedikt Sigurðarson er formaður
stjórnarinnar. Hann sagði fyrr í
vikunni að lög um foreldra-orlof ættu
ekki að gilda um stjórnendur á
háum launum. Orð hans vöktu mikil
viðbrögð.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir er líka í
stjórn. Hún er ekki sammála og
segir að lögin eigi að gilda um
stjórnendur alveg eins og aðra
starfsmenn.
Segist rang-túlkaður
Femínista-félag Íslands og Félag
ábyrgra feðra eru meðal þeirra sem
hafa mótmælt ummælum
Benedikts.
Benedikt segist sjálfur hafa verið
rang-túlkaður. Hann hafi bara verið
að benda á að í fámennum
fyrir-tækjum geti verið erfitt að
skipu-leggja fæðingar-orlof. Andri
hafi engu að síður átt rétt á því.
Andri Teitsson þurfti að
hætta hjá KEA
Morgunblaðið/Kristján
Andri Teitsson
Valsarar gera það gott
Völsurum gengur vel í UEFA-
bikar-keppninni í kvenna-bolt-
anum. Þær unnu bæði finnsku
meistarana og norsku meist-
arana. Þær komast því áfram í
16-liða úrslit sem verða leikin í
september.
Gler-perla við Kára-hnjúka
Stór perla úr gleri fannst í forn-
leifa-uppgreftri á Hálsi við Kára-
hnjúka. Hún er talin eiga upp-
runa sinn í Mið-Austurlöndum. Í
uppgreftrinum hafa fundist rústir
af þremur húsum frá 10. og 11.
öld.
Stór mótmæli í Tel Aviv
Stór mótmæli voru í höfuð-borg
Ísraels, Tel Aviv, sl. fimmtudag.
Talið er að um 200 þúsund
manns hafi mótmælt lokun land-
nema-byggða gyðinga á Gaza.
8.500 landtöku-menn búa á
Gaza og þeir þurfa að fara frá
heimilum sínum í næstu viku.
Nýtt afsláttar-kort hjá Strætó
Farþegar Strætó geta bráðum
keypt nýtt afsláttar-kort. Það
heitir skóla-kort og er í boði yfir
veturinn. Kortið gildir frá 15.
ágúst–1. júní og kostar 25.000
krónur. Þetta getur sparað þeim
peninga sem nota strætó mikið.
SKY ekki fyrir Íslendinga
SKY-sjónvarps-stöðvarnar ætla
að loka á íslenska áskrifendur.
Þær mega ekki selja áskrift hér á
landi. Engu að síður eru 3–5 þús-
und íslensk heimili með SKY.
Stutt
MÓTMÆLENDUR sem voru í tjaldbúðum við
Kára-hnjúka eru farnir af Austur-landi. Þeir skiptu sér í
tvo hópa og annar ók suður-leiðina en hinn
norður-leiðina. Lögreglan, óeirða-lögreglan og
sérsveitar-menn eltu annan hópinn. Þórir Oddsson er
vara-ríkis-lögreglu-stjóri. Hann segir að lögreglan hafi
ekki verið með vopn. Hann segir að mótmælendurnir
hafi óhlýðnast lögreglu þegar þeir mótmæltu á
Reyðar-firði. Þeir hafi brotið lög. Þess vegna hafi þurft
að fylgja þeim eftir.
Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttar-lögmaður efast
um að lögreglan megi gera þetta. Hann segir að þetta
sé ákveðin frelsis-svipting.
Þórir er ekki sammála. Hann segir að lögreglan
verði að fylgjast með fólki sem hefur lýst því yfir að
það ætli að fremja brot.
21 útlendinganna verður væntan-lega vísað úr landi.
Útlendinga-stofnun hefur ákveðið það. Útlendingarnir
hafa 7 daga til að mótmæla því.
Morgunblaðið/Halla Gunnarsdóttir
Erlendu mótmælendurnir eru á Íslandi til að mótmæla
Kárahnjúka-virkjun og álverinu í Reyðar-firði.
Lögreglan elti mótmælendur
NÝ áfengis-lög taka gildi í Englandi
24. nóvember nk. Þá mega eigendur
kráa hafa þær opnar allan
sólar-hringinn. Dómarar í Bretlandi
hafa gagnrýnt það. Þeir segja að
þetta auki ofbeldis-glæpi.
Ríkis-stjórnin segir hins vegar að
lengri afgreiðslu-tími minnki hættu á
ofbeldi. Strangara eftir-lit verði haft
með öldur-húsum.
Á Íslandi var afgreiðslu-tími
lengdur fyrir nokkrum árum. Karl
Steinar Valsson er
aðstoðar-yfirlögreglu-þjónn. Hann
segir að ofbeldis-brotum hafi
fækkað eftir breytinguna. Hann
hefur kynnt Bretum „íslensku
leiðina“.
Bretar
deila um
áfengis-lög
REYKJAR-MENGUN hefur verið yfir
Malasíu undan-farið. Mengunin
hefur mest verið á þremur stöðum,
m.a. í höfuð-borginni Kuala Lumpur.
Ástæðan er skógar-eldar á eyjunni
Súmötru í Indónesíu. Yfir-völd hafa
lýst yfir hættu-ástandi á tveimur
stöðum á vestur-ströndinni.
Mengunar-stig fór yfir 500. Það er
hættu-legt ef það fer yfir 300.
Skólum, verslunum og stofnunum
hefur verið lokað. Fólki er ráðlagt að
vera innan-dyra. Annars á það að
nota öndunar-grímur. Margir hafa átt
erfitt með að anda og sviðið í
augun.
Reykjar-mengun í Malasíu
Reuters
Skólabörn hafa þurft að nota öndunar-grímur til að verjast menguninni.
R-LISTINN býður líklega ekki fram í
næstu borgarstjórnar-kosningum.
Mikið hefur verið fundað um listann
undan-farið. Samkomulag hefur ekki
náðst.
R-listinn saman-stendur af
Samfylkingunni, Framsókn og Vinstri
grænum. Samfylkingin vildi að það
yrði opið próf-kjör þannig að allir gætu
reynt að komast á lista.
Vinstri-grænir og Framsókn voru
með hugmyndir um að skipta
sætunum á lista milli flokkanna.
Nú í vikunni ætla félögin að funda
með sínum flokks-mönnum í
Reykjavík. Að því loknu verður
endanleg ákvörðun tekin.
Enginn R-listi?
Morgunblaðið/Sverrir
Fulltrúar Vinstri grænna í viðræðu-nefnd um R-listann.