Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 38
38 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj,
s. 691 0919
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÓLAFÍA ÁRNADÓTTIR,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut föstu-
daginn 29. júlí.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þökkum auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu.
Bára Hákonardóttir,
Sjöfn Hákonardóttir, Jón Sigurjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐFINNA ÁRNADÓTTIR,
Faxatúni 27,
210 Garðabæ,
lést á St. Jósepsspítala í Hafnarfirði föstudaginn
12. ágúst sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Attli Örn Jensen,
Árni Valur Atlason, Eydís Lúðvíksdóttir,
Markús Þór Atlason, Katrín Yngvadóttir,
Jens Pétur Atlason, Kristín Sigurbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kærleiksboðskapurinnhefur alltaf veriðgrundvallareinkennikristinnar trúar, aðrétta út höndina til
þeirra, sem eru í neyð. Auðvitað
er þar byggt á orðum og gjörðum
Jesú sjálfs, enda bar þá hluti oft á
góma og sjálfur fór hann um og
studdi hina veiku og minni máttar
í hvívetna.
Þessi hugsun var ekki ný þá.
Egyptar höfðu einhvers konar
læknisþjónustu í hofum sínum og
Forn-Grikkir áttu sinn lækninga-
guð, Asklepios, sem Rómverjar
tóku yfir til sín og reistu bústað á
eyju í fljótinu Tíber í Róm, árið
291 f.Kr. Einnig koma Persar og
Indverjar að þessari sögu.
En fylgjendur hins nýja siðar
gengu lengra, litu til allra sem
undirokaðir voru og hjálparþurfi
og buðu þeim aðstoð. Fyrsta
Níkeuþingið, sem haldið í Litlu-
Asíu árið 325, hvatti til enn frekari
dáða á þessum vettvangi og fyrir-
skipaði að sjúkrahús ætti að reisa
í öllum borgum, þar sem dóm-
kirkjur væri að finna.
Þegar kristnin var svo gerð að
opinberri trú Rómaveldis, árið
380, varð algjör bylting í þessum
efnum, og eftir að klaustur voru
sett á laggirnar, tóku munkar og
nunnur við rekstri þessara líknar-
stofnana. Á 16. og 17. öld fer hinn
trúarlegi þáttur að víkja og á 18.
öld kemur nútímasjúkrahúsið
fram á sjónarsviðið.
Í eina tíð voru mörg klaustur á
Íslandi, a.m.k. tvö þeirra nunnu-
setur en hin öll gerð fyrir munk-
lífi. Sagt er, að Ásólfur alskik hafi
reynt að stofna klaustur að írsk-
um hætti á Innra-Hólmi á Akra-
nesi á landnámsöld, en ekki er
ljóst hvernig það fór. Hins vegar
mun engilsaxneskur trúboðs-
biskup, sem dvaldist hér á landi
1030–1049, hafa stofnsett klaustur
á Bæ í Borgarfirði, sem oft er talið
það fyrsta á Íslandi. Annað var
stofnað árið 1112 á Þingeyrum í
Húnavatnsþingi, sennilega form-
lega árið 1133. Og það næsta að
Þverá í Eyjafirði, árið 1155. Öll
þrjú voru af reglu Benedikts frá
Núrsía. Hið fjórða reis svo árið
1168 í Þykkvabæ í Álftaveri, hið
fimmta um svipað leyti í Hítardal,
og það sjötta árið 1172 í Flatey á
Breiðafirði. Öll voru þau af Ágúst-
ínusarreglu. Hið síðastnefnda var
árið 1184 flutt að Helgafelli á
Snæfellsnesi, og virðist um miðja
15. öld hafa fylgt reglu heilags
Viktors. Allt voru þetta munkaset-
ur. En árið 1186 lítur fyrsta
nunnuklaustrið dagsins ljós, á
Kirkjubæ á Síðu, af Benedikts-
reglu. Árið 1197 var stofnað
munkaklaustur á Keldum á Rang-
árvöllum, en það lagðist fljótlega
af. Um 1200 er talið að hafi verið
stofnað munkaklaustur af Ágúst-
ínusarreglu í Saurbæ í Eyjafirði,
og enn eitt í Viðey 1225–1226, af
sömu reglu. Og árið 1295 er stofn-
sett nunnuklaustur að Reynistað í
Skagafirði, af Benediktsreglu. Það
tólfta var sett á laggirnar á
Möðruvöllum í Hörgárdal, 1296,
munkaklaustur af reglu Ágúst-
ínusar. Og hið þrettánda og jafn-
framt yngsta var klaustrið á
Skriðu í Fljótsdal. Það er talið
hafa verið af reglu Ágústínusar,
reist árið 1493 og stóð til 1554. Við
þetta er að bæta, að munnmæli
geta einnig Hraunþúfuklausturs í
Vesturdal í Skagafirði, en erfitt að
vita hvort eitthvað fast er þar á
bak við.
Fornleifarannsókn á eina
klaustrinu sem verið hefur á Aust-
urlandi hófst sumarið 2002 og
mun ljúka árið 2007. Verður þetta
í fyrsta sinn að heilleg mynd fæst
af slíkri byggingu hér úr kaþólskri
tíð og ýmislegt merkilegt hefur
þegar komið í ljós. Eða eins og
Steinunn Kristjánsdóttir, forn-
leifafræðingur og verkefnisstjóri
rannsóknarinnar, segir í bókinni
„Á sprekamó“ (2005):
Uppgröftur á rústum Skriðuklausturs
hefur leitt í ljós að byggingu þess svip-
ar mjög til annarra klausturbygginga í
Evrópu, enda virðist hlutverk klaustra
á Íslandi hafa verið sambærilegt því
sem tíðkaðist annars staðar […] Þó líta
megi einnig á evrópsk miðaldaklaustur
sem alþjóðlegar miðstöðvar mennta og
menningar, sinntu þau ekki síður
margháttaðri samfélagsþjónustu sam-
hliða andlegum málefnum. Þau tóku á
móti sjúkum, fátækum og jafnvel kon-
um í barnsnauð, og átti það jafnt við
munka- og nunnuklaustur […]
Skriðuklaustur samanstóð […] af
þyrpingu vistarvera, kapellu og veg-
legri kirkju sem byggð voru í kringum
klausturgarð […]
Úr klausturkirkjugarðinum á Skriðu
hafa verið grafnar upp beinagrindur
fyrirbura og ungbarna, jafnt sem full-
orðinna einstaklinga sem líklega leit-
uðu sér lækninga og líknar í klaustr-
inu, létust þar og hlutu sitt hinsta leg í
grafreit þess. Af þeim beinagrindum
sem þegar hafa verið grafnar fram má
ráða að skjólstæðingar Skriðuklaust-
urs áttu við krankleika af ýmsum toga
að stríða. Einnig er ljóst að þangað
leituðu þeir sér skjóls sem skáru sig úr
samfélaginu með einum eða öðrum
hætti, þó ekki hafi endilega verið um
sjúkdóma að ræða í nútímaskilningi
[...]
Uppgröftur á rústum Skriðuklausturs
hefur staðfest að það hafði fjölþættu
hlutverki að gegna, þar sem hæst bar
líkn sjúkra og fátækra samhliða bæna-
haldi auk ritunar skjala og bóka, líkt
og önnur samtíða klaustur gegndu í
Evrópu.
Ég mun fjalla nánar um Skriðu-
klaustur í næsta pistli mínum, en
ætla að endingu að gera hér orð
Stefáns Friðbjarnarsonar að mín-
um, en 6. september árið 2001 rit-
aði hann eftirfarandi, í hugvekju
sem nefndist „Einsetufólk og
klaustur“:
Maður er manns gaman. Félagsskap
má flokka til frumþarfa manneskj-
unnar. Mannleg samskipti í leik og
starfi gefa lífinu lit og angan. Eigi að
síður er það hollt hverjum og einum að
vera stöku sinnum einn með sjálfum
sér og Guði sínum í þögn, leit og íhug-
un. Leit og íhugun vóru aðal einsetu-
fólksins. Í klaustrunum stilltu fámenn-
ir hópar saman strengi í bæn og
lofgjörð. Þau vóru trúar- og menning-
arlind, sem samfélagið naut góðs af í
bráð og lengd. Lilja Eysteins munks,
sem allir vildu kveðið hafa, er dæmi
um klausturlist. Íslendingabók Ara
fróða, sem var prestur, og Landnáma-
bók Styrmis Kárasonar, príors í Við-
eyjarklaustri, dæmi um klaustur- og
þjóðmenningu. Við stöndum í mikilli
þakkarskuld við löngu liðna klaustur-
búa.
Skjólið
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
„Komið til mín, allir þér
sem erfiði hafið og þungar
byrðar, og ég mun veita
yður hvíld,“ sagði meist-
arinn forðum. Sigurður
Ægisson lítur í pistli dags-
ins á klaustur á Íslandi
fyrrum og eina af merk-
ustu niðurstöðum forn-
leifarannsóknarinnar að
Skriðu í Fljótsdal.
HUGVEKJA
Enn einn ungur
maður er fallinn í val-
inn og Hjörtur fór án
þess að kveðja, en ég
skil það og hver svo
sem ástæðan var þá
tek ég hana fullgilda.
Hvort sem brottförin var skyndi-
ákvörðun eða slys, þá er hann líklega
HJÖRTUR
SVEINSSON
✝ Hjörtur Sveins-son fæddist 21.
september 1981.
Hann lést 4. ágúst
síðastliðinn og var
jarðsunginn frá
Kópavogskirkju 12.
ágúst.
feginn að losna undan
okinu. Bubbi söng:
„Hvítir hestar drógu
vagninn“ til að lýsa
þessu ástandi. Ég veit
ekki hvort hestarnir
þínir voru endilega
hvítir eða hvort það
voru yfirhöfuð hestar
sem drógu vagninn, en
því miður var kannski
fyrirsjáanlegt hvert
förinni var heitið. Ég
veit ekki hvort einhver
mundi fella þann dóm
að þú hafir ekki verið
tilbúinn fyrir þennan heim, ég held
hins vegar að það hafi verið heim-
urinn sem ekki var tilbúinn fyrir þig.
Það er með eftirsjá sem ég kveð þig
Hjörtur því í hjartanu varst þú sann-
ur stríðsmaður og atorkan og kappið
sem þú lagðir í þann félagsskap sem
var vettvangur kynna okkar er eft-
irminnilegt. Það er mín von að þú
finnir þinn frið og að minningin um
þig verði hvatning til okkar sem eftir
erum til að starfa í þágu þeirra sem
enn sitja í vagninum.
Hjörtur, ég kveð þig með þessari
bæn: Guð ég fel mig þér á vald, að þú
getir mótað mig og gert við mig eins
og þér þóknast. Leystu mig úr fjötr-
um sjálfshyggjunnar svo ég megni
betur að gera vilja þinn. Taktu frá
mér erfiðleikana svo sigurinn yfir
þeim geti orðið vitnisburður til
þeirra sem ég mun hjálpa, um mátt
þinn, kærleika og lífsvegu. Megi ég
ávallt lúta vilja þínum.
Rúnar Jensen,
Bandaríkjunum.
Sofðu rótt, sofðu rótt,
nú er svartasta nótt.
Sjáðu sóleyjarvönd
geymdu hann sofandi í hönd.
Þú munt vakna með sól
Guð mun vitja um þitt ból.
(Jón Sigurðsson.)
Með virðingu og þökk,
Soffía Georgsdóttir.
HLYNUR
SIG-
TRYGGS-
SON
✝ Hlynur Sigtryggsson fæddistá Núpi í Dýrafirði 5. nóvember
1921. Hann lést á hjúkrunarheim-
ilinu Eir í Reykjavík 14. júlí síðast-
liðinn og var jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík 22. júlí.