Morgunblaðið - 14.08.2005, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 39
MINNINGAR
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
BALDVINS JÓHANNESSONAR
símvirkja,
Skúlagötu 40b,
Reykjavík.
Ragnheiður Indriðadóttir,
Ragna Birna Baldvinsdóttir,
Gunnar I. Baldvinsson, Guðrún S. Jakobsdóttir,
Guðrún Erna Baldvinsdóttir, Bjarni Bessason
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HILMAR ÞÓR HELGASON,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði föstudaginn 5. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn
15. ágúst kl. 15.00.
Kristín Herdís Hilmarsdóttir, Þorkell Ericson,
Elín Hilmarsdóttir, Mímir Völundarson,
barnabörn og langafabarn.
Elsku hjartans maðurinn minn, bróðir, pabbi
okkar, tengdapabbi og afi,
HANNES ÞÓRÐUR HAFSTEIN,
lést sunnudaginn 7. ágúst.
Útför hans verður gerð frá Dómkirkjunni mánu-
daginn 15. ágúst kl. 13.00.
Blóm afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Krabbameinsfélagið.
Ragnheiður Hafstein,
Sigurður Hafstein,
Ásgerður Katrín Hafstein og Carl Heggli,
Ásta Ragnheiður Hafstein og Jón Kristinn Guðmundsson,
Valdimar Tryggvi Hafstein og Birna Anna Björnsdóttir,
Soffía Lára Hafstein og Árni Þór Árnason,
Hannes Ingi, Valdimar Kristinn, Margaux,
Christina, Alexandra, Eva Örk og Tara Sól.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR KONRÁÐSDÓTTUR,
Hrafnistu í Reykjavík.
Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki hjúkrunar-
deilda Hrafnistu fyrir góða og hlýlega umönnun
hennar.
Hlöðver Kristinsson, Margrét Eyþórsdóttir,
Elísabet Kristinsdóttir, Haraldur Henrysson,
Kristín H. Kristinsdóttir, Victor K. Björnsson,
Svavar Kristinsson, Karólína Hróðmarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Við viljum þakka öllum þeim sem sýndu okkur hlý-
hug og stuðning vegna fráfalls
ARNAR JÁKUPS DAM WASHINGTON.
Einnig þökkum við þeim sem komu að útför
Arnars innilega fyrir.
Fyrir hönd aðstandenda,
Birgitta Dam Lísudóttir.
Nú er Sigga frænka
horfin okkur í bili. En
það er von um eilíft líf í
Jesú og því sem hann
gerði fyrir okkur á
krossinum.
Sigga frænka var trúuð kona. Oft
töluðum við saman um trúmál. Við
áttum margar góðar stundir saman
og hún var trúfastur vinur. Heimili
hennar var alltaf opið okkur öllum
SIGRÍÐUR
SKÚLADÓTTIR
✝ Sigríður Skúla-dóttir fæddist í
Austurey í Laugar-
dal 2. júní 1910. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Eir 13. júlí
síðastliðinn og fór
útförin fram í kyrr-
þey 21. júlí.
frá því að ég man eftir
mér. Það var alltaf svo
mikið samband á milli
okkar og var heimili
hennar mitt annað
heimili. Ég gæti skrif-
að miklu meira um
elsku móðursystur
mína en ég læt þetta
nægja.
Ég kveð Sigríði
Skúladóttur með orð-
um Jesú:
Ég er upprisan og lífið.
Sá sem trúir á mig mun lifa,
þótt hann deyi.
(Jóhannes 11:25.)
Kær kveðja,
Guðrún Vilhjelmsdóttir
Benner.
Hrunamannahreppur | Um þessar
mundir er verið að byggja upp
Auðsholtsveg á um 3,5 km kafla,
þ.e. frá þjóðvegi 30 vestur fyrir
bæinn Birtingaholt. Verktakafyr-
irtækið Nesey ehf. annast verkið,
en Nesey bauð lægst í fram-
kvæmdina eða um 73% af áætluðu
kostnaðarverði Vegagerðarinnar.
Að sögn Árna Svavarssonar,
framkvæmdastjóra Neseyjar ehf.,
hefur verkið gengið vel og er upp-
byggingu vegarins senn lokið. Eft-
ir er frágangur og snyrting við
veginn, en bundið slitlag verður
síðan sett á í haust.
Gremja er meðal þeirra fjöl-
mörgu sem búa við Auðsholtsveg
og Langholtsveg, sem tengir veg-
inn við Flúðir, að ekki skuli verða
af frekari vegaframkvæmdum að
þessu sinni.
Áætlað er að breyta veginum við
Syðra-Langholt árið 2007, þannig
að hann liggi norðan bæjanna.
Vegalengdin sem þá yrði eftir til
Flúða er um 9 km. Við þennan veg
eru 36 lögbýli og heilsárshús auk
frístundabyggða með um 150 hús,
sem og golfskáli og fjölsóttur golf-
völlur, að ógleymdu tjaldstæði á
Álfaskeiði sem er allmikið notað yf-
ir sumartímann.
Almennt er óánægja hér í
Hrunamannahreppi með vegamál.
Auk þessa nauðsynjamáls sem áð-
ur er getið er um 4 km kafli illa
uppbyggður og ekki bundinn slit-
lagi gegnum land jarðarinnar
Haukholta sem er varasamur og
hafa þar oft orðið slys. Sá vegar-
kafli mun þó vera á vegaáætlun ár-
ið 2007 að sögn Svans Bjarnasonar,
umdæmisstjóra vegagerðarinnar á
Suðurlandi. Þá fyrst kæmist bund-
ið slitlag á allan aðalveginn gegn-
um sveitina. Svo fleira sé efnt hef-
ur það m.a. lengi verið draumur
margra að brú komi yfir Hvítá hjá
Bræðratungu sem fyrst og yrði
mikilvæg lífæð á milli Bláskóga-
byggðar og Hrunamannahrepps.
Auðsholtsvegur
byggður upp
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Unnið við uppbyggingu Auðsholtsvegar, Birtingaholt, Syðra-Langholt og Vörðufell í baksýn.
Eftir Sigurð Sigmundsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is
(smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr-
ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna
skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak-
markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd-
ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda
inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um,
fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst.
Minningargreinar
FRÉTTIR