Morgunblaðið - 14.08.2005, Síða 41

Morgunblaðið - 14.08.2005, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 41 FRÉTTIR Til sölu 6 m langur álbátur með Evinrude 90 hö utanborðsmótor. Árg. 2001. 2 stk. 115 hö mótorar geta fylgt. Góður á sjóstöngina og svartfuglinn.Tilboð óskast, skipti möguleg. Uppl. í síma 844 0478. Sómi 600 200hp Volvo Penta ný- uppgerð vél, duo prob hældrif. Búið er að gera allan bátinn upp og er hann í toppstandi. Einnig er búið að skipta um flest allt í bátn- um, t.d. rúður, rekverk, teppi, ol- íutank o.fl. Sjón er sögu ríkari. Verðtilboð óskast. Upplýsingar í síma 660 0270. Handfæra og sportbátur Þessi bátur er til sölu. Er í mjög góðu ástandi og með fullgilt haffæri til apríl '06. Þrjár gráar DNG geta fylgt. Upplýsingar í síma 693 8085 Alternatorar og startarar í báta og bíla. Beinir og niðurg. startar- ar. Varahlþj. Hagstætt verð. Vélar ehf., Vatnagörðum 16, s. 568 6625. Alternatorar og startarar í báta, margar gerðir og stærðir á lager og hraðsendingar. 40 ára reynsla. VALEO umboðið, Bílaraf, Auðbrekku 20, sími 564 0400. Varahlutir Alternatorar og startarar í fólksbíla, vörubíla, vinnuvélar og bátavélar. Á lager og hraðsend- ingar. 40 ára reynsla. Bílaraf, Auðbrekku 20, sími 564 0400. Bátar Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Smáauglýsingar sími 569 1100 MICHAEL Schulz hefur verið skipaður fulltrúi við sendi- nefnd Alþjóðasam- bands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í New York en starf Schulz er stutt af ís- lenska Rauða kross- inum. Schulz mun verða næstráðandi í nefndinni sem hefur áheyrnarstöðu hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. Schulz hefur víð- tæka reynslu af störf- um fyrir Rauða krosshreyfinguna og hefur meðal annars verið yfirmaður Rauða kross sendinefnda víða um heim. Starfs síns vegna ferðast Schulz mikið en hann hefur þýskt rík- isfang og er uppalinn í Grikklandi. Hann er í sambúð með íslenskri konu, Sigrúnu Árnadóttur, fram- kvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi, og hefur búið hér í um það bil fimm ár. „Ég hef komið víða og verið mikið á ferðinni en hér á Íslandi finnst mér eins og ég sé heima hjá mér.“ Þegar Morgunblaðið hafði samband við Schulz var hann að búa sig undir ferð sína til New York. Skipað er í stöðuna til tveggja ára og sagðist Schulz afar spenntur yfir því að takast á við þetta verkefni, enda væri það bæði fjölbreytt og krefjandi. „Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans, sem eru 181 að tölu, njóta góðs af skrifstofunni í New York og styrkja hana einnig. Ég hef á undanförnum 25 árum unnið við hjálparstarf Rauða krossins á stöðum eins og Palestínu, Austur- Evrópu, Úganda, Afganistan, Ind- landi, Pakistan, Kambódíu, fyrrum Sovétríkjunum og á aðalskrifstofu samtakanna í Genf. Þessi reynsla kemur mér vonandi að góðum not- um við að fylgja eftir baráttumál- um Rauða krossins og Rauða hálf- mánans gagnvart ríkjum heims,“ segir Schulz en hann segir ís- lenska Rauða krossinn njóta virð- ingar víða um heim og bendir á að stuðningur Íslendinga hafi verið til fyrirmyndar í gegnum tíðina þegar hamfarir hafa dunið yfir. „Sameinuðu þjóðirnar eru að breytast og það þarf að fylgjast vel með þeim breytingum enda verðum við að sjá hvernig best sé fyrir okkur að hafa samvinnu við aðildarþjóðirnar hvað hjálparstarf og aðkomu að mannúðarmálum varðar. Alþjóða Rauði krossinn hefur aðgang að nánast öllu kerfi SÞ. Við tökum mikinn þátt í um- ræðuhópum og reynum að hafa eins mikil áhrif og við getum á mannúðarmál en það ber þó að taka fram að Rauði krossinn tekur ekki pólitíska afstöðu. Þau málefni sem helst mætti nefna eru meðal annars börn í stríði, umhverfis- og heilbrigðismál, fátækt og fleira. Í þessum málum tökum við afstöðu og verjum hana. Við erum tals- menn þeirra sem minna mega sín.“ Íslenski Rauði krossinn styrkir starf fulltrúa við sendinefnd sem hefur áheyrnarstöðu hjá SÞ „Talsmenn þeirra sem minna mega sín“ Michael Schulz OG VODAFONE ætlar að efla GSM-fjar- skiptakerfi sitt enn frek- ar á þessu ári með því að taka í notkun svokallaða EDGE-tækni (Enhanced Data Rates for Global Evolution) sem er sögð geta margfaldað flutn- ingsgetu í farsímum við- skiptavina fyrirtækisins. „Tæknin gerir notendum meðal annars mögulegt að miðla gögnum, ljósmyndum, hreyfimyndum eða vafra á Internetinu á þrisvar til fjór- um sinnum meiri hraða en mögulegt hefur verið hingað til. Flutningshraði í EDGE er í raun mismunandi hvað fjarlægð frá sendum varðar og milli einstakra farsíma en tæknin er frá 120 kb/s til 238 kb/s í kerfi Og Voda- fone,“ segir m.a. í frétt frá félaginu. Prófanir vegna EDGE eru þegar hafnar og er gert ráð fyrir að kerfið verði tekið í notkun á fjórða ársfjórð- ungi 2005. Gert er ráð fyrir að EDGE-tæknin nái til notenda á höfuðborgarsvæð- inu og í Eyjafirði fyrst um sinn. Kostnaður við uppbyggingu á fjar- skiptakerfi Og Vodafone vegna EDGE-væðingar og tengdra verk- efna er áætlaður um 250 milljónir kr., skv. upplýsingum Og Vodafone. Gríðarlega öflug tækni Að mati Gests G. Gestssonar, framkvæmdastjóra sölu- og mark- aðssviðs Og Vodafone, er EDGE mikil bylting fyrir viðskiptavini. „Hér er um að ræða gríðarlega öfl- uga tækni því hún gefur færi á nýj- um þjónustuleiðum til handa við- skiptavinum. Má þar nefna Vodafone Mobile Connect, sem er gagnaflutn- ingskort fyrir fartölvunotendur. Slíkt kort nýtist sérlega vel í GSM/ EDGE. Vodafone Mobile Connect er væntanlegt fyrir viðskiptavini í haust. Það hefur nú þegar slegið í gegn víða erlendis. Við vonumst því til þess að EDGE eigi eftir að stuðla að enn breiðara vöruúrvali hjá Og Vodafone og efla burðargetu í GSM- kerfinu verulega,“ er haft eftir Gesti í tilkynningu félagsins. Og Vodafone tekur EDGE í notkun Margfaldar burðar- getu í GSM-kerfinu Morgunblaðið/Brynjar Gauti BORIST hefur eftirfarandi yfirlýs- ing frá framkvæmdastjórn Sam- taka auglýsenda (SAU). Millifyr- irsagnir eru Morgunblaðsins: „Af og til kemur upp umræða um hvort RÚV (útvarp og sjón- varp) ætti að hverfa af auglýs- ingamarkaði. Stjórn Samtaka aug- lýsenda (SAU) ályktaði um málið haustið 2001 og lýsti sig alfarið á móti slíkum hugmyndum. Almenn- ingur virðist vera sama sinnis ef marka má niðurstöður könnunar sem Gallup gerði fyrir RÚV og birt var í byrjun september 2002. Í henni kom m.a. fram að einungis 13,5% landsmanna á aldrinum 16– 75 ára eru þeirrar skoðunar að RÚV (Sjónvarpið) eigi að hætta auglýsingabirtingum! Í því sem hér fer á eftir verður leitast við að svara þeirri spurn- ingu hvers vegna auglýsendur og almenningur eiga að vera á móti því að RÚV hverfi af auglýsinga- markaði. Gengið er útfrá því að RÚV verði áfram öflugur fjölmiðill með mikið aðdráttarafl fyrir áhorf- endur og hlustendur. Ekki er tek- in afstaða til þess hvert rekstr- arform RÚV eigi að vera og ekki gert ráð fyrir því að dagskrá einkareknu ljósvakamiðlanna myndi batna það mikið í kjölfar brotthvarfs RÚV af auglýsinga- markaði að verulegar breytingar yrðu á áhorfi/hlustun einstakra miðla miðað við það sem nú er. Skerða möguleika almennings á að uppfylla þarfir sínar Segja má að auglýsingar hafi tvenns konar hagrænan tilgang. Í fyrsta lagi þá hafa þær það hlut- verk að sjá almenningi fyrir upp- lýsingum sem auðvelda þeim að taka neyslutengdar ákvarðanir. Al- menningur fær upplýsingar um eiginleika vöru eða þjónustu, verð hennar og breytingar á því. Þessar upplýsingar gera almenningi kleift að fullnægja þörfum sínum betur og/eða ódýrar en áður. Í öðru lagi geta auglýsendur aukið verðmæti vöru eða þjónustu sinnar með því að tengja jákvæða huglæga þætti við vörumerki sitt í gegnum ímyndarauglýsingar. Varan eða þjónustan uppfyllir þá fleiri þarfir en áður. Brotthvarf RÚV af aug- lýsingamarkaði myndi því almennt séð skerða möguleika almennings á því að uppfylla þarfir sínar og/ eða yki kostnað þeirra við það. Áhrif brotthvarfs RÚV fyrir auglýsendur eru í meginatriðum af tvennum toga. Í fyrsta lagi minnk- ar aðgengi auglýsenda að almenn- ingi. RÚV hefur mesta vikulega dekkun ljósvakamiðlanna (þ.e. nær augum og eyrum flestra) og ekki er hægt að ná til ákveðins hluta þjóðarinnar nema í gegnum RÚV. Þetta þýðir að erfiðara yrði fyrir auglýsendur, og þar með óhag- kvæmara, að nálgast neytendur ef RÚV nyti ekki við. Í öðru lagi myndi brotthvarf RÚV þýða að dýrara yrði fyrir auglýsendur að koma skilaboðum sínum á fram- færi við neytendur. Þetta á rætur sínar að rekja bæði til þess að framboð auglýsingatíma í ljósvaka- miðlunum myndi minnka með til- heyrandi verðhækkunum (væntan- lega umfram aukið áhorf) og líka vegna þess að samval auglýsinga- tíma verður óhagstæðara (það yrði dýrara að ná til neytenda án RÚV jafnvel þó einkareknu ljósvaka- miðlarnir myndu ekki hækka verðskrár sínar – ef svo væri ekki þá væri hvort sem er ekki verið að auglýsa á RÚV!). Afnotagjöld myndu hækka Áhrif brotthvarfs RÚV á al- menning yrðu ferns konar. Í fyrsta lagi myndu afnotagjöld RÚV hækka miðað við óbreyttar rekstrarforsendur þ.e. ef bæta ætti RÚV upp tapaðar auglýs- ingatekjur. Að sjálfsögðu fer end- anlegur kostnaðarauki síðan eftir því hversu takmarkað endurskoð- að hlutverk RÚV yrði. Í öðru lagi yrði eins og fyrr var getið mun erfiðara fyrir almenning að afla sér upplýsinga um vörur og þjón- ustu og þar með erfiðara og/eða dýrara fyrir hann að fullnægja þörfum sínum. Í þriðja lagi myndi verð á vöru og þjónustu hækka vegna þess að auglýsendur þyrftu að leita óhagkvæmari/dýrari leiða til að koma upplýsingum um vörur sínar eða þjónustu á fram- færi og auka verðmæti þeirra með ímyndarauglýsingum. Og að síð- ustu má ekki gleyma því að aug- lýsingar hafa, auk upplýsingahlut- verksins, ákveðið afþreyingar- og skemmtanagildi, og geta jafnvel lengt líf fólks ef rétt er að hlát- urinn lengi lífið eins og rannsókn- ir benda til! Í ljósi þess sem sagt hefur verið hér að ofan ætti engum að koma á óvart að auglýsendur og meginþorri landsmanna vilja að RÚV verði áfram á auglýsinga- markaði.“ Yfirlýsing frá framkvæmdastjórn Samtaka auglýsenda (SAU) Á RÚV að hverfa af auglýsingamarkaði? mbl.is ókeypis smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.