Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 42
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
KALVIN!! HVAÐ
HEFUR ÞÚ GERT VIÐ
SÓFABORÐIÐ MITT?!?
ERTU AÐ REYNA AÐ FÁ MIG
TIL ÞESS AÐ TALA AF MÉR?
© DARGAUD
Bubbi og Billi
ÞESSI SKORDÝR
ERU ALVEG
ÓTRÚLEG
MÉR ÞYKIR SVO GAMAN
AÐ SKOÐA MAURA MEÐ
STÆKKUNARGLERINU MÍNU
ÞEIR ERU SVO
SKIPULAGÐIR,
KERFISBUNDNIR
OG AGAÐIR
EN UMFRAM ALLT ÞÁ
ERU ÞEIR VINNUSAMIR
OG HLÝÐNIR
SUM DÝR SEM ÉG KÝS AÐ NEFNA EKKI
ÆTTU AÐ HELGA SÉR EINHVERJA AF
ÞESSUM EIGINLEIKUM
ER ÞAÐ
EKKI BILLI? HVERT FÓR
HANN?
VÁ!
SNILLD!
RÉTT HJÁ ÞÉR BILLI!
MAURAR HAFA MARGA KOSTI EN
ÞEIR HAFA HÚMOR Á VIÐ
SEXTUGAN ÞINGMANN
Dagbók
Í dag er sunnudagur 14. ágúst, 226. dagur ársins 2005
Víkverji er almenntmjög lífsglaður og
kátur maður og á gott
með samskipti við fólk.
Það verður samt að ját-
ast að stundum verður
hann pirraður í
vinnunni enda á blaða-
mennskan það til að
vera erilsamt starf.
Þegar Víkverji tekur
styttri eða lengri viðtöl
við fólk hefur hann það
fyrir reglu að leyfa því
að heyra sín eigin um-
mæli áður en þau fara
á prent. Það sama gera
flestir samstarfs-
félagar Víkverja.
Víkverji hefur því miður bitra
reynslu af því að senda fólki texta til
yfirlestrar. Of oft hefur hann fengið
mun lengri texta til baka með alltof
miklum málalengingum. Víkverji lít-
ur hins vegar á það sem hlutverk
blaðamannsins en ekki viðmæland-
ans að ákveða hvað á erindi í blaðið
og hvað ekki. Víkverji hefur því
brugðið á það ráð að hringja frekar í
viðmælendur sína sem þess óska og
lesa yfir fyrir þá textann. Þannig
sparar hann sér bæði tíma og and-
lega orku.
Langflestir viðmælendur Víkverja
taka þessu mjög vel og eru ánægðir
að fá að heyra textann.
Víkverji verður þó
ákaflega pirraður þeg-
ar viðmælendur hans
heimta að fá textann í
tölvupósti. Oftar en
ekki er það einmitt
sama fólkið og sendir
Víkverja hreinlega nýj-
an texta til baka.
x x x
Fyrst Víkverji erbyrjaður að nöldra
með þessum tóni er
rétt að halda því áfram
og kvarta yfir fram-
komu opinberra starfs-
manna. Víkverji þurfti nýverið að
hafa samskipti við allmörg ráðuneyti
og í alltof mörgum tilvikum fékk
hann lélega þjónustu. Þegar hann
kynnti sig kurteisislega var jafnvel
svarað með stuttu já-i á innsoginu
svo Víkverja þótti sem hann væri að
trufla viðkomandi ægilega mikið í
vinnunni. Er það ekki hluti af starf-
semi ráðuneyta að veita bæði fjöl-
miðlum og almenningi upplýsingar?
Þetta á auðvitað alls ekki við alla
starfsmenn eða í öllum ráðuneytum
og púkann í Víkverja dreymir stund-
um um að segja sem flestum frá því
hvar hann fær slæmt viðmót og hvar
þjónustulundin er til fyrirmyndar.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Leiklist | Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands æfir um þessar mundir leik-
ritið „Forðist okkur“. Verkið er byggt á myndasögum Hugleiks Dagssonar
og er unnið í samvinnu við leikhópinn Common Nonsense og leikstjórar Stef-
án Jónsson og Ólöf Ingólfsdóttir.
Verkið verður fyrsta verkefni Nemendaleikhússins í vetur en sýnt verður
á Litla sviði Borgarleikhússins með haustinu.
Morgunblaðið/Jim Smart
Að forðast eða ekki forðast
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Vakið, standið stöðugir í trúnni, verið karlmannlegir og styrkir. Allt sé
hjá yður í kærleika gjört. Náðin Drottins Jesú sé með yður.
(Kor. 16, 13–14.23.)