Morgunblaðið - 14.08.2005, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 14.08.2005, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 45 DAGBÓK • Stórt ferðaþjónustufyrirtæki á Vesturlandi. • Þekkt kaffihús í Reykjavík. • Gott iðnfyrirtæki fyrir trésmið sem vill breyta til. Ársvelta 150 mkr. • Rótgróið iðnfyrirtæki með mikla sérstöðu. Ársvelta 70 mkr. Góð afkoma. • Stór heildverslun með vörur fyrir stórmarkaði. • Þekkt bílasprautunar- og réttingaverkstæði. Ársvelta 50 mkr. • Lítil sérverslun með þekktar gjafavörur. Ársvelta 40 mkr. • Þekkt heildverslun - sérverslun með húsgögn og gjafavörur. Ársvelta 70 mkr. Góður hagnaður. • Stór matvælavinnsla. Ársvelta 380 mkr. • Sérverslun - heildverslun með heimilisvörur. Ársvelta 170 mkr. Góð framlegð. • Trésmíðafyrirtæki með eigin innflutning sem framleiðir heilsárshús. Góð verkefnastaða. • Heildverslun með sérhæfðar tæknivörur. Ársvelta 110 mkr. • Deildir úr heildverslunum með ýmsar vörur. Hentugar sem viðbót fyrir heildverslanir. • Kvenfataverslun með nokkra útsölustaði. • Rótgróin bókabúð í miðbænum. Góður rekstur. • Lítið vínumboðsfyrirtæki með fjórar bjórtegundir í kjarna. Hentugt til sameiningar. • Ferðaskrifstofa með innanlands- og utanlandsdeild. • Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 450 mkr. • Fiskvinnsla í eigin húsnæði á Eyrarbakka. Ráðgjafaskólinn er fyrir þá sem starfa við, eða ætla sér að starfa við, ráðgjöf fyrir áfengis- og fíkniefnaneytendur og fjölskyldur þeirra, t.d. ráðgjafa, félagsráðgjafa, sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga og lækna og er ætlað að tengja saman persónulega reynslu, starfsreynslu og menntun á þessum sviðum. Eftirfarandi er m.a. tekið fyrir í náminu: • Grunnþekking á alkóhólisma og fíkn í önnur efni en áfengi. • Vinsun, inntaka, meðferðarkynning og mat á skjólstæðingi. • Ráðgjöf (einstaklings-, hóp- og fjölskylduráðgjöf) og tækni til inngripa. • Meðferðarstjórnun, meðferðaráætlanir, skýrsluhald. • Inngripatækni í áföllum. • Forvarnir og fræðsla. • Samstarf við aðra fagaðila. • Siðfræði, lögfræðileg álitamál, trúnaðarmál. • Sérstakir hópar (þjóðerni, menning, kynhneigð, kynferði, alnæmi og fatlanir). • Líffræði og efnafræði áfengis og annarra vímuefna (lögleg, ólögleg, sniffefni og nikótín). • Sálfræðileg, tilfinningaleg og persónuleg álitamál, þroski skjólstæðinga. • Tólf spor, erfðavenjur og heimspeki sjálfshjálparhópa. Umsóknarfrestur um skólavist á haustönn 2005 er til 20. ágúst. Upplýsingar og eyðublöð fást hjá: Ráðgjafaskólanum, pósthólf 943, 121 Rvík. Netfang stefanjo@xnet.is, sími 553 8800, fax 553 8802 og www.forvarnir.is Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi Tónlistarsjóður Rótarý á Íslandi auglýsir eftir umsóknum um styrk. Tilgangur sjóðsins er að veita ungu tónlistarfólki, sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar, viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms. Styrkurinn verður veittur í janúar 2006 og verður að upphæð kr. 500.000. Umsóknum skal skilað til skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, fyrir 15. september nk. Netfang: rotary@simnet.is. Fyrirspurn til garðyrkju- stjóra Reykjavíkur UNDIRRITUÐ á daglega leið um Hljómskálagarðinn ásamt fjölda annarra Reykvíkinga. Háskólastúd- entar, ferðamenn, íbúar í vesturbæ og austurbæ eiga daglega leið um garðinn auk leikskólahópa, skóla- hópa og annarra Reykvíkinga, sem nota þennan frábæra skrúðgarð Reykvíkinga sér til yndisauka. Það voru góð tíðindi fyrir Reyk- víkinga þegar gosbrunnurinn sem var búinn að ausa skítugu og illa lyktandi tjarnarvatninu yfir þá ár- um saman var tekinn niður fyrir nokkrum árum. En Adam var ekki lengi í Paradís – í byrjun sumars var settur upp nýr gosbrunnur sem er hálfu verri en sá gamli fyrir það að hann gengur alla daga, hvernig sem vindur blæs og eys menguðu vatninu úr Tjörninni yfir vegfar- endur. Vil ég benda á, að það þarf ekki að hreyfa mikinn vind til þess að vatnsbununa og úðann leggi yfir gangvegina í Hljómskálagarðinum. Hefur verið athugað með sýking- arhættu af menguðu tjarnarvatn- inu? Þegar maður hugsar um þann fjölda fugla sem heldur til á Tjörn- inni og úrganginn úr þeim verður manni illt. Hafa verið tekin sýni úr tjarnarvatninu nýlega með tilliti til salmonellusýkinga, þar sem það er vitað að mávar og aðrir fuglar geta borið þessar bakteríur? Ég vona að þessi fyrirspurn verði tekin til athugunar og henni svarað fljótlega. Með bestu kveðju, Auður Sigurðardóttir. Allir í strætó Í FRÉTTABLAÐINU í síðustu viku var mikið fjallað um nýtt leiða- kerfi strætó. Margir hafa kvartað og breytingin fyrir eldra fólkið er slæm. Ellilífeyrisþegi í Árbæ sagði að mörgum væri gert ófært að taka strætó. Verst virðist þetta vera í Ár- bænum og ég sá í Fréttablaðinu mynd af himinháum stiga sem fólk þarf að ganga til þess að taka strætó niður í bæ og ég skil ekki hvernig hægt er að ætlast til þess að fólk sem á erfitt með að hreyfa sig þurfi að ganga þennan stiga í öllum veðrum í vetur því þarna á Ártúns- holtinu er mjög vindasamt þegar vont er veður. Ásgeir Eiríksson framkvæmda- stjóri Strætó bs. segir varðandi óánægju íbúa í Árbæ að það sé boð- ið upp á hraðleið niður í bæ og mikið hlýtur sú leið að fara hratt því fólk hefur ekki ennþá fundið hana. Dag- ur B. Eggertsson, borgarfulltrúi og formaður hverfaráðs Árbæjar, kveðst ekki hafa fengið kvartanir vegna breytinga á leiðakerfinu en fólk hefur mikið kvartað undan því að það hafi ekki verið nokkur leið að ná sambandi við borgarfulltrúana vegna þessa. Það sem fólk, sem býr í úthverfum borgarinnar, þarf á að halda er að komast beina leið ofan í bæ eða ofan á Hlemm. Það á ekki að þurfa að setja upp stiga eða hindranir svo að fólk kom- ist leiðar sinnar. Víða er það þannig að fólk þarf að fara yfir miklar um- ferðargötur og þar af leiðandi er þar aukin slysahætta. Að lokum skora ég á forráðamenn Strætó að breyta þessu aftur. Sigrún Reynisdóttir. Serafína er týnd 6. ÁGÚST sl. týndist kettlingurinn okkar Serafína frá Njálsgötu. Hún er tæplega 5 mánaða gömul, grönn og háfætt. Mjög sérkennilega útlít- andi, svört í grunnlit með ljós- brúnum yrjum á búk, hvít yrjótt í andliti og smá hvítt fremst á lopp- unum. Einnig er hún með ljósan blett á hálsi. Serafína er afar vin- gjarnleg. Hennar er mjög sárt sakn- að. Ef einhver hefur séð eða fundið hana vinsamlegast hafið samband í síma 552 0373, 899 3363 og 860 0324. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 80 ÁRA afmæli. Í dag, 14. ágúst,er áttræð Hrönn Kristjáns- dóttir, Dalbæ, Dalvík. Hún tekur á móti gestum í safnaðarheimili Dalvík- urkirkju kl. 15.00. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Tónlistarmaður- inn Rúnar hefur sent frá sér plötuna Sol- itude. Platan er fyrsta sólóplata listamannsins og er gefin út af Parade Records en platan er einnig fyrsta útgáfa þessa nýja útgáfufyrir- tækis. Á plötunni eru ellefu lög eftir Rúnar sem unnin voru á tveggja ára tímabili. Lögunum er raðað í tímaröð og eru þau að mestu leikin af Rúnari einum á gítar. Dreifing er í höndum 12 tóna og er leiðbeinandi útsöluverð 2.199 krón- ur. Útgáfutónleikar verða auglýstir síð- ar. Nýjar plötur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.