Morgunblaðið - 14.08.2005, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.08.2005, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING LAUGARDAGINN 11. júní var frumsýndur í Gúttó í Hafnarfirði nýr íslenskur grínharmleikur, Dauði og jarðarber. Sýningin er farandsýning sem ætlunin er að ferðast með um landið í sumar. Það er nokkuð óvenjulegt að sjá leikrit eins og Dauða og jarðarber hér á landi þar sem um er að ræða frumsamið verk um suðrænt fólk með heitt blóð í æðum auk þess sem verkið er öðrum þræði trúðasýning. Það er óneitanlega frumlegt og kraftmikið af þeim Gunnari Birni og Snorra, sem báð- ir eru starfandi í Leikfélagi Hafn- arfjarðar, að ráðast í farandsýn- ingu og sýna hana víða um land. Farandleikhúsið hentar vel efni verksins en það fjallar um sí- gaunabræður sem þurfa að horf- ast í augu við frelsið eftir að ráð- rík amma þeirra deyr. En þó að ekki séu sígaunar á Íslandi er efn- ið sígilt; fólk lætur aðra halda aft- ur af sér, oft undir yfirskini ástar þó að tilgangurinn sé eigingjarn. Þó að grínið ráði mestu tekst Fé- lagi flóna vel að snerta streng ein- lægninnar þannig að hið harm- ræna kallast fallega á við kómedíuna. Gera má ráð fyrir að sýningin sé unnin í spuna þar sem hvort tveggja er að slík er helsta vinnuaðferð Ágústu og kemur vel fram og leikararnir nýta sér við- brögð áhorfenda eins og bestu trúðum er lagið. Gunnar og Snorri eru færir í því að leika trúða sem spila á hlátur áhorfenda og hefðu jafnvel mátt gera meira af slíku en undir lokin, þegar bræðurnir eru orðnir vel flæktir í óskum og vonum hvor annars og sjálfra sín og áhorf- endur eru farnir að vorkenna þeim reglulega mikið, þá hefði ekki sakað að létta andrúmsloftið með hinu endurtekna og þakkláta sambandi við áhorfendur sem kitl- aði hláturtaugarnar svo mjög í byrjun. Aðalatriðið er þó að sýn- ingin kemur á óvart vegna þess hvað söguþráðurinn er þéttur, hve tónlistin hentar efninu vel, hvað félagarnir eru flinkir í alls kyns brögðum og danskúnstum, en þar kemur Snorri sérlega sterkur inn, og hvað leikritið er sammannlegt og einlægt í bland við húmorinn. Framtak Félags flóna að ferðast til staða þar sem alla jafna er ekki boðið upp á leiksýningar er virð- ingarvert og ættu flestir að hafa nokkurt gaman af Dauða og jarð- arberjum. Tragískir trúðar LEIKLIST Félag flóna Höfundar: Ágústa Skúladóttir, Björn Thorarensen, Gunnar Björn Guðmunds- son og Snorri Engilbertsson. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Leikarar: Gunnar Björn Guðmundsson og Snorri Engilberts- son. Sýning í Ungó á Dalvík 6. ágúst. Dauði og jarðarber Ágústa Skúladóttir Hrund Ólafsdóttir Fréttir á SMS Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju 14. ágúst kl. 20.00: Hinn þekkti bandaríski organisti James David Christie leikur verk m.a. eftir Bach, Alain og Tournemire. 9. sýn. sun. 21/8 kl. 14 nokkur sæti laus 10. sýn. sun. 28/8 kl. 16 sæti laus 11. sýn. fim. 1/9 kl. 19 sæti laus Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, 105 Rvík. www.lso.is - lso@lso.is Þriðjudagstónleikar 16. ágúst kl. 20.30 Il Rosignolo - Næturgalinn Ítölsk barokktónlist. Jóhanna Halldórsdóttir alt, Heike ter Stal teorba, Steinunn A. Stefánsdóttir barokk selló og Guðrún Óskarsdóttir semball LAUGARDAGUR 20.8. KL.16.00 Setning Kirkjulistahátíðar 2005 SUNNUDAGUR 21.8. KL.17.00 OG MÁNUDAGUR 22.8. KL. 19.00 Matteusarpassían eftir Johann Sebastian Bach, BWV 244 fyrir tvo kóra, drengjakór, tvær hljómsveitir og sjö einsöngvara. Eitt af höfuðverkum vestrænnar menningar flutt í fyrsta skipti í barokkstíl hér á landi, með einsöngvurum í fremstu röð. Flytjendur: Markus Brutscher tenór, guðspjallamaður Andreas Schmidt bassi, Noémi Kiss sópran Robin Blaze kontratenór, Gunnar Guð- björnsson tenór, Jochen Kupfer bassi Benedikt Ingólfsson bassi, Mótettukór Hallgrímskirkju, Drengjakór Reykjavíkur, Unglingakór Hallgrímskirkju, Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag. Stjórnandi: Hörður Áskelsson Miðaverð: 4000 kr. ÞRIÐJUDAGUR 23.8. KL. 18.00 Yfir landamæri, tónlist barokktímans Noémi Kiss sópran og tónlistarhópurinn Ensemble L’Aia flytja verk eftir Johann Joachim Quantz, Georg Philipp Telemann, George Frideric Handel og André Campra. Ensemble L’Aia: Georgia Browne, flauta (Ástralía), IanWil- son, blokkflauta (Skotland),Tuomo Suni, fiðla (Finnland), Nicholas Milne, viola da gamba (Írland), Cvetanka Sozovska, semball (Makedónía) Miðaverð: 2000 kr. ÞRIÐJUDAGUR 23.8. KL.19.30 Trúlega Tarkovskí I Kvikmyndir Tarkovskís BÆJARBÍÓ HAFNARFIRÐI Tvær klassískar kvikmyndir eftir Andrej Tar- kovskí, Æska Ívans (1962) og Fórnin (1986) Stuttar innlýsingar fyrir sýningar. Myndirnar eru sýndar með enskum texta. Sýningarnar eru fyrri hluti dagskrár um kvikmyndaskáldið Tarkovskí. Miðaverð: 1000 kr. (ein sýning), 1500 kr. (báðar sýningarnar). MIÐVIKUDAGUR 24.8. KL.20.00 Trúlega Tarkovskí II Málþing um kvikmyndaskáldið Andrej Tarkovskí. (Suðursal Hallgrímskirkju) Deus absconditus – á mörkum hins sýnilega og ósýnilega í kvikmyndumTarkovskís. Astrid SöderberghWidding, prófessor í kvikmynda- fræðum við Stokkhólmsháskóla, flytur fyrirlestur. Samstarfsaðilar: Kvikmyndasafn Íslands og Deus ex cinema Miðaverð: 500 kr. FIMMTUDAGUR 25.8. KL.20.00 Klais-orgelið á Kirkjulistahátíð, frá barokki til nútímans Hinn heimsfrægi organisti David Sanger frá Englandi leikur á Klais-orgel Hallgrímskirkju. Miðaverð: 2000 kr. FÖSTUDAGUR 26.8. KL.18.00 Kirkjulistaspjall með kaffihúsastemningu (Suðursal Hallgrímskirkju) „Þér eruð salt jarðar“, passían og guðspjöll in í listinni. Stutt innlegg, almennar umræður. Umræðum stýra Ævar Kjartansson og dr. Sigurður Árni Þórðarson. Dagskráin er fimmþætt: 18.00 TÓNLIST Matteusarpassíur Bachs og Kvernos Umsjón: Halldór Hauksson og sr. Haukur Ingi Jónasson.Trond Kverno tónskáld og Terje Kvam kórstjóri, sem stjórnað hefur báðum verkunum, segja frá. 19.00 BÓKMENNTIR Hallgrímur Pétursson og guðspjöllin Umsjón: Margrét Eggertsdóttir cand. mag. og dr. Gunnar Kristjánsson guðfræðingur. 20.00 MYNDLIST Guðspjöllin séð með augum myndlistarmanna Umsjón: Dr. Þóra Kristjánsdóttir og dr. Pétur Pétursson guðfræðingur. Rúrí segir frá verkum sínum á Kirkju listahátíð 2005. 21.00 KVIKMYNDIR Fjallað um Matteusarguðspjall Pasolinis Umsjón: Oddný Sen kvikmyndafræðingur og dr. Arnfríður Guðmundsdóttir guðfræðingur. 22.00 Matteusarguðspjall Kvikmynd frá 1964 eftir Pier Paolo Pasolini. Miðaverð: 500 kr. LAUGARDAGUR 27.8. KL.18.00 Kórtónleikar Hamrahlíðarkórsins Verk eftir Arvo Pärt, Olli Kortekangas, Þorkel Sigurbjörnsson,Atla Heimi Sveinsson, Jón Nordal, HaukTómasson og Hafliða Hallgrímsson. Miðaverð: 2000 kr. KL.22.00 Röddun Gjörningur Rúríar Umfangsmikið verk sem á sér stað í tíma og rými og er skapað sérstaklega fyrir hátíðina og rýmið sem hýsir það. Hér er um að ræða viðamikið fjöltækniverk (multi-media), þar sem notuð er myndvörpun, (video projections) fjöl- rása hljóð (multi track audio), orgel og fleira en spuni flytjenda er mikilvægur þáttur verksins. SUNNUDAGUR 28.8. KL.17.00 Matteusarpassía eftir Trond Kverno fyrir kór og tíu einsöngvara án undirleiks. Rómað verk frá 1986 sem hlotið hefur alþjóðlega viðurkenningu. Flytjendur: Vox evangelistae: Marianne Hirsti, cantus, Marianne E Andersen, altus, Ian Partridge, tenor I, Joseph Cornwell, tenor II, Njål Sparbo, bassus,Vox Christi: David Martin, altus, Jon English, tenor I, Colin Campbell, tenor II, Thomas Guthrie, bassus I,GrahamTitus, bassus II. Dómkórinn í Osló, Stjórnandi:Terje Kvam. Miðaverð: 2500 kr. Allir dagskrárliðir fara fram í Hallgrímskirkju nema annað sé tekið fram. Miðasala við innganginn á tónleikadögum. Fjölbreytt helgihald og tónlistarandakt alla daga hátíðarinnar. Kirkjulistahátíðarkort kr. 10.000 (veitir aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar) KIRKJULISTAHÁTÍÐ 200520.–28. ÁGÚSTHallgrímskirkju í Reykjavík Heildardagskrá og nánari upplýsingar á www. kirkjan.is/kirkjulistahatid Upplýsingar og miðapantanir í síma 510 1000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.