Morgunblaðið - 14.08.2005, Síða 47

Morgunblaðið - 14.08.2005, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 47 MENNING GEÐRÆNIR sjúkdómar eiga sér að sjálfsögðu hinar ýmsu birting- armyndir. Ein sú sem oft birtist í leikbókmenntum og er um leið einna auðþekkjanlegust fyrir áhorfendur eru ranghugmyndir um ímyndaðar ofsóknir ásamt meðfylgjandi skilningsleysi ann- arra persóna á ástandi sjúklings- ins. Ástæða þessa er sennilega að þessar aðstæður kalla á dramatísk átök andstæðra hugarheima sem eru tilvalin til umfjöllunar á leik- sviði. Þrír leiklistarnemar hafa valið sér leikritið Penetreitor eftir skoska leikskáldið Anthony Neil- son að viðfangsefni, kafað í verkið með boðskap dramaþerapíunnar að leiðarljósi án þess að festa sig í kennisetningum og leitað sér að- stoðar bæði hjá sérfræðingum á þessu sviði og þeim sem þekkja geðraskanir á eigin skinni. Út- koman að loknu þessu ferli er afar áhrifamikil leiksýning sem vekur ósjálfrátt áhorfandann til umhugs- unar og vekur eflaust óþægilegar minningar hjá þeim sem hafa ann- aðhvort umgengist fólk í svipuðu ástandi eða þekkja það af eigin raun. Anthony Neilson hefur skrifað fyrir leiksvið, útvarp og kvik- myndahandrit auk þess að spreyta sig á leikstjórn. Á undanförnum tólf árum hefur hann skilað frá sér vel á annan tug fjölbreyttra verka sem hafa ekki einungis bor- ið hróður höfundar síns víða um lönd heldur einnig haft mikil áhrif á önnur leikskáld, en sem dæmi um verk af sama meiði má nefna Shopping & Fucking eftir Mark Ravenhill sem Egg-leikhúsið sýndi fyrir tæpum fimm árum. Það gengur jafnan mikið á í verkum Neilsons og hann skirrist ekki við að sýna hve ofbeldi er ríkur þátt- ur samskipta manna í millum. Þetta stutta verk er byggt upp á einfaldan hátt. Áhorfendum er í upphafi gefin innsýn í daglegt líf tveggja iðjuleysingja sem berast stefnulaust fyrir lygnum straumi þar sem þeir leigja saman í íbúð- arkytru. Það dregur til tíðinda þegar þeir fá í heimsókn gamlan vin annars þeirra og við tekur um- bylting þar sem tilfinning fyrir ör- yggi og friðhelgi fábreytts heim- ilislífs lýtur í lægra haldi fyrir kúgun gestsins sem þröngvar fyrst upp á félagana sinni rökum firrtu heimsmynd og dregur þá svo inn í þennan umbreytta veru- leika með skefjalausu ofbeldi. Neilson dregur upp mynd af grimmilegum heimi, ekki síst í ljósi þess að hann hefur í fyrri hluta verksins fengið áhorfendur til að finna til yfirlætis og með- aumkvunar í garð stefnuleysingj- anna tveggja. Hann fjallar einnig snilldarlega um þá skilgreiningu karlmennskuímyndarinnar sem byggist á afneitun á öllu því sem tengist samkynhneigð á einhvern hátt í hugarheimi persónanna og notar svo þessi viðmið sem und- irstöðu í mikið bákn byggt á hug- arórum og ranghugmyndum gests- ins. Í lokin er svo þeirri mynd sem áhorfendur hafa gert sér í hugarlund um persónurnar koll- steypt hvað þetta varðar er af of- beldinu tekur við algjör andstæða þess í upprifjun og gjörðum. Málfarið endurspeglar anda verksins, persónurnar nota gróft orðbragðið sem vopn í andlegri baráttu til að styrkja eigin ímynd. Þýðing Vignis Rafns Valþórssonar nær að skila þessum þætti afar vel og það er greinilegt að hún hefur kostað talsverða yfirlegu. Um- gjörð sýningarinnar er einföld og raunsæ og dregur um leið ekki at- hygli frá því sem hér er mest um vert – frábærri frammistöðu leik- stjóra og leikara. Samleikurinn er afar sterkur milli persóna sem hafa mjög meitluð einstaklingseinkenni. Það er sama hvar borið er niður, hvergi er að finna veikan punkt hvort sem rifjuð eru upp fjöl- breytt svipbrigði Vignis Rafns í þeim ótrúlega darraðardansi sem Alli lendir í, kæruleysislegt yf- irbragð Magga sem aldrei virðist missa tökin hvað sem á dynur í meðförum Jörundar Ragnarssonar eða óhugnanleg tilþrif Stefáns Halls Stefánssonar í hlutverki of- beldismannsins Stinna þar sem djöfulleg sannfæring og sjúkleg tortryggni skiptast á uns hann sturlast og á hann rennur að því er virðist stjórnlaust æði. Kristín Eysteinsdóttir á að baki fjölmörg verkefni í leikhúsi sem leikstjóri og dramatúrg en hérna sýnir hún hvers hún er megnug við að ná fram hrollvekjandi raunsæisáhrifum í þessum sturl- aða stofuleik. Sturlaður stofuleikur LEIKLIST Reykvíska listaleikhúsið og Hugarafl Höfundur: Anthony Neilson. Þýðandi: Vignir Rafn Valþórsson. Leikstjóri: Kristín Eysteinsdóttir. Tæknimál og hönnun leik- myndar: Hópurinn. Hljóðmynd: Karl Newman. Umsjónarmaður: Ingvar E. Sig- urðsson. Leikarar: Jörundur Ragnarsson, Stefán Hallur Stefánsson, Vignir Rafn Valþórsson. Mánudagur 8. ágúst. Penetreitor Sveinn Haraldsson Í KLINK og Bank fara um þessar mundir fram sýningar á verkinu Penetreitor. Þessi leiksýning er ekki síst merkileg fyrir þær sakir að hún er unnin í nánu samstarfi við fólk með geðræn vandamál. Stefán Hallur Stefánsson er einn af leikurunum sem að verkefninu standa: „Við fengum styrk frá Ný- sköpunarsjóði námsmanna til að vinna rannsóknarverkefni sem fjalla átti um samfélagsleg vanda- mál, þar á meðal andlegt ofbeldi, geðklofa og geðræn vandamál. Rannsóknarverkefnið gengur út á að komast í samband við fólk sem í rauninni glímir við þau vandamál sem koma fyrir í verkinu, hvort sem fólkið er í bata eða ekki.“ Eftir ítarlegt rannsóknarferli komst leikhópurinn í samband við Hugarafl, félagsskap fólks með geðræn vandamál: „Þetta er hópur fólks sem leitar óhefðbundinna batalausna – einhvers annars en þessara svokölluðu kerfislausna. Þau vilja frekar glíma við ein- staklinginn sjálfan: ekki einblína á vandamálið eða greininguna held- ur leita óhefðbundinna lausna og vinna í sjálfum sér – frekar en að taka bara skammtinn sinn og segja síðan bless.“ Miðla eigin reynslu af geðsjúkdómum Úr varð samstarfsverkefni þar sem Hugarafls-liðar taka virkan þátt í mótun leikritsins: „Við hitt- umst á samlestri og þau lásu verkið með okkur og hafa fylgst með at- riðum og vinnunni við leikritið. Þau koma síðan með athugasemdir og ábendingar við okkar vinnu út frá eigin reynslu.“ Þannig miðla meðlimir Hugarafls hegðun, tals- máta og atferli persónanna til verksins sjálfs og einstakra atriða þess. „Fyrst af öllu langaði okkur að búa til gott leikhús, vinna krefjandi leiklistarverkefni,“ segir Stefán Hallur. „Síðan fór þetta að vinda upp á sig eftir því sem við köfuðum dýpra í verkið. Okkur langaði að fá meiri innsýn í leikritið og fengum blessunarlega styrk frá Nýsköp- unarsjóði til að vinna þá vinnu sem núna er vonandi að skila sér til áhorfenda.“ Gagnast öllum sem koma En um leið er um annað og meira að ræða en eintóma tilsögn geðsjúkra um blæbrigði verksins og leikaranna: „Rannsóknarhluti verkefnisins gengur út á að komast að því hvort samstarf af þessu tagi virki, og hver sé þá ávinning- urinn,“ segir Stefán Hallur. „Ávinningurinn fyrir okkur leik- arana er augljós því ferlið gefur okkur mjög mikla dýpt til persónu- sköpunar og meiri skilning á því sem við erum að gera. Við fáum beint í æð sögur frá fólki sem hefur upplifað sjálft það sem við erum að leika. En við erum einnig að reyna að komast að því hvað Hugarafl og aðrir sem hafa unnið með okkur hafa fengið út úr verkefninu.“ Og árangurinn reynist hafa ver- ið góður: „Það virðist við fyrstu sýn að allir séu ákaflega ánægðir með bæði að hafa tekið þátt, og að geðsjúku fólki sé sýndur þessi áhugi og með þeim unnið sem jafn- ingjum,“ heldur Stefán Hallur áfram: „Þau geta með þessu móti tekist á við sín vandamál með óbeinum hætti: með því að miðla af reynslu sinni til annarra en ekki til sálfræðings eða geðlæknis. – Til stærri hóps sem reynslusögurnar geta gagnast. Það virðist hafa haft mjög jákvæð áhrif á umrædda ein- staklinga að miðla reynslu sinni á þennan máta.“ Verkið Penetreitor er eftir hinn skoska Anthony Neilson, heitir á frummálinu Penetrator, og er skrifað 1993 þegar höfundurinn var sjálfur tæplega þrítugur: „Hann lék í upprunalegu útfærsl- unni sjálfur og skemmtilegt að lesa eftirmálann að leikritinu,“ segir Stefán Hallur. „Það gekk mikið á þegar verkið var sett upp. Hann skrifar verkið út frá sinni eigin reynslu með kvenfólk. Hann hafði nýlokið ástarsambandi á þessum tíma og skrifar stykkið mjög reiður og bitur. Verkið fjallar ekki ein- ungis um geðklofa heldur um mörg samfélagsleg málefni, s.s. karl- mennsku, klámvæðinguna, fem- inisma, og í raun hvað það er að vera karlmaður á tvítugs- þrítugsaldri í dag.“ Að sýningunni standa auk Stef- áns Halls þeir Vignir Rafn Valþórs- son og Jörundur Ragnarsson og eru þeir allir leiklistarnemar við Listaháskóla Íslands. Kristín Ey- steinsdóttir leikstýrir og Ingvar E. Sigurðsson er umsjónarmaður rannsóknarverkefnisins. Umræðufundur á fimmtudag Sýningar fara fram í Klink og Bank við Brautarholt en gengið er inn frá Mjölnisholti um portið. Uppselt er á sýninguna í kvöld en aukasýningar verða á þriðjudag og miðvikudag kl. 21. Miðasala er í síma 699-0913 og miðaverð kr. 500. Þó er ókeypis fyrir fagfólk og með- limi félaga- og forvarnasamtaka og aðra hópa og einstaklinga sem hafa ávinning af að sjá sýninguna. Á fimmtudag verður umræðu- fundur þar sem Héðinn Unn- steinsson stjórnar umræðum. Hóp- ur fagfólks ræðir verkið og þau vandamál sem í því birtast og reyn- ir að víkka umræðuna út í sam- félagið. Áhorfendum stendur til boða að taka þátt í þessum fundi og geta skráð nafn og símanúmer á sýningunni. Leiklist | Hópur leiklistarnema í samstarfi með geðsjúkum í Klink og Bank Leikið, lært og læknað Morgunblaðið/Þorkell Stefán Hallur Stefánsson, Vignir Rafn Valþórsson, og Jörundur Ragnarsson í hlutverkum sínum. Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is MÁL og menning gefur út bókina Algjör Milli eftir Madonnu. Hér er á ferð fimmta og um leið síðasta barnabók Madonnu en áður hefur hún látið frá sér Ensku rósirnar, Epl- in hans Pea- body, Yakov og þjófarnir sjö og Abdí og háls- men drottn- ingar. Bækurnar hafa allar komið út á 40 tungumálum og í meira en 100 löndum. Segir nýjasta bókin af Algjörum Milla sem á allt sem hann girnist en er afar óhamingjusamur. Hann leggur, að því er segir í tilkynningu, upp í leit að gleðinni og kemur ýmislegt á óvart á þeirri ferð. Bókin er myndskreytt af Rui Paes og er þetta fyrsta barnabókin sem hann myndskreytir. Líkt og með fyrri bækur Madonnu rennur ágóði af sölu bók- arinnar til Spirituality for Kids-sjóðsins. Bókin kostar 2.290 kr. en er á sér- stöku mánaðarbókartilboði, 1.590 kr. Barnabók BÓKAFORLAGIÐ Bjartur hefur gefið út skáldsöguna Dauðinn og mörgæsin eftir Andrej Kúrkov í þýðingu Áslaugar Agnarsdóttur. Bókin er hluti af neon- bókaflokki Bjarts sem sér- staklega er ætl- aður nýjum er- lendum skáldverkum. Segir bókin frá Viktori, lán- lausum og hæg- látum rithöfundi í Úkraínu, eftir að Sovétríkin liðuðust í sundur. Hann býr í blokkaríbúð ásamt þunglyndri mörgæs. Hann hlýtur þá starf á dagblaði við að undirbúa minn- ingargreinar um frammámenn í þjóð- félaginu sem síðan hefur í för með sér óheppilegar afleiðingar fyrir Vikt- or. Prentun annast Oddi hf. og Ásta S. Guðbjartsdóttir hannaði kápu. Bókin kostar 1.980 kr. Skáldsaga BJARTUR bókaforlag hefur gefið út bókina Líf af lífi: Gen, erfðir og erfða- tækni eftir dr. Guðmund Eggertsson. Bókin kemur út sem hluti af nýrri ritröð sem fengið hefur heitið Hnotskurn og helguð verður hnitmiðuðum fræðiritum um einstök við- fangsefni, að því er segir í fréttatilkynn- ingu. Í bókinni fjallar Guðmundur um rannsóknir manna á erfðaefninu allt frá síðari hluta 19. aldar til nútímans. Gen eru útskýrð og virkni þeirra í frum- um og loks fjallað um rannsókn- araðferðir í erfðatækni og hugmyndir um nýtingu slíkra aðferða til lækninga og annarra hluta. Dr. Guðmundur Eggertsson var pró- fessor í líffræði við HÍ frá 1969 til 2003. Hann hefur birt fjölda greina um rannsóknir sínar og fræðasvið hérlendis og erlendis. Erfðir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.