Morgunblaðið - 14.08.2005, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjavik
International School
The Reykjavik International
School is accepting appli-
cations for the 2005-06
school year. Housed within
an Icelandic public school,
the school offers an educa-
tional program in English
to children in grades K – 6.
Children interact and learn
with Víkurskóli students regularly, bringing a true
international and cross-cultural spirit to the program.
Ideal for expatriates and Icelanders on the move, the
school is a new and exciting development for
Reykjavik’s business, diplomatic and international
community.
Skólinn er einkarekinn grunnskóli innan Víkurskóla,
sem býður upp á alþjóðlega menntun fyrir börn á
aldrinum 5-12 ára.
Tökum núna við umsóknum
fyrir næsta skólaár.
www.vikurskoli.is/RIS/ • Tel. 694-3341 • ris@vikurskoli.is
SUMARIÐ er heitasta árstíðin. Þá
gerist það líka í henni Hollywood
að sumar stjörnur verða heitari en
aðrar. Heitasta stjarna heitustu
árstíðarinnar 2005 er vafalaust
Jessica Alba. Fór með stóra rullu í
svölustu og um leið einni umtöl-
uðustu mynd ársins Sin City og er
ein af fjórum ofurhetjunum í ein-
um af óvæntustu smellum sumars-
ins, The Fantastic Four, eða Hin-
um fjórum fræknu, mynd sem hún
er meira að segja meðframleiðandi
að.
Feimin og hlédræg
Stúlkan er 24 ára gömul, fædd
28. apríl í Pomona í Kaliforníu.
Hún er búin að leika síðan hún var
ellefu ára. „Ég ætlaði mér alltaf að
verða leikkona. Held það sé í blóð-
inu. Það eru allir svo listrænir og
dramatískir í fjölskyldu minni.
Hún er algjört bíó. Ég var sú
feimna, sú sem átti erfiðast með að
tjá mig, þangað til ég uppgötvaði
leiklistina,“ segir Alba þar sem ég
ræddi við hana á hinu glæsilega
Majestic-hóteli í Cannes í maí fyrr
á árinu.
Hún skaust þó ekki upp á
stjörnuhimininn fyrir alvöru fyrr
en skapari Tortímandans og Tit-
anic, James Cameron, valdi hana
til að leika hið erfðabætta hörku-
kvenndi Max Guevara, Engil
myrkursins, í samnefndum sjón-
varpsþáttum sem sýndir voru í
Sjónvarpinu.
En þrátt fyrir að hafa náð sér í
talsvert „költ“-fylgi með Dark
Angel-þáttunum var hún enn nokk-
uð óþekkt stærð í Hollywood áður
en hún tók að sér hlutverkið í Sin
City. Hún segist meira að segja
hafa verið sú eina af þeim sem
fóru með stór hlutverk í myndinni
sem þurfti að fara í leikprufu fyrir
myndina.
„Ég hafði þá ekki þurft að fara í
leikprufur í fimm ár, en sóttist
mjög eftir að fá að leika í myndinni
því ég vildi vinna með Robert Rod-
riguez [leikstjóra myndarinnar],“
segir Alba.
Hún segir að sér hafi verið nokk
sama hvaða hlutverk hún hefði
þurft að leika, fyrst og fremst
hefði hún viljað vera Rodriguez-
mynd. Hlutverk hinnar bláeygðu
Nancy Callahan hafi heldur ekki
beint verið í anda þess sem hún
hafi áður gert – „fullkomin and-
staða Max í Dark Angel“ – en það
hafi einmitt verið áskorunin.
Frækin og feminísk
En ekki þurfti hún að fara í leik-
prufu fyrir Fantastic Four. Þá
hefði hún einfaldlega verið að
reyna að sannfæra sjálfa sig um að
hún væri rétta manneskjan í hlut-
verkið. Þannig er nefnilega að Alba
er einn meðframleiðenda mynd-
arinnar, ein þeirra sem lögðu hönd
á plóg frá upphafi við að reyna að
gera þessa nýjustu myndasöguupp-
færslu að veruleika.
„Það voru vissulega margar leik-
konur sem vildu leika Sue. Sumar
hverjar frægari en ég. En ég ein-
faldlega sannfærði Tim [Story,
leikstjóra myndarinnar] um að
hann þyrfti ekki að leita langt yfir
skammt. Ég væri til í að leika
hana, og hygðist gera hana að gáf-
aðri, hlédrægri, jarðbundinni,
ábyrgri, góðhjartaðri konu, með
áherslu á að ég myndi leika hana
sem konu, kvenlega ofurhetju, sem
mér finnst að hafi aldrei áður verið
gert. Venjulega eru ofurhetjur
angistarfullar, niðurdregnar og
árásargjarnar en ég vildi gera Sue
Storm venjulegri. Og mér tókst að
sannfæra hann.“
Alba segist hafa lagt á það mikla
áherslu að samband milli Storm og
Mr. Fantastic yrði sem nánast;
vildi að tilfinningasemi hennar
myndi koma skýrast í ljós í því
hversu mjög hún þráði að þessi til-
finningabældi gáfumaður tæki sig
til, þó ekki væri nema einu sinni,
og segðist elska hana.
„Ég held því að mér hafi tekist
að innleiða hið kvenlega og mjúka í
ofurhetjuformúluna. Og vonandi
glæðir það líka áhuga hjá stelpum
til að sjá slíkar myndir, því þær
eru svo skemmtilegar.“
Alba segir að undirbúningur fyr-
ir gerð kvikmyndar eftir Fantastic
Four-myndasögunum hafi hafist
fyrir ellefu árum. Handritið hafi
tekið miklum breytingum á þeim
tíma og hún telji að þetta sem not-
að hafi verið sé það sem komist
næst myndasögunum sjálfum.
„Þetta er byggt á sögunum hans
Stans Lees og útlitið er í anda
nýju Marvel Knights-blaðanna.“
Puð og púl
Alba segist ekki hafa haft mikið
vit eða áhuga á myndasögum áður
en hún tók að sér hlutverkin í
þessum tveimur myndasögumynd-
um. En nú segist hún búin að lesa
allt sem hún hafi komist yfir. Sér-
staklega í Fantastic Four-
flokknum. „Mér finnst þessar
gömlu sígildu bestar. Og að lesa
um hvernig þau fundu ástvini sína,
giftust og eignuðust börn. Ég er
voðalega mikil fjölskyldukona.“
Þótt vissulega séu þær báðar
byggðar á myndasögum eru Sin
City og Fantastic Four mjög ólíkar
myndir, og það var það sem heill-
aði Alba. Hún segist vilja leika ólík
hlutverk og bendir á að hlutverkið
í Into The Blue, væntanlegri grín-
spennumynd þar sem hún leikur á
móti Paul Walker úr Fast and the
Furious, verði síðan ennþá ólíkara
þeim sem hún hefur áður leikið.
„Ég er búin að puða og púla síð-
ustu mánuði, skal ég segja þér, og
ég vona að ég uppskeri eins og ég
hef sáð. Þessar myndir eru ólíkar,
höfða því til ólíkra hópa og vonandi
kynnast því mun fleiri mér fyrir
vikið.“
Segir nei við nektinni
Nú á tímum þegar ungar konur
– og karlar – virðast ekki setja fyr-
ir sig að fækka fötum fyrir frægð-
ina, hvort sem er í kvikmyndum
eða tónlistarmyndböndum, þá vakti
athygli þegar orðrómur barst um
það að Alba hefði neitað að fækka
fötum fyrir Sin City, mynd sem
annars inniheldur ríflegan skammt
af beru holdi. Þótt hún leiki fata-
fellu í myndinni er hún samt ein af
fáum leikkonum í myndinni sem
ekki bera sig alveg. Aðspurð segir
Alba orðróminn réttan, hún hafi
sannarlega neitað að fækka fötum,
það sé nokkuð sem hún kæri sig
einfaldlega ekki um að gera op-
inberlega, ekki einu sinni í þágu
frægðar eða listagyðjunnar. „Það
var í sjálfu sér enginn þrýstingur á
mig. Við máttum ganga eins langt
og við kærðum okkur um og ég
einfaldlega gerði það. Mér fannst
ég ekki þurfa að vera alveg nakin
til að koma kynþokkanum til
skila.“
Alba segir að hún eigi e.t.v. eftir
að skipta um skoðun síðar, þegar
hún er orðin eldri og þroskaðri, en
nú finnist henni það of nærgöngult
að fækka fötum opinberlega.
„Ég var á ströndinni um daginn
með kærastanum mínum, að laga á
mér handklæði, og áður en ég vissi
voru myndir af því komnar í
Playboy! Þetta er viðbjóðslegt.
Hvernig litið er á kvenmannslíka-
mann með eitthvað ógeðfellt og af-
brigðilegt í huga. Öll nekt, meira
að segja sú sem sýnd er í heil-
brigðu og fallegu listrænu sam-
hengi, er svo sjúklega afbökuð á
netinu, slitin úr samhengi og gerð
ógeðsleg. Ég gæti ekki hugsað mér
að lenda í því. Ég meina, ég var að
laga handklæðið, og það var komið
í klámblað áður en ég vissi. Og þá
hringdi pabbi og spurði hvað ég
væri eiginlega að gera í Playboy!
Og ég svaraði: Pabbi, hvers vegna
varst þú að lesa Playboy!“
Alba vill þannig hafa fulla stjórn
á ímynd sinni og þeim verkefnum
sem hún velur sér, segist meira að
segja hafa hafnað hlutverkum
vegna þess að þau kröfðust of mik-
illar nektar, hlutverkum sem hún
segir nú að hún hefði hvort eð er
ekki viljað leika.
Fegurðin ekki allt
Alba er með bein í nefinu. Veit
hvað hún vill og lætur engan
stjórna sér. Að hluta til þess vegna
hefur hún ákveðið að hafa sig æ
meira í frammi sem framleiðandi
kvikmynda, ekki síst þeirra sem
hún leikur sjálf í; einfaldlega til að
hafa meira um það að segja hvern-
ig myndirnar og hún sjálf er mark-
aðssett. En hún segist líka hafa
brennandi áhuga á öllum hliðum
kvikmyndagerðarinnar og hafa
heilmikið vit á henni núorðið. „Ég
læt mig þetta miklu varða. Hef
skoðun á öllum þáttum kvikmynda-
gerðarinnar og er ekkert endilega
að sækjast eftir framleiðandatitl-
inum bara til að slá um mig en
gera samt ekki neitt, eins og er til-
fellið með svo marga.“
Fegurðin hefur tvímælalaust
veriðAlba til framdráttar á frama-
brautinni. Hún segir fegurðina
eina og sér ekki nægja til að slá í
gegn í hinum harða heimi kvik-
myndanna. „Það sem mestu máli
skiptir er dýnamík, nærveran.
Maður verður að hafa sterka nær-
veru, annars gengur ekkert. Það er
til fullt af fallegu fólki í heiminum,
en fegurðinni verður að fylgja
sterk nærvera, sjálfstraust og
miklir hæfileikar, svo hún nái að
skila sér þegar hún er komin upp á
hvíta tjaldið. En ég viðurkenni það
fúslega að útlitið hefur hjálpað mér
frekar en ekki, en ég sé fullt af
stelpum sem eru fallegri en hjá
þeim gengur samt hvorki né rekur
á framabrautinni. Ég hlýt því að
kunna eitthvað er það ekki?“
Kvikmyndir | Leikkonan Jessica Alba hefur skotist með hraða stormsins upp á stjörnuhimininn
Hún birtist okkur fyrst sem engill á skjánum, ruggaði sér svo í lend-
unum í Sin City og er nú mætt til leiks sem ofurkvendið Sue Storm í
Hinum fjórum fræknu. Skarphéðinn Guðmundsson ræddi við leikkon-
una og framleiðandann Jessicu Alba.
’Og þá hringdi pabbiog spurði hvað ég væri
eiginlega að gera í
Playboy! Og ég svaraði:
Pabbi, hvers vegna
varst þú að lesa
Playboy!‘
Jessica Alba í hlutverki ofurhetjunnar góðhjörtuðu Sue Storm í kvikmynd-
inni Fantastic Four.
skarpi@mbl.is
Heitir fullu nafni Jessica Mar-
ie Alba.
Gælunafnið hennar er Sky
Angel.
Alba er af norrænum ættum.
Móðir hennar er dönsk í aðra
röndina, frönsk í hina, en fað-
ir hennar er mexíkanskur.
Fyrsta myndin sem hún lék í
heitir Camp Nowhere og er
frá 1994.
Er með tattú á hálsinum sem
er mynd af fagurfífli með
maríubjöllu.
Var með asma sem barn.
Spilar golf í tómstundum.
Lærði leiklist hjá hjónunum
William H. Macy og Felicity
Huffman (Lynette í Að-
þrengdum eiginkonum).
Komst á lista tímaritsins
People árið 2005 yfir 50 feg-
urstu manneskjur í heimi.
Danska Jessica
Alba í Dark Angel.
Ofurkvendið Alba