Morgunblaðið - 14.08.2005, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 49
Keppni allra landsmanna
Frítt á leiki og happdrættispottur
Sextán ára og yngri fá frítt á leiki í Landsbankadeildinni í sumar og lenda
í happdrættispotti þar sem dregnir verða út 100 glæsilegir vinningar.
Miðar eru afhentir í útibúum bankans.
1. vinningur: 4 flugmiðar og 4 miðar á leik í Meistaradeild Evrópu.
Aðrir vinningar: Áritaðar landsliðstreyjur og vandaðir fótboltar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
92
26
08
/0
5
410 4000 | www.landsbanki.is
VIÐ STYÐJUM ÍSLENSKA
KNATTSPYRNU MEÐ STOLTI
sun. 14. ágúst 17:00 KR - ÍBV
sun. 14. ágúst 18:00 Grindavík - Fylkir
sun. 14. ágúst 18:00 ÍA - Fram
mán. 15. ágúst 19:15 Valur - Keflavík
mán. 15. ágúst 20:00 Þróttur R. - FH
NÆSTU LEIKIR LANDSBANKADEILDAR KARLA
Reykingar mjög heillarafta“ sungu Stuðmenn ásínum tíma. Þeir reyndust
nokkuð sannspáir þegar kemur
að reykingum í bíómyndum en
birtar voru á dögunum nokkuð
athyglisverðar niðurstöður rann-
sóknar sem tímaritið Chest stóð
fyrir og kannaði reykingar í
kvikmyndum. Þar kom meðal
annars í ljós að í seinni tíð eru
það helst vondu karlarnir og fólk
af lágstéttum sem reykir á hvíta
tjaldinu frekar en auðugt fólk og
hetjurnar eins og áður var.
Rannsakendur komust að því
að hin síðari ár hafa reykingar
farið úr því að vera hluti af
glæsilegum lífsstíl fína fólksins í
bíómyndunum yfir í að vera enn
einn lösturinn í fari vondu kall-
anna, en einn af hverjum þremur
vondu köllum í þeim kvikmyndum
sem kannaðar voru reykti.
Könnunin tók til rannsóknar á
fimm aðalpersónum í alls 450
myndum sem voru meðal tíu vin-
sælustu mynda í Bandaríkjunum
frá árinu 1990 til dagsins í dag.
Í könnuninni kom meðal annars
fram að helmingur allra þeirra
sem reyktu á hvíta tjaldinu var af
lægri stéttum samfélagsins en
einungis 10% reykingamanna úr
efri stéttum.
Mikillar viðhorfsbreytingarhefur gætt undanfarinn
einn eða tvo áratugi hvað varðar
reykingar. Lög sem banna aug-
lýsingar á tóbaki, tóbaks-
varnaráð, öflugar forvarnir í
skólum og aukin umræða um
skaðsemi reykinga eiga þátt í því
að reykingar þykja ekki eins
flottar og áður og eru í kjölfarið
ekki eins algengar.
Það að láta óprúttnar persónur
kvikmyndanna frekar reykja en
hinar hefur þó ekki það fordæm-
isgildi sem ætlast er til, að mati
talsmanns samtaka tóbaksvarn-
aráðs Bretlands. Í tilkynningu frá
ráðinu í kjölfar könnunarinnar
segir meðal annars að kvik-
myndagerðarmenn verði að átta
sig á því að bófarnir í bíómynd-
unum eru oftar en ekki fyr-
irmyndir unglinga, þeir þykja
talsvert meira töff en góðborg-
ararnir.
En á það að vera hlutverk bíó-
mynda að vera í forvarna-
hlutverki gegn reykingum? Eru
kvikmyndir ekki listform sem á
að endurspegla mannlífið í sinni
fjölbreytilegustu mynd? Er ekki
leiðigjarnt að hlusta sífellt á ræð-
ur um skaðsemi reykinga í kvik-
myndum eða að veruleikinn sé af-
bakaður, bara svo að færri
unglingar byrji mögulega að
reykja? Þó að forvarnir gegn
reykingum séu vissulega þarfar
og auðvitað væri best fyrir alla
að sem fæstir reyktu er ég ekki
sammála því að kvikmyndir þurfi
að vera í hlutverki forvarna-
fulltrúans.
Ef við hugsum til hetjanna áhvíta tjaldinu undanfarin ár
má sjá að einungis örfáar þeirra
reykja og sjaldnast sígarettur.
Þeir Gandálfur og Aragorn í
Hringadróttinssögu sáust reynd-
ar stundum totta pípu en það
hefur gjarnan verið einkenni
spekinga og gáfumanna. Vindla-
reykingar þykja svo tilheyra
valdamönnum, mafíósum og öðr-
um jakkafataklæddum sögu-
hetjum. Sígarettureykingar eru
hins vegar á hvíta tjaldinu nær
eingöngu í höndum vondu kall-
anna, taugaveiklaðra, fátækra og
geðveikra.
Einhver annálaðasti töffari
hvíta tjaldsins, James Bond, hef-
ur til að mynda í seinni tíð snar-
lega gefið reykingar upp á bát-
inn í kjölfar breyttra áherslna á
hvað þykir töff og hvað ekki.
Það er einnig eftirtektarvert íniðurstöðum könnunarinnar
að fólk í myndum gerðum í
Hollywood reykir síður en per-
sónur í kvikmyndum gerðum ut-
an draumasmiðjunnar. 46% sögu-
hetja í þeim síðarnefndu reyktu
en einungis 18% persóna í svo-
kölluðum Hollywood-myndum.
Ástæðu þessa sagði dr. Karan
Omidvari, einn rannsakenda, að
ábyrgð óháðra kvikmyndagerð-
armanna væri minni og þeir því
gjarnari á að láta sögupersónur
reykja.
Þennan mun má einnig sjá ísjónvarpi. Kapalstöðinn
HBO, sem sýndi sjónvarpsþættina
Beðmál í borginni (Sex and the
City), hefur trúlega ekki þessa
ábyrgð gagnvart áhorfendum
eins og til dæmis sjónvarpsstöðin
NBC sem sýndi Vini (Friends).
Aðalpersóna Beðmálanna, Carrie
(leikin af Söruh Jessicu Parker),
reykti eins og skorsteinn framan
af í þáttunum en hætti svo snar-
lega þegar hún varð sjálf ófrísk.
Alveg fram að lokum þáttanna
var Carrie þó að berjast við nikó-
tínfíknina, staðreynd sem átti ef-
laust að sýna breyskleika hennar
sem fjöldi áhorfenda ætti að geta
samsamað sig.
Chandler var sá eini af Vin-
unum sem fannst óhemju gott að
fá sér sígarettu. Seint væri þó
hægt að saka aðstandendur þátt-
anna um að hafa sofnað á verð-
inum um að básúna skaðsemi
þessa akkilesarhæls Chandlers,
því í hvert sinn sem hann kveikti
sér í sígarettu upphófst jafnan
mikið jarm í hinum Vinunum um
skaðsemi reykinga, ræður sem
Þorgrímur Þráinsson og hver
annar talsmaður gegn reykingum
gætu verið stoltir af.
Reykingar eru farnar að skipaannað hlutverk en þær
gerðu áður í lífi fólks á hvíta
tjaldinu. Í stað þess að vera eðli-
legur hluti daglegs lífs margra
eru þær nú hluti myndmáls sem á
að segja okkur meira um karakt-
ereinkenni þess sem reykir. Oft-
ar en ekki er það sá miður góði
sem kveikir sér í sígarettu, eða
sá taugaveiklaði. Allavega sjaldn-
ast sá sem er með allt sitt á
hreinu og með tandurhreint mjöl
í sínu pokahorni. Hvort það er
kostur eða galli er matsatriði.
Hitt er þó annað mál að kvik-
myndir og sjónvarpsþættir end-
urspegla oft ómeðvitað þau við-
mið og gildi sem ríkjandi eru í
samfélaginu hverju sinni og því
getur verið skemmtilegt að skoða
þær með það í huga.
Vondu kallarnir reykja!
’Einhver annálaðasti töffari hvíta tjaldsins,James Bond, hefur í seinni tíð snarlega gefið
reykingar upp á bátinn í kjölfar breyttra
áherslna á hvað þykir töff og hvað ekki. ‘
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
„Hættu að reykja, það er óhollt!“ Hvunndagshetjan Dwight reynir að yf-
irbuga pörupiltinn Jackie Boy í Sin City.
birta@mbl.is
DRÖG að dagkskrá fyrir hina ár-
legu Jazzhátíð Reykjavíkur sem
haldin verður dagana 28. sept-
ember-2. október, er nú nær full-
mótuð. Hefst hún á miðvikudegi
með tónleikum Hot’n Spicy í Ráð-
húsinu.
Á fimmtudag verða tónleikar á
Kaffi Reykjavík með Bebop septett
Óskars Guðjónssonar. Tvennir nýd-
jasstónleikar verða á Pravda þetta
kvöld, sveit Róberts Reynissonar
Karmelgebach og píanó-víbrafón
dúettinn Koko með japanska kven-
víbrafónleikaranum Taiko Saito og
þýska píanistanum Niko Niko
Meinhold.
Föstudagur
Stórtónleikar á Hótel Sögu í til-
efni 30 ára afmælis Jazzvakningar
Guðmundarvöku í minningu Guð-
mundar Ingólfssonar og verða pí-
anóleikararnir John Weber og
Hans Kwakkernaat þar í hlutverki
Guðmundar. Ennfremur mun
danski píanóleikarinn Arne For-
chammer halda útgáfutónleika. Ró-
bert Þórhallsson verður með M&M
kvartett +3 á Kaffi Reykjavík og
þar á eftir Haukur Gröndal með
Rodent-flokk sinn.
Laugardagur
Fjörið hefst með norðlensku
söngkonunni Ingu Eydal og tríói í
hádegisdjass á Borginni. Stórsveit
Reykjavíkur leikur söngbók Elling-
tons undir stjórn Ole Kock Han-
sens á Nasa.
Um kvöldið eru svo stórtónleikar
með altóleikaranum og goðsögninni
Phil Woods á Nasa ásamt Birni
Thoroddsen, kanadíska bassaleik-
aranum Steve Kirby og bandaríska
trommuleikaranum Scott McLe-
more en að þeim loknum leiðir
bassaleikarinn Ólafur Stolzenwald
kvintett á Kaffi Reykjavík með tón-
smíðum eftir meistara Megas í
djassútsetningum.
Sunnudagur
Langholtskórinn flytur þá hátíða-
söngva Duke Ellingtons ásamt
Stórsveit Reykjavíkur í Langholts-
kirkju undir stjórn Ole Kock Han-
sens og Jóns Stefánssonar. Þetta
verður endurtekning á tónleikum
sem kórinn og sveitin héldu á
Jazzhátíð Egilsstaða í Eskifjarð-
arkirkju í sumar. Hátíðinni lýkur
svo með tónleikum á Broadway þar
sem Ragnheiður Gröndal syngur
með oktett sínum.
Tónlist | Senn líður að Jazzhátíð
Alþjóðlegur djass
Phil Woods hefur meðal annars
leikið með Quincy Jones, Paul Sim-
on, Thelonious Monk og Billy Joel.