Morgunblaðið - 14.08.2005, Blaðsíða 51
OWEN WILSON
GEGGJAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS
REGLA #18: ÓKEYPIS DRYKKIR, HVÍ EKKI?
REGLA
#26:
VERTU
VISS U
M AÐ
HÚN SÉ
Á LAU
SU.
Sýnd í Regnboganum kl. 3.40, 6, 8.30 og 10.50 B.i 10 ára
Sýnd í Regnboganum kl. 3.30, 6, 8.30 og 11
Sýnd í Laugarásbíói kl. 1, 3.30, 5.45, 8 og 10.15(POWER) B.i 10 ára
Sýnd í Laugarásbíó kl. 1, 3.30, 5.45, 8 og 10.15
Miðasala opnar kl. 15.00Sími 551 9000
☎553 2075
WWW. XY. IS
kl. 8 og 10.30 Sýnd kl. 5.30 B.i 10 ÁRA
Sýnd í Laugarásbíói kl. 8 og 10.15 b.i.14
-S.V. Mbl.
INNRÁSIN ER HAFIN
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 16
Sýnd kl. 4 og 6 Í þrívídd
Sýnd í Laugarásbíói kl. 1, 3 og 6 Í þrívídd
„EKTA
STÓRSLYSAMYND“
-Ó.Ö.H, DV
-KVIKMYNDIR.IS
OFURHETJURNAR
ERU MÆTTAR Í EINNI
STÆRSTU MYND ÁRSINS
ALLIR SEM KAUPA MIÐA Á
MYNDINA DAGANA
10.-15. ÁGÚST FÁ FRÍA
MÁNAÐARÁSKRIFT Á TÓNLIST.IS!!
XY FÉLAGAR FÁ MIÐANN Á
AÐEINS 600 KRÓNUR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
ÞRIÐJA STÆRSTA
OPNUN ÁRSINS Í USA
POWER
SÝNING
Í
LAUGAR
ÁSBÍÓI
Á
STÆRS
TA THX
TJALD
I
LANDSI
NS
KL 10.
15
ÝNING
Í
bíói kl
.
kl. 10.
50
boganu
m
BESTA GRÍNMYND SUMARSINS „FGG“ FBL.
* TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU400 KR. Í BÍÓ!* 400 KR. Í BÍÓ!*
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 51
FYRR á tímum voru þau nefnd þjóðlög, síðan sönglög, svo
dægurlög og nú smellir. Lögin sem standa fólkinu í land-
inu næst hverju sinni, þau sem framar öllu öðru eru
fingraför síns tíma, hinir eiginlegu þjóðsöngvar.
Fyrir tveimur árum skoðuðu tveir af annáluðustu tón-
listarmönnum þjóðarinnar, KK og
Maggi Eiríks, í kistu íslenskra smella
og fundu þar sannan fjársjóð, 22 af dáð-
ustu dægurlögum þjóðarinnar sem
uppruna sinn rekja til 5. áratugar síð-
ustu aldar. Hugmyndin að baki útgáf-
unni var að dusta rykið af nokkrum al-
kunnum rútubílasöngvum, „gömlum lummum“ sem við
vorum hætt að kunna að meta eftir að hafa sungið þau og
trallað í öll þessi ár og voru fyrir vikið sumpartinn búin að
glata gildi sínu og fegurð. Tókst þetta ætlunarverk tví-
menninganna fullkomlega; þeir gæddu hvert eitt og ein-
asta lag nýju lífi og færðu þjóðinni gersemarnar á því silf-
urfati sem þær eiga skilið.
Sama má segja um Fleiri ferðalög, nýja plötu sem sver
sig á allan hátt í ætt við 22 ferðalög; hefur að geyma 22
„gamlar lummur“, sem að þessu sinni eru frá 6. áratug síð-
ustu aldar. Líkt og fyrri platan er Fleiri ferðalög hreint
einstaklega vel heppnuð og skemmtileg plata; sumpart
betri, sumpart síðri. Upptaka og útsetningar eru t.a.m.
ennþá betur heppnaðar í nær flesta staði; hljómurinn út
kassagíturum þeirra félaga hreint einstaklega tær og fag-
ur – þökk sé hinum eldklára upptökustjóra Óskari Páli
Sveinssyni. Lagavalið er á hinn bóginn síðra – nokkuð sem
vel að merkja er þó algjörlega háð smekk hvers og eins og
hefur nákvæmlega ekkert með gæði laganna að gera.
Fleiri lög hafa þeir valið hér sem telja mætti til „létt-
vigtar“ – laufléttar dægurflugur sem eru fyrst og síðast
hressilegar en skilja lítið eftir sig sbr. „Bjössi á mjólk-
urbílnum“ og „Þú ert ungur enn“. „Kveikjum eld“ og
„Fyrr var oft í koti kátt“ eru alveg á mörkum þess að mað-
ur þoli að heyra þau oftar, meira að segja í svo fínum flutn-
ingi, en Tolli bjargar því síðara fyrir horn með skemmti-
lega kærulausum söng, soldið pönkuðum jafnvel. Sum
lögin eru svo hreinlega ekki nógu sterk til að þola svo ber-
strípaðan flutning, sbr. gamlir rokkarar á borð við „Lóa
litla á Brú“ og „Laus og liðugur“ („Sigurður er sjómað-
ur“). En á hinn bóginn eru dæmin blessunarlega mun
fleiri um lög sem þeim KK og Magga hefur tekist að gæða
nýju lífi, laða fram fegurð þeirra og gildi. Má þar nefna
yndislega einfalda og algjörlega viðeigandi sveitalega út-
gáfu af „Undir bláhimni“ og vel blúsaðan „Óla rokkara“.
Eftir að hafa lent í miklu krukki í gegnum tíðina, hipp-
arokki og öðru dúlleríi, er kærkomið að heyra „Sprengi-
sandinn“ svo nærri sinni upprunalegu mynd. Þá sýna þeir
hinum ægifallegu „Hreðavatnsvalsinum“, „Dalakofanum“
og „Dagnýju“ svo mikinn sóma að það sannast enn frekar
en oftast áður hvers vegna þau eru enn meðal dáðustu
laga þjóðarinnar.
Að lokum ber að hrósa þeim KK, Magga og Óttari Felix
útgefanda fyrir það að láta fylgja með gítargrip laganna
og leiðbeiningar og stuðla þannig enn frekar að því að þau
verði leikin áfram í ferðalögum um ókomna tíð.
Fingraför þjóðar
TÓNLIST
Íslenkar plötur
22 sígild íslensk dægurlög í flutningi Kristjáns Kristjánssonar
og Magnúsar Eiríkssonar. Kassagítar, söngur, banjó, skriðgítar
og munnharpa: KK. Gítarar og kassabassi: Magnús Eiríksson.
Upptökustjórn: Óskar Páll Sveinsson. Framleitt af Óttari Felix
Haukssyni fyrir Zonet-útgáfuna.
KK og Maggi Eiríks – Fleiri ferðalög
Morgunblaðið/Eyþór
Plata Magga Eiríks og KK, Fleiri ferðalög, er „hreint
einstaklega vel heppnuð og skemmtileg plata“.
Skarphéðinn Guðmundsson
FYRIRTÆKIÐ Market Evaluation
sérhæfir sig í að mæla vinsældir
stórstjarna sem auglýsendur, kvik-
myndagerðarmenn og fleiri nýta
sér svo við val á hvaða stjörnur best
sé að fá í lið með sér. Vinsældir
fólksins eru mældar út frá því
hversu margir kannast við viðkom-
andi og hversu margir kunna vel
við hann. Mælingarnar ná iðulega
yfir fólk víðsvegar úr skemmt-
anaiðnaðinum sem á það þó sameig-
inlegt að vera enn á lífi – þar til ný-
lega. Fyrirtækið bryddaði upp á
þeirri nýbreytni að mæla vinsældir
þeirra einstaklinga sem horfnir eru
yfir móðuna miklu.
Leikkonan Lucille Ball, sem lék
meðal annars Lucy í sjónvarpsþátt-
unum I Love Lucy, þótti fremst
meðal látinna jafningja í vinsæld-
um. Á hæla hennar fylgdu þeir Bob
Hope, John
Wayne, Jimmy
Stewart og Red
Skelton auk
þeirra Johnny
Carson og John
Ritter sem létust
nýverið.
Af þeim 169
látnu ein-
staklingum sem
teknir voru til at-
hugunar á þessu
sviði voru þeir
Robert Atkins, uppfinningamaður
Atkins-megrunarkúsins, Tupac
Shakur og Johnnie Cochran þeir
sem fengu fæst atkvæði aðspurðra.
Tom Hanks er efstur á lista yfir
vinsælustu einstaklingana í heim-
inum í dag samkvæmt mælingum
Market Evaluation.
Lucy vinsælust látinna
Lucille Ball er enn
vinsæl þó að það
séu 16 ár síðan
hún lést.