Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 53

Morgunblaðið - 14.08.2005, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 2005 53  Kvikmyndir.is  S.V. Mbl.       KRINGLAN KEFLAVÍKAKUREYRI „The Island, virkilega vel heppnuð pennumynd, skelfileg en trúleg framtíðarsýn!!“  S.U.S XFM „The Island er fyrirtaks afþreying. Ekta popp og kók sumarsmellur. “ -Þ.Þ. Fréttablaðið. l i i . ll . - . . r tt l i . kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 m/ensku.tali. kl. 1.40 - 6 - 8 - 10 m/ísl.tali. kl. 2 - 4 - 6 Sýnd bæði með íslensku og ensku tali. Þrælskemmtileg rómantísk gamanmynd um dóttur sem reynir að finna draumaprinsinn fyrir mömmuna. ÞEIR VILJA EKKI AÐ ÞÚ VITIR HVAÐ ÞÚ ERT! Hvað myndir þú gera ef þú kæmist að því að þú værir afrit af einhverjum öðrum? EWAN McGREGOR SCARLETT JOHANSSON „Island er afar vel heppnuð með góðu plotti, mæli með að þið fáið ykkur stóran popp og kók og njótið bestu myndar Michaels Bays til þessa.“ -Ragnar H. Ragnarsson Mbl. Málið  mtun fyrir alla. Herbie Bjallan sem getur allt er komin aftur og fær hin sæta Lindsay Lohan (“Freaky Friday”, “Mean Girls”) að keyra hana  Kvikmyndir.is  S.V. Mbl.  DV  Ó.H.T. RÁS 2 HERBIE FULLY LOADED kl. 12-1.05-2.10-4.20 - 6.30 - 8.40 - 10.40 THE ISLAND kl. 8 - 10.40 B.i. 16 ára. THE PERFECT MAN kl. 4.20 - 6.15 - 8 MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 12-2.10-4.20-6.15 BATMAN BEGINS kl. 10 B.i. 12 ára. HERBIE FULLY LOADED kl. 2-4-6-8 THE ISLAND kl 10.10 FANTASTIC FOUR kl 3.50-5.55-8-10 MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 2 HÁDEGISBÍÓ AR MYNDIR KL. 12 FÖSTUDAG,LAUGARDAG OG SUNNUDAG Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI HERBIE FULLY LOADED kl. 12-2-4-6-8-10 THE ISLAND kl. 8 - 10.30 MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 12-2-4-6 Í gegnum árþúsundir hafa Kínverjar þróað fullkomnar aðferðir til eflingar líkama og heilsu • Hugræn teygjuleikfimi • Tai Chi • Kung Fu - fyrir börn, unglinga og fullorðna Sérhæfð heilsumeðferð Dekur að kínverskum hætti Heilsute - gjafavörur - verkjastillandi jurtaolíur Skeifan 3 ◆ Sími 553 8282 ◆ www.heilsudrekinn.is Hóptímar Einkatímar Við hjálpum þér að ná jafnvægi milli huga og líkama Breska rokk-hljóm- sveitin Rolling Stones, sem ræðst gegn bandarískum íhaldsmönnum og stefnumálum þeirra í nýjasta lagi sínu, segir að texta nýja lagsins sé ekki beint persónulega gegn George Bush, forseta Banda- ríkjanna. „Þú kallar sjálfan þig kristinn mann, ég kalla þig hræsn- ara. Þú telur sjálfan þig föðurlands- vin, ég tel þig vera rugludall,“ er brot úr texta lagsins „Sweet Neo Con“ sem kemur út á nýjustu plötu Rolling Stones, A Bigger Bang. Í textanum er einnig minnst sér- staklega á bandaríska fyrirtækið Halliburton sem Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, var eitt sinn forstjóri hjá. Cheney er talinn hafa hagnast á stríðsrekstrinum í Írak vegna tengsla sinna við Halli- burton. „Já, það er eitthvað um ádeilu í laginu,“ sagði Mick Jagger, söngv- ari sveitarinnar, hlæjandi í viðtali á CNN-fréttastöðinni. „En laginu er ekki beint gegn Bush forseta. Það héti ekki „Sweet Neo Con“ ef svo væri,“ bætti Jagger við. „Í textanum er vissulega gagn- rýni á þá stefnu sem hann aðhyllist. Þetta byggist á rifrildi sem ég lenti í við vini mína sem eru repúblik- anar. Við rifumst um stríðið í Írak,“ sagði Jagger í viðtalinu. Ný plata Rolling Stones kemur út 6. september.    Prjónaskapur mun vera það nýj-asta nýtt á meðal stjarnanna í Hollywood og eru leikkonurnar Uma Thurman og Sarah Mich- elle Gellar m.a. sagðar hug- fangnar af þeirri iðju. Gellar hefur marglýst yfir áhuga sínum á prjónaskap og nú virðist Thurman hafa fetað í fótspor hennar þar sem hún hefur sést í prjónabúðum bæði í Los Angeles og New York að undanförnu. Þá sást hún nýlega kaupa stuttermabol með mynd af nakinni konu að prjóna. Fólk folk@mbl.is STAÐFEST hefur verið sýning á nokkrum kvikmyndum á vænt- anlegri alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík sem fram fer dagana 29. september til 9. október næstkom- andi, en enn eiga talsvert fleiri myndir eftir að bætast á listann. Í flokknum Fyrir opnu hafi er bú- ið að staðfesta pólsku kvikmyndina Mój Nikifor (Nikifor minn) en hún hlaut nýverið verðlaun á Karlovy Vary-kvikmyndahátíðinni sem besta mynd, fyrir bestu leikstjórn og bestu leikkonu í aðalhutverki. Myndin fjallar um síðustu átta árin í lífi pólska málarans Nikifors Krynickis, en hann var einn forvígismanna na- ívismans svonefnda. Ný heimildamynd um listamann af allt öðru tagi, söngvarann George Michael, verður einnig sýnd í flokkn- um. Myndin heitir George Michael: A Different Story og í henni ræðir söngvarinn um líf sitt, skúrir þess og skin, auk þess sem Mariah Carey, Noel Gallagher, Simon Cowell, El- ton John, Sting, Geri Haliwell og fleiri tjá sig um samskiptin við George í gegnum árin. Önnur heimildamynd er banda- ríska myndin Tarnation, en hún hef- ur unnið til verðlauna á alls sjö kvik- myndahátíðum um heim allan. Í myndinni skeytir leikstjórinn Jonat- han Caouette saman heima- myndböndum, ljósmyndum, sím- svaraskilaboðum og fleiru úr æsku sinni til þess að varpa ljósi á uppeldi sitt með geðklofaveikri móður. Kínverska myndin Shijie (Heim- urinn) segir frá starfsfólki í skemmtigarði rétt utan við Peking, en eitt helsta aðdráttarafl garðsins eru líkön af undrum heimsins. Kvikmyndin La Nina Santa (Heil- aga stúlkan) frá Argentínu er einnig væntanleg en hana gerði Lucrecia Martel. Myndin, sem fjallar um trú- arofstæki og kynferðismál, var til- nefnd til Gullpálmans á kvik- myndahátíðinni Cannes. Í mannréttindaflokknum, sem unninn er í samstarfi við UNIFEM og UNICEF á Íslandi, er búið að staðfesta írönsku myndina Turtles Can Fly (Skjaldbökur geta flogið) sem hlaut sérstaka viðurkenningu á Berlínarhátíðinni auk þess að hafa unnið til verðlauna á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í San Sebastian í fyrra. Myndin er ævintýraleg og skemmtileg fyrir alla fjölskylduna og segir frá börnum á landamærum Íraks og Tyrklands við upphaf inn- rásar Bandaríkjamanna. Þýska myndin Gegen Die Wand segir síðan frá tyrkneskum innflytj- endum í Þýskalandi sem hafa stofn- að til gervihjónabands til að losna við þrýsting frá ættingjum sínum. Myndin fjallar um hvernig Tyrkjum gengur að fóta sig í vestrænu sam- félagi. Myndin hefur hlotið fjölda verðlauna, m.a. gullbjörninn á kvik- myndahátíðinni í Berlín fyrr á árinu. Að lokum hefur verið staðfest að amerísk/indverska heimildamyndin Born Into Brothels verður sýnd. Við gerð þeirrar myndar fékk kvik- myndagerðarkonan Zana Briski börn vændiskvenna í Kalkútta til að taka myndir af umhverfi sínu og að- stæðum og segja þannig sína eigin sögu. Myndin hefur hlotið fjölda verðlauna, meðal annars Ósk- arsverðlaun sem besta heim- ildamyndin árið 2004 og áhorf- endaverðlaun á Sundance-kvikmyndahátíðinni. Kvikmyndir | Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík Dagskráin farin að skýrast Úr kvikmyndinni Tarnation sem sýnd verður á Kvikmyndahátíð í Reykjavík. TENGLAR .............................................. www.filmfest.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.