Morgunblaðið - 15.08.2005, Side 2
2 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LÁNUÐU 846 MILLJÓNIR
Forsvarsmenn Baugs eru ákærðir
fyrir að hafa veitt rúmlega 846 millj-
ónir króna að láni frá félaginu til
fjárfestingafélagsins Gaums, sem er
í eigu Jóhannesar Jónssonar og fjöl-
skyldu, einkahlutafélagsins Fjár-
fars, sem Jón Ásgeir Jóhannesson
rak og stjórnaði, og til Kristínar Jó-
hannesdóttur og Jóns Ásgeirs per-
sónulega. Lánin voru oft án skulda-
viðurkenninga, trygginga eða
samninga um endurgreiðslur, að því
er segir í ákæru ríkislögreglustjóra.
Ákærðu neita sök, og segja lánin
hafa verið viðskiptalegs eðlis og full-
komlega lögleg.
Flugslys í Grikklandi
Boeing 737-farþegaþota frá kýp-
verska flugfélaginu Helios Airways
hrapaði til jarðar skammt frá Aþenu
í Grikklandi í gær. Fórust allir um
borð, 115 farþegar og sex manna
áhöfn. Átti vélin að lenda í Aþenu en
nokkru áður rofnaði samband við
hana. Áður hafði flugstjórinn sagt,
að eitthvert ólag væri á loftþrýst-
ingskerfinu og SMS-skilaboð frá
einum farþeganna sögðu, að helj-
arkuldi væri í vélinni, flugmennirnir
bláir í framan og allir að deyja. Tvær
grískar herþotur voru sendar til
móts við vélina og sáu flugmennirnir
annan flugmanninn að því virtist
meðvitundarlausan og tvo menn
vera að reyna að taka við stjórninni.
Þykir slysið ráðgáta því að fari jafn-
þrýstingur af í flugvél er unnt að
nota súrefnisgrímur. Ljóst er, að
það var gert um borð í vélinni og því
hefur vaknað grunur um, að eitthvað
meira hafi komið til.
Þarf aukið fjármagn
Auka þarf fjárframlög til öldr-
unargeðlækninga þar sem um vanda
er að ræða sem þarfnast brýnnar úr-
lausnar, að mati sviðsstjóra geð-
deildar Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss. Hann segir að þessi
þáttur komi til með að vaxa enn á
komandi árum og áratugum og gera
þurfi áætlun um hvernig megi
styrkja þjónustuna og óska svo eftir
auknu rekstrarfé til stjórnvalda.
Metfjöldi atvinnuleyfa
Allt stefnir í að metfjöldi atvinnu-
leyfa verði veittur útlendingum á
þessu ári. Veittum atvinnuleyfum
fjölgaði úr 284 í júní í 571 í júlí. Alls
voru gefin út 3.750 atvinnuleyfi árið
2004, en þau eru orðin 2.644 það sem
af er þessu ári. Atvinnuleysi var um
2% í síðasta mánuði, atvinnuleysi
meðal ungs fólks hefur minnkað en
hlutfall eldra fólks aukist.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Dagbók 30/32
Vesturland 13 Myndasögur 28
Erlent 16/17 Víkverji 30
Menning 33 Staður og stund 31
Daglegt líf 14/15 Leikhús 33
Umræðan 19/24 Bíó 34/37
Bréf 22 Ljósvakar 38
Forystugrein 20 Veður 39
Minningar 25/29 Staksteinar 39
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
UPPTÖKUR á nýjustu mynd
Poppoli kvikmyndafélags standa yf-
ir um þessar mundir en að sögn
Ólafs Jóhannessonar, leikstjóra
myndarinnar, fjallar hún um
búddamunkinn Robert sem kom
hingað til lands árið 1994. Að-
spurður segir Ólafur að Robert sé
raunverulegur maður og það sé
saga hans einnig, en þó sé ekki um
heimildarmynd að ræða.
Að sögn Ólafs hefur hinn kunni
rússneski geimfari, Júrí Gagarín,
haft töluverð áhrif á líf Roberts og
var í raun og veru ástæða þess að
hann hætti að vera munkur. Þannig
„kastaði Robert kuflinum“ eftir að
hafa verið munkur í 16 ár og líf
hans tók dramatískum breytingum.
Myndin hefur enn ekki hlotið nafn
en tökum á henni lýkur innan
skamms og er áætlað að hún verði
tilbúin í byrjun næsta árs. Tónlistin
við myndina er hins vegar tilbúin
en hana vann Barði Jóhannsson.
Í einu af atriðum myndarinnar sést rússneski geimfarinn Júrí Gagarín spóka sig um á Rauðhólum.
Júrí Gagarín á Rauðhólum?
Búddamunkurinn | 36
FLEIRI félagsmenn Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur vinna fjar-
vinnu nú en fyrir ári, samkvæmt nið-
urstöðum launakönnunar félagsins.
28% þeirra sem svöruðu könnuninni
sögðust vinna fjarvinnu heima hjá
sér, en það er fimm prósentum meira
en á síðasta ári. Verulegur munur er
milli kynja- og menntahópa hvað
þetta varðar.
Kristín Sigurðardóttir, forstöðu-
maður samskipta- og þróunarsviðs
VR, segir að í langflestum tilvikum
óski starfsmenn eftir því að fá að
vinna einhvern hluta vinnunnar
heima. Hún segir að þetta sé hluti af
fjölskylduvænni stefnu á vinnustöð-
um og þarna sé verið að gefa fólki
aukinn sveigjanleika í starfi. Hún seg-
ir að almennt sé brugðist vel við slík-
um beiðnum í fyrirtækjum og fjar-
vinna sé greinilega að færast í
aukana.
Á við ýmiss konar störf
„Það er mikill skilningur á þessu,“
segir Kristín. „Það er hægt að skil-
greina ýmis verkefni hvað þetta varð-
ar og þetta tíðkast í margbreytilegum
störfum. Við sjáum þetta víða, en það
er mikið um þetta í sérhæfðum störf-
um, til dæmis í fjármálageiranum, en
eðlilega minna í beinum verslunar-
störfum.“
Tíminn sem fólk ver í fjarvinnu hef-
ur styst á milli ára. Þeir sem unnu fjar-
vinnu í fyrra gerðu það að meðaltali í
tíu klukkustundir á viku en í ár hefur
þeim fækkað í tæpar sjö klukkustund-
ir. 34% karla hafa unnið fjarvinnu sam-
kvæmt könnuninni en aðeins 22%
kvenna og fjarvinnan er algengust í
aldurshópnum 30 til 40 ára.
Þeir sem hafa lokið háskólaprófi
vinna helst heima og 59% starfs-
manna með masters- eða doktorspróf
vinna eitthvað heima. Af þeim sem
hafa lokið einhverju viðbótarnámi að
loknum framhaldsskóla hafa 28%
unnið fjarvinnu og aðeins tólf prósent
þeirra sem hafa grunnskólapróf eða
minni menntun.
Jákvætt að hafa
þak á vinnutíma
Fjarvinna fellur undir skilgreindan
dagvinnutíma og Kristín segir al-
gengast að fólk fái að vinna einhvern
ákveðinn tímafjölda heima á viku.
Hún segir að ekki hafi verið greint
sérstaklega af hverju fjarvinnutími
styttist en fleiri stundi hana, en vissu-
lega sé gott að þak sé á vinnutíma-
fjölda og að fólk vinni ekki ótakmark-
að. „Okkur finnst það jákvæð þróun
af því að eins og flestir þekkja byrjar
maður oft og ætlar bara aðeins að
vinna en svo verður það oft lengra.“
Launakönnun VR er gerð árlega
og athugar almenn kjör á vinnustöð-
um félagsmanna. Meðal þátta sem
eru skoðaðir eru vinnutími, launakjör,
hlunnindi og menntun.
„Skýrslan verður gefin út í heild
sinni um miðjan septembermánuð og
það kemur margt áhugavert fram í
henni,“ segir Kristín. „Við skoðum all-
ar atvinnugreinar og sýnum meðal
annars hverjir eru hæstir og lægstir.
Þá skoðum við kynbundinn launamun
og jafnréttismál.“
Fjarvinna er algengari meðal
karla en kvenna innan VR
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
FRAMTÍÐ R-listans ræðst að öllum
líkindum á félagsfundi Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs í
Reykjavík í kvöld. Að öllu óbreyttu
má búast við því að stjórn Vinstri
grænna í Reykjavík leggi fram til-
lögu um sjálfstætt framboð flokksins
í komandi borgarstjórnarkosning-
um. Verði sú tillaga samþykkt verða
dagar R-listans taldir að loknu þessu
kjörtímabili.
Trúnaðarsamtöl formanna
Samkvæmt heimildum blaða-
manns hafa aðstandendur R-listans
rætt óformlega sín á milli um helgina
og reynt að finna sameiginlegan flöt.
Engin tillaga til lausnar var þó kom-
in fram í gærkvöld, eftir því sem
blaðamaður komst næst. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður Sam-
fylkingarinnar, sagði í samtali við
blaðamann að hún hefði fylgst með
þróun mála um helgina. Hún kvaðst
jafnframt aðspurð hafa rætt þessi
mál við Steingrím J. Sigfússon, for-
mann Vinstri grænna, fyrir helgi.
„Samtöl okkar á milli eru trúnað-
arsamtöl,“ sagði hún, innt eftir því
hvað þeim hefði farið á milli.
Þorleifur Gunnlaugsson, varafor-
maður stjórnar VG í Reykjavík, seg-
ir að verði niðurstaða félagsfundar
VG sú að flokkurinn bjóði fram sjálf-
stætt næsta vor, ættu félagshyggju-
flokkarnir í borginni að athuga þann
möguleika að fara í komandi kosn-
ingar með fyrirheit um samstarf eft-
ir kosningar.
Framtíð R-listans
talin ráðast í kvöld
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
LANDSFLUG EHF. hefur fest
kaup á þriðju Dornier-328-flugvél-
inni sem félagið tekur í rekstur á
komandi
hausti.
Skv. upp-
lýsingum
forsvars-
manna fé-
lagsins er um
að ræða mjög hraðfleyga 32 sæta
skrúfuþotu sem er sögð henta mjög
vel við íslenskar aðstæður sem og að
sinna flugi til og frá Íslandi.
Dagsferðir á enska boltann
„Með kaupum á þriðju Dornier
328-flugvélinni hyggst Landsflug
bjóða upp á betri þjónustu á áætl-
unarleiðum sínum á Íslandi, sem í
dag eru Vestmannaeyjar, Horna-
fjörður, Sauðárkrókur, Bíldudalur
og Gjögur. Dornier-328 kemur í góð-
ar þarfir þar sem núverandi flugvél-
ar Landsflugs á Íslandi eru Dor-
nier-228, sem eru einungis 19 sæta
flugvélar. Með tilkomu Dornier 328-
vélarinnar hyggst Landsflug auka
þjónustu sína í áætlunar-, leigu- og
sjúkraflugi,“ segir í tilkynningu fé-
lagsins. Landsflug hyggst m.a. bjóða
upp á ýmsar nýjungar í ferðum út í
heim, t.d. verða farnar dagsferðir á
enska boltann í vetur.
Auka þjón-
ustu á flug-
leiðum inn-
anlands