Morgunblaðið - 15.08.2005, Side 4
4 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stökktu til
Rimini
18. eða 25. ágúst
frá kr. 29.990
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð til Rimini í ágúst. Njóttu lífsins á
þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Bókaðu sæti og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr.29.990 í viku
Verð kr.39.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í 1 eða 2 vikur. Flug,
skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri
sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Síðustu sætin
Verð kr.39.990 í viku
Verð kr.49.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/
stúdíó/íbúð í 1 eða 2 vikur. Flug,
skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
BMW-VERKSMIÐJURNAR hafa
fengið Ólaf Elíasson myndlist-
armann til að hanna svokallaðan
listabíl, „Art-Car“, og er hann sex-
tándi listamaðurinn frá upphafi sem
fenginn er til slíks, en aðrir í hópnum
eru á meðal þekktustu listamanna 20.
aldar.
Um er að ræða vetnisbíl er kallast
BMW H²R. Ólafur segir að öfugt við
fyrri listamenn, er hafi einkum málað
á tilbúna bíla, muni hann hanna um-
gjörð bílsins frá grunni.
BMW styður verkefnið
rausnarlega
„Ég fæ bara grind og vélbúnað frá
BMW, hjól og bremsur og þess hátt-
ar, en þarf síðan að hanna alla um-
gjörðina sjálfur. Þetta er ofboðslega
stórt verkefni fyrir mig, mikil vinna.
Ég hef þegar ráðið tvo menn mér til
aðstoðar og skoðaði í síðustu viku
hönnunarrannsóknarstofur BMW og
fór m.a. inn í vindgöngin þar og lét
blása um mig.
BMW styður verkefnið 100%,
leggur góðan fjárstuðning í verkefnið
og ég er með heilan hóp manna hjá
fyrirtækinu mér til aðstoðar, auk
þess að hafa fullan aðgang að tölvu-
kosti þeirra, rannsóknarstofum,
verkstæðum o.s.frv. Þeir eiga stór-
kostleg tæki sem er gaman að leika
sér með.“
Ólafur varð fyrir valinu að til-
hlutan alþjóðlegs ráðs virtra safn-
stjóra. Verður eintak af bílnum flutt
á vinnustofu Ólafs síðar í þessum
mánuði og er búist við að listamað-
urinn skili verki sínu í mars á næsta
ári. Markmiðið hjá BMW er að um sé
að ræða hugmyndabíl í aðeins einu
eintaki. Það á að sýna hann á bílasýn-
ingum í Frankfurt og Detroit og
listasöfnum víðsvegar um heiminn.
„Spurningin sem að mér snýr er
hvort ég á að gera eitthvað „kol-
brjálað“, eitthvað algjörlega afstrakt,
eða hvort ég á að gera eitthvað raun-
særra, eitthvað sem hefur hugs-
anlega notagildi,“ segir Ólafur. „Að
sumu leyti þætti mér áhugavert að
mín hönnun kæmist í fjöldafram-
leiðslu að einhverju leyti, a.m.k. að
eitthvað af hugmyndunum þróist í þá
veru, en á sama tíma verður að hafa
hugfast að ég er ekki bílahönnuður í
venjulegum skilningi og það sem ég
kann best er að gera listaverk. Ég
þarf því kannski að gæta þess að fara
ekki of langt frá því, í stað þess að
fara inn á verksvið þeirra sem hafa
þróað hefðbundna bíla í hundrað ár.“
Hann kveðst þó byrjaður að kynna
sér ýmsa þá þætti er snerta grunn-
þætti bílahönnunar, svo sem hreyf-
anleika, því þótt hönnun hans verði
væntanlega óhlutræn sé fróðlegt að
þekkja hefðbundnari útfærslur á
þessu sviði. Einnig sé afar áhugavert
að hugleiða stöðu bílsins í hinum
vestræna heimi, þar sem flest heimili
eigi eða hafi aðgang að bifreið og
flestir hafi skoðanir á bifreiðum. „Í
raun hefur bíllinn ótrúlegt pláss í
heiminum,“ segir Ólafur. „Ég er líka
byrjaður að safna að mér alls kyns
gögnum um bíla, og leikfangabílum,
og er búinn að byggja upp ágæt-
issafn af leikfangabílum síðustu mán-
uði. Allt nýtist þetta við að nálgast
verkefnið.“
Í hópi heimsfrægra listamanna
Árið 1975 tóku BMW-verksmiðj-
urnar upp á því að fá þekkta lista-
menn til að umbreyta bifreiðum eftir
eigin hugmyndum. Fyrstu árin voru
bílar sem tekið höfðu þátt í Le Mans-
kappakstrinum fræga notaðir í þessu
skyni en síðar meir bílar úr hefð-
bundinni framleiðslu BMW. Á meðal
þeirra fimmtán listamanna sem rétt
hafa BMW-verksmiðjunum hjálp-
arhönd með þessum hætti eru Frank
Stella, Roy Lichtenstein, Andy War-
hol, A.R. Penck og David Hockney.
Ólafur Elíasson hannar „listabíl“ frá grunni fyrir BMW
Þætti áhugavert að mín hönn-
un kæmist í fjöldaframleiðslu
Frank Stella myndskreytti þennan BMW-kappakstursbíl árið 1976, en
Ólafur Elíasson mun sjálfur hanna útlit bifreiðarinnar frá grunni.
SAMANLAGÐUR aldur andstæð-
inga Friðriks Ólafssonar, stórmeist-
ara í skák, í fjöltefli er fram fór í gær
var ríflega 1.000 ár, en keppendur
voru þó aðeins tuttugu og fimm tals-
ins. Skýringin á þessum háa meðal-
aldri var sú að Skáksamband Íslands
ákvað að minnast 80 ára afmælis síns
og 70 ára afmælis Friðriks með því
að halda svo kallað „afmælisfjöltefli“
í húsnæði Háskólans í Reykjavík,
þar sem Friðrik tefldi fjöltefli við
fólk er á það sameiginlegt að hafa
fyllt heilan tug á árinu.
Keppendur undir tíu ára aldri
nutu þó sérstakrar undanþágu og
var aldursbilið því 6–90 ár. Á meðal
þeirra sem freistuðu þess að bera
sigurorð af Friðriki má nefna Stein-
grím J. Sigfússon alþingismann,
Kristbjörgu Kjeld leikkonu, Gunnar
Guðbjörnsson óperusöngvara og
Magnús Skarphéðinsson, skóla-
stjóra Álfaskólans.
„Ég ætla að sigra hann!“
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, for-
seti Skáksambands Íslands, bauð öll
stórafmælisbörnin velkomin í upp-
hafi móts og benti á að samanlagður
aldur þessa „ferlíkis“ sem Friðrik
þyrfti að etja kappi við væri ansi
óárennilegur. Elsti þátttakandinn í
fjölteflinu var Anna Þorsteinsdóttir,
er varð níræð á þessu ári, og því tutt-
ugu árum eldri en stórmeistarinn.
„Ég kem hingað til að vinna Friðrik,
og væri ekki hérna nema til að gera
einhverjar gloríur,“ sagði Anna gal-
vösk í samtali við Morgunblaðið. „Ég
ætla að sigra hann!“
Hún kveðst ekki tefla mikið, hafa
fyrir mörgum árum teflt við tölvu en
í fyrra rifjaði hún upp gamla kunn-
áttu á skáknámskeiði fyrir konur við
Skákskóla Íslands. „Ég gleymdi því
nú fljótlega aftur þannig að ég byggi
aðallega á því sem ég lærði sem
krakki, það er það eina sem tollir í
manni þegar maður er orðinn svona
gamall.“
Anna kvaðst kjósa að tefla með
hvítu mönnunum og var ánægð með
að hafa þá í orrustunni gegn stór-
meistaranum. Það nægði henni þó
ekki til sigurs því Friðrik bar sigur
úr býtum í þeirri skák sem og átján
öðrum, en hann gerði sex jafntefli og
tapaði engri. Jafntefli náðu Stein-
grímur J. Sigfússon, feðgarnir Grét-
ar Áss og Sigurður Áss, Lárus Ari
Knútsson, Birgir Aðalsteinsson og
Bragi Kristjánsson.
Skáksamband Íslands minntist 80 ára afmælis síns og 70
ára afmælis Friðriks Ólafssonar með afmælisfjöltefli
Friðrik tefldi við 1.000 ár
Morgunblaðið/Árni Torfason
Friðrik Ólafsson teflir hér við einn 25 andstæðinga sinna í gær, Steingrím J. Sigfússon alþingismann, en hann var
einn sex keppenda sem náðu jafntefli gegn stórmeistaranum.
KARL Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, segir að fyrir liggi tillaga um
að Ljósavatnsprestakall verði lagt
niður og flutt til Akureyrar. Hins
vegar hafi ekki náðst samstaða um
málið og það sé því óútkláð. Sveit-
arstjórn Þingeyjarsveitar hefur
skorað á biskup að auglýsa hið
fyrsta laust til umsóknar starf sókn-
arprests í Ljósavatnsprestakalli og
tekur fram að hún geti ekki fallist á
að þar sé enginn prestur.
Ekki lakari þjónusta
„Þarna eru nokkur prestaköll á
litlu svæði sem eru öll frekar fá-
menn. Kirkjan hefur takmörkuð
ráð á stöðugildum, samkvæmt
samningi við ríkisvaldið, og Kirkju-
þing hefur markað þá stefnu að
þegar losni prestsembætti í presta-
kalli með undir 500 íbúum skuli at-
hugað hvort rétt sé að sameina það
öðru prestakalli. Þetta er gert til
hagræðingar.“
Karl segir að brotthvarf prests úr
sókninni þurfi ekki að þýða lakari
þjónustu við sóknarbörnin, þar eð
henni sé vel sinnt frá Háls-
prestakalli. „Þar hefur fengist við-
bótarþjónusta héraðsprests, þannig
að þjónustan við sóknarbörnin er
síst minni. Þá hefur guðfræðingur
verið að störfum við Þorgeirskirkju
á Ljósavatni sumar, með tilstilli
kristnisjóðs.“
Biskup segir að erindi sveit-
arstjórnar Þingeyjarsveitar verði
svarað með formlegum hætti innan
skamms, en of snemmt sé að segja
til um hvort til greina komi að ráða
nýjan prest til starfa.
Ekki samstaða um
Ljósavatnsprestakall
PÁLMI Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Smáralindar, segir að fullyrð-
ingar Helga Njálssonar, eiganda
verslunarinnar Ralph Lauren, um
Smáralindina í Morgunblaðinu í
gær, standist ekki nánari skoðun.
Fram kom í frétt
Morgunblaðsins
að Helgi hefði
hætt rekstri
verslunarinnar
Ralph Lauren í
Smáralindinni,
rúmum níu mán-
uðum eftir að hún
var þar opnuð.
Pálmi segir að
verslunarrekstur
Ralph Lauren í
Smáralindinni hafi verið sorgarsaga
frá upphafi til enda. Allt hafi brugð-
ist sem brugðist gat. Innréttingar
hafi t.d. ekki verið samboðnar al-
vöru verslun frá umræddu vöru-
merki, þjónustan í versluninni hafi
verið langt undir því að vera sam-
boðin vörunni, fagmennskan hafi
verið engin og vöruúrval lítið. Þrátt
fyrir þetta hafi vöruverð í versl-
uninni verið mjög hátt.
Pálmi segir að Helgi geti því ekki
tekið reksturinn og gert hann að
mælikvarða fyrir Smáralindina í
heild. Pálmi nefnir sem dæmi að
meðalfermetrasala Helga þá níu
nánuði sem verslunin var starfrækt
hafi verið 25% af meðalfermetrasölu
annarra fata- og tískuvöruverslana í
Smáralindinni. „Salan í þessari til-
teknu verslun var því einn fjórði af
meðalsölunni í þessu húsi,“ segir
Pálmi og bætir því við að ljóst sé af
þeim tölum að eitthvað meira en lít-
ið hafi farið úrskeiðis í rekstri um-
ræddrar verslunar.
Pálmi segir að fimm ára leigu-
samningi við Helga hafi því verið
slitið í apríl sl. og að samkomulag
hafi verið gert um að versluninni
yrði lokað um mánaðamótin júlí og
ágúst. Það hafi gengið eftir. Að
sögn Pálma er ráðgert að tísku-
verslunin Oasis verði innan tíðar
opnuð í þessu sama verslunarrými.
Ber saman epli og appelsínur
Helgi gagnrýndi einnig leiguverð
í Smáralindinni og sagði það mun
hærra en leiguverð í Kringlunni.
Pálmi segir að Helgi sé í raun að
bera saman epli og appelsínur.
Hann sé að bera saman eitt best
staðsetta verslunarrýmið í Smára-
lind við einn lakasta staðinn í
Kringlunni. Það sé algjör fásinna að
bera saman svo ólíka hluti.
Samkvæmt upplýsingum frá
Pálma er áætlaður heildarfjöldi
gesta í Smáralindinni um 4,3 millj-
ónir í ár. Um 70 til 80 aðilar séu
með rekstur í verslunarmiðstöðinni
og frá því hún var opnuð í október
2001 hafi rúmlega tuttugu aðilar
hætti rekstri. Á sama tíma hafi ver-
ið gerðir um fjörutíu nýir leigu-
samningar.
Rekstur Ralph
Lauren sorgarsaga
Pálmi
Kristinsson