Morgunblaðið - 15.08.2005, Page 7

Morgunblaðið - 15.08.2005, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 7 FRÉTTIR w w w . o p t i c a l s t u d i o . i s Acuvue linsur frá Linsurnr. 1 á Íslandií dag! Engey RE hefur aflað fyrir um 300 milljónir kr. AFLAVERÐMÆTI Engeyjar RE 1, stærsta skips íslenska flotans, er um 300 milljónir króna, nú þegar annar túr skipsins er u.þ.b. hálfnað- ur og segir Eggert B. Guðmunds- son, forstjóri HB Granda, útgerðar skipsins, að veiði hafi verið góð. „Það er líka einstaklega ánægjulegt að við höfum margfaldað verðmæti síldarinnar, bæði með því að frysta hana til manneldis og bræða hratið sem til fellur úti á sjó,“ segir Egg- ert. Skipið er nú í sinni annarri veiði- ferð, frá því útgerð þess hófst hér- lendis, og er hún ríflega hálfnuð. Aflaverðmætið er til þessa komið í um 130 milljónir króna en í fyrri veiðiferðinni náði verðmætið um 160 milljónum króna. „Þetta er í samræmi við vænt- ingar okkar og mjög viðunandi. Auðvitað gengur veiðin upp og nið- ur og hún mætti vera stöðugri en þetta eru fyrstu túrarnir á nýju skipi með nýrri vinnslu um borð, og ég held að það þætti í frásögur fær- andi ef vinnsla í landi væri komin á fullan skrið á þessum tíma. Skip og áhöfn hafa staðið sig með prýði.“ Skipið er að veiðum í grennd við Jan Mayen og er úthaldið rétt um mánuður. Morgunblaðið/Alfons Kjölurinn brotnaði í briminu við Vík KJARTAN Hauksson, sem rær hringinn í kringum landið til styrkt- ar hjálparliðasjóði Sjálfsbjargar, er nú kominn á Stokkseyri þar sem hann hefur unnið að því að gera við kjölinn á bát sínum áður en hann heldur áfram ferð sinni, en hann reiknar með að halda áfram í dag og róa til Grindavíkur, ef veður leyfir. „Hann brotnaði aftur hjá mér kjölurinn að aftan, svo ég er að gera við hann,“ segir Kjartan. „Þetta gerðist í briminu hjá Vík. Báturinn er tvöfaldur svo það lak bara inn í hann og hann varð þyngri. Af því hann er tvöfaldur með flotum inni í get ég róið þótt hann fyllist, en hann verður bara mjög þungur.“ Kjartan segir það drauminn að koma til Reykjavíkur fyrir menning- arnótt, en veður ráði miklu um hvort það tekst. Þar sem leið liggur fyrir Reykjanesið er ekki víst að hagstæð skilyrði náist fyrir allri ferðinni í einu, þótt Kjartan segist hafa þrek í það, og því líklegt að hann reyni að taka stutta róðra í Garð eða Sand- gerði áður en hann leggur af stað í lokahluta ferðarinnar, sem leið ligg- ur til Reykjavíkur. NÁLÆGT tvö þúsund manns höfðu í gær ritað nafn sitt undir áskorun Félags íslenskra bifreiða- eigenda (FÍB) til stjórnvalda um að lækka skatta á eldsneyti. Und- irskriftasöfnun hófst fyrir helgi á vef félagsins, fib.is, að sögn Run- ólfs Ólafssonar, framkvæmda- stjóra FÍB. Runólfur segir að FÍB hafi sent fjármálaráðherra erindi fyrir um það bil mánuði þar sem stjórnvöld voru hvött til þess að draga úr sköttum á eldsneyti vegna mikillar hækkunar olíuverðs á heimsmark- aði. „Bensín og olía eru meðal þeirra vara sem bera hæstu skatta hér á landi,“ segir hann. „Sú þróun sem hefur átt sér stað, það sem af er þessu ári, þýðir hundruð millj- óna kr. aukatekjur fyrir ríkissjóð.“ Runólfur segir að eldsneyti sé stór útgjaldaliður heimilanna og að verðhækkanir hafi því áhrif á af- komu þeirra. Það sé því eðlilegt að stjórnvöld grípi inn í við aðstæður eins og þessar. Auk þess sé for- dæmi fyrir inngripi stjórnvalda í þessa veru, m.a. í tíð núverandi ríkisstjórnar. Aðspurður segir Runólfur að undirskriftasöfnunin muni líklega standa yfir í viku til tíu daga. FÍB safnar undirskriftum Stjórnvöld dragi úr sköttum á eldsneyti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.