Morgunblaðið - 15.08.2005, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 9
FRÉTTIR
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Stórútsala
Yfirhafnir í úrvali
Mörg góð tilboð
Stuttkápur
Heilsársúlpur
Jakkar
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl. 11-16
20-50%
afslátt
ur
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR TIL SÖLU
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Hef sérhæft mig í sölu á lóðum og öðru
tengdu byggingarrétti. Til mín hafa leitað aðil-
ar sem hafa til sölu nýbyggingarlóðir/bygging-
arrétt ásamt atvinnuhúsnæði og gistihúsum í
fullum rekstri á höfuðborgarsvæðinu. Ég óska
einnig eftir eignum til niðurrifs. Áhugasamir
vinsamlega hafið samband og ég mun fúslega
veita nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum:
Útdráttur
húsbréfa
Húsbréf
Koma þessi bréf til innlausnar 15. október 2005.
1. flokki 1991 – 55. útdráttur
3. flokki 1991 – 52. útdráttur
1. flokki 1992 – 51. útdráttur
2. flokki 1992 – 50. útdráttur
1. flokki 1993 – 46. útdráttur
3. flokki 1993 – 44. útdráttur
1. flokki 1994 – 43. útdráttur
1. flokki 1995 – 40. útdráttur
1. flokki 1996 – 37. útdráttur
3. flokki 1996 – 37. útdráttur
Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 www.ils.is
Öll númerin verða birt í Lögbirtingablaðinu.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér
að ofan birt í DV, mánudaginn 15. ágúst.
Upplýsingar um útdregin húsbréf má finna á heimasíðu
Íbúðalánasjóðs: www.ils.is.
Stykkishólmur | Bæjarhátíð Hólmara,
Danskir dagar, voru haldnir í 12.
sinn um helgina. Gestum á hátíðina
hefur fjölgað árlega og er talið að
aldrei fleiri gestir hafi gist Stykk-
ishólm en nú. Talið er að um 10.000
gestir hafi verið hér samankomnir á
laugardag. Vegateljarar sýndu að
um 2.000 bílar hafi komið yfir Vatna-
leið á föstudaginn. Hver lófastór
grasblettur var nýttur af gestum til
að reisa tjöld og fellihýsi.
Hátíðin hófst á föstudagskvöldið
með hverfagrilli. Þar söfnuðust
heimamenn saman með sínum gest-
um og buðu til veislu. Mikil sam-
keppni var á milli hverfa um
skemmtilegustu skreytinguna og
verðlaun hlaut Ásklifið. Samkeppnin
leiddi til þess að bærinn var mikið
skreyttur og dönsk áhrif voru
greinilega áberandi
Á laugardag var fjölbreytt dag-
skrá víða um bæinn. Mesta athygli
vakti heimsókn Danans og Evr-
óvisjónsöngvarans Jakobs Sveist-
rup. Hann kom gagngert til Stykk-
ishólms til að taka þátt í Dönskum
dögum og skemmta gestum með
söng. Lionsmenn voru á sínum stað
með sína Aktion, þar sem margir
nytjahlutir lentu í höndum nýrra
eiganda.
Á laugardagskvöld var bryggju-
ball sem lauk um miðnætti með
glæsilegri flugeldasýningu hjá
björgunarsveitinni Berserkjum.
Á sunnudag messaði Elínborg
Sturludóttir í gömlu kirkjunni og fór
messan fram á dönsku. Það féll í
góðan jarðveg hjá Hólmurum, enda
hafa þeir ekki átt í vandræðum með
að skilja dönskuna, allavega ekki á
sunnudögum.
Þrátt fyrir þennan mikla mann-
fjölda sem dvaldi í Hólminum um
helgina fór allt mjög friðsamlega og
virtust gestir og heimamenn vera
komnir á Danska daga í þeim til-
gangi að skemmta sér og njóta þess
sem var í boði og það tókst vel.
Ljósmynd/Gunnlaugur Árnason
Fjölbreytt dagskrá var víða um bæinn á meðan á hátíðarhöldunum stóð.
Margir nutu Danskra
daga í Hólminum
Ólafur Sighvatsson og Gestur H. Kristinsson voru í hátíðarskapi.
Talið er að aldrei hafi fleiri gestir gist Stykkishólm en nú.
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
veita strætisvögnum frekari for-
gang í umferðinni með sérakreinum
eftir Lækjargötu.
Strætóakrein verður frá gatna-
mótum Hafnarstrætis og Lækjar-
götu suður að Austurstræti og frá
Bókhlöðustíg norður að Hverfis-
götu.
Eins og áður hefur verið greint
frá munu strætisvagnar einnig aka
eftir sérstökum forgangsakreinum
eftir Miklubraut, frá Kringlunni og
vestur fyrir Stakkahlíð.
Lögreglustjórinn í Reykjavík hef-
ur þó endanlegt ákvörðunarvald í
þessum efnum en ætla má að for-
gangsakreinarnar geti stytt ferða-
tíma strætisvagna enn frekar.
Strætó fái
sérakrein
í Lækjar-
götu
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111