Morgunblaðið - 15.08.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.08.2005, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Umræðan á morgun  Daglegt málþing þjóðarinnar FYRRVERANDI nemendur í Tækniháskóla Íslands, sem hefja nám í Háskólanum í Reykjavík í haust í kjölfar sameiningar skól- anna, fengu sendan greiðsluseðil í síðasta mánuði þar sem þeir voru rukkaðir um skólagjöld upp á 49 þúsund krónur fyrir veturinn. Samkvæmt upplýsingum frá HR sundurliðast upphæðin þannig að annars vegar er um að ræða 45.000 krónur, sem er það skrásetningar- gjald sem nemendur greiða í ríkishá- skólum hér á landi, og hins vegar 4.000 króna pappírsgjald, sem Tækniháskólinn hafði innheimt af nemendum sínum. Gjöldin ekki hækkuð í THÍ Einhverjum brá nokkuð í brún við þetta enda hafði nemendum Tækniháskólans verið heitið því að þeir yrðu áfram ríkisháskólanem- endur þrátt fyrir sameininguna og myndu halda áfram námi sínu á sömu forsendum og þau hófu það. Skrásetningargjöld í Tækniháskól- anum voru ekki hækkuð á sama tíma og gjöld í öðrum ríkisháskólum í des- ember í fyrra en þá var gjaldið hækkað úr 32.500 í 45.000 krónur með sérstakri lagabreytingu á lög- um um Háskóla Íslands, Kennarahá- skólann og Háskólann á Akureyri en samsvarandi breyting var ekki gerð á lögum um Tækniháskólann. Ástæða þess var að til stóð að sam- eina hann Háskólanum í Reykjavík og fella lög um skólann úr gildi. Í lögum um Tækniháskólann var því ákvæði um gjaldheimtu óbreytt, þannig að upphæðin var 32.500 krónur allt þar til að lög um skólann voru felld úr gildi með lögum 11/ 2005. Í þeim lögum segir að nem- endur skólans eigi rétt á að ljúka námi sínu „samkvæmt því náms- skipulagi sem í gildi er við skólann miðað við gildandi reglur um náms- framvindu“ og í greinargerð segir auk þess að nemendur eigi rétt á að ljúka námi á sömu forsendum. Spurningin er því hvaða skilning megi leggja í þetta orðalag, þ.e. hvort nemendur hafi átt að sjá það fyrir að gjaldhækkanir í öðrum skól- um myndu ná til þeirra líka, þó lög- um um Tækniháskólann hafi ekki verið breytt. Í greinargerðinni segir ennfremur að óheimilt sé að innheimta skóla- gjöld af þeim nemendum sem færa sig yfir í HR. Þrátt fyrir þessi skýru fyrirmæli fengu allir þeir nemendur sem fóru úr Tækniháskólanum og yfir í Háskólann í Reykjavík rukkun fyrir „skólagjöldum“ upp á 49 þús- und krónur. Þess má geta að aðrir nemendur HR en þeir sem koma beint úr Tækniháskólanum greiða 99 þúsund krónur í skólagjöld fyrir hverja önn, eða 198 þúsund krónur fyrir skólaárið. Tók til allra ríkisháskóla Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor HR, segir að skólinn hafi tekið ákvörðun um að nemendur úr Tækniháskólanum fái að njóta sömu kjara og aðrir ríkisháskólanemar. „Það er alveg ljóst að Alþingi ákvað að hækka skólagjöld, eða svo- nefnd skrásetningargjöld, í fyrra og það gildir auðvitað fyrir alla ríkishá- skólana. Við lofuðum okkar nemend- um að innheimta ekki þessi reglu- bundnu skólagjöld sem HR hefur verið að innheimta af sínum nem- endum heldur fengu þeir að njóta þeirra kjara sem ríkisháskólarnir hafa. Þessi bindandi hækkun varð í desember í fyrra þannig að ég ímynda mér að viðkomandi nemend- ur hafi getað gengið að því að þetta yrði talan,“ segir Guðfinna. Þarf ekki lagaheimild Steingrímur Sigurgeirsson, að- stoðarmaður menntamálaráðherra, segir að ástæða þess að skrásetning- argjöld í Tækniháskólanum hafi ekki verið hækkuð á sama tíma og í öðr- um skólum vera þá að leggja átti skólann niður og sameina hann Há- skólanum í Reykjavík. Við samein- inguna hafi nemendur Tækniháskól- ans orðið að nemendum hins nýja sameinaða skóla, sem sé einkaskóli og þar af leiðandi ekki bundinn af lögum varðandi ákvörðun slíkra gjalda. Hann segir heimildir ríkishá- skólanna vera bundnar í lög en hins vegar þurfi sjálfstæðir háskólar ekki sérstakar lagaheimildir vegna gjald- töku sinnar. Steingrímur segir það vera hár- toganir að halda því fram að hækka hefði þurft skrásetningargjöldin sér- staklega í Tækniháskólanum á sín- um tíma, enda greiði fyrrum nem- endur Tækniháskólans sömu gjöld og ef skólinn hefði verið starfræktur áfram. Rukkaðir um hækkun skrásetningargjalds Gjaldið hafði ekki verið hækkað í lögum um THÍ Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Nýr sameinaður skóli Tækniháskólans og Háskólans í Reykjavík tekur til starfa á næstu vikum. NAUTAKJÖT fæst vart orðið í Bón- usi og innlendur markaður annar ekki eftirspurn. Þetta segir Guð- mundur Marteinsson, framkvæmda- stjóri Bónuss, og gagnrýnir ákvörð- un Guðna Ágústssonar, landbúnaðarráðherra, að hafna beiðni um innflutning á kjöti frá Arg- entínu. „Við erum óhress með að svona innflutningur sé bannaður meðan ís- lenska framleiðslan annar ekki eft- irspurn,“ segir Guðmundur og bætir við að neytendur líði fyrir skortinn á nautakjöti enda hafi verðið hækkað um tugi prósenta. „Við höfum þurft að selja nauta- hakk á 1.300 krónur kílóið en það ætti alls ekki að fara yfir þúsund krónur.“ Guðmundur segir að Bónusversl- anirnar séu langt frá því að fá inn það magn nautakjöts sem þær þurfa. „Mér finnst mjög skrítið að innflytj- endur fái ekki að flytja inn kjöt á þessum tíma og þegar forsendurnar eru þessar,“ segir Guðmundur. Nánast nautakjöts- laust í Bónusi „ÞETTA mál er afgreitt af minni hálfu,“ segir Guðni Ágústsson, land- búnaðarráðherra, um bann við inn- flutningi á kjöti frá Argentínu vegna hættu á gin- og klaufaveiki. Kjötframleiðendur ehf., hafa óskað eftir að flytja inn nautakjöt frá Arg- entínu. Samkvæmt lögum er það landbúnaðarráðherra að ákveða hvort flytja megi inn ákveðnar vörur að fengnum meðmælum yfirdýra- læknis. Í þessu tilfelli veitti yfirdýra- læknir jákvæða umsögn á þeim grundvelli að gin- og klaufaveiki hafi ekki greinst í Argentínu í tvö ár og að umrætt kjöt komi frá svæði þar sem hefur verið laust við gin- og klaufa- veiki. Þurfum að vera hörð Guðni segir aftur á móti að hingað til hafi ekki verið horft til ólíkra svæða í löndum heldur til landanna í heild. „Í Argentínu er verið að bólusetja við gin- og klaufaveiki og hún hefur verið viðvarandi vandamál. Það væri gífurlegt áfall fyrir íslenska þjóðarbú- ið ef hingað bærist gin- og klaufa- veiki. Við þurfum að vera harðari en nokkur önnur þjóð enda erum við með viðkvæma búfjárstofna,“ segir Guðni og bætir við að Íslendingar hafi aldrei flutt inn kjöt frá S-Ameríku. „Argentína er okkur mjög fjarlægt land sem við vitum ekki mikið um. Það er því mikilvægt að fara miklu betur yfir þetta.“ Guðni bendir á að eftir sem áður sé innflutningur á nautakjöti frá ýmsum öðrum löndum leyfilegur. „Það er ekki verið að stoppa innflutning á nautakjöti yfir- leitt. Við getum flutt inn frá ýmsum löndum sem við höfum þróað traust viðskiptasambönd við,“ segir Guðni og tekur Nýja-Sjáland sem dæmi. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra Bann við innflutningi frá Argentínu stendur Morgunblaðið/Skapti Nautakjöt hefur hækkað í verði undanfarið vegna skorts á kjöti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.