Morgunblaðið - 15.08.2005, Side 12

Morgunblaðið - 15.08.2005, Side 12
12 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Reynt er að efla einstaklinginn, af þvíþarfagreining leiddi í ljós að hjá al-mennum starfsmönnum í verslun er sjálfstraustið í lægri kantinum. Maður sér það hjá nemendum okkar að þau hafa mikla hæfni en eiga það til að vantreysta sér. Í þessu námi styrkjast þau í því að þau séu að gera rétt og verða ánægðari auk þess sem sjálfstraustið eykst,“ segir Hildur Friðriksdóttir, en hún er verkefnisstjóri verslunarfagnáms við Verzl- unarskóla Íslands. „Forsvarsmenn innan stórra verslanakeðja leituðu til Samtaka verslunar og þjónustu til að koma á fót einhverri fræðslu fyrir starfs- fólk sitt. Þó svo þessar keðjur hafi starfrækt nokkurs konar skóla, vildu þær þéttari fræðslu,“ segir Hildur sem bendir á að VR hafi einnig haft aðkomu að verkefninu. „Fræðslumiðstöð atvinnulífsins gerði síðan víðtæka þarfagreiningu innan lands sem ut- an. Þær Sigrún Jóhannesdóttir og Guðmunda Kristinsdóttir unnu gífurlega gott starf en þær undirbjuggu verslunarfagnámið og voru óhræddar við að byggja það upp á annan hátt en hefðbundið skólanám. Þær skiptu náminu upp í fjögur svið; þ.e.a.s. verslunarfærni, al- menna undirstöðufærni, persónufærni og sérstaka færni.“ Áhersla á huglæga þætti Hildur segir námið ekki byggt á prófum, heldur sé um símat og verkefnavinnu að ræða og sinni nemendurnir störfum í verslunum meðfram náminu. „Nýtt í þessu námi er að áhersla er lögð á huglæga þætti sem erfitt er að meta, s.s. þjónustulund, færni í sam- skiptum og frumkvæði. Þannig nefnast fögin í persónulegri færni heitum á borð við Sjálfs- þekkingu, Samvinnu og Sveigjanleika.“ Þegar talið berst aftur að þarfagreining- unni, tekur Hildur dæmi úr auglýsinga- herferð VR, þar sem þreytt fólk er að kaupa inn að loknum vinnudegi. „Það finnur ekki akkúrat það sem vantar, það er mikið að gera og svo framvegis. Svo kemur það á kassann og fær þá kannski útrás fyrir allt ergelsi sitt með því að hella sér yfir starfsmanninn. Ef hann fær alltaf það viðmót að hann sé einskis virði, þá verður sjálfstraustið ekki gott.“ Í verslunarfærni er farið í hugmyndafræði, fjármál, vinnustaðinn, vinnubrögð, við- skiptavini og vörur. „Hugmyndafræðin teng- ir t.d. við það hvers virði verslunin er í þjóð- félaginu sem hún er svo stór hluti af. Í fjármálum er farið yfir algeng hugtök á borð við veltuhraða, rýrnun, framlegð o.s.frv. og farið yfir faglega þætti eins og hvað þarf að gera til að búa til góðan vinnustað.“ Ennfremur er farið í verslunarreikning, tjáningu, framkomu og fleira. Í síðustu lot- unni vinna nemendurnir verkefni sem nær yf- ir fimm vikur. Það er unnið í samvinnu við vinnuveitanda og hugsað sem hagnýtt verkefni sem nýtist vinnustaðnum. „En nú þegar, í fyrstu lotunni, unnu nemendurnir verkefni um nýliða- fræðslu sem ég veit að hafa nýst inni í þessum stóru fyrirtækjum. Svo þau eru strax farin að hafa áhrif innan eigin fyrirtækja.“ Áhersla er lögð á mikla tengingu milli skóla og vinnustaðar, að sögn Hildar. „Hver nemandi hefur starfsþjálfa innan fyrirtæk- isins, leiðbeinanda sem er þá kennari hans á vinnustaðnum og metur frammistöðuna í hverri lotu.“ Metið til eininga Hildur minnir á að námið sé metið til ein- inga. Þær fáist þó ekki allar metnar beint inn í stúdentspróf heldur sé um að ræða sérhæft starfsnám sem gefi 51 einingu. Annað verkefni sem ýtt verður úr vör í haust og Hildur byggir einnig upp, er þjón- ustu- og styrkingarnámskeið fyrir versl- unarfólk. „Þar verður lögð áhersla á sjálfsþekkingu og persónufærni, að byggja upp þessa þætti sem gera fólk að betri starfsmönnum. Annar þáttur er þjónusta, framkoma og viðhorf og að lokum er farið yfir vinnustaðinn sjálfan. Námskeiðið tekur alls 20 stundir og verður haldið fjórum sinnum. Eitt þeirra verður sér- staklega fyrir konur á besta aldri!“ Nýr hópur í haust Hildur vekur athygli á því að nýr hópur nema verður tekinn inn í haust. Sá hópur hef- ur nám í janúar 2006 en byrjað er að taka við umsóknum og rennur umsóknarfrestur út 30. september nk. Inntökureglur er að finna á heimasíðu Verzlunarskólans, www.verslo.is Hildur Friðriksdóttir „Átta sig ekki á eigin hæfni“ Maður er að vinna í verslun og villgera það almennilega. Okkurbauðst að taka verslunarfagnámið hjá 10–11 og hljómaði spennandi,“ segir Kristín Benediktsdóttir sem varð versl- unarstjóri í 10–11 í Staðarbergi eftir að hún hóf verslunarfagnámið. „Námið hefur verið mjög skemmtilegt og áhugavert. Ég er farin að sinna starfinu á meðvitaðri hátt en áður, legg meira upp úr betri þjónustulund og hugsa meira um við- skiptavininn.“ Hvað myndirðu segja að væri það besta við námið? „Áherslan á persónulega uppbyggingu er jákvæð. Maður lærir að koma fram og tala við fólk, ennfremur að stjórna. Mjög mik- ilvægir þættir í þessu starfi,“ segir Kristín sem telur ríka þjónustulund og hæfni í mann- legum samskiptum með mikilvægustu þáttum í sínu starfi. En hvernig gekk að samþætta nám og vinnu? „Mín upplifun var góð, þetta var ekkert mál. Mikið tillit var tekið til okkar frá 10–11 og við fengum okkar tíma til að sinna heima- námi og verkefnum.“ Hvers vegna starfar þú sem versl- unarmaður? „Eiginlega af því bara. Ég byrjaði að vinna í verslun með skóla, hætti svo í skóla og eign- aðist barn. Nú er kærastinn í skóla og ég vinn á meðan. En mér finnst þetta gaman og þetta vil ég vinna við í dag.“ Hvað með góðar og slæmar hliðar starfs- ins. Hvernig er góður dagur og mjög slæmur dagur í þínu starfi? „Eru ekki bara allir dagar góðir? En það versta sem getur komið fyrir eru líklega erf- iðir viðskiptavinir,“ segir Kristín. Kristín Benediktsdóttir Finnst gaman í vinnunni „EF ÞÚ sýnir ekki meiri metnað þá endar þú á kassanum í Bónus.“ Þarf semsagt ekki metnað til að sinna verslunarstörfum? Ríkjandi viðhorf virðast hafa verið á þá leið að störf í verslunum krefjist lítils af þeim sem störfunum sinna. Þarfa- greining fyrir verslunarfagnám sýndi fram á að fólk sem sinnir versl- unarstörfum skortir sjálfstraust og ber litla virðingu fyrir starfi sínu. Sumir stórmarkaðir eru braut- arstöðvar þar sem nýtt starfsfólk streymir stöðugt í gegn. Það gæti þó verið að breytast vegna vitund- arvakningar um gildi fagmennsku og menntunar í verslunarstörfum. Ýmsir möguleikar á menntun til starfsgreinarinnar eru nú í boði og fljótlega mun framboð á námsleiðum til verslunarstarfa aukast. Ýmis námskeið í endur- eða símenntun eru í boði, þ.á m. við Háskólann í Reykjavík. Nefna má fjarnám í verslunarstjórnun á Bifröst sem fékk Starfsmenntaverðlaunin 2004. Þar er í undirbúningi nám á há- skólastigi fyrir stjórnendur í versl- unarfyrirtækjum. Í Verzlunarskól- anum á sér stað blómlegt þróunarstarf en þar fara af stað í haust þjónustu- og styrking- arnámskeið fyrir verslunarfólk. Í vor lauk svo fyrstu lotu af þremur í svokölluðu verslunarfagnámi sem er tilraunaverkefni til þriggja ára. Gegnumstreymið stöðvað Sigurður Jónsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að samtökin hafi sett á fót menntahóp fyrir tveimur árum, eftir að nokkur stór fyrirtæki leituðu til samtakanna. „Út úr því kom verslunarstjóra- námið sem er tveggja ára fjarnám í Viðskiptaháskólanum á Bifröst og endar með diplómu. Þetta hefur gef- ist vel og verið eftirsótt. Námið er fyrir fólk sem starfar í verslun, ann- aðhvort verslunarstjórar eða verð- andi verslunarstjórar. Það gerir samning við fyrirtækið um að starfa í versluninni og stunda námið sam- tímis.“ Haldið var áfram að greina þörfina og kom m.a. í ljós að einungis um 40% þeirra sem starfa í verslun eru með framhaldsmenntun og því 60% sem ekki hafa lokið framhalds- skóla. „Líka lá ljóst fyrir miðað við mikla starfsmannaveltu að eitthvað varð að gera til að bæta þjónustuna og framlegðina í versluninni og stoppa þetta gegnum-streymi sem var gífurlega mikið. Sumar búðir hafa verið eins og járnbraut- arstöðvar,“ segir Sigurður. Menntaðir verslunarfræðingar Þá varð til verslunarfagnámið við Verzlunarskólann, sem er þriggja ára tilraunanám. „Við vonumst til þess að menntaðir verslunarfræð- ingar komi inn í búðirnar til að bæta þjónustu og rekstur verslananna.“ Ekki var látið staðar numið heldur haldið áfram að velta vöngum um hvað mætti gera. „Í fyrra var sett á fót rannsóknarsetur verslunarinnar af SVÞ, viðskiptaráðuneytinu og stærstu fyrirtækjunum og ákveðið að vista í Viðskiptaháskólanum á Bifröst, þar sem fyrir eru nú þegar Vitundarvakning um gildi fagmennsku og menntunar í verslunarstörfum „Ætlar þú að enda á kassanum í Bónus?“ Verslun er atferli sem er manninum eðlislægt. Miklu skiptir að fólk sem starfar við verslun sé hæft til sinna starfa, en vaxandi meðvitund um það sýnir sig í uppbyggingu á námsleiðum, m.a. nýju verslunarfagnámi við Verzlunarskóla Íslands. Anna Pála Sverrisdóttir kannaði málið. Ég lít þetta nám mjög björtum augumog hef miklar væntingar til þess,“segir Sigurgeir H. Garðarsson, versl- unarstjóri í 10–11, en hann er starfsþjálfi þriggja nemenda í verslunarnáminu. „Mín reynsla af náminu er mjög góð og gríðarlega vel að náminu staðið af hálfu skipuleggjenda og opnað þarna fyrir óend- anlega möguleika. Öllum spurningum sem vakna er svarað. Maður tekur auðvitað tillit til þess að um er að ræða tilraunaverkefni í þróun en fyrsta lotan sem nú er búin var glæsileg. Tveir af þremur nemendum eru orðnir verslunarstjórar í dag og ná að nýta sér námsefnið til fullnustu. Fyrst og fremst hefur það skilað auknu öryggi á vinnustað og í öðru lagi meiri persónulegri færni.“ En hefur ekkert verið pirrandi að hafa fólkið upptekið við nám sem fer fram á vinnutíma? „Jú, það fer auðvitað mikill tími í námið en þetta er engu að síður spennandi og vinnur svo á móti hvað maður fær út úr þessu. Ég sem starfsþjálfi alveg eins og nemendurnir, þetta kemur til með að nýtast vel því ég hef fengið góða innsýn í verkefni og námið. Ég er verslunarstjóri í tólf manna verslun og næ að nýta þessa þekkingu á mína ellefu starfs- menn. Þannig að þetta kemur vel til góða,“ segir Sigurgeir sem sjálfur stundar fjarnám í verslunarstjórnun við á Bifröst. Finnur Sigurgeir fyrir fordómum í garð verslunarfólks? „Ég hef allt aðra sýn á það, ég sé í gegnum þetta. Það var gerð þarfagreining á námi í verslun á Íslandi og sú greining leiddi í ljós mjög mikinn skort á virðingu fyrir eigin starfi í verslun, miðað við á Norðurlöndum. Þar er meiri menntun í boði og raunhæfari kostur að þróa starfsferil í verslunarrekstri. En maður finnur vissulega fyrir því að ekki þykir fínt að vinna á kassa í búð.“ Sigurgeir bætir því við að án efa hafi allir nemendurnir öðlast meiri virðingu fyrir sjálf- um sér. „Ég mæli hiklaust með þessu námi.“ Sigurgeir H. Garðarsson Fyrsta lot- an glæsileg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.