Morgunblaðið - 15.08.2005, Page 13

Morgunblaðið - 15.08.2005, Page 13
Hefði örvandi áhrif HUGMYND um framhaldsskóla í Borgarnesi er ekki ný af nálinni. Finnbogi Rögnvaldsson formaður bæjarráðs Borgarbyggðar telur hana vera álíka gamla og hugmynd- ina um Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Á fundi bæjarráðs 4. ágúst sl. var rætt um möguleika á að koma upp framhaldsskóla í Borgarnesi. Sam- þykkt var að óska eftir fundi með rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og skólameistara Fjöl- brautaskóla Vesturlands til við- ræðna um málið. „Margir Borgnesingar hafa í gegnum tíðina viljað sjá framhalds- skóla hér, en nú held ég að sé lag. Við sjáum fram á vöxt í Borgarnesi og á Akranesi á ýmsum sviðum og það er ljóst að íbúum er að fjölga hér og mikið er byggt af íbúðar- húsnæði um þessar mundir. Hér í Borgarnesi hefur til að mynda öllum byggingarlóðum verið úthlutað. Þá held ég að tilkoma framhaldsskóla muni jafnframt örva enn íbúafjölgun á svæðinu,“ segir Finnbogi. Áhersla á viðskipta- og náttúrufræðigreinar Finnbogi segir það skipta veru- legu máli að þessir tveir háskólar séu í héraðinu. Það geri allt starfs- mannahald við framhaldsskóla fýsi- legra og möguleikar á samstarfi við háskólana skipti máli. „Ég sé líka fyrir mér mikla samvinnu við Fjöl- brautaskólann á Akranesi,“ sagði Finnbogi. „Þar hefur verið og mun áfram verða verknámsskóli fyrir þetta svæði því ég geri ekki ráð fyrir að fjöldi nemenda yrði nógu mikill til að reka annan verknámsskóla hér. Þessi skóli gæti heldur ekki boðið upp á jafn fjölbreytt nám og er á Akranesi. Mér þætti eðlilegt að í skólanum í Borgarnesi yrði lögð áhersla á við- skipta- og náttúrufræðigreinar vegna nálægðarinnar við Bifröst og Hvanneyri og þeirrar þekkingar sem þar er að finna. Fyrst í stað gæti skólinn verið útibú frá FVA, fyrsta, annað og þriðja árið og síðan yrði skólinn stofnaður á fjórða ári og gæti þá útskrifað nemendur að vori.“ Skólarnir á Bifröst og Hvanneyri hafa gífurleg áhrif í héraðinu og svo mundi einnig vera með framhaldsskóla ef vel tekst til. Finnbogi segir að spurningin um hvort hugmyndin um framhalds- skóla í Borgarnesi geti orðið að veruleika snúist að verulegu leyti um fjármagn. Ef ekki sé vilji hjá stjórnvöldum til að setja fjármagn í svona skóla og það aukafjármagn sem þarf til að koma honum af stað sé þetta vonlaust. Vaxtarsvæði framtíðarinnar „Í mínum huga þurfa stjórnvöld að átta sig á að á Vesturlandi er vaxtarsvæði framtíðarinnar, alveg eins og Suðurland, og nú fara um 90% þeirra sem ljúka grunnskóla- prófi í framhaldsskóla. Ekki komast allir sem sóttu um í FVA að í þeim skóla jafnvel þótt nú hafi bæst við framhaldsskóli á Snæfellsnesi og með auknum íbúafjölda er þörf á fleiri skólum. Auk þess tel ég skipta mjög miklu máli fyrir fólk sem er að hugsa um að flytja á Vesturland að þar séu möguleikar á góðri menntun fyrir börn og unglinga.“ Ekki segist Finnbogi vera búinn að hugsa sér hvar skólinn yrði stað- settur í Borgarnesi. Verið sé að skoða möguleika á byggingu nýs hjúkrunarheimilis og einnig sé verið að athuga með framtíðarhúsnæði fyrir leikskólana í Borgarbyggð. Það sé því ekki útilokað að hugað yrði að byggingu fyrir framhaldsskóla þar sem þessar byggingar muni rísa. Framhaldsskóli í Brákarey? „Gamla Borgarnes eða Digranes- ið sem það stendur á er að springa. Ef fer sem horfir og íbúum fjölgar enn er þörf á fjölgun byggingarlóða. Spurningin er hvort farið verður vestur fyrir Borgarvoginn með þessar byggingar eða hvort þær verði staðsettar í Brákarey. Fram- haldsskóli Borgarness í Brákarey finnst mér skemmtilegur titill. En reyndar eru margir sem hafa áhuga á að vera með starfsemi þar í fram- tíðinni.“ Enn hefur ekki verið boðað til fundarins með rektorum Við- skiptaháskólans á Bifröst, Landbún- aðarháskóla Íslands á Hvanneyri og skólameistara Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi þar sem bæj- arstjórinn í Borgarbyggð er í fríi. En áhugi á framhaldsskóla í Borg- arnesi hefur komið opinberlega fram bæði hjá Runólfi Ágústssyni rektor Viðskiptaháskólans og Magn- úsi Árna Magnússyni aðstoðarrekt- or. Áhugi á viðræðum um framhaldsskóla í Borgarnesi í samvinnu við skóla á Vesturlandi Morgunblaðið/Guðrún Vala Brákarey Hugsanlegur staður fyrir framhaldsskóla í Borgarnesi. Eftir Ásdísi Haraldsdóttur asdish@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 13 MINNSTAÐUR VESTURLAND Vesturland | Tveir hænuungar höfðu litið dagsins ljós, þegar fréttaritari heimsótti Þorleifi Halldórsson, 14 ára útungunar- og hænsnabónda á Þverá í Eyja- og Miklaholtshreppi. Hann hefur komið sér upp hænsnabúi með heimaræktuðum íslenskum hæn- um og ungar út sjálfur. Fyrstu eggin fékk Þorleifur fyrir ári í Dalsmynni sem er næsti bær við Þverá og er núna að unga út fjórða hollinu. ,,Ég komst á snoðir um að tengdafaðir systur minnar ætti útungunarvél og ég fékk hana lánaða, með þeim skilyrðum þó, að ég passaði vel upp á hana. Þetta er 20–30 ára gömul vél en vel með farin og upprunalegu leiðbeiningarnar fylgja henni.“ Fyrir útungun safnar Þorleifur saman eggjum, en þau má geyma í allt að tvær vikur áður en þau fara í útungunarvélina. Klakið tekur síðan um þrjár vikur, 19–21 dag. Kjörhitastig til klaks er 39°C hiti, en í útungunarvélinni er hitamælir sem Þorleifur fylg- ist reglulega með og þar er einn- ig rakamælir. Langflottasti haninn ,,Ég prófaði í fyrsta sinn núna að úða eggin með vatni tvisvar sinnum á dag, mér er sagt að það hjálpi til við að halda rakanum inni í eggjunum og þá fæ ég kannski fleiri unga. Oftast kemur bara úr svona helmingnum, af 40 eggjum koma svona 20 ungar. Síðan er reynsla mín að svona tveir þriðju séu hanar en þá losa ég mig við, því þeir verpa jú eng- um eggjum og eru nánast þarf- lausir nema til að frjóvga eggin. Ég á reyndar einn hana núna, hann er langflottasti hani sem um getur með stél sem er yfir 20 sentimetrar.“ Þorleifur segist nú orðið vera farinn að þekkja hanana fljótlega eftir að þeir koma úr eggjunum. Hann hefur einu sinni prófað að unga út tveimur andareggjum með hænueggjunum, en and- areggin þurfa viku lengur. ,,Þá setti ég þau egg viku fyrr í vél- ina, bætti svo hænueggjunum við þegar vikan var liðin. Það gekk ótrúlega vel miðað við að það er svo mikil goggunarröð meðal unganna, þeir drepa látlaust þá sem eru minni, veikari eða öðru- vísi, t.d. hef ég prófað að unga út eggjum úr hvítum hænum og setti hvítan unga með holli sem var miklu yngra en þeir náðu samt að stúta honum.“ Að sögn er Þorleifs er þetta ekki ódýrt áhugamál, því unga- fóðrið kostar sitt en það kaupir hann í búvörudeild KB í Borg- arnesi. ,,Það þarf að fóðra ung- ana, þeir verða ekki fullvaxta fyrr en 6 mánaða og byrja þá að verpa eggjum. Hænurnar fá svo auðvitað matarafganga þannig að slíkt nýtist og svo er hænsnaskít- urinn tilvalinn áburður, það er víst verið að selja svoleiðis dýrum dómum fyrir sunnan.“ Þorleifur er samt ekki farinn að hagnast á ræktuninni ennþá, hann hefur engar hænur selt, ein- ungis gefið og mamma hans fær eggin. ,,Ég hef heldur ekki hugs- að mér að verða kjúklingabóndi, en á meðan ég hef gaman af þessu held ég áfram,“ segir þessi ungi ötuli maður sem innan skamms fer í 9. bekk Laug- argerðisskóla. Í heimsókn hjá Þorleifi Halldórssyni, 14 ára hænsnabónda á Þverá Ræktar íslenskar hænur Hrókur alls fagnaðar Haninn hreykir sér hátt, enda nýtur hann hylli. Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur, fréttaritara, Borgarnesi Morgunblaðið/Guðrún Vala Smávinir fagrir Þorleifur heldur á litlum vini sínum í fanginu. önnur rannsóknasetur og eins í sam- bandi við vinnumarkaðinn. Í rann- sóknasetrinu á bæði að stunda rann- sóknir á hvers konar málefnum verslunar og jafnframt undirbúa kennslu á háskólastigi. Það er mikil þörf og mikill hugur í mönnum að koma til móts við þarfir verslunar- innar. Og þótt ekki tíðkist lengur að tala um ævistarf, þá er mikilvægt að starfsfólk í þessum geira tjaldi leng- ur en til einnar nætur.“ Jón Þór Sturluson er for- stöðumaður rannsóknasetursins. Hann segir undirbúning fyrir fræðslu á háskólastigi fyrir stjórn- endur í verslunarfyrirtækjum nú í fullum gangi, en stefnan sé að verja góðum tíma í undirbúninginn til að hámarka gæði námsins. „Þetta er komið vel á skrið og styrkur til verk- efnisins hefur fengist úr starfs- menntunarsjóði verslunarinnar.“ Jón Þór segir að unnið verði í sam- starfi við Norðurlönd, þ.á m. Nor- ræna smásöluháskólann sem stað- settur er í Svíþjóð. „Þar verðum við með sameiginlegt „intensívt“ nám- skeið í október, þar sem fimm nem- endum frá Bifröst gefst færi á að taka þátt. Í náminu lítum við meðal annars einnig til háskólans í Stirling í Skotlandi.“ aps@mbl.is Mér finnst skipta máli fyrirfólk í verslunarstörfum aðhafa menntun til starfanna og það skiptir öllu máli hvernig námið er byggt upp. Það er ekki nóg að um nám sé að ræða, það þarf að svara réttum þörfum. Uppbygg- ingin á verslunarfagnáminu hefur skilað sér til okkar og starfsmanna sem hafa farið í þetta nú þegar,“ segir Anna Margrét Jónsdóttir, starfsmannastjóri Hagkaupa. „Sjálfsstyrkingin skiptir mestu, að fá trú á umhverfinu og sjálfum sér í starfi. Að standa fyrir framan hóp og tala, að koma hugmyndum niður á blað og svo framvegis. Einn- ig að fá dýpri sýn á hvað verslun er.“ Hverju leitar þú helst að í fólki þegar þú ræður til starfa? „Þjónustulund, númer eitt, tvö og þrjú. Þjónustulund og umburð- arlyndi, og að hafa gaman af því að vinna í því umhverfi að þjónusta við- skiptavini.“ Ég heyrði að í Danmörku hefði einhver verslunarkeðja gefist upp á að reka nýliðafræðslu, af því starfs- fólkið hætti bara um leið og nám- skeiðinu lyki. Þá má spyrja á for- dómafullan hátt: Tekur því að mennta starfsfólk sem stoppar oft stutt við? „Já, það finnst mér. Annars væri ég hætt, ef ég hefði ekki trú á þessu! Ég er ekki sammála því að ekki taki því að mennta starfsfólkið. Við erum til dæmis með nýliðanámskeið sem allir nýliðar sækja og finnst við fá mikið út úr því. Starfsmenn átta sig betur á því hvar við stöndum og hvaða réttindi og skyldur þeir hafa.“ Anna Margrét Jónsdóttir Að geta þróast í starfi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.