Morgunblaðið - 15.08.2005, Page 14

Morgunblaðið - 15.08.2005, Page 14
14 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF | HEILSA Af þessum níu af hundraðþúsund konum sem hafagreinst hér árlega frá1990 dugar í flestum til- fellum keiluskurður eða legnám til að losa þær við meinið. Það er af því að við greinum þær á því stigi þegar krabbameinið er rétt að byrja. Dánartíðni af völdum leg- hálskrabbameins hérlendis er um tvær til þrjár konur af hundrað þúsund á ári og er hún bundin við þær konur sem mæta illa í skoð- un,“ segir Kristján Sigurðsson yf- irlæknir Leitarstöðvar Krabba- meinsfélagsins. „Það er svokallaður HPV-vírus sem veldur leghálskrabbameini. Kona fær ekki legháls- krabbamein nema hún fái þennan vírus og þótt hún hafi vírusinn er ekki víst að hún fái sjúkdóminn. Það eru aðrir þættir sem auka þá áhættu, enginn þeirra þátta er þekktur með vissu en menn vilja nefna reykingar, kynsjúk- dómasmit og mögulega getn- aðarvarnartöfluna. Enginn þess- ara þátta hefur verið negldur niður. Það eina sem er vitað með vissu er að veiran er nauðsynleg en ekki nægjanleg ein sér til að valda krabbameininu.“ Vírusinn smitast við samfarir Kristján segir að það megi kalla leghálskrabbamein afleiðingar kynsjúkdóms því að vírusinn sem veldur því smitast í 99% tilvika við samfarir. Þær konur sem eru lík- legastar til að fá legháls- krabbamein eru þær sem hafa stundað kynlíf. Rannsóknir sýna að kona sem hefur aldrei verið við karlmann kennd fær ekki legháls- krabbamein þó að undantekningar finnist. „Þessi vírus er mjög al- gengur. Tíðnitölur sýna að allt upp í 45–50% af ungum stúlkum innan við 25 ára aldur eru með vírusinn í sér. Rannsóknir sýna að því fleiri karlmönnum sem kona hefur sofið hjá því meiri líkur eru á því að hún fái vírusinn. Kona sem hefur ekki verið nema við einn karlmann kennd getur samt hafa smitast í gegnum manninn sem hefur kannski átt nokkra rekkjunauta.“ Vírusinn veldur ekki bara krabbameini í leghálsi því rann- sóknir hafa sýnt að hann er líka áhættuþáttur í krabbameini í burðarbörmum, leggöngum, leg- hálsi, endaþarmi og jafnvel í hálsi. Léleg mæting í leitarskoðun HPV-vírusinn skiptist í um 200 aðaltegundir og undirtegundir sem aftur skiptast í góðkynja og illkynja stofna. Af þessum góð- kynja eru tveir stofnar sem valda um 90% af öllum kynfæravörtum. Þessir stofnar valda ekki krabba- meini en ef þeir eru til staðar þá eru miklar líkur á því að þeir ill- kynja séu líka til staðar. „Flestar þeirra stúlkna, sem eru með vírussmitið í sér, eru smit- aðar af stofnum sem valda leg- hálskrabbameini. Við vitum líka að tíðni smitsins lækkar með aldr- inum því eftir 45 ára aldur grein- ast aðeins 5–10% af konum með vírusinn í sér. Þessi tíðnilækkun er talin vera vegna þess að yngri konur eiga fleiri rekkjunauta og með aldrinum mynda konurnar ónæmi gegn vírusnum.“ Aðspurður um forvarnir segir Kristján skipta miklu máli að fólk gæti varkárni í sambandi við frjálst kynlíf og að konur mæti í krabbameinsleit þegar þær eru boðaðar í hana. Hann segir að þó það leiki nokkur vafi á því hvort smokkurinn verji gegn HPV- veirunni þá sé nauðsynlegt að nota hann því hann ver gegn öðr- um kynsjúkdómum sem eru með- virkandi þáttur með HPV-smiti í myndun leghálskrabbameins. „Því miður er mæting íslenskra ungra kvenna í leitarskoðun léleg. Mætingin, á þriggja ára fresti, hefur fallið úr um 82% í um 75% miðað við landið í heild. Ungar stúlkur verða að muna að þær eiga að mæta hingað á tveggja ára fresti, en þriggja ára mæting á aldrinum 20–24 ára er aðeins um 58%. Aldursbundið nýgengi leg- hálskrabbameina hjá konum undir 40 ára aldri hefur farið hækkandi hér á landi eftir 1980. Konur yfir fertugt, sem hafa mætt reglulega og haft eðlilega leitarsögu, geta mætt á fjögurra ára fresti svo fremi sem þær breyta ekki um kynhegðun.“ Bólusetning gegn leghálskrabba Árið 2002 hófst rannsókn hér á landi á bóluefni gegn legháls- krabbameini og mun hún standa fram til ársins 2007. Rannsóknin kallast FUTURE II og er sam- vinnuverkefni milli landlæknis, Krabbameinsfélagsins og lyfjafyr- irtækisins Merk. „Það eru um sjö- hundruð konur á aldrinum 18–23 ára sem taka þátt í þessari rann- sókn hér á landi, helmingurinn af þeim fékk virkt bóluefni en hinn helmingurinn lyfleysu. Það er ver- ið að rannsaka hvort bóluefnið hafi áhrif á myndun forstigs krabbameinsins hjá þessum kon- um,“ segir Kristján. Rannsóknin fer fram víðsvegar í heiminum með þátttöku um 12.000 kvenna. Hún verður opnuð árið 2007 og þá verður tekin ákvörðun um það hvort bóluefnið verður sett á markað eða ekki. Kristján reiknar með því að það verði ungar stúlkur, fyrir kyn- þroskaaldur, sem verði bólusettar. Vonir eru um að bóluefni gegn fimm aðal áhættustofnum HPV geti lækkað dánartíðni af völdum leghálskrabbameins um 95%. Kristján leggur þó áherslu á mikilvægi núverandi krabbameins- leitar því ljóst er að langt er í land að bólusetning muni útrýma sjúkdómnum að fullu.  KYNHEILSA | HPV-vírus smitast við kynmök og getur valdið leghálskrabbameini Ungar konur mæta illa í krabbameinsleit Á Íslandi er leghálskrabbamein ekki vandamál. Þrátt fyrir það er það annað algengasta krabba- meinið meðal kvenna á heimsvísu og þriðja algeng- asta dánarorsökin. Leghálskrabbamein er heims- böl, en hefur lága tíðni á öllum Norðurlöndunum vegna skipulagðrar krabbameinsleitar. ingveldur@mbl.is Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Krabbameinsfélagsins www.krabb.is Morgunblaðið/Jim Smart „Það er svokallaður HPV-vírus sem veldur leghálskrabbameini. Kona fær ekki leghálskrabbamein nema hún fái þennan vírus og þótt hún hafi vírusinn er ekki víst að hún fái sjúkdóminn,“ segir Kristján Sigurðs- son, yfirlæknir Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins.  Hér á landi greinast níu af hverjum hundrað þúsund konum með legháls- krabbamein árlega. Dán- artíðni af völdum þess er bundin við þær konur sem mæta illa í krabbameinsleit.  Vírusinn, sem veldur leg- hálskrabbameini, smitast í 99% tilvika við kynmök.  Tíðnitölur sýna að allt upp í 45–50% af ungum stúlkum innan við 25 ára aldur eru með vírusinn í sér.  Mætingin í krabbameinsleit á Íslandi hefur, á þriggja ára fresti, fallið úr um 82% í um 75%. Mæting á aldrinum 20–24 ára er aðeins um 58% og hefur aldursbundið ný- gengi leghálskrabbameins hjá konum undir 40 ára aldri farið hækkandi hér á landi eftir 1980.  Forvarnir gegn legháls- krabbameini eru að fólk gæti varkárni í sambandi við frjálst kynlíf og að kon- ur mæti í krabbameinsleit þegar þær eru boðaðar í hana. Konur at- hugið að: NÝVERIÐ var sagt frá því að flest slys á eldri borgurum verða við heimili þeirra eða innan veggja heimilisins. Nú hefur verið stofnuð sérstök móttaka fyrir aldraða í Landakoti. Byltu- og beinvernd- armóttakan hefur það hlutverk að vinna að forvörnum til að fækka slysum og beinbrotum hjá öldr- uðum. Á móttökunni er tekið á móti þeim sem:  eiga á hættu að detta og brotna  er vísað af bráða- og slysa- móttöku eftir byltu eða brot  vísað er þangað af heim- ilislækni vegna óstöðugleika og dettni Mjög góð þjónusta er við sjúk- linga og þurfa þeir í fyrstu heimsókn sinni að dveljast hálfan dag. Þeir eru sóttir og keyrðir heim. Í boði er einnig hádegismatur og kaffi. Hjúkrunarfræðingur, læknir, sjúkraþjálfari og iðjuþjálfi meta ástand sjúklingsins eftir þessum at- riðum:  minni  andlegri líðan  félagslegri stöðu  næringarástandi  sjúkdómasögu  skoðun með tilliti til sjúkdóma sem geta stuðlað að byltum eða brotum  mati á hreyfifærni og jafnvægi  athugun á heimili, hún beinist að slysagildrum eins og þrösk- uldum, lausum teppum og stiga án handriða svo eitthvað sé nefnt. Sjúklingum er fylgt eftir og þeir fá fræðslu um byltu- og beinvernd, sem innifelur inntöku kalks og D- vítamíns, og gildi hreyfingar. Oft leiðir skoðunin til breytingar á lyfja- meðferð, athugunar á heimili og endurhæfingar.  ALDRAÐIR | Leitast við að fækka slysum og beinbrotum í heimahúsum Byltu- og beinverndarmóttaka fyrir roskið fólk Hægt er að fá nánari upplýsingar á vef Landspítalans, www.landspit- ali.is, undir öldrunarsvið og þar undir göngudeild eða hringja í síma 543-9900. Morgunblaðið/Ómar Styrking jafnvægis er mikilvægt atriði í forvörnum gegn byltum og bein- brotum. Gildi hreyfingar verður líka seint ofmetið. Hér eru nokkur góð ráð sem vert er að hafa í huga til að reyna að lágmarka byltur í heimahúsum.  Það er mikilvægt að reyna að viðhalda góðum styrk og jafnvægi með því að gera reglulegar æfingar.  Góð lýsing getur komið í veg fyrir að fólk reki sig í eða detti um hluti.  Reynið að forðast algengar slysagildrur eins og laus teppi, snúrur sem liggja um gólf eða hindranir sem geta verið fyrir.  Góður fótabúnaður getur skipt máli og miða þarf hann við aðstæður.  Handföng og hjálpartæki er mikilvægt að hafa á réttum stöðum, eins og við baðkar og klósett. Góð ráð til að lágmarka heimaslys             $    &''''' &()*+ &(,& &(,*+ &(-& &(-*+ &((& &((*+ *''& )' .' /' 0' *' &' '       "#  $ %&'  ( $       ) 12 3 4!  5*.  *.+0.  0.+//  /.+./  ..6   /. /' 0. 0' *. *' &. &' . ' SAMKVÆMT því sem kemur fram á vefnum destinationsante.com geta meðferðir gegn krabbameini haft áhrif á vitsmuni og gáfur. Bandarísk rannsókn sem fjallað er um í blaðinu Journal of the Nation- al Cancer institute, telur að þeir sem hafa lifað af krabbameins- meðferð séu tvisvar sinnum líklegri til þess að þjást af greindarskorti en þeir sem ekki hafa greinst með krabbamein. Talið er að meðferðarúrræði gegn krabbameini valdi þessum skorti eins og Prófessor Meyero- witz frá Háskólanum í Kaliforníu greinir frá: „Meðferðarúrræðin sem við notum á þessari stundu geta valdið gloppum í minni og því að hegðun breytist.“ Sagt er frá því að mögulegt sé að þessi áhrif séu þegar fyrir hendi fyrir meðferð og að ákveðin efnasambönd í sumum meðferðum geti aukið einkennin. Það sé því mikilvægt að finna út hvaða meðferðir séu skaðlegastar og komast að því hvernig þær hafa áhrif á greind manna.  KRABBAMEIN Meðferðin getur haft áhrif á greind

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.