Morgunblaðið - 15.08.2005, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 15
DAGLEGT LÍF | HEILSA
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
Birkiaska
Umbo›s- og sölua›ili
sími: 551 9239
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
JOSHUA David er sölufulltrúi hjá KB-banka og
vinnur einnig sem þjónn á nýja veitingastaðnum í
Bankastræti, B-5. Hann er upptekinn maður en
finnur sér tíma til að stunda góða hreyfingu enda
finnst honum mikilvægt að sinna heilsunni og útlit-
inu. Joshua æfir samkvæmisdansa fjórum sinnum í
viku, tvo tíma í senn. Hann er tvöfaldur Íslands-
meistari í sínum flokki og dansar við Fanneyju
Magnadóttur.
„Mig langaði alltaf til þess að læra samkvæm-
isdansa og fylgdist spenntur með keppnunum í
sjónvarpinu þegar ég var yngri. Ég lét svo verða af
því fyrir fjórum árum að byrja að dansa og sé alls
ekki eftir því,“ segir hann glaðbeittur. Hann hefur
prófað ýmislegt en segir dansinn með erfiðari
íþróttum. „Ég hef prófað mjög margar íþróttir
eins og badminton, körfubolta og fótbolta en dans-
inn hefur vinninginn. Það þarf að hugsa um svo
margt í einu, líkamsbeitinguna, dansfélagann og
sporin og svo er þetta svo skemmtilegt.“
En Joshua lætur þetta ekki nægja. Hann lyftir
þrisvar í viku í World Class og hleypur jafnoft
vikulega. „Með lyftingum er ég að móta líkamann,
styrkja hann og viðhalda honum. Hlaupin eru svo
til að brenna,“ segir Joshua og greinilegt er að
þetta er þaulhugsað hjá honum. En er ekki erfitt
að finna tíma fyrir þetta allt saman? „Það gefst
alltaf smátími. Ég þoli ekki að heyra þegar fólk
segir að það hafi ekki tíma til að hreyfa sig, ég
hlusta bara ekki á svoleiðis bull. Við erum að tala
um að fara í fjörutíu mínútur að lyfta og hlaupa
svo í tuttugu mínútur nokkrum sinnum á viku.
Þetta eru kannski fjórar klukkustundir á viku sem
fara í þetta, “ segir hann ákveðinn.
Joshua er sannkölluð fyrirmynd og lifir heilsu-
samlegu líferni. Hann segir mikilvægt að sofa 7–8
tíma á nóttu og borða reglulega hollan mat. „Ég
borða sex sinnum á dag og fæ mér mikið prótein,
enda er ég í mjög góðu formi. Það sést líka á því að
ég sef betur og ég vakna betur. Þegar ég vakna þá
er ég vaknaður,“ segir hann. Hann segir allt þetta
vera ætlað til þess að viðhalda góðum lífsstíl og
halda líkamanum í góðu formi. „Gott skipulag er
aðalatriðið og svo ætla ég að vera flottur fimm-
tugur,“ segir Joshua að lokum.
HREYFING | Joshua David er í góðu formi
Æfir samkvæmisdansa
fjórum sinnum í viku
Morgunblaðið/ÞÖK
Joshua og Fanney dansa saman hjá dansíþróttafélagi Hafn-
arfjarðar. Auk þess að dansa hleypur Joshua og lyftir.
Hve mörg okkar sem slitiðhafa barnsskónum getasofið í þá 6 til 8 klukku-tíma sem talið er að
flestir þurfi til að hvílast nægilega?
Sumir einfaldlega gefa sér ekki þann
tíma, en fyrir aðra er það munaður
sem sjaldan fæst vegna svefnvanda-
mála. Það virðist rökrétt að álíta að
þreyta geti auðveldað fólki að sofna
og sofa vel en svo er ekki alltaf. Alla-
vega skiptir tegund þreytunnar
máli, þreyta sem kemur frá lík-
amlegri áreynslu er betri en sú sem
er af völdum andlegs álags. Bandol-
ier, sem er breskt vísindarit, gerði
stutta úttekt á rannsóknum sem
gæti varpað ljósi á tengsl þjálfunar
og svefns og tók út þrjár rannsóknir.
Ein beindist að eldra fólki, önnur að
eldra fólki sem átti við þunglyndi að
stríða og sú þriðja að konum eftir
tíðahvörf.
Svefntíminn lengdist
Fyrsta rannsóknin tók til fólks á
aldrinum 50 til 76 ára sem hafði átt
við væg svefnvandamál að stríða,
notaði ekki svefnlyf og var kyrr-
setufólk. Þeim var skipt í tvo hópa
þar sem annar hópurinn fór í líkams-
rækt fjórum sinnum í viku í 16 vikur,
en hinn hópurinn fékk enga líkams-
þjálfun. Í upphafi tók það fólkið að
meðaltali tæpan hálftíma að sofna og
meðalsvefntími var sex klukku-
stundir. Eftir 16 vikur tók það lík-
amsræktarhópinn um korter að
sofna og svefntíminn lengdist í tæpa
sjö klukkutíma. Engin breyting var
hjá hinum hópnum.
Orkufrek styrktarþjálfun
Önnur rannsóknin beindist að
fólki sem var greint með þunglyndi,
var eldra en sextugt og stundaði eró-
bikk-þjálfun tvisvar í viku eða oftar.
Meðferðin fólst í orkufrekri styrkt-
arþjálfun þrisvar í viku í 10 vikur.
Viðmiðunarhópur fékk fræðslu, en
ekki líkamsþjálfun. Niðurstaðan var
sú að tæplega helmingur þeirra sem
var í líkamsþjálfun sagðist sofa bet-
ur, en enginn í viðmiðunarhópnum.
Morgunþjálfun betri
fyrir svefninn
Þriðja rannsóknin var gerð meðal
kvenna eftir tíðahvörf og sem ekki
voru á hormónameðferð. Hópnum
var skipt í tvennt þar sem annar
hópurinn var í líkamsþjálfun fimm
sinnum á viku í eitt ár, en hinn var í
teygjuæfingum í klukkustund á viku
í eitt ár. Hvorki líkamsþjálfunin né
teygjuæfingarnar virtust hafa bæt-
andi áhrif á svefninn, þó notuðu
færri af þeim sem voru í teygjuæf-
ingum svefnlyf. Í þessari rannsókn
var einnig skoðað hvort það skipti
máli að stunda í líkamsrækt á
morgnana eða kvöldin og nið-
urstöður bentu til þess að þeim sem
stunduðu þjálfun á morgnana gengi
betur að sofna.
Tekið skal fram að þetta er ekki
tæmandi úttekt á rannsóknum á
áhrifum hreyfingar á svefn, en flest-
ar virðast þær benda til þess að lík-
amsþjálfun bæti svefn. Auk þess
sem hreyfing hefur margvísleg önn-
ur heilsubætandi áhrif. Þeir sem
eiga við svefnerfiðleika að stríða
ættu að stunda hreyfingu með
meðaláreynslu í 4 til 6 klukkutíma á
viku.
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Landlæknisembættið
Líkamsræktin bætir svefninn
Anna Björg Aradóttir
hjúkrunarfræðingur
Morgunblaðið/Jim Smart
Regluleg hreyfing er holl fyrir líkama og sál.
GULRÆTUR eru með-
al vinsælustu rót-
arávaxta, fáanlegar
árið um kring. Þær
geymast vel, en
bestar eru þó
nýuppteknar
vorgulrætur.
Nota má gul-
rætur hráar í
salöt eða sem
nasl með ídýfu.
Einnig er gott að
sjóða þær í svolitlu
smjöri og sykri við væg-
an hita í um stundarfjórðung
eða í dálitlum appelsínusafa. Litl-
ar gróðurhúsaræktaðar gulrætur
eru fremur bragðdaufar, en stærri
gulrætur má t.d. rífa niður í salöt,
sjóða í litlu vatni og bera fram
með mat eða nota í súpur, pott-
rétti og kássur. Smátt skornar
gulrætur má nota í alls konar
soð-, sósu- og súpugrunna. Rifnar
gulrætur má nota í kökur og eft-
irrétti auk þess sem þær eru upp-
lagðar í gulrótarmarmelaði.
Gulrótin er auðug af ýmsum
bætiefnum. Mikilvægast er þó
hversu auðug hún er af karótíni,
sem breytist síðan í A-vítamín í
mannslíkamanum, en rúm 100
grömm af gulrótum eru talin full-
nægja daglegri A-vítamínþörf.
Rannsóknir benda einnig til þess
að neysla á karótíni geti dregið úr
krabbameinshættu.
Þó svo að gulrætur séu sein-
sprottnar má víða rækta þér hér
utandyra enda eru þær harðgerar.
Víðast hvar er þó þörf á að bæta
veðurfarsskilyrðin með því að
breiða trefja- eða plastdúk yfir
beðin að lokinni sáningu og á með-
an plönturnar eru að komast á
legg. Bestum vexti ná gulrætur í
djúpum, léttum jarðvegi, en hins
vegar er þéttur eða grýttur jarð-
vegur óhentugur. Áburðarþörf
gulróta er meðalmikil og má oft
miða við 0,6–1,0 kg af garðáburði
á hverja tíu fermetra fyrir jarð-
vinnslu að vori. Gulrótum er sáð
beint á vaxtarstaðinn því þær þola
ekki dreifsetningu. Sáð er
snemma vors í raðir með 15–20
cm millibili og grisjað ef þörf kref-
ur þegar plönturnar eru komnar
með fyrsta laufblaðið þannig að
2–4 cm séu á milli plantna. Fram-
an af sumri vaxa gulrætur hægt,
en ræturnar bæta ört við þyngd
sína er líða tekur á haustið. Hæpið
er að reikna með uppskeru hér-
lendis utandyra fyrr en í lok júlí
eða byrjun ágúst eða um 80–90
dögum eftir sáningu þótt ræturnar
séu vel nýtanlegar talsvert fyrr,
segir Garðar R. Árnason, lektor
við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Næringar- og bragðefni fara í
súginn ef gulrætur eru látnar bull-
sjóða í miklu vatni. Betra er að
skera þær í sneiðar og hægsjóða í
litlu vatni ásamt svolitlum sykri
og smjöri, pipar og salti. Þá verða
þær gljáandi og bragðmiklar.
Einnig má gufusjóða eða ofnbaka
gulrótarsneiðar.
Meðfylgjandi er uppskrift að
kóríanderkryddaðri gulrótarsúpu
úr smiðju Nönnu Rögnvald-
ardóttur.
Gulrótarsúpa
50 g smjör
1 msk kóríanderfræ, steytt
500 g gulrætur, skornar í þunnar
sneiðar
7 dl kjúklingasoð (eða vatn og
súputeningur)
½ tsk sykur (má sleppa)
nýmalaður pipar
salt
1 dl kaffirjómi
söxuð steinselja
Smjörið brætt í potti og kórí-
andernum hrært saman við. Gul-
ræturnar settar út í og látnar
malla við vægan hita í um 15 mín-
útur. Þá eru þær kældar dálítið og
síðan maukaðar í matvinnsluvél
eða blandara ásamt soði, sykri,
pipar og salti. Settar aftur í pott,
rjómanum hrært saman við og
súpan hituð en ekki látin sjóða.
Smökkuð til og skreytt með stein-
selju.
MATUR | Gulrætur góðar í salöt og súpur
Kóríanderkrydduð
gulrótarsúpa
join@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís