Morgunblaðið - 15.08.2005, Page 16
16 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Aþenu. AP, AFP. | Allir um borð, 115
farþegar og sex manna áhöfn, fór-
ust er þota frá kýpverska flug-
félaginu Helios Airways hrapaði til
jarðar skammt frá Aþenu, höfuð-
borg Grikklands, í gær. Helst var
hallast að því, að slysið mætti
rekja til skyndilegs loftþrýstings-
falls en sérfræðingur í flugslysum
og rannsóknum á þeim telur þá
skýringu mjög ólíklega.
Farþegaþotan, sem var af gerð-
inni Boeing 737, tveggja hreyfla,
lenti utan í fjallshlíð og dreifðist
brakið úr henni yfir stórt svæði.
Kviknuðu þá víða eldar í kjarri og
skógi og því varð að kalla til flug-
vélar búnar vatnsgeymum og
slökkva eldana áður en björgunar-
menn gátu athafnað sig.
Þotan, sem kom frá Larnaca á
Kýpur, átti að millilenda í Aþenu á
leið sinni til Prag í Tékklandi.
Voru fréttir um farþegana mjög
misvísandi í gær því að Jiri Parou-
bek, forsætisráðherra Tékklands,
sagði, að 80 þeirra hefðu verið
tékknesk börn á heimleið úr sum-
arfríi á Kýpur en Andreas
Christou, innanríkisráðherra Kýp-
ur, neitaði því. Sagði talsmaður
kýpverska forsetaembættisins, að
langflestir farþeganna hefðu verið
grísk-kýpverskir. Grískir og kýp-
verskir embættismenn segja, að
samband við flugvélina hafi
skyndilega rofnað og þá hafi tvær
grískar F16-orrustuþotur verið
sendar á loft til að kanna hvað um
væri að vera. Komu þær að far-
þegaþotunni yfir Euboca-skaga
norðaustur af Aþenu og að sögn
Iannis Pantazatos, yfirmanns flug-
umsjónar á Aþenu-velli, virtust
flugmenn þotunnar þá liggja fram
yfir sig eins og meðvitundarlausir.
Fáum mínútum síðar hrapaði þot-
an til jarðar í Varnava, sem er að
mestu óbyggt svæði 40 km norð-
austur af Aþenu.
Bláir í framan
og mikill kuldi
Snemma í gær taldi talsmaður
gríska hersins líklegt, að vélinni
hefði verið rænt en gríska lögregl-
an sagði síðar, að svo virtist sem
loftþrýstingur í vélinni hefði fallið
skyndilega. Í síðasta viðtali flug-
stjórans við flugturninn í Aþenu
sagði hann, að eitthvert ólag væri
á kerfinu og það virðist líka ljóst af
SMS-boðum frá einum farþeganna
til frænda síns.
Í þeim segir hann, að flugmenn-
irnir séu orðnir bláir í framan og
hitastigið inni í vélinni hafi hrapað
niður. „Ég kveð þig, frændi minn.
Við erum öll að frjósa í hel,“ sagði
meðal annars í SMS-skeytinu.
Talsmaður Kýpurstjórnar sagði í
gær, að ekkert benti til, að um
hryðjuverk hefði verið að ræða en
hann og grískir embættismenn
lögðu áherslu á, að ekkert væri
hægt að segja neitt um ástæðu
slyssins fyrr en það hefði verið
kannað og svörtu kassarnir, en
þeir fundust í gær.
Ekki trúaður á loftþrýstings-
fall sem ástæðu slyssins
Francois Grangier, kunnur sér-
fræðingur í flugslysum, sagði í
París í gær, að skyndilegt loft-
þrýstingsfall hefði ekki átt að geta
valdið því að vélin hrapaði og það
hefði ekki átt að verða til að flug-
mennirnir misstu meðvitund.
Grangier sagði, að kýpverska
þotan hefði verið í tiltölulega lítilli
hæð er hún nálgaðist Aþenu og
skyndilegt loftþrýstingsfall hefði
engin áhrif á innviði og burðarvirki
flugvéla. Þá hefðu flugmennirnir
átt að hafa sínar eigin súrefnis-
birgðir til að geta lent vélinni.
Aðrir sérfræðingar segja, að
skyndilegt loftþrýstingsfall í mik-
illi hæð geti valdið og hafi valdið
því, að flugmenn missi meðvitund
en þó því aðeins, að þeir geti ekki
af einhverjum ástæðum sett á sig
súrefnisgrímur. Flugslysið í gær
veki því grunsemdir um, að eitt-
hvað mikið hafi verið að, jafnvel að
einhvers konar sprenging hafi orð-
ið í loftþrýstingskerfinu og eitr-
aðar gufur átt þátt í hvernig fór.
Margir ættingjar farþega og
flugliða söfnuðust í gær saman á
Larnaca-flugvelli þar sem margir
grétu er þeir biðu frétta af örlög-
um ástvina sinna.
Helios Airways var stofnað 1999
og er fyrsta flugfélagið á Kýpur í
einkaeigu.
Hefur það verið með fjórar
Boeing 737 vélar og flýgur meðal
annars til Lundúna, Aþenu, Sofíu,
Dyflinnar og Strassborgar. Var
það selt ferðaskrifstofunni Libra
Holidays á síðasta ári.
Virtust meðvitundarlausir
rétt áður en vélin hrapaði
Getgátur um að loftþrýstingsfall hafi valdið því að kýpversk flugvél fórst skammt frá Aþenu en
sérfræðingur í flugslysum telur það ólíklegt. Með vélinni fórst 121, farþegar og áhöfn.
Reuters
Brak úr kýpversku farþegaþotunni en það dreifðist yfir mjög stórt svæði.
Vonast er til, að svörtu kassarnir, sem báðir eru fundnir, geti leyst gátuna
um tildrög slyssins en talið er, að loftþrýstingsfall hafi átt þátt í því.
FRANSKA seglskipið „Belem“ er hér lengst til vinstri
og næst því „Khersones“ frá Úkraínu. Tóku þau þátt í
alþjóðlegri siglingahátíð í Bremerhaven ásamt um 220
seglskipum og 100 öðrum skipum frá 25 löndum.
Reuters
„Stolt siglir fleyið mitt“
Teheran. AP, AFP. | Harðlínumað-
urinn Mahmood Ahmadinejad, for-
seti Írans, birti í gær ráðherralista
nýrrar stjórnar en þar eru harð-
línumenn í lykilembættum. Við það
tækifæri varaði stjórnin Banda-
ríkjamenn við að ráðast inn í land-
ið og sagði, að það yrði þeim dýr-
keypt.
Harðlínumaðurinn Manoushehr
Mottaki verður nýr utanríkisráð-
herra en Mostafa Pour-Mohamm-
adi, fyrrum aðstoðarráðherra
leyniþjónustumála, verður innan-
ríkisráðherra. Þá verður Ali Sa-
idloo, eftirmaður Ahmadinejads
sem borgarstjóri í Teheran, olíu-
málaráðherra en Íran er næst-
mesti olíuframleiðandinn innan
OPEC, Samtaka olíuútflutnings-
ríkja.
Gholamhossein Mohseni-Ejei,
sem áður var formaður hins aft-
urhaldssama trúarráðs, verður
leyniþjónusturáðherra en Hossein
Safar Harandi, fyrrum ritstjóri
hins bókstafssinnaða dagblaðs
Kayhan, verður menningarmála-
ráðherra.
Vill ekki útiloka hernað
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, kvaðst á föstudag ekki
vilja útiloka innrás í Íran vegna
fyrirætlana stjórnvalda þar í
kjarnorkumálum en lagði áherslu
á, að valdbeiting væri alltaf neyð-
arúrræði. Hamid Reza Asefi, tals-
maður íranska utanríkisráðuneyt-
isins, sagði í gær, að Bush ætti að
gera sér grein fyrir því, að Íranir
myndu gera meira en hafa í fullu
tré við Bandaríkjamenn, réðust
þeir á landið. Sagði hann einnig,
að vegna hótana Bandaríkjamanna
kynnu Íranir að taka aftur til við
að auðga úran.
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, veik að yfirlýsingu
Bush í fyrradag er hann sagði á
stjórnmálafundi, að hótanir um
valdbeitingu gagnvart Írökun
væru út í hött.
Bresk stjórnvöld hafa ekkert um
málið sagt en hópur námsmanna
safnaðist saman við sendiráð
þeirra í Teheran í gær og grýtti
það með yfirlýsingum um, að rétt
væri að ráðast þar inn og reka
burt „ensku njósnarana“.
Óttast trúaröfga
nýrrar stjórnar
Ahmadinejad hefur sagt, að
stjórn sín muni einkennast af „hóf-
semi“ en andstæðingar hans kalla
hann öfgamann og óttast, að hann
muni reyra þjóðina í fjötra bók-
stafstrúarinnar og eiga í eilífum
útistöðum við vestræn ríki. Benda
þeir á, að eftir mikinn sigur Ah-
madinejads í kosningunum í júní
ráði harðlínumenn öllu í landinu.
Harðlínustjórn
skipuð í Íran
Vara Bandaríkjastjórn við óförum
reyni þeir að ráðast inn í landið
AP
Íranskir námsmenn grýta sendiráð
Breta í Teheran. Hrópuðu þeir
ókvæðisorð um vestræn ríki.
New York. AP. | Yfirvöld í New York
hafa farið fram á það við eigendur
veitingastaða í borginni að þeir
hætti að nota herta fitu í elda-
mennskunni. Geri þeir það muni
um leið draga verulega úr dauðs-
föllum af völdum skæðasta óvinar
borgarbúa, hjartasjúkdóma.
Verði veitingamenn í New York
við þessum tilmælum verða þeir að
hætta að nota smjörlíki og djúp-
steikingarolíu og vafalaust einnig
margar uppskriftir að eftirsóttu
sætabrauði.
Í tilmælum borgarinnar er vitn-
að í Robert Eckel, formann banda-
rísku hjartaverndarsamtakanna,
en hann segir að hert fita valdi
hjartasjúkdómum með sama hætti
og mettuð fita og mjólkurfita. Hef-
ur bandaríska matvælastofnunin
einnig skorið upp herör gegn
hertri fitu á landsmælikvarða og
frá og með næstkomandi janúar
verður skylt að merkja sérstaklega
öll matvæli sem innihalda hana.
Þegar leitað var álits starfs-
manna og gesta á veitingastöðum
voru þeir margir heldur vantrúaðir
á tilmælin en nú eru tvö ár liðin síð-
an öll tóbaksnotkun var bönnuð á
veitingastöðum, krám og skrif-
stofum í borginni.
Vilja hertu fituna burt