Morgunblaðið - 15.08.2005, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 17
ERLENT
Fjarðargötu 17 - Hafnarfirði
Sími 520 2600 - Fax 520 2601
Netfang as@as.is
Heimasíða http://www.as.is
Kári Halldórsson, löggiltur fasteignasali,
Jónas Hólmgeirsson, Eiríkur Svanur Sigfússon,
Birna Benediktsdóttir, Melkorka Guðmundsdóttir,
Laufey Lind Sigurðardóttir
Opið virka daga kl. 9–18
DREKAVELLIR 26
GLÆSILEGT NÍU HÆÐA LYFTUHÚS
Nýkomnar í sölu 3ja, 4ra og „penthouse“
íbúðir í glæsilegu 9 hæða lyftuhúsi á góðum
stað á Völlunum. Alls eru 34 íbúðir í húsinu,
þar af eru tvær „penthouse“ íbúðir en þær eru
5 herbergja. Tvær lyftur eru í húsinu. Bílakjall-
ari með 29 stæðum. Við hönnun hússins var
lögð áhersla á að allar íbúðirnar nytu útsýnis
og sólar. Öllum íbúðunum fylgja stórar suður-
svalir, að og auki fylgja norðursvalir 4ra herb.
íbúðunum. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án
gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi
verða flísar á gólfi. Sérlega vandaðar Voke III
innréttingar frá Húsasmiðjunni. Vönduð tæki. Mynddyrasími. Hús að utan afhendist fullfrágengið,
klætt báruformaðri klæðningu. Lóð og sameign fullfrágengin. Frábært útivistarsvæði er í grennd
við húsið. 4310
ESKIVELLIR 7 - GLÆSILEGT LYFTUHÚS
GLÆSILEGT 5 HÆÐA LYFTUHÚS. Nýkomnar
á sölu 2ja-3ja, 3ja-4ra, 4ra og 5 herbergja
íbúðir í glæsilegu fimm hæða lyftuhúsi á góð-
um stað á Völlunum. Alls eru í húsinu 37 íbúð-
ir. Bílakjallari með 26 stæðum. Áhersla var
lögð á að allar íbúðirnar njóti útsýnis og sólar.
Öllum íbúðunum fylgja góðar svalir eða ver-
andir. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar.
Sérlega vandaðar MODULA innréttingar frá BYKO. Hús að utan afhendist fullfrágengið, steinað
með ljósum marmarasalla, þannig að húsið verður viðhaldslítið í framtíðinni. Lóð og sameign full-
frágengin. Frábært útivistarsvæði er í grennd við húsið þar sem margar góðar gönguleiðir eru.
Stutt verður í alla þjónustu. AFHENDING er í júní 2006. Teikningar og allar nánari upplýsingar á
skrifstofu. 4467
DREKAVELLIR - FJÓRBÝLI - NÝTT - NÝTT
GVORUM AÐ FÁ Í EINKASÖLU NÝJAR OG
GLÆSILEGAR 126,5 4ra herbergja SÉR-
HÆÐIR í nýju „FJÓRBÝLISHÚSI“ á VÖLL-
UNUM í Hafnarfirði. SÉRINNGANGUR í allar
íbúðir. Seljast fullbúnar að utan sem innan,
án gólfefna. Afhending í feb.- mars 2006.
Verð 27,2 millj. 4315
BIRKITEIGUR - MOSFELLSBÆ
EINBÝLI EÐA TVÆR SÉRHÆÐIR
EFRI SÉRHÆÐ: Falleg ný 160,9 fm fimm her-
bergja íbúð í tvíbýli ásamt 46,8 fm innbyggð-
um bílskúr, samtals 207,7 fm. SÉRINN-
GANGUR. Hæðin skilast rúmlega fokheld.
Verð 32,9 millj.
NEÐRI SÉRHÆÐ: Falleg ný 80,5 fm 3ja her-
bergja íbúð í nýju fallegu tvíbýli. SÉRINN-
GANGUR. Útgengt er í garð úr stofu, sérlóð til vesturs og suðurs. Íbúðin afhendist þannig að
búið er að ganga frá útveggjum og húsið að utan fullgert. Verð 15,5 millj. 4308
ESKIVELLIR 9A & B
GLÆSILEGT SEX HÆÐA LYFTUHÚS
Nýkomið í sölu glæsilegt sex hæða lyftuhús á Völlun-
um. Tvö samliggjandi stigahús með 3ja, 4ra og 5
herbergja íbúðum. Bílageymsla er í kjallara, alls 22
stæði og fylgir sérgeymsla hverju bílastæði. Íbúðirnar
eru frá 86 fm og upp í 125 fm. Fimm herbergja íbúð-
irnar eru 142 fm. Svalirnar eru stórar, frá 16 fm og
upp í 22 fm eftir stærð íbúðanna. Íbúðirnar afhendast
fullbúnar að innan án gólfefna nema baðherbergi og þvottahús verða flísalögð. Baðherbergin eru sér-
lega glæsileg, hornbaðkar með nuddi og innbyggðum hitastýrðum blöndunartækjum og sturtu. Fyrsta
flokks innréttingar. Húsið skilast fullbúið að utan, einangrað og klætt með báruformaðri álklæðningu
og verður því nánast viðhaldsfrítt. Lóð og sameign fullfrágengin. 4071
FLESJAKÓR - KÓPAVOGUR - NÝBYGGING -
PARHÚS - KÓRAHVERFIÐ
Flott parhús sem nýtist mjög vel. Fimm svefn-
herbergi, gott skipulag eignar, flott staðsetning,
afhent við kaupsamning. Fullbúið að utan en
fokhelt að innan. Jeppabílskúr, er 39 fm með
3,3 m lofthæð. Vandaðir verktakar. Allar nánari
upplýsingar hjá ÁS fasteignasölu, sjá myndir á
netinu. 4024
HÁHOLT - LAUGARVATN
FALLEGT 126,7 fm ENDARAÐHÚS á tveimur
hæðum ásamt 25,8 fm BÍLSKÚR, samtals
152,5 fm og að auki ca 15 fm undir súð. Hús-
ið verður afhent fullbúið að utan og innan. Lóð
verður frágengin. Einnig er miðjuhúsið til sölu
en það afhendist fokhelt. Verð 21,1 millj. og
12,1 millj. 2354NÝBYGGINGAR VOGUM VATNSLEYSUSTRÖND
LINNETSSTÍGUR 2 - VEL STAÐSETT LYFTUHÚS Í
MIÐBÆ HF. - MEÐ STÆÐUM Í BÍLAGEYMSLU
Nýkomnar í einkasölu glæsilegar 3ja og 4ra her-
bergja íbúðir í glæsilegu litlu LYFTUHÚSI á
THORSPLANINU Í HAFNARFIRÐI. Íbúðirnar eru
mjög vandaðar og skilast fullbúnar að innan, án
gólfefna, flísar á baðherbergi og þvottahúsi. Að
utan skilast húsið fullbúið og lóð frágengin. AF-
HENDING er í ÁGÚST 2005. AÐEINS 5 ÍBÚÐIR
EFTIR. Byggingaraðili Fjarðarmót ehf. Verð frá 25,0 millj. Allar nánari upplýsingar hjá Ás fast-
eignasölu, sími 520 2600. 3743
Húsin skilast fullbúin að utan og fokheld
að innan eða lengra komin. Verðdæmi:
Einbýli frá kr: 19,5 millj. - 27,5 millj.
Raðhús frá kr. 12,8 millj. - 23,1 millj.
Parhús frá kr. 17,2 millj. - 24,3 millj.
HÆGT ER AÐ FÁ HÚSIN AFHENT
fokheld / tilbúin undir tréverk / eða
fullbúin án gólfefna. 4441
VORUM AÐ FÁ EINBÝLI - RAÐHÚS OG PARHÚS Í NÝJU
HVERFI Í VOGUNUM.
Bagdad. AP, AFP. | Leiðtogar sjíta og
Kúrda í Írak virtust í gær tilbúnir til
að ganga frá drögum að nýrri stjórn-
arskrá án samþykkis súnníta. Áttu
drögin að vera tilbúin í dag en súnn-
ítar vilja ekki fallast á hugmyndir
um einhvers konar sambandsríki í
Írak.
„Við getum enn gengið frá drög-
unum án aðildar súnníta, sagði
Mahmud Othman, einn fulltrúa
Kúrda í stjórnarskrárnefndinni, en
Zalmay Khalilzad, sendiherra
Bandaríkjanna í Írak, sagði, að ekk-
ert samkomulag væri um drögin og
yrði að ræða þau áfram í dag. Sagði
hann, að meginágreiningsefnin væru
tvö, annars vegar hugmyndir sjíta og
Kúrda um sjálfstjórnarsvæði þeirra
og hins vegar staða íslams eða trú-
arinnar. Hvort hún eigi að vera „sjálf
lagauppsprettan“ eða ein af þeim.
Kynda Íranar undir?
Khalilzad sagði einnig í viðtali við
CNN í gær, að straumur Írana og ír-
anskra vopna til Íraks kynti undir
óróanum þar. Kom það einnig fram á
fréttavef bandaríska tímaritsins
Time í gær en þar er vitnað í skjöl frá
leyniþjónustu bandaríska hersins. Í
þeim komi fram, að Íranir hafi tekið
upp beinan stuðning við íraskan
skæruliðahóp undir forystu manns
að nafni Abu Mustafa al-Sheibani.
Hafi hann á að skipa 280 mönnum,
sem skiptist upp í 17 sprengju- og
dauðasveitir. Hafi þessi hópur að
undanförnu notað mjög öflugar
sprengjur gegn bandarískum herbíl-
um.
Time segir einnig, að vestrænir
sendimenn telji, að allar upplýsing-
ar, sem þeir og einkum Bandaríkja-
menn láti írösku stjórninni í té, fari
beint til íranskra stjórnvalda.
Engin
sátt um
stjórnar-
skrá
Íranar sagðir
styðja einn skæru-
liðahópanna í Írak
Colombo. AFP. | Her- og lögreglu-
menn á Sri Lanka handtóku í gær
fjölda manna í leitinni að morðingj-
um Lakshman Kadirgamars, utan-
ríkisráðherra landsins. Var hann
skotinn til bana á föstudag.
Hundruð lögreglumanna fóru í
gær hús úr húsi í höfuðborginni, Co-
lombo, og leitað var í öllum bílum,
sem fóru frá eða komu til borg-
arinnar. Kvaðst yfirmaður lögregl-
unnar viss um, að morðingjarnir
væru enn í Colombo og sagðist von-
góður um að ná þeim með hjálp
óbreyttra borgara.
Stjórnvöld gruna skæruliða Tam-
íl-tígra um morðið en Kadirgamar,
sem sjálfur var Tamíli, hafði oft far-
ið hörðum orðum um skæruliða og
var sagður vera ofarlega á dauða-
lista þeirra. Beitti hann sér fyrir
því, að Tamíl-tígrar voru settir í
bann í Bandaríkjunum og Bretlandi
og af þeim sökum höfðu honum ver-
ið fengnir um 100 lífverðir. Hann
notaðist þó ekki alltaf við þá og er
sagður hafa skellt skollaeyrum við
viðvörunum um, að hann væri ekki
óhultur á eigin heimili. Var hann
skotinn þar og höfðu morðingjarnir
búið um sig í næsta húsi.
Talsmenn Tamíl-tígra neita því að
bera ábyrgð á morðinu og segja, að
stjórnvöld ættu að líta sér nær,
meðal Singhalesa, sem eru meiri-
hluti landsmanna, séu ýmis öfl and-
víg núverandi vopnahléi milli Tamíl-
tígra og stjórnvalda og vilji það
feigt.
Mikil leit
að morð-
ingjunum
♦♦♦
Kissufim. AP, AFP. | Ísraelskir hermenn búa sig
nú undir að flytja burt ísraelska landtökumenn
á Gaza nauðuga viljuga en þeim hefur verið
skipað að rýma hús sín þar fyrir miðnætti ann-
að kvöld.
Dan Halutz herhöfðingi sagði í gær, að hann
vonaðist til, að brottflutningurinn færi frið-
samlega fram þrátt fyrir, að nokkrar þúsundir
andstæðinga brottflutningsins væru nú saman
komnar í gyðingabyggðunum.
Palestínumenn hafa einnig mikinn viðbúnað á
Gaza vegna brottflutningsins en Ísraelar hafa
varað þá við og segja, að verði ráðist á ísr-
aelska hermenn meðan á honum stendur verði
hætt við hann að sinni.
Á miðnætti í nótt átti að loka landamærum
Ísraels og Gaza. Sagði talsmaður Ísraelshers,
að eftir það fengi enginn að fara til Gaza, að-
eins þaðan. Þá munu þeir Ísraelar, sem enn eru
í gyðingabyggðunum, fá skipun um að vera
farnir fyrir miðnætti annað kvöld, ella verði
þeir fluttir burt með valdi.
Búist við átökum
Um 8.000 gyðingar hafa búið á Gaza og Ha-
lutz hershöfðingi sagði í gær, að líklega myndu
aðeins 50% þeirra fara þaðan fyrir miðnætti
annað kvöld. Þá viðurkenndi hann, að allt að
5.000 andstæðingar brottflutningsins væru nú í
Gush Katif-byggðinni auk íbúanna þar og því
mætti búast við einhverjum átökum.
Halutz benti á, að búið væri að yfirgefa 21
byggð á Gaza en andstaðan er mest í byggðum
bókstafstrúaðra gyðinga á sunnanverðu svæð-
inu. Þar er því haldið fram, að Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, hafi svikið guðlegan
rétt þeirra samkvæmt Biblíunni til að taka
landið af Palestínumönnum.
Ísraelum á Gaza skipað burt
AP
Ísraelskir lögreglumenn bera burt íbúa í gyðingabyggðinni Kfar Darom á Suður-Gaza. Reyndu íbú-
arnir að koma í veg fyrir, að hermenn gætu flutt ýmsan búnað frá byggðunum.