Morgunblaðið - 15.08.2005, Side 20
20 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Á
hátíðarsamkomu ár-
legrar Hólahátíðar í
gær las Ísak Harð-
arson, skáld hátíðar-
innar, úr eigin verk-
um og Kammerkór Akraness
söng nokkur lög undir stjórn
Sveins Arnars Sæmundssonar
auk þess sem Vigdís flutti fyrr-
greinda ræðu.
Nærri 30 í pílagrímagöngu
Dagskrá Hólahátíðar hófst með
málþingi um náttúrusiðfræði á
föstudagskvöld og á laugardag
var efnt til svonefndrar píla-
grímsgöngu frá Atlastöðum í
Svarfaðardal heim að Hólum og
þann dag var einnig efnt til helgi-
stundar í Gvendarskál, við altari
Guðmundar biskups góða, sem er
í hlíðum Hólabyrðu.
Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson,
vígslubiskup á Hólum, sagðist í
samtali við Morgunblaðið vera
mjög ánægður með þátttöku í
dagskrá Hólahátíðar.
Hátt í 30 manns tóku þátt í
pílagrímsgöngunni sem hjónin sr.
Guðrún Edda Gunnarsdóttir og
Einar Sigurbjörnsson guðfræði-
prófessor leiddu. Var staldrað við
nokkrum sinnum á sex og hálfs
tíma langri göngu til að hlýða á
ritningarlestur og syngja sálma
auk þess sem göngumenn nutu
líkamlegrar næringar.
Nokkuð á annan tug manna
gekk um hádegisbil á laugardag í
Gvendarskál og tók þátt í helgi-
stund við altari Guðmundar góða.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Ís-
lands, flutti hugvekju og sr. Jón
Aðalsteinn stýrði helgistund í
þokumóðu. Þá flutti norska tríóið
Trio i ein Fjord þjóðlög og dansa
og Voces Thules söng úr Þorláks-
tíðum við aftansöng.
Við hátíðarguðsþjónustu í gær
prédikaði sr. Pétur Þórarinsson,
prófastur í Laufási, og vígður var
í messunni prósessíukross eftir
Leif Breiðfjörð.
Í ræðu sinni ræddi Vigdís
Finnbogadóttir í upphafi um
Hólastað og sagði hátíðina hafa
aukið víðsýni sína og annarra að-
komumanna á viðamiklu mennta-
starfi sem þar færi fram. „Hér er
meira að gerast á gamla sögu-
staðnum, menntakjarna Norður-
lands fyrri alda, en nokkurn
grunar sem aldrei fær meira en
nasasjón af stórmerkri starfsemi
Háskólans á Hólum í fjölmiðlum í
hringiðu dagsins,“ sagði
meðal annars. Hún gerð
að umtalsefni ábyrgðina
úrunni sem ekki gæti tal
sig sjálf og sagði hana n
þeirri ábyrgð sem við b
Lýsti áhyggjum af áhrifum enskunnar á íslens
Koma þarf á ken
stundum í orðatil
Vigdís Finnbogadóttir
sagðist meðal annars í
ræðu sinni á Hólahátíð
í gær hafa áhyggjur af
nýjum áhrifum ensk-
unnar í setningum og
notkun óþarfra auka-
sagna í íslenskri tungu.
Í frásögn Jóhannesar
Tómassonar kemur
fram að forsetinn fyrr-
verandi telur aðkall-
andi að efla vitund um
mikilvægi þess að varð-
veita íslenskt mál og
efla kennslu í íslensku í
skólum. Telur Vigdís
það ekki geta skaðað að
koma á sérstökum
kennslustundum í orða-
tiltækjum.
Kirkjugestir þakka prestunum, sr. Pétri Þórarinssyni, sr. Jóni A
biskup og sr. Gunnari Jóhannessyni sóknarpresti.
Gengið til hátíðarguðsþjónustu á Hólahátíð og borinn var próses
kross eftir Leif Breiðfjörð sem vígður var við það tækifæri.
Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup bar hitann og þung
skipulagi Hólahátíðar með Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi
seta Íslands, sem hélt hátíðarræðuna.
UMRÆÐUR UM KJARNA MÁLS
Nú hafa orðið ákveðin þáttaskilí svonefndum Baugsmálum. Ítæp þrjú ár eða frá því að
húsleit var gerð í höfuðstöðvum fyr-
irtækisins hafa opinberar umræður
nánast eingöngu byggzt á þeim upp-
lýsingum, sem fram hafa komið frá
talsmönnum fyrirtækisins sjálfs. Þeir
hafa í fyrsta lagi sagt að tímasetning
húsleitar haustið 2002 hafi miðast við
að spilla viðskiptaáformum þeirra
varðandi brezka fyrirtækið Arcadia.
Þeir hafa í öðru lagi sagt, að rannsókn
málsins hafi tekið alltof langan tíma.
Þeir hafa í þriðja lagi sagt, að um póli-
tískar ofsóknir væri að ræða.
Nú liggja ákærurnar fyrir og hafa
verið birtar að frumkvæði þeirra
sjálfra. Þar með hafa orðið þáttaskil.
Nú þarf ekki lengur að ræða málið á
grundvelli staðhæfinga þeirra um
ofangreint. Nú er hægt að ræða þetta
mál á efnislegum forsendum, þ.e. um
þau ákæruatriði, sem fram eru komin.
Þetta á líka við um talsmenn fyrir-
tækisins. Í viðtölum þeim, sem
Fréttablaðið birti sl. laugardag við þá
Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jó-
hannesson, ræða þeir um málið á fyrr-
greindum forsendum eins og þeir
hafa gert síðustu tæp þrjú ár.
Nú er hins vegar komið að því að
þeir ræði um efnisatriðin sjálf. Þótt
lögmenn þeirra, sem væntanlega eru
höfundar að þeim athugasemdum við
hvern ákærulið, sem birtar hafa verið
opinberlega, hafi lýst ákveðnum sjón-
armiðum er eðlilegt að sakborningar
tjái sig um þær beint úr því að þeir á
annað borð vilja fjalla um málið á op-
inberum vettvangi.
Það eru vafalaust mörg lagaleg
álitamál í ákærunum. Á þeim tíma,
sem rannsóknin nær til er Baugur al-
menningshlutafélag. Þótt stofnendur
Bónuss hafi verið ráðandi hluthafar í
Baugi á þessum tíma voru fjölmargir
aðrir hluthafar í félaginu á þeim ár-
um, sem um er að ræða. Þeir eiga líka
sinn rétt.
Við lestur ákærunnar stöðva vafa-
laust margir við það mikla fjár-
streymi, sem er úr sjóðum almenn-
ingshlutafélagsins á þeim tíma, sem
Baugur er skráður á Kauphöll Ís-
lands, til félaga í eigu ráðandi hlut-
hafa, sem nota svo peninga um tíma
til þess að fjárfesta í öðrum félögum
eða í Baugi. Þeir nýta sér fjármuni
Baugs m.a. til þess að styrkja stöðu
sína í Baugi.
Ljóst er af athugasemdum sak-
borninga, að þeir telja þetta löglega
viðskiptahætti og vísa m.a. til sér-
stakrar lagagreinar í hluthafafélög-
um sjónarmiði sínu til stuðnings.
Segjum sem svo að þeir hafi rétt
fyrir sér og slíkar lánveitingar hafi
verið heimilar lögum samkvæmt, þótt
ákæruvaldið sé annarrar skoðunar.
Hvað þá um aðra hluthafa? Höfðu
þeir sama aðgang að sjóðum Baugs?
Var þeim kunnugt um að þeir gætu
fengið lánaða peninga úr sjóðum
Baugs m.a. til þess að auka hlut sinn í
félaginu? Var þeim gerð grein fyrir
þessum möguleika? Er ekki eðlilegt
að jafnræði ríki á milli hluthafa? Það
er grundvallaratriði í Kauphallarvið-
skiptum, að allir, sem málið snertir,
hafi jafnan aðgang að upplýsingum
um rekstur fyrirtækis og það á sama
tíma. Höfðu aðrir hluthafar í Baugi
þær upplýsingar undir höndum að
þeir gætu fengið slíka fyrirgreiðslu
hjá Baugi?
Ef ekki; hvernig stendur þá á því?
Varla hafa forsvarsmenn almennings-
hlutafélags, sem skráð er á Kauphöll
Íslands með þúsundir hluthafa, um-
gengist félagið eins og það væri
einkaeign þeirra?
Það væri fróðlegt að fá umsagnir
einhverra sakborninga um vangavelt-
ur af þessu tagi.
Í bréfum Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar til lögregluyfirvalda, sem
Morgunblaðið birti í heild, er vikið að
óskum Hreins Loftssonar, stjórnar-
formanns Baugs, veturinn 2002 um
skýrslu endurskoðenda fyrirtækisins
um tiltekin atriði. Í bréfum Jóns Ás-
geirs kemur fram, að þegar skýrslu-
gerð endurskoðenda var lokið hafi
ákveðnar greiðslur farið fram til
Baugs til þess að allt væri á hreinu. Af
þeim gögnum, sem fyrir liggja, er
ekki hægt að fullyrða að í þeirri
skýrslu, sem Hreinn Loftsson óskaði
eftir, hafi verið drepið á mörg þeirra
atriða, sem nú eru orðin að opinberu
ákæruefni, en miðað við að margar
greiðslur eru gerðar upp í maímánuði
2002 bendir margt til að svo sé.
Hreinn Loftsson lét af stjórnarfor-
mennsku Baugs þá um vorið.
Hvað olli því? Taldi hann sig sem
fulltrúa allra hluthafa stórra og
smárra ekki geta varið þær gerðir,
sem um var fjallað í skýrslu endur-
skoðenda þennan vetur og vor? Það er
kominn tími til að spurningum um at-
riði af þessu tagi verði svarað úr því
sakborningar telja það henta sínum
hagsmunum að fjalla mikið um þetta
mál utan dómsala.
Eitt af því, sem ítrekað hefur verið
sagt af hálfu talsmanna fyrirtækisins
á undanförnum mánuðum og misser-
um er, að upphafleg ákæruefni Jóns
Geralds Sullenberger hafi horfið út í
veður og vind og í ljós hafi komið að
þau hafi ekki verið forsendur fyrir
ákærum.
Annað hefur nú komið í ljós. Í
ákærunum eru efnisþættir, sem varða
skemmtibát á Flórída, innflutning á
bílum og kreditnótu, sem notuð hafi
verið til að fegra milliuppgjör al-
menningshlutafélagsins Baugs.
Hingað til hafa talsmenn Baugs ítrek-
að haldið því fram, að efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra hafi ekki
þekkt muninn á debet og kredit og
verður þó að ætla að endurskoðendur
hafi komið að ráðgjöf hjá efnahags-
brotadeild vegna svo viðamikils máls.
Þótt Morgunblaðið bendi á ofan-
greind atriði í ljósi þess sem fram hef-
ur komið hjá talsmönnum Baugs á
undanförnum misserum skal undir-
strikað að blaðinu er ljóst að í þessu
máli eru mörg lagaleg álitamál og það
getur enginn staðhæft með nokkurri
vissu hver niðurstaða dómstóla verð-
ur. Reynslan hefur sýnt að þótt þung-
ar ákærur komi fram er ekki þar með
sagt að dómar falli á sama veg. Þetta
kom skýrt fram í svonefndu Hafskips-
máli og hefur komið fram í öðrum
málum. Efnahagsbrotadeild hefur
tapað málum fyrir dómstólum.
Það sem máli skiptir hins vegar nú
þegar ákærur hafa verið birtar er að
umræður fari fram um kjarna máls-
ins.