Morgunblaðið - 15.08.2005, Page 28
28 MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Hundabúr - hvolpagrindur
Full búð af nýjum vörum. 30% af-
sláttur af öllu. Opið mán.-fös.
kl. 10-18, lau. 10-16 og sun. 12-16.
Tokyo, Hjallahrauni 4,
Hafnarfirði, sími 565 8444.
Ferðalög
Atvinnuhúsnæði
Til leigu nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Rvík. Securitas ör-
yggiskerfi. Tölvulagnir. Góð sam-
nýting.
Uppl. í síma 896 9629.
Sumarhús
ROTÞRÆR
Framleiðum rotþræ 2300 - 25000
lítra. Öll fráveiturör og tengistykki
í grunninn. Sérboruð siturrör,
tengistykki og fylgihlutir í situr-
lögnina.
Heildarlausn á hagstæðu verði.
BORGARPLAST
Seltjarnarnesi: S 561 2211
Borgarnesi: S 437 1370
www.borgarplast.is
Iðnaðarmenn
Smiður getur bætt við sig verk-
efnum. Uppl. í síma 856 9640.
Námskeið
Bættu Microsoft í ferilskrána
Vandað MCSA nám í umsjón Mi-
crosoft netkerfa hefst 5. sept.
Einnig styttri áfangar. Hagstætt
verð. Nánari upplýsingar og
skráning á www.raf.is og í síma
863 2186. Rafiðnaðarskólinn.
Tölvur
Ódýrar tölvuviðgerðir og upp-
færslur. Get skilað samdægurs.
Uppl. í s. 821 6036.
Fartölvustandar, póstkassar ofl.
Fartölvustandar frá kr. 2.990.
Póstkassar frá kr. 2.900. Krydd-
rekkar fyrir skúffur kr. 1.600.
Plexiform, smíði og hönnun,
Dugguvogi 11, sími 555 3344.
Til sölu
FOSSBERG
Dugguvogi 6 5757 600
B y s s u t a s k a
Byssutaska úr áli
• 1350 x 330 x 112 mm
6.995
Tékkneskar og slóvanskar kris-
tal ljósakrónur. Handslípaðar.
Mikið úrval. Gott verð.
Slóvak kristall, Dalvegi 16b,
201 Kópavogi, s. 544 4331.
Skápahurðir í öllum stærðum.
Spónasalan ehf.,
Smiðjuvegi 40, gul gata,
sími 567 5550.
Pallaefni úr cedrusviði sem er
varanlegt.
Spónasalan ehf.,
Smiðjuvegi 40, gul gata,
sími 567 5550.
Mikið úrval af vönduðum tékk-
neskum postulín styttum.
Slóvak Kristall, Dalvegi 16b,
201 Kópavogi, s. 544 4331.
Lerkigólfborð, gott verð
Spónasalan ehf.,
Smiðjuvegi 40, gul gata,
sími 567 5550.
Fyrirtæki
Gott fyrirtæki til sölu. Til sölu
gott fyrirtæki með skyndibita,
grill, ís og fleira. Góð staðsetning,
miklir möguleikar, gott verð, auð-
veld kaup. Nánari upplýsingar
veitir Reynir í síma 581 2040.
Þjónusta
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir, viðgerðir, töfluskipti,
endurnýjun á raflögnum.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025 • lögg. rafverktaki
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt
og kalt vatn.
Boltís sf.,
s. 567 1130 og 893 6270.
Vélar & tæki
Bátar
Bátaland, allt fyrir báta.
Utanborðsmótorar, bátahlutir,
dælur, öryggisbúnaður, bátar,
þurrkubúnaður og margt fleira.
Bátaland, Óseyrarbraut 2,
Hafnarfirði, S. 565 2680,
www.bataland.is
Bílar
Góður bíll á góðu verði!
Til sölu Skoda Felicia árg. '99. Ek-
inn 66.000 km. Uppl. 868 4901.
Jeppar
Nissan Patrol Elegance árg.
2000. Skráður 11/2000, ekinn 82
þ., 35" hækkun, leður, topplúga,
rafdr. sæti, samlæsing, dráttar-
krókur, einn eigandi. Mjög vel
með farinn. Verð 3.350.000. Sími
863 9229.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Snorri Bjarnason
BMW 116i, nýr, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat, '05
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Glæsileg kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
Búslóðaflutningar
Vegna búslóðaflutninga Sófa-
borð 7 þús., sjónvarpsskápur
10 þús. 3ja arma antiklampi
12 þús., jeppadekk á 16" álfelgum
45 þús., ungbarnarúm 5 þús.,
borðskápur 3 þús. Auk þess
Nissan Terrano II. Gsm: 699 0224.
Hreingerningar
Fyrirtæki, stofnanir og heimili
Við hreinsum allar tegundir af
gardínum. Gerum tilboð.
Upplýsingar í síma 897 3634.
Smáauglýsingar
augl@mbl.is
hinar eiginlegu samningaviðræður.
Svo var hann alltaf vel lesinn og
undirbúinn og hafði skýra mynd af
stöðunni og hinu mögulega. Þegar
fram í sótti sóttust aðrir saminga-
menn EFTA eftir því að vita álit hans
á hinum ýmsu álitaefnum. Sú virðing
sem hann þannig ávann sér nýttist
vitaskuld Íslandi til ávinnings. Og
svo þurfti að ná betri samningum en
Noregur í fiskinum á sama tíma og
ráðamenn í Noregi höfðu lýst því yfir
að eitt yrði yfir Ísland og Noreg að
ganga. Það tókst snilldarlega að upp-
fylla þetta skilyrði en ná samt betri
samningum fyrir Ísland. Stundum
var tekist hart á og öðrum samninga-
mönnum stóð ekki alltaf á sama. Vel
er mér í minni, þegar Gro Harlem
Brundtland, forsætisráðherra Nor-
egs, mætti til ráðherrafundar í Vín
og var kynnt fyrir íslensku samn-
inganefndinni og tók svo til orða: „Er
det så den fryktelige Hannes.“ Þann-
ig var ógnblandin virðingin sem emb-
ættismenn hennar báru henni af
samskiptunum við Hannes. Hitt má
ekki gleymast að í svona samningum
er ekkert sjálfgefið eða auðfengið.
Hannes og pípan voru eitt. Hún
var eiginlega hans attríbút. Hann
föndraði drjúgt við hana á samninga-
fundum. Hún fór jafnvel að gegna
hlutverki á samningafundunum.
Menn tóku að lesa í takta og með-
höndlun Hannesar á pípunni hvað
hann væri að hugsa og hvernig hann
kynni að bregðast við því sem var á
dagskrá. Þótt föndrið bæri hæst
þurfti þó annað veifið að kveikja í píp-
unni. Starfsmenn EFTA höfðu hins
vegar gert samþykkt um reykinga-
bann á fundum. Sem Hannes hafði
eitt sinn kveikt í pípu sinni vatt sér að
honum formaður starfsmannafélags-
ins og sagði að hér ætti ekki að
reykja. Svar Hannesar lifir enn: „Þú
getur sagt upp, ef þér mislíkar reyk-
ingar mínar.“ Tilsvör Hannesar voru
þannig gjarnan vafningalaus og
hrukku sumir undan þeim við fyrstu
kynni.
Þótt Hannes væri harður og sæk-
inn samningamaður og ýmsum lærð-
ist að kássast ekki upp á hann var
hann mildur og sérlega skemmtileg-
ur. Nærvera hans eða félagsskapur
við hann var þess vegna ævinlega
gefandi. Þau diplómataboð sem mað-
ur sat í áhættunni um dauflega vist
urðu skemmtisamkomur ef Hannes
var viðstaddur og í kallfæri. Það veit
ég að engan vildi eiginkona mín frek-
ar eiga að borðherra en Hannes í
matarboðum.
Hannes var einkar greindur, og
nýtti greind sína vel. Hann var jafn-
framt hagmæltur og listfengur. Síð-
ari hluta ævinnar tók hann að stunda
myndlist af nokkru kappi í frístund-
um sínum og liggur eftir hann nokk-
urt safn ágætra málverka, sem munu
minna á hann og verma minninguna
um hann um ókomin ár.
Ungur kvæntist hann Ragnheiði
Valdimarsdóttur, sem nú saknar ást-
ríks og elskaðs eiginmanns. Þau hjón
voru sérlega samhent og samrýnd og
unnust mjög. Þau voru einkar glæsi-
legir fulltrúar Íslands hvar sem þau
fóru. Fjölskyldu sína, börn, tengda-
börn og barnabörn héldu þau þétt ut-
an um. Hlýjan og væntumþykjan
geislaði af þeim. Við Irma vottum
þeim öllum okkar dýpstu samúð,
þegar við kveðjum nú vininn og gleði-
gjafann Hannes Hafstein.
Kjartan Jóhannsson.
Við fráfall Hannesar Hafstein hef-
ur íslenska utanríkisþjónustan misst
einn af máttarstólpum sínum. Hann
var íslenskum diplómötum fyrir-
mynd og leiðtogi á tímum mikilla
breytinga í hinu alþjóðlega umhverfi,
vinnusamur og traustur. Hann gerði
miklar kröfur til samstarfsmanna
sinna en þó ávallt meiri til sín sjálfs.
Hann lagði mál skýrt fyrir, lá ekki á
skoðunum sínum og sagði frá kostum
og göllum mismunandi leiða að mark-
miðum. Víðtæk þekking hans og
reynsla kom þjóðinni allri e.t.v. best
er hann gegndi starfi aðalsamninga-
manns Íslands í EES-samningavið-
ræðunum. Þáverandi utanríkisráð-
herra lýsti því að þar hefði réttur
maður verið á réttum stað.
Hannes varð sendiráðsritari í
Stokkhólmi 1965, sama ár og hann
var ráðinn í utanríkisþjónustuna.
Fimmtán árum síðar hóf ég störf í
sendiráði Íslands þar og hafði áður
þegið ráðleggingar hans í því sam-
bandi. Áberandi var, að ýmsir lykil-
menn í sænsk-íslenskum samskipt-
um minntust þá enn með hlýjum
orðum starfa hans að þeim málum.
Störf Hannesar í ráðuneytinu 1970–
74 voru heilladrjúg fyrir utanríkis-
þjónustuna því hann átti þá, ásamt
Pétri heitnum Thorsteinssyni, þáver-
andi ráðuneytisstjóra, drýgstan þátt
í að endurmeta, skilgreina og nú-
tímavæða starfsemina. Ný Fyrir-
mæla- og leiðbeiningabók varð til,
grundvallarrit fyrir alla starfsmenn
þjónustunnar.
Innan þjónustunnar segjum við
gjarnan að menn gleymi aldrei fyrsta
„póstinum“ í útlöndum. Árið 1977
fluttum við Anna á fyrsta póst okkar;
til Brussel. Þar voru þá fyrir Guð-
mundur Í. Guðmundsson, Rósa kona
hans og Hannes og Ragnheiður.
Ekki er hægt að ímynda sér betri
og hlýlegri móttökur en við nýliðarn-
ir nutum þarna í verðandi höfuðborg
Evrópu. Börn okkar og börn Hann-
esar og Ragnheiðar eru á svipuðum
aldri og þarna voru fljótt lögð drög að
vináttu sem staðið hefur síðan. Ómet-
anleg hjálpsemi Hannesar og Ragn-
heiðar í hvívetna á þessum tímamót-
um í lífi okkar verður seint
fullþökkuð. Og betri fyrirmyndir
ekki til.
Á þessum árum voru aðeins þrír ís-
lenskir diplómatar í Brussel, ég var
fyrsti „Third Man“, eins og Hannes
kallaði það, og hann var staðgengill
Guðmundar Í.
Með okkur störfuðu tveir ritarar.
Aðalstarfið var að vera fastanefnd
hjá NATO, en jafnframt gagnvart
Efnahagsbandalagi Evrópu, eins og
ESB hét þá, og sendiráð í Belgíu og
Lúxemborg. Mikið vinnuálag var á
þessa fámennu sveit, vinnutími mjög
langur, fundarsetur miklar, tilheyr-
andi greinargerðir sendar í ráðu-
neytið o.m.fl. Þetta voru eftirminni-
leg mótunarár sem liðu hratt.
Hannes varð skrifstofustjóri utanrík-
isráðuneytisins í kjölfarið og svo
sendiherra í Genf.
Leiðir lágu saman á ný 1987–89 í
ráðuneytinu þar sem Hannes stýrði
sem ráðuneytisstjóri ört vaxandi
starfsemi. Meðal breytinga í ráðu-
neytisstjóratíð Hannesar var að
utanríkisviðskiptin fluttust frá við-
skiptaráðuneytinu í utanríkisráðu-
neytið.
Eftir að þau Ragnheiður fluttu til
Brussel á ný, þar sem hann varð
sendiherra gagnvart ESB o.fl., hitt-
umst við oft þar, ekki síst eftir að við
Anna fluttum til Bonn. Eftir að
Hannes tók við störfum í fram-
kvæmdastjórn ESA var gaman að
fylgjast með því þegar þau Ragn-
heiður endurgerðu gamalt hús í
Brussel eftir sínu höfði.
Þegar vel tekst til geta störf í utan-
ríkisþjónustunni verið mjög gefandi
fyrir hjón, teymissamstarf tveggja
einstaklinga, sameiginleg kynning á
landi og þjóð erlendis. Á þessu sviði
voru Hannes og Ragnheiður alla tíð
fyrirmynd og er raunar vart hægt að
hugsa sér að gera megi betur í þess-
um mikilvæga þætti starfsins. Mót-
tökur og málsverðir Ragnheiðar og
Hannesar voru annálaðar samkomur
frá fyrstu tíð. Fór þar saman gest-
risni og hlýja gestgjafanna, frábær
eldamennska húsfreyjunnar og
glöggt auga fyrir því sem íslenskum
hagsmunum kæmi best. Aðdáunar-
vert var að sjá samspil þeirra hjóna
sem einkenndist ávallt af ást og
gagnkvæmri virðingu. Æskuást
þeirra entist ævina.
Ragnheiður var stoð og stytta
Hannesar er veikindi herjuðu á.
Í góðra vina hópi var Hannes hrók-
ur alls fagnaðar. Minnisstætt er okk-
ur Önnu 40 ára afmæli hans þar sem
græskulaus húmorinn var allsráð-
andi – stórar stundir í lífinu fram-
undan. Hannes átti það til að setja
saman vísur í gamansömum tón, sem
oft tengdust daglegum störfum. Ekki
flíkaði hann þeim kveðskap frekar en
ýmsu öðru sem hann taldi til einka-
mála. Hann náði t.d. miklum árangri í
ræktun rósa og á seinni árum tók
hann upp olíu- og vatnslitamálun í
tómstundum. Hann var maður mik-
illa tilfinninga sem hann fór vel með,
en það duldist t.d. engum við viss
tækifæri, eins og í brúðkaupi elstu
dótturinnar.
Elsku Ragnheiður og fjölskylda:
Við Anna og börnin biðjum góðan
Guð að styrkja ykkur öll og milda
sorgina.
Ég kveð lærimeistara og vin með
virðingu og söknuði. Guð blessi minn-
ingu hans.
Hjálmar W. Hannesson.
Látinn er mikill höfðingi.
Hannes Hafstein var lykilpersóna í
þróun Evrópusamstarfsins síðustu
15 ár. Alveg sérstaklega á þetta við
þegar unnið var að samningagerðinni
um stofnun evrópska efnahagssvæð-
isins, sem veitti EFTA-löndunum að-
gang að innra markaði Evrópusam-
bandsins. Þar fór Hannes fyrir
samninganefnd Íslands, síðan varð
HANNES ÞÓRÐUR
HAFSTEIN