Morgunblaðið - 15.08.2005, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2005 29
MINNINGAR
Atvinnuauglýsingar
Upplýsingar
gefa 569 1122
Ragnhildur og
Bryndís.
í Skeifuna,
Flatir í Garðabæ,
Hlíðarveg í
Kópavogi
og á Álftanes
Raðauglýsingar 569 1100
Listmunir
Dieter Roth — Hans Dalh
— Lestu þetta
Hef til sölu málverk eftir Dieter Roth sem nú
er orðinn gífurlega vinsæll og verðmikill í Evr-
ópu og vaxandi í Ameríku.
Sennilega eina málverkið sem er til sölu á
frjálsum markaði í heiminum í dag.
Eitthvað er til af bókarskreytingum og öðrum
teikningum á markaðnum en ekkert málverk.
Til sýnis og sölu hjá Fyrirtækjasölunni í Suður-
veri á venjulegum skrifstofutíma.
Verkið er afstrakt, hreint Geometrik verk, sign-
erað af honum sjálfum og á mjög sérstaka og
kunnuga sögu.
Frábær fjárfesting og vaxandi.
Tilboð óskast. Upplýsingar ekki gefnar í síma,
aðeins á staðnum.
Á sama stað er til fallegt verk eftir hinn heims-
fræga norska málara Hans Dalh sem dó 1937.
Verkið hefur verið á Íslandi yfir 60 ár í eigu
sömu fjölskyldunnar.
Fyrirtækjasalan Suðurveri.
Styrkir
Auglýsing
um úthlutun styrkja
Frímerkja- og póstsögusjóður var stofnaður
með reglum nr. 449, 29. október 1986. Gildandi
reglur eru nr. 453, 18. maí 2001.
Tilgangur sjóðsins er að efla og styrkja störf
og rannsóknir á sviði frímerkjafræða og póst-
sögu og hvers konar kynningar- og fræðslu-
starfsemi til örvunar á frímerkjasöfnun, svo
sem með bóka- og blaðaútgáfu. Eins skal
sjóðurinn styrkja sýningar og minjasöfn, sem
tengjast frímerkjum og póstsögu.
Styrki má veita félagasamtökum, einstakling-
um og stofnunum.
Næsta úthlutun styrkja fer fram á degi frímerk-
isins 9. október 2005. Umsóknir um styrki skal
senda til stjórnar sjóðsins, b.t. Halldórs S.
Kristjánssonar, samgönguráðuneytinu, Hafnar-
húsinu v. Tryggvagötu, 101 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 15. september 2005.
Umsóknum skal fylgja ítarleg greinargerð um
í hvaða skyni sótt er um styrk.
Reykjavík, 19. júlí 2004.
Stjórn Frímerkja- og póstsögusjóðs.
hann fulltrúi Íslands við framkvæmd
samningsins og síðar til lífsloka með-
limur og þá forseti ESA, eftirlits-
stofnunar EFTA-landanna.
Samningarnir um evrópska efna-
hagssvæðið eru þýðingarmestu al-
þjóðasamningar, sem Noregur og Ís-
land hafa gert. Yfirburðaþekking og
jákvætt framlag Hannesar til þeirrar
samningagerðar var einnig Noregi
mjög til góðs. Hafa þessir samningar
átt mjög mikinn þátt í að tryggja og
bæta efnahagsástand landa okkar
beggja.
Traustbyggð reynsla Hannesar og
þekking hans og innsæi varðandi al-
þjóðasamstarf skóp honum stöðu
sem mjög áhrifamiklum talsmanni ís-
lenskra hagsmuna, en umfram allt sá
hann mál og möguleika í heildrænu
samhengi og nálgun hans á grund-
vallaratriðum var mjög heilsteypt.
Þessir hæfileikar hans komu sér
mjög vel við áralangt starf hans sem
meðlimur og forseti ESA.
Hannes Hafstein var þægilegur og
umgengnisgóður maður frá fyrstu
kynnum, traustur og réttsýnn og
orðum hans mátti treysta og svo
hafði hann skapandi kímnigáfu.
Hinir fjölmörgu norsku vinir hans
og starfsbræður munu æ minnast
hans með gleði og virðingu.
Við Norðmenn sendum frú Ragn-
heiði og allri fjölskyldu hans einlæg-
ar samúðarkveðjur.
Guttorm Vik,
sendiherra Noregs
á Íslandi.
Flestir eru sammála um að fátt
hafi skilað okkur Íslendingum meiri
ávinningi á fjölmörgum sviðum þjóð-
lífsins undanfarin ár en EES-samn-
ingurinn. Auðvitað koma margir að
slíkri samningagerð. Stjórnmála-
menn og embættismenn leggja sitt af
mörkum, hver á sínu sviði. Ég held að
á engan sé hallað þótt það sé fullyrt,
að fáir hafi átt jafnmikinn þátt í þeim
ágæta samningi sem Ísland náði og
Hannes Þórður Hafstein. Fyrir okk-
ur sem þekktum hann kom þetta ekki
á óvart. Við vissum að öll hans störf
einkenndust af skýrri sýn á þau
markmið sem stefnt var að, og þraut-
seigju og vilja til að ná árangri. Þar
sem Hannes fór fór virtur embætt-
ismaður sem skilaði árangri sem
skipti máli.
Sá sem þetta skrifar kynntist emb-
ættismanninum Hannesi ekki mikið.
Hannes var að vísu orðinn embætt-
ismaður, eins og þeir gerast bestir,
þegar ég sem stúdent í Stokkhólmi
kynntist þeim hjónum, Hannesi og
Ragnheiði. Ég man vel hversu stoltir
við Stokkhólmsstúdentar vorum af
okkar manni, hvernig hann bar sig
eins og „statesman“ þegar íslenskir
aðkomustúdentar, sem stunduðu
nám í „sveitabæjunum“ Uppsölum
og Lundi, réðust inn í sendiráð Ís-
lands í Stokkhólmi og hertóku það.
Á þessum stúdentsárum í Stokk-
hólmi varð ég heimagangur á heimili
þeirra hjóna. Þau leyfðu mér að taka
þátt í sínu lífi eins og ég væri einn af
fjölskyldunni. Það er í raun ekki mik-
ill aldursmunur á okkur, svo ég hef
aldrei alveg gert mér grein fyrir því,
hvort ég leit á þau sem eldri systkini
mín eða viðbótarforeldra.
Á heimili þeirra lærði ég að passa
börn og skipta um bleiur. Þar hitti ég
líka marga ættingja og vini þeirra
Hannesar og Ragnheiðar, sem síðan
urðu einnig mínir vinir.
Á þessum tíma voru börnin fyrst
eitt, Ásgerður Katrín, og síðar tvö,
þegar Ásta Ragnheiður kom í heim-
inn. Valdimar Tryggvi og Soffía Lára
fæddust eftir að við höfðum öll yf-
irgefið Stokkhólm. Ég lít á það sem
mikil forréttindi að hafa kynnst
Hannesi, Ragnheiði og börnunum.
Hér verða ekki tíundaðar minningar
tengdar badminton- og fótboltaæf-
ingum, eða tilraunum Hannesar og
Ragnheiðar til að glæða skilning
minn á óperum og æðri listum, eða
aðrar góðar samverustundir. Þarna
varð til vinátta sem hefur þróast og
dafnað. Í seinni tíð hafa samveru-
stundirnar þó verið allt of fáar.
Við sendum þér, elsku Ragnheið-
ur, börnum, tengdabörnum og
barnabörnum og einnig Sigurði,
bróður Hannesar, og hans fjölskyldu
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Davíð og Elín.
ÞRJÁR ungar stúlkur, Lilý Erla
Adamsdóttir, Valdís Ösp Jónsdóttir
og Una Guðlaug Sveinsdóttir, halda
til Moskvu í Rússlandi í næsta mán-
uði og taka þátt í Evrópukeppni
ungra vísindamanna. Þær tóku þátt í
keppninni Ungir vísindamenn sem
fram fór í Reykjavík síðastliðið vor
og er skemmst frá því að segja að
verkefni þeirra bara sigur úr býtum
í keppninni. Verkefnið nefnist
„Cuddle my clothes“ eða Nuddgall-
inn, en upphaflega hét það „Nudd og
nálægð og var einnig lokaverkefni
þeirra í uppeldisfræði í Mennta-
skólanum á Akureyri, en allar braut-
skráðust stúlkurnar þaðan í júní síð-
astliðnum.
Um er að ræða samfellu með
merkingum sem sýna strokur sem
notaðar eru í ungbarnanuddi og
og athugun á því hvort foreldrar
nýti sér frekar ungbarnanudd sem
þeir hafa lært ef þeir hafa aðgang að
slíkri flík.
Stúlkurnar kynntu verkefni sitt í
Íslandsbanka í vikunni. Um var að
ræða eins konar lokaæfingu fyrir
keppnina í Moskvu, sem fram fer 17.
september næstkomandi.
Þátttakendur í Evrópukeppni ungra vísindamanna, Lilý Erla Adamsdóttir,
Valdís Ösp Jónsdóttir og Una Guðlaug Sveinsdóttir. Þær keppa til úrslita í
Moskvu í Rússlandi 17.–22. september nk. með verkefni sitt.
Kynntu Nuddgallann
FRÉTTIR
Í frétt í blaðinu sl. laugardag um
nefndarsetu Jónatans Þórmunds-
sonar lagaprófessors í yfirskatta-
nefnd sagði ranglega að ársreikning-
ur Norðurljósa hf. fyrir árið 2003
hefði verið móttekinn hjá Ríkisskatt-
stjóra 2. maí 2004. Hið rétta er að
hann var móttekinn 2. maí 2005.
Þetta leiðréttist hér með.
LEIÐRÉTT
Rangt ártal
SÍMINN mun á næstu mánuðum
taka í notkun nýja tækni sem auka
mun hraða á gagnaflutningi í far-
síma, að því er kemur fram í frétta-
tilkynningu frá fyrirtækinu.
Um er að ræða tækni sem nefnist
EDGE og er hún skref í átt að þriðju
kynslóðar farsímaþjónustu, en með
henni eykst gangnaflutningshraði
um GPRS-kerfi. Helstu breytingar
sem viðskiptavinir finna fyrir með
EDGE er aukinn gagnaflutnings-
hraði. Segir í tilkynningunni að hrað-
inn geti orðið allt að fjórfalt meiri en
nú þekkist í GPRS-kerfi.
Fyrir viðskiptavini sem tengja
fartölvur mikið við farsímana verður
leiðin einnig miklum mun greiðari.
Mun Síminn á næstu mánuðum
kynna fjölda þjónustutegunda sem
nota EDGE-tæknina sem flutnings-
leið.
Síminn nýtir
EDGE-tækni
ÁHUGAHÓPUR hefur staðið fyrir
söfnun á augnmús vegna aðstæðna
Magneu Karlsdóttur (Maggýjar) í
Hveragerði, sem greindist með MND
fyrir rúmum þremur árum, eins og
fram hefur komið í fjölmiðlum og víð-
ar.
Skv. upplýsingum aðstandenda
söfnunarinnar hefur hún gengið
framar vonum og nú er svo komið að
safnast hefur fyrir músinni og vel það.
„Þegar búið er að borga augnmúsina
og nauðsynlegan búnað með henni er
afgangur af söfnunarfénu. Hefur því
verið ákveðið að fela stjórn MND-fé-
lagsins og fagaðilum MND-teymisins
að ráðstafa þeim fjármunum til kaupa
á tækjabúnaði sem nýtist þeim sem
glíma við sjúkdóminn.
Maggý hefur nú þegar fengið
augnmúsina til afnota. Henni er
stjórnað með augnhreyfingum og
mun það auðvelda henni að skrifa á
tölvuna og halda þannig áfram að eiga
samskipti við fjölskyldu og vini á þann
hátt. Hægt er að fylgjast með hetju-
legri baráttu hennar og fjölskyldu
hennar við sjúkdóminn í gegnum
skrif Maggýjar á heimasíðu hennar
http://www.blog.central.is/magneak.
Magnea Karlsdóttir og fjölskylda
vilja þakka öllum þeim fjölmörgu fyr-
irtækjum og einstaklingum sem
lögðu söfnuninni lið, fyrir stuðning-
inn,“ segir í fréttatilkynningu.
Söfnun vegna
augnmúsar
er lokið
♦♦♦